Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLl 1986 LÉREFTS BARNASKÓR MEÐ FÓTLAGI OG RIFLÁS Stærðir: 20-27 Litir: hvítt, blátt og bleikt Einnig nýkomið mikið úrval af mörgum gerðum fyrir konur, karla og börn. SIEME NS -IÐNTÖLVUR f ævintýrinu kyssir kóngsdóttirin frosk- inn og fram kemur glæsilegur prins. Þu breytir aft visu ekki gömlu rafliðakerfi með einum kossi en símtal eða heimsókn til okkar kemur þér á rétta sporið. Og prinsinn í þessu stórkostlega ævintýri er auðvitað SIEMENS-iðntölva. Iðntölvuf jölskylda Siemens heitir SIMATIC S5. Inn- an hennar er SIMATIC S5-115U sem náð hefur veru- legum vinsældum hérlendis enda er það ekki undar- legt þegar skoðuð er geta og hagstætt verð þessarar tölvu. Þó að sjón sé sögu rikari skal SIMATIC S5-115U lýst hér í nokkrum orðum: ★ Það tekur 18 msek. að framkvæma lK-skipanir. ★ Innra minni rúmar allt að 5K-skipanir. Stækkunarminni (RAM/EPROM/EEPROM) hefur allt að 16K rýmd. ★ Fjöldi flagga er 2048. ★ Fjöldi tímaliða er 128 á bilinu 10 msek. upp í 9990 sek. ★ Fjöldi teljara er 128 með sviðið 0—999 (upp/niður). ★ Allt að 1024 stafrænir inngangar og 1024 útgangar. ★ Mest 64 hliðrænir inngangar og 64 útgangar. ★ Ýmsir tengimöguleikar: Hægt er að tengjast öðrum töivum (t.d. IBM eða Digital), mótöldum eða öðrum iðntölvum í tölvunet, hvort heldur með samskiptakerfinu SINEC L1 eða SINECHl. ★ Fáanleg eru jaðartæki sem forvinna inngangsmerki. Ha£ið samband við sérfróða tæknimenn olcltðr SMITH OGIMORLAIMD Nóatúni 4, s. 28300. Morð- • brellur á morð- brellur ofan Kvikmyndir Arnaldur Indriðason F/X morðbrellur (F/X Murder by Ulision). Sýnd í Háskólabíó. Sljörnugjöf: ☆ ☆ V2 Bandarísk. Leikstjóri: Robert Mandel. Handrit: Robert T. Megginson og Gregory Flee- man. Framleiðendur: Dodi Fayed og Jack Wiener. Tónlist: Bill Conti. Helstu hlutverk: Bryan Brown, Brian Dennehy, diane Venona og Cliff De- Young. Rollie Tyler (Brian Brown) er brellumeistari, þ.e. maður sem sér um að fólk drepist eðlilega í bíó- myndum. Hann er sérlega fær á sínu sviði a.m.k. ef marka má upphafsatriði myndarinnar en í því er sviðsett fjöldamorð á veit- ingastað og allt löðrar í tómat- sósu. Tyler er hégómagjam og fær aldrei nóg af hrósi svoleiðis að dag einn þegar Lipton (Cliff DeYoung) frá dómsmálaráðu- neytinu kemur til hans og biður hann að hjálpa ráðuneytinu að sviðsetja morð á frægum mafíósa þarf hann bara að segja Tyler að hann sé bestur í bransanum til að hann segi já og amen við öllu. Og þegar hann er beðinn að sjá um að skjóta mafíósan sjálfur (í þykjustunni auðvitað) er nóg að segja að hann sé eini maðurinn í heiminum sem geti gert það al- mennilega til að Tyler taki það að sér. En það er greinilegt að Tyler hefur ekki gert mikið af glæpa- myndum um dagana (flestar myndir sem hann hefur unnið við heita „Viðundrin frá Mars“ og „Eg hlutaði mömmu í sundur“ eða eitthvað svoleiðis) því þá vissi hann að ef það kemur einhver náungi frá dómsmálaráðuneytinu til þín og biður þig að setja á svið morð, er eins víst að þú verð- ir kominn í lífshættulegt klandur áður en þú getur svo mikið sem sagt svei þér. Maður talar nú ekki um ef einhver eins og DeYo- ung leikur þennan náunga, falsk- ur og undirförull eins og hann alltaf er. Og fljótlega fara líkin að hrann- ast upp í hinni ágætu spennu- mynd, F/X morðbrellur, sem sýnd er í Háskólabíó. Leikstjórinn, Robert Mandel, og handritshöf- undamir, Robert T. Megginson og Gregory Fleeman, hafa gott auga fyrir hinu kómíska. Þótt myndin sé kannski ekki alltaf þrungin spennu og hasar og sé ósköp lengi að koma sér að aðal- efninu, lýsir hún skemmtilega baráttu viðvangsins Tylers við atvinnumeninnina í ráðuneytinu. Hann gerir þeim greiða og þeir launa honum með því að reyna að drepa hann. Eftir það snýst myndin að mestu um það hvemig honum tekst að vinna á óvininum og senda menn inn í eilífðina með ýmsum kvikmyndalegum belli- brögðum. Astralski leikarinn, Bryan Brown (Breaker Morant, Þyrni- fuglamir), sker sig skemmtilega úr hinum ameríska leikarahópi með sínum ástralska hreim og rólyndislega húmor. Tyler er hræðilega barnalegur í fyrstu í viðureign sinni við bófana. Það fysta sem hann gerir þegar hann hefur komist að því að náungam- ir í ráðuneytinu vilja kála honum er að fara til kærustunnar sinnar og hún er auðvitað skotin. Þá hefur hann strax samband við næstu vinkonu sína og verður ógurlega hissa þegar hann tekur eftir að henni er veitt eftirför. Um það leyti ætti hann að vera farinn að skilja að hetjan er alltaf ein og verður að sjá um að koma sínu á hreint sjálfur. Það er eng- um að treysta. Brian Dennehy leikur lögreglu- mann, sem kemst á snoðir um að ekki sé allt eins og það eigi að vera í ráðuneytinu og Dennehy leikur hlutverkið eins og öll hin aukahlutverkin sín, með frekju og látum; Cliff DeYoung og Mason Adams em sérlega spilltir og illa þenkjandi ráðuneytisstarfsmenn, sem ætla að sviðsetja morðið á mafíósanum og fara svo með hon- um til Sviss að ná í milljón dollara sem hann hefur sankað að sér í gegnum árin; Diana Venora leikur Ellen vinkonu Tylers, sem skotin er og Martha Gehman leikur hina vinkonu hans og er ekki sérlega efnileg leikkona. Eskifjörður: Bók og hátíð í til- efni 200 ára afmælis Eskifjörður í máli og myndum 1786—1986, nefnist bók eftir Ein- ar Braga rithöfund, sem nýkomin er út. Hún er fimmta og siðasta bindið af „Eskju“, söguriti Eskfirðinga. Hún er gef- in út af tilefni 200 ára afmælis Eskifjarðar sem verður 18. ágúst í sumar. Alls er Eskja 1360 blaðsíður með 730 myndum. Afmælisritið sem nú kemur út er 151 blaðsíða. Aðalefni bókarinnar eru 120 ljósmyndir af staðnum og úr bæjarlífinu, með ítarlegum skýringartextum. Ritið hefst með langri ritgerð sem kallast „Annálsbrot úr sögu Eskiíj'arðar" og fylgir því úrdráttur á norsku. Síðan taka myndimar við og eru þær valdar þannig að þær eiga að sína þróun byggðar og atvinnulífs, og bregða upp svipmyndum af menningar- og félagslífi staðarins. Aftast í bókinni er skrá yfír fyrir- menn staðarins fram að síðustu sveitarstjórnarkosningum. Framan á kápu er mynd af Gömlubúð. Hún er 150 ára gamalt verslunarhús frá dögum verslunar 0rum & Wulf, sem var á seinustu öld ein öflugasta danska verslunin hér á landi. Húsið hefur nýlega Einar Bragi rithöfundur verið endurbætt, og hýsir það nú Sjóminjasafn Austurlands auk sýn- ingargripa úr sögu Eskiíjarðar. í undirbúningi er stórhátíð sem stendur í heila viku, 18. til 24. ágúst. Þá verður þess minnst að 18 ágúst verða 200 ár liðin frá því að Eskifjörður fékk kaupstaðarrétt- indi, ásamt fimm öðrum stöðum, þ. á m. Reykjavík. Vildi danska stjómin stuðla að eflingu íslands með því að koma hér á fót þétt- býli. Skúli Magnússon landfógeti mun hafa bent á Eskifjörð sem kaupstaðarstæði, en þá stóð þar bara eitt kotbýli. Heldur illa gekk að fá borgara til að setjast að í nýja kaupstaðnum og fór svo að Eskifjörður missti kaupstaðarrétt- indin. Laugardaginn 16. ágúst verða haldnir popptónleikar og dansað á eftir. Eiginleg hátíðarhöld hefjast svo mánudaginn 18. ágúst með opnun tveggja málverkasýninga, sýningar á handmáluðu postulíni og ljósmyndasýr.ingu. Spannar hún nærri eina öld, en mikið er til af ljósmyndum frá Eskifirði þar sem atvinnuljósmyndarar hafa starfað þar frá því á seinustu öld. Þriðjudagurinn 19. ágúst verður helgaður tónlistarefni, m.a. mun Eskjukórinn halda söngskemmtun. 20. ágúst verður aðaláherslan lögð á íþróttir og unglingana. 21. ágúst mun forsetinn, Vigdís Finnboga- dóttir, koma í heimsókn. Um kvöldið verður samkoma þar sem m.a. margir landskunnir listamenn, sem ættir eiga að rekja til Eskifjarð- ar, koma fram. 22. ágúst verður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.