Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ1986
daga þegar hann fer að blása af
sunnan", sagði Adolf ennfremur.
Hlýtt var I veðri þennan dag
og ekki var að finna, að kuldi
fylgdi nálægð hafíssins. Adolf
sagði að hiti hefði dottið aðeins
niður nú um helgina og líklega
myndi eitthvað kólna ef vindur
færi að standa af ísnum. „En
hann spáir sunnanátt svo að þetta
verður horfíð eftir nokkra daga“,
sagði hann.
Landsmönnum hefur löngum
stafað nokkur ógn af hafísnum,
en óneitanlega var það fögur sjón
sem við blasti þegar gengið var
um fjörurnar við Trékyllisvík. Og
ekki var að sjá að bömin á Finn-
bogastöðum, Guðbrandur Óli
Albertsson 11 ára, Oddrún Inga
Albertsdóttir 9 ára og Linda Björk
Guðmundsdóttir 4 ára, teldu sig
hafa neitt að óttast af hans hálfu.
Þau brugðu á leik í fjörunni, á
jökunum sem þar voru reknir á
land. Guðbrandur Óli kvaðst hafa
brugðið nokkuð þegar hann vakn-
aði upp á sunnudagsmorguninn á
sá að allt var orðið fullt af ís, en
þetta hefði vanist strax og núna
fannst honum þetta „ekkert sér-
stakt“.
Heimamenn töldu ólíklegt að
hafísinn myndi hafa nokkur áhrif
á á daglegt líf þeirra, nema þá
að hann færi að gera sig heima-
kominn til lengri tíma. „Hann
gæti auðvitað haft áhrif á sjósókn
ef hann helst eitthvað“, sagði
Adolf sem rekur trilluútgerð auk
starfa sinna við flugvöllinn. „Hins
vegar er oft góður fískur við
ísrendumar og þeir hafa verið að
fá þar góðan físk að undanfömu".
Isinn virtist einna þéttastur í
fjörunni við Trékyllisvfk. Þá var
einnig talsverður ís við bæina
Litlu-Ávík og Stóm-Ávík undir
Reykjameshymu og talsverður ís
var í fjömnni við bæina Krossanes
og Fell við norðanverðan Norður-
fjörð. Við strandlengjuna þar
norður af var ekki landfastur ís
allt norður fyrir Hombjarg.
ískort, sem Veðurstofan gerði samkvæmt skýrslu Landhelgis
ÞAÐ var heldur kuldalegt um að litast á norðanverðum
Húnaflóa í gærdag þegar blaðamaður og ljósmyndari
Morgunblaðsins flugu yfir hafísinn sem nú hefur sótt
Strandamenn heim. Þessi landsins forni fjandi spyr greini-
lega ekki um árstíma þegar hann vill minna á sig. Ekki er
þó einsdæmi að hafís sjáist á þessum slóðum um hásuma-
rið þótt fátíðara sé, að hann taki land eins og hann hefur
nú gert sunnan við Drangaskörð, á Munaðarnesi, i Norður-
firði og á Trékyllisvík.
Heimamenn þar vestra virtust
þó ekki hafa kippt sér mjög upp
við þessa óvæntu heimsókn. „Við
höfum svo sem séð hann áður á
þessum árstíma", sagði Adolf
Thorarensen flugumsjónarmaður
á Gjögri, sem var fylgdarmaður
okkar Morgunblaðsmanna á
svæðinu. Hann er borinn og barn-
fæddur á Ströndum og mundi
nokkur tilfelli þar sem hafís varð
landfastur á miðju sumri, þótt
ekki væri það að vísu algengt.
„Þetta hverfur aftur eftir nokkra
Séð yfir fjöruna í Trékyllisvík.
Morgunblaðið/Þorkell
Krakkarnir á Finnbogastöðum, Linda Björk, Guðbrandur Óli og Oddrún Inga, voru hvergi banginn við ísinn. Með þeim á myndinni
er hvolpurinn Gulli og faðir hans Úlfur, sem neitaði að láta ljósmyndarann sjá framan í sig.
Hafís á Ströndum:
„Við höfum svo sem
séð hann
áður“
Svipast um á haf ís-
svæðinu fyrir vestan
gæslunnar eftir könnunarflugið í gær. Eins og sjá má er ísinn „Hann verður farinn eftir nokkra daga,“ sagði Adolf Thorarensen, sem hér er í fjörunni neðan
aðeins landfastur á litlu svæði norður af Reykjarneshyrnu. við bæinn Stóru-Ávík.