Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1986
25
Stjórnir Frakklands og Nýja Sjálands:
Samkomulagi náð í Rain-
bow WajTÍor-deilunni
París, AP.
STJÓRNIR Frakklands og Nýja Sjálands náðu um helgina samkomu-
lagi í deilumáli vegna skips Greenpeace-samtakanna, Rainbow
Warrior, sem sprengt var í loft upp í fyrra að tilhlutan frönsku
leymþjónustunnar.
Frakkar hafa samþykkt að biðj-
ast formlega afsökunar á framferði
leyniþjónustunnar og greiða sjö
milljónir dollara í skaðabætur.
Nýsjálendingar skuldbinda sig til
að sleppa tveimur frönskum leyni-
þjónustumönnum, karli og konu,
úr fangelsi. Samkvæmt samkomu-
laginu munu þau dveljast næstu
þijú ár í herstöð Frakka á eyju í
Suður-Kyrrahafi.
Danmörk:
Pólverjar
biðja um hæli
Kaupmannahöfn, AP.
TVEIR ungir pólskir íþrótta-
menn báðu um pólitískt hæli í
Danmörku um helgina og hefur
þeim verið komið fyrir í vörzlu
Rauða krossins meðan mál þeirra
er til meðferðar hjá yfirvöldum.
Pólsku íþróttamennirnir eru 18
og 19 ára gamlir. Þeir voru í hópi
25 íþróttamanna frá Gdynia, sem
voru í vináttuheimsókn til Álaborg-
ar. Þriðji íþróttamaðurinn hvarf af
hótelinu, sem hópurinn gisti á, á
laugardagskvöld og hefur ekki til
hans spurzt síðan. Hópurinn átti
að halda-heimleiðis í gær.
Framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, Perez de Cuellar miðlaði
málum og gerði drög að því sam-
komulagi sem fulltrúar ríkjanna
tveggja gerðu með sér.
Sambúð Frakka og Nýsjálend-
inga hefur verið stirð frá því að upp
komst um aðild leyniþjónustunnar
að málinu, en einn maður lét lífíð
þegar skipinu Rainbow Warrior var
sökkt í höfninni í Auckland. Þá
stóðu yfír tilraunir Frakka með
kjamorkuvopn á eyjum þeirra í
Kyrrahafi, og ætluðu Grænfriðung-
ar að sigla inn á tilraunasvæðið í
mótmælaskyni. Franska stjómin
beitti stjómvöld á Nýja Sjálandi
viðskiptaþvingunum til að knýja á
um að leyniþjónustumennimir tveir
yrðu látnir lausir, en án árangurs.
Forsætisráðherra Frakklands,
Jacques Chirac, sagði í gær að
Frakkar hygðust hlíta samkomu-
laginu út í ystu æsar.
David Lange lét í ljósi ánægju
með lyktir málsins, en áður hafði
hann lýst yfír því að ekki kæmi til
greina að leysa leyniþjónustumenn-
ina úr haldi.
Flestum, sem stóðu að spreng-
ingunni á Rainbow Warrior, tókst
að flýja frá Nýja Sjálandi, en þau
tvö, sem náðust voru dæmd í tíu
ára fangelsi fyrir manndráp.
Talsmaður Chiracs sagði að
leyniþjónustumennimir yrðu ráðnir
til starfa við herstöð Frakka á einni þeirra. Þau mega ekki yfírgefa eyj-
af eyjum Frakka í Kyrrahafí, en una án samþykkis ríkisstjóma
ekki var greint nánar frá dvalarstað Frakklands og Nýja Sjálands.
Svíþjóð:
Átökum spáð
um áfengisskatt
Stokkhólmi, frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
BÚAST má við pólitiskum átökum um áfengismál í Svíþjóð
með haustinu. Stjórnarandstaðan hefur krafizt hærri skatta
á áfengi og bindindishreyfingin og áhrifamenn á sviði félags-
mála hafa fengið hluta stjórnarinnar til að leggja til að
skattamir hækki um 10%.
Bindindishreyfíngin hefur
hmndið af stað áróðursherferð í
fjölmiðlum og sakar þar Jafnaðar-
mannaflokkinn og kommúnista um
linkind og hik þegar áfengismál
séu annars vegar. Fjöldi þing-
manna þessara tveggja flokka mun
leggjast gegn hækkun áfengis-
skattsins þar sem það hefði áhrif
til hækkunar verðbólgu. Verka-
lýðssamtökin í Stokkhólmi segja
hækkun áfengisskatts hótun við
launþega, sem fallizt ^efðu á
óverulegar kjarabætur í ár gegn
loforði um að verðhækkunum yrði
haldið í skefjum.
Formaður stærstu bindindis-
samtaka Svíþjóðar, Kjell E. J.
Johansson, ritar grein í Afton-
bladet í gær og segir þar að
kommúnistar séu gíslar bindindis-
stefnunnar. Mun hann þar eiga
m.a. við það að oftlega eru birtar
myndir af formanni kommúnista-
flokksins, Lars Wemer, tevgandi
sterkan bjór í báti sínum.
Ef að líkum lætur hækkar
sænska þingið áfengisskattinn í
nóvember nk., en öruggt má telja
að samþykktin verður ekki hávaða-
laus. Með þvi að samþykkja
hækkunina ekki fyrr hefði hún
ekki áhrif til hækkunar eftirlauna-
greiðslna árið 1987. Kæmi það
niður á lífeyrisþegum, sem samtals
eru rúmlega tvær milljónir. Stefnir
því allt í heitar pólitískar deilur
um áfengisskattinn í haust.
0DEXION
heldur utan um
hlutina
MAXI-plastskúffur
varðveita smáhluti
Fyrirliggjandi:
* Margar stæröir
* Litir: Gulur
Rauöur
Grænn
Blár
Gerðar af meistarahöndum
Útsölustaöir:
LANDSSMIÐJAN HF. — Verslun
Ármúla 23 - Slmi (91 >20680
STRAUMRÁS SF. — Akureyri
Slmi (96)26988
HARALD JOHANSEN — Skipa- og
byggingavöruverslun
Seyöisfiröi — Slmi (97)2205
LANDSSMIÐJAN HF.
ÞRUMUTÆKI
IBI*. frá
VIDEOTÆKI
VX-510TC
Frábært tæki á verdi sem alfir ráda vid
Adeins
31 -900 stgr.
LMASJONVARP
CBl
20 töpimu
m/fjaritýringu
20 rásfr
video inngangur
Aðeins
29.950
'f
Laugavegi 63 — Síml 62 20 25