Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ1986 (•V/ara HamarshnfAa 1 Hamarshöfda 1 Símar 36510 og 83 Viðskiptaráðherra Sviss sæmd- ur æðsta heiðursmerki HSÍ Dr. Kurt Furgler, viðskipta- ráðherra Sviss, var hér á landi nýlega vegna EFTA-ráðstefn- unnar. Dr. Kurt Furgler hefur gegnt nokkrum öðrum ráðherra- embættum í Sviss og einnig verið forseti Sviss. Hann er mikill áhugamaður um handknattleik, er sjálfur svissnesk- ur meistari í þeirri íþróttagrein með Grashoppers, þá hefur hann verið formaður svissneska handknatt- leikssambandsins og var heiðurs- forseti undirbúningsnefndar svissneska handknattleikssam- bandsins, sem skipulagði heims- meistarakeppnina í Sviss 1986. Hann tók þar vel á móti Steingrími Hermannssyni, forsætisráðherra og Matthíasi A. Mathiesen, utanríkis- ráðherra, þegar þeir heimsóttu Sviss til að fylgjast með keppninni. Þá kvaddi dr. Kurt Furgler íslenska landsliðið sérstaklega í lokahófi keppninnar og óskaði því góðs gengis í Seoul 1988. Meðan á heimsókn dr. Kurts Jón Hjaltalín Magnússon formaður Handknattleikssambands íslands sæmir dr. Kurt Furgler æðsta heiðursmerki sambandsins. Furgler til íslands stóð vegna EFTA-ráðstefnunnar fékk stjórn HSÍ tækifæri til að þakka fyrir móttökumar í Sviss og sæmdi hann æðsta merki HSÍ fyrir störf að efl- ingu handknattleiksíþróttarinnar á alþjóðlegum grundvelli og fyrir ánægjulegt samstarf milli svissn- eskra og íslenskra handknattleiks- manna. Viðstaddir afhendinguna voru f.v.: Jón Hjaltalín Magnússon formaður HSÍ, Sveinn Björnsson stórkaup- maður, ræðismaður Sviss, Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra, dr. Kurt Furgler, Sveinn Björnsson forseti fsf, Þorgils Othar Mathiesen landsliðsmaður í handknattleik og Sigurður Magnússon fram- kvæmdastjóri ÍSI. Kórinn i St. Pálskirkju i Kaupmannahöfn son kennari. Borgin hefði haft allt önnur áhrif á fólkið eftir ferðina en annars hefði verið. Góðar móttökur í Malmö Samband íslendingafélaganna í Svíþjóð tók mjög vel á móti kómum í Malmö. Félögin afhentu kómum 5.000 sænskar krónur í styrk og kom hann sér mjög vel. Það var Guðjón Högnason, sem búsettur hefur verið í Malmö síðan 1969, sem var frumkvöðull að móttökunum í Malmö. Guðjón hitti kórfélagana í Kaupmannahöfn og fylgdi kómum á sænskri gmnd. Þegar kom til Lundar tók Gösta Holm, prófessor við Lundarháskóla á móti kómum og sýndi dómkirkj- una. Kórinn fékk mikið hrós fyrir söng sinn hjá organistanum við dómkirkjuna og í Sydsvenska Dag- bladet var farið lofsamlegum orðum um sönginn. Síðar um daginn var sungið á útisviði í Pildammsparken í Malmö. Þar var kómum og vel tekið og hann klappaður upp. Tónleikamir þar og í Lundi vom teknir upp og síðan fluttir í svæðisútvarpi íslend- ingafélaganna í Svíþjóð. Anægjuleg kveðjustund í lok ferðarinnar hélt kórinn söngstjóra sínum Jóni Inga Sigur- mundssyni, ánægjulega kveðju- stund á Kastmp-flugvelli. Eftir að hafa afhent honum 42 rósir og kvatt með kossi gekk hópurinn syngjandi upp stigana í flughöfn- inni og inn í fríhöfnina. „Þetta var mjög samstilitur hópur og skemmti- legur," sagði Jón Ingi. Þess má geta að starfsfólk Samvinnuferða/ Landsýnar kvaðst aldrei hafa upp- lifað slíka kveðjustund sem þá í flughöfninni þegar kórinn hélt heim. Sig. Jóns. Á Kastrupflugvelli Selfossi. í lok maí hélt kór Fjölbrauta- skóla Suðurlands í söngför til Danmerkur og Svíþjóðar og hélt fjölda tónleika m.a. í St Páls- kirkjunni í Kaupmannahöfn og Dómkirkjunni í Lundi. Ferð þessi átti sér langan aðdraganda og undirbúning. Kórfélagar unnu ötullega að því að fjármagna ferðina, gáfu m.a. út snældu með söng kórsins, héldu tónleika o.fl. Einnig naut kórinn velvilja fjöl- margra, fyrirtækja og einstakl- inga sem styrktu kórinn til fararinnar. Ferðin tókst I alla staði vel og söng kórsins var vel tekið, m.a. af einum gagnrýn- anda Sydsvenska Dagbladet í Malmö. Hvatinn að ferð þessari var sá að kór frá Horsens (Danmörku kom í heimsókn til Selfoss og átti kvöld- stund með kór íjölbrautaskólans ^ snemma vetrar. Þá var það bundið fastmælum að kóramir hittust á danskri grund. Vinabæjarheimsókn ungs fólk í ferð sinni sameinaði kórinn söngferð, skemmtiferð og vina- bæjaheimsókn, en mikill áhugi er nú fyrir því að virkja vinabæjaheim- sóknir þannig að ungt fólk fái tækifæri til að kynnast nágrönnum okkar á hinum Norðurlöndunum. Ferðir sem þessi og ferðir íþrótta- fólks eru kjörinn vettvangur vina- bæjasamskipta og verða unga fólkinu eftirminnilegar, ásamt því að skapa grundvöll til aukinna kynna meðal fólks. Tónleikar og’ tækifærissöngnr Kórinn hélt þrenna tónleika á Jótlandi. Fyrst í nýreistu ráðhúsi í Horsens, í Lególandi og í Mariehöj- kirkju í Silkiborg, vinabæ Selfoss. í Kaupmannahöfn hélt kórinn tón- leika í Pálskirkju og í Jónshúsi. Tvennir tónleikar voru haldnir í Svíþjóð, í dómkirkjunni í Lundi og á útileiksviði í Pildammsparken í Malmö. Auk þess hélt kórinn stutta tónleika í tónleikahöllinni í Arósum og söng fáein lög við ýmis tæki- færi svo sem í Krónborgarkastala, í Frúarkirkju í Óðinsvéum, í flug- höfnum, feijum og fleiri stöðum þar sem aðstæður buðu upp á söng og gamanmál. Sérstök upplifun að syngja í Dómkirkjunni „Það var sérstök upplifun að syngja í dómkirkjunni í Lundi," sagði Ásmundur Sverrir Pálsson, einn kennaranna í kómum, og Jón Ingi Sigurmundsson kórstjóri tók undir orð Ásmundar og bætti við að það þyrfti helst 100 manna kór í dómkirkjuna svo söngurinn hljóm- aði vel í svo stóm húsi. Himmelbjerget var öðruvísi „Móttökur vom allar mjög góð- ar,“ sagði Jón Ingi Sigurmundsson kórstjóri eftir ferðina. „Skólastjóri tónlistarskólans í Horsens, Jens Peder Frederiksen, tók á móti okk- ur og hópnum var öllum dreift á einkaheimili sem gerði dvölina í Horsens sérstaka. Við héldum tón- leika í Horsens sem vom allir vel sóttir og mjög góð stemmning á þeirn öllum." í vinabænum Silkiborg virtist einhver misskilningur vera á ferð- inni varðandi tónleikahald en úr þvi rættist. Formaður Norræna félags- ins á staðnum tók á móti hópnum og farið var i siglingu um vötnin í kringum borgina og m.a. farið að hinu fræga fjalli Himmelbjerget og það klifíð. „Umhverfíð er þama mjög fallegt og allt öðravísi en maður hafði hugsað sér og bara býsna gott útsýni af Himmelbjerg- et,“ sagði einn þátttakendanna. Ágúst Sigurðsson, prestur í Kaupmannahöfn, leiddi fólk um Is- lendingaslóðir í stórborginni. „Það var serstök upplifun að fara i þá ferð,“ sagði Ásmundur Sverrir Páls- I ráðhúsinu í Horsens Söngför kórs Fjölbrautaskóla Suður- lands til Danmerkur og Svíþjóðar y

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.