Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1986
Plastiðjan
yfirtekur
Ako-pokann
Akureyri.
1. JÚLÍ síðastliðinn yfirtók
Plastiðjan Bjarg á Akureyri
plastpokadeild Plasteinangr-
unar hf., Ako-pokann.
í fréttatilkynningu frá Bjargi
segir: „Hér er um veruleg þátta-
skil í starfsemi Plastiðjunnar að
ræða þar sem fyrirtækið hefur
fram til þessa sérhæft sig í fram-
leiðslu á raflagnaefni í bygging-
ariðnað. Þessi sérhæfing hefur
haft í för með sér að sveiflur í
byggingariðnaði hafa endur-
speglast í starfsemi Plastiðjunn-
ar. Með tilkomu plastpokafram-
leiðslunnar verður hér veruleg
breyting á. Plastiðjan Bjarg, og
nú Ako-pokinn, eru í eigu Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra á
Akureyri og nágrenni, sem hefur
það m.a. á stefnuskrá sinni að
stuðla að auknum atvinnutæki-
færum fyrir fatlaða. Með tilkomu
Ako-pokans er gert ráð fyrir að
þar verði störf fyrir 4-6 fatlaða
starfsmenn. í framhaldi af þessu
vill Sjálfsbjörg koma á framfæri
sérstöku þakklæti til stjórnar og
framkvæmdastjóra Plasteinangr-
unar hf., þar sem fram hefur
komið í samningi um kaupin sér-
stakur velvilji í garð félagsins."
Sveinn Bjömsson deildarstjóri
í Plastiðjunni sagði í samtali við
Morgunblaðið að tveir starfs-
menn sem unnið hafðu hjá
Plasteinangrun við framleiðslu
Ako-pokans kæmu til starfa hjá
Plastiðjunni, en annar þeirra,
Friðrik Ágústsson, hefur starfað
við plastpokaframleiðsluna frá
upphafí, frá árinu 1972.
Sveinn sagði að 10 dagar væra
síðan fyrstu þreifíngar um kaupin
hefðu farið fram — en skrifað
var undir samning í gær. „Eftir
fyrsta fund var ljóst að þetta var
mjög áhugavert fyrir okkur. Það
þarf að fara út í talsverðar fjár-
festingar til að vinna fyrirtækið
upp — fjárfestingar sem Plastein-
angran treysti sér ekki út í í
þessum hluta rekstursins þar sem
þeir era í miklum fjárfestingum
á öðram sviðum.“
Sveinn vildi ekki gefa upp
neinar tölur varðandi kaupverð á
fyrirtækinu, „en ég get sagt að
þeir komu mjög á móts við okkur
í þessum samningum".
Þáttur um
M-hátíðina
Akureyri.
35 mínútna þáttur um M-
hátíðina á Akureyri verður
sýndur í sjónvarpinu í kvöld.
Það er Samver sf. á Akureyri
sem gerði þáttinn fyrir
Ríkisútvarpið.
„Þetta er vonandi trúverðug
mynd af hátíðinni," sagði Ólafur
H. Torfason, sem hafði umsjón
með gerð þáttarins, í samtali við
Morgunblaðið. „Ég legg gífur-
lega áherslu á íslenska tungu,
eins og gert var á hátíðinni
sjálfri. Hátíðin einkenndist af
stórsókn Sverris Hermannssonar
til vemdunar íslenskri tungu —
ég læt það einkenni njóta sín.“
Flutt verða tónlist, erindi, ljóð,
söngur og sýndar svipmyndir af
málverkum sem sýnd vora á
hátíðinni og þá era viðtöl við
fjölda hátíðargesta.
31
Maraþonsund
á Tálknafirði
Tálknafirði.
Maraþonsund var synt í sund-
lauginni hér á laugardag og var
synt í 24 tíma samfleytt. Þátttak-
endur voru um 50 börn á aldrinum
7—15 ára. Hugmyndina að þessu
sundi átti Ingibjörg Guðmunds-
dóttir, íþróttakennari hér á staðnum
og var hún, ásamt Kristínu Magn-
úsdóttur, aðaldriffjöðrin í því að
hrinda þessu í framkvæmd, einnig
unnu foreldrar við tímatöku, skrán-
ingu o.fl.
Tilgangurinn með þessu sundi
var tvíþættur, annars vegar að efla
almennan sundáhuga, sem þó er
ærinn fyrir, sem meðal annars má
marka af því, að öll 7 ára böm hér
munu vera synd. Hins vegar var
tilgangurinn að safna fjárframlög-
um til framkvæmda við íþróttahús-
ið. Forsaga þess máls er sú, að
árið 1977 var tekin fyrsta skóflu-
stungan að nýju íþróttahúsi og*
félagsheimili hér á staðnum, og nú,
9 árum síðar, er húsið enn ekki
fokhelt, enda í mikið ráðist af fá-
mennu sveitarfélagi. Daginn áður
en sundið hófst gengu bömin fylktu
liði í hvert hús og fyrirtæki kaup-
túnsins og söfnuðu áheitum. Eins
og áður sagði hófst sundið kl. 5 í
gær og var synt stanslaust til kl. 5
í dag, samtals syntu krakkamir
60,540 km og má það teljast frábær
árangur, ef ekki Íslandsmet. Krakk-
arnir sýndu mikinn samhug og
dugnað og gistu mörg þeirra í tjöld-
um við sundlaugina og var þar glati
á hjalla. Veðurguðimir léku líka við
sundfólkið með björtu veðri en hiti
fór þó niður í 3 stig um nóttina.
Árangur söfnunarinnar lét ekki
á sér standa og söfnuðust um 200
þúsund krónur, meðal annars kom
áheit frá löngu brottfluttum Tálkn-
fírðingi. Ekki má gleyma framtaki
Kvenfélagsins Hörpu til styrktar
málefninu, en félagskonur efndu til
grillveislu nú í hádeginu við góðar
undirtektir gesta, allur ágóði rennur
að sjálfsögðu til íþróttahússins.
JoðBé
Börnin safna áheitum.
Leiðrétting'
í GREIN um Kattholt, húsbyggingu
Kattavinafélags íslands, þann 5.
þ.m. misritaðist húsnúmer núver-
andi aðseturs félagsins. Hið rétta
er Reynimelur 86 og er tekið við
framlögum þar. Einnig var rangt
farið með nafn kattar á mynd sem
fylgdi greininni, hið rétta er að
hann heitir Runólfur. Morgunblaðið
biðst velvirðingar á þessum mistök-
um. ■*
Yngstu þátttakendurnir ásamt timavörðum.
SPEEDi
m
I
Ferðanefnd BSRB
Grettisgötu 89
Sími 29644
105 Reykjavík
Fimm — landa — sýn —
Alpafjöllin frá öllum hliðum
Ferðanefnd BSRB býður upp á tveggja vikna rútuferð, auk viku
dvalar við Zell-am-see í Austurríki — 19. júlí — 10. ágúst
Örfá sæti laus vegna forfalla.
Beint f lug til Salzburg.
Frábær ferð sem kostar aðeins 46.000 krónur
Schaffhausen
2 nætur
•O—-
I
FERÐAAÆTLUN
Þýskaland
o
Salzburg
1 nótt
v i nou
-T.O
Sviss
250 km W ' 200 km
Fussen
----3 nætur ________________" •53/
O Zell am See
. 6 nætur
Austurríki \
Villach
■tí 2 nætur
^O
O
Lech
2 nætur
Innsbruck
"ÍSffto^ 03n*tur
íslensk fararstjórn.
Innifalið: Flug, gisting á góð-
um hótelum, þriggja og fjög-
urra stjörnu — með hálfu fæði
í rútuferðunum og akstri á milli
staða.
Meðan dvalið er í Zell, þurfa
þátttakendur að sjá sjálfir um
og kosta fæðið.
Allar nánari upplýsingar um ferðirnar eru gefnar á skrifstofu ferðanefndar
BSRB að Grettisgötu 89, eða í síma 29644, milli kl. 17.00 og 19.00 rúm-
helga daga.
O
11 a I í a
Cortina
2 nætur