Morgunblaðið - 08.07.1986, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 08.07.1986, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ1986 „Langaði fyrst og fremst að sýna nýjar hlið- ar á Reylgavík“ - seg’ir Páll Stefánsson ljósmyndari og höfundur ljósmyndabókar, sem út er komin vegna afmælis borgarinnar ÚT ER komin bókin „Reykjavík - A Fresh Portrait of Iceland’s Capital" eftir Pál Stefánsson ljósmyndara. Bókin hefur að geyma 80 litmyndir eftir Pál og er hún framlag Iceland Review til 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar. „Það er endalaust hægt að mynda í Reykjavík og aldrei hægt að vera fullkomlega ánægður, en öll verkefni hafa endi og hér segi ég stopp í bili,“ sagði^ Páll í sam- tali við blaðamann. „í raun vann ég ekki markvisst að bókinni í byij- un heldur greip þau tækifæri sem gáfust. Ef ég sá eitthvað nýtt, eitt- hvað spennandi, hugsaði ég myndina í bókina. Að lokum fór að komast mynd á verkið. Mér fínnst ég sjálfur ekki dómbær á bókina enda bólusettur gagnvart henni þar sem ég hef unnið það lengi við hana. Annars held ég að menn ættu ekki að dæma sjálfa sig sem afskaplega færa á sínu sviði því þá tapast á vissan hátt nauðsynleg sjálfsgagnrýni, sem hveijum manni er afar brýn. Mig langaði fyrst og fremst að sýna nýjar hliðar á Reykjavík, því umhverfi sem við sjáum á hveijum degi án þess að hugsa svo mikið um það. Það er erfítt enda tiltölulega vandalaust að búa til venjulega bók um Reykjavík, en til hvers?" Páll sagði að hugmyndin að bók- inni hefði fæðst í fyrravor jafnframt því sem óformleg beiðni hefði kom- ið frá Reykjavíkurborg og lauk hann myndatökum í janúar sl. „Ég byijaði að mynda með bókina I huga í fyrrasumar og um haustið fór ég að hafa áhyggjur af vetrar- myndum, sem urðu að vera hluti bókarinnar þar sem við höfum svo langan vetur. Ég lauk myndatökum í janúar sl. og fór þá að hanna bókina og raða efninu saman. Ég skipti því í fjóra kafla. Fyrstu síðurnar eru einskonar yfírlit af borginni frá morgni til kvölds, þá koma ýmsir tillidagar í Reykjavík og uppákomur, síðan fylgja myndir af vinnu og tómstundum borgarbúa og lokakaflinn er tileinkaður Reykjavíkurstemmningu og ólíkum árstíðum." Páll Stefánsson er 28 ára gam- all. Hann útskrifaðist árið 1982 frá ljósmyndaskóla í Gautaborg eftir tveggja ára nám þar og síðan hefur hann unnið hjá Iceland Review. „Ég T) arís er full af lífi og krafti, fjöri og ferðamanna- 1 lúxus. Þar blómstrar lifandi menning og sérdeilis lystaukandi matarlist; kræsingar fyrir líkama og sál á hverju götuhorni. Lúxus-Paris fyrir JB aðeins kr. 28.390.- Æ Í' þessum viku hópferðum 6. og 20. m ágúst er markmið okkar að stjana m við þig og láta París sýna þér sínar M bestu hliðar. Gist er á lúxushótelinu Lutetia jEV1 Concorde - einu glæsilegasta hóteli Parísar. ÆbT ** Ty ararstjórinn Ásiaug Jl Marinósdóttir gjör- þekkir borgina. Hún mun standa fyrir skoðunarferðum um París og Versali og leiðbeinaþéráeinn eða annan hátt. V' erð pr. mann í '||i tvíbýli erkr. 28.390.- W Verðið er mjög hagstætt því innifaliðer:Gisting, flug, morgunverður akstur fráog að flugvelli í París, skoðunarferðir og örugg íslensk fararstjórn. Góður barnaafsláttur. Ferðaskrifstofan Úrval v/Austurvöll. Simi (91) 26900. Heilsuskokk ^ Ábyrgðar og ÍR 4. vika 1. dagur — Upphitun — Skokka 200 M + ganga 200 M 2 sinnum — Skokka 300 M + ganga 200 M 2 sinnum — Skokka 100 M + ganga 100 M 2 sinnum — Skokka 300 M + ganga 200 M 1 sinni — Teygjur 2. dagfur — Upphitun — Skokka 2.800 M með skokki 400 M og göngu 200 M til skiptis — Teygjur 3. dagur — Upphitun — Skokka 100 M + ganga 100 M 2 sinnum — Skokka 300 M + ganga 200 M 2 sinnum — Skokka 200 M + ganga 200 M 3 sinnum — Skokka 100 M + ganga 100 M 1 sinnum — Teygjur Áfengi og heilbrigði Áfengið veldur ýmsu heilsutjóni og skaðar líkamann á margan hátt. Eitt af þeim líffærum sem áfengi gengur nærri er hjartað, en það skemmir t.d. vöðvafrumur þess. Sterkt og heilbrigt hjarta er ein af undirstöðum góðs árangurs með líkamsþjálfun. Víst þykir að áfengi dregur beinlínis úr starfsemi hjartans. Ein- kenni þess er einkum aukin mæði við áreynslu. Áfengi veldur því að rauðu blóð- komin límast saman. Blóðstreymi til líffæra og vöðva tregast af þess- um sökum. Það dregur verulega úr þoli og æfíngar skömmu eftir áfengis- neyslu því tilangslitlar. Áfengið veldur líkamanum ýms- um fleiri kárínum og fer það eftir tíðni og magni. Sá sem stundar líkamsþjálfun sér til heilsubótar hlýtur því að draga úr eða hætta áfengisneyslu alveg. (FrA Ábyrgð og ÍR) H

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.