Morgunblaðið - 08.07.1986, Side 15
15
lifi fyrir starfíð og er sívinnandi
enda er nokkur hluti myndanna
tekinn að nóttu til eða utan hefð-
bundins vinnutíma. Ég vildi leggja
áherslu á í bókinni að Reykjavík
væri lifandi borg. Ég geri mikið úr
mannlífinu því það er jú fólkið sem
byggir borgina _og er því stór hluti
umhverfisins. Ég lít á mig sem
bjartsýnismann og tek því skemmti-
legar myndir ef hægt væri að orða
það svo. Það má segja að bókin sé
glöð.“
Páll sagði að ekki væri vanda-
laust fyrir ljósmyndara að lýsa sínu
eigin umhverfi, því umhverfí sem
maður hefði lifað og hrærst í um
aldur og ævi. „Það er álíka og að
hafa verið giftur í 70 ár — maður
þekkir konuna sína nákvæmlega,
ekkert kemur manni á óvart í sam-
skiptum við hana. Ef maður hins-
vegar hittir nýja persónu er hún
spennandi í fyrstu, en eftir nokkurn
tíma er maður farinn að þekkja
hana. Það sama má segja um
Reykjavík — hún er gömul fyrir
mér og öðrum borgarbúum, en um
leið og við komum út fyrir land-
steinana, í annað umhverfí og aðrar
borgir, er það umhverfí allt svo
heillandi að manni fínnst þurfa að
festa á filmu allt það sem fyrir
augu ber. Sérstaklega finnst mér
New York skemmtileg. Hún er svo
margbreytileg fyrir ljósmyndarann
— borg sem aldrei sefur,“ sagði
Páll.
Vænta leið-
réttingar
hjá Kjaradómi
Sálfræðingar, félagsráðgjafar,
hjúkrunarfræðingar í Félagi há-
skólamenntaðra hjúkrunarfræð-
inga og aðrir starfsmenn innan
BHMR á geðdeild Landspítalans,
héldu fund sl. föstudag um kjara-
mál og væntanlega leiðréttingu
Kjaradóms á launum
BHMR-manna.
Fundurinn fagnar því að Kjaradóm-
ur skuli nú hafa í höndum nægjanleg
gögn sem sýna ótvírætt hinn mikla
mun, sem ríkt hefur á launum háskóla-
menntaðra ríkisstarfsmanna og þeirra
er vinna sambærileg störf á hinum
almenna vinnumarkaði.
Þvi væntir fundurinn þess að sú
lögvarða leið til leiðréttingar sem nú
er farin skili loks tilætluðum árangri.
(Fréttatilkynning)
Kosið aftur
til hrepps-
nefndar í
Landeyjum
NÝAFSTAÐNAR kosningar til
hreppsnefndar í Vestur-Land-
eyjum hafa verið dæmdar ógild-
ar vegna formgalla og verður
að kjósa þar á ný.
Að sögn Friðjóns Guðröðarsonar,
sýslumanns í Rangárvallasýslu, bar
ekki saman númmerum á fylgiskjali
með utankjörfundaratkvæði og
umslaginu sem því fýlgdi. „Atkvæð-
ið hefði átt að ógilda samkvæmt
stífum ákvæðum laganna en var
talið með,“ sagði Friðjón. „Síðan
þurfti að varpa hlutkesti og þá um
leið varð ljóst hvorum listanum
vafaatkvæðið var ætlað þannig að
meginreglan um leynilegar kosn-
ingar var þar með úr sögunni."
Tveir listar eru í framboði til
hreppsnenfndar, K-listi, borinn
fram af fráfarandi meirihluta
hreppsnefndar og H-listi. Á kjör-
skrá eru 130 manns og verða kosn-
ingarnar auglýstar nánar síðar.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1986
V estmannaeyjar:
Tilraun með laxeldi í
Eyjum komin á skrið
UM 10.000 laxaseiði komu sl.
föstudag til Vestmannaeyja en
þar er ÍSNÓ að koma upp laxeld-
isstöð.
„Hér er um tilraun að ræða og
verður komið með 40.000 seiði
hingað í sumar en 30.000 þeirra
eru enn ókomin," sagði Einar Sigur-
jónsson, forstjóri ísfélagsins í
Vestmannaeyjum, í samtali við
Morgunblaðið. „Við erum þegar
búnir að sjóvenja 12-1.500 seiði sem
komu hingað í tilraunasendingu og
hefur þeim verið sleppt í laxagirð-
inguna. Aætlað er síðan að slátra
í lok ársins 1987. Þá verður fískur-
inn orðinn um 2 V2 kíló að þyngd,
en sú stærð er mjög hentug fyrir
Bandaríkjamarkað. Við vonumst til
að fá ein 80-100 tonn út úr þessu.
Eins og stendur er þó ógerlegt
að spá fyrir um hvemig þessi til-
raun heppnast, það fer allt eftir því
hvernig fískinum vegnar yfír vetr-
armánuðina. Ef allt gengur að
óskum er stefnt að því að slátra
hér um 300 tonnum á ári í framtíð-
inni,“ sagði Einar að lokum.
Búríð, sem laxarnir verða geymdír í, dregið á sjó út. í búrínu eru
4 hólf sem í er nót. Til að byija með, meðan seiðin eru smá, verða
um 10.000 í hveiju hólfi.
Nú gefur Iðnaðarbankirm viðskiptaviniim sínum kost á að ávaxta fé sitt
á 18 mánaða bók eða reikningi
sem gefur enn hærri vexti en önnur boð bankans.
Fyrir þá sem vilja ná enn hærra
®
iðnaðarbankinn
-nútim Þanki
ŒB AUGlýSINGAÞjONUSTAN / SiA