Morgunblaðið - 08.07.1986, Page 20

Morgunblaðið - 08.07.1986, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ1986 íslandsheimsókn Margrétar Danadrottning’ar og Hinriks prins Nína Björk Leósdóttir 6 ára og Þóra M. Helgadóttir 5 ára færðu drottningu og forseta blóm við komu þeirra til Egilsstaða. Tekið á móti Margréti drottningu, Henrik prins og Vigdfsi forseta á Egilsstaðaflug- velli. Egilsstaðir: Ánægjuleg heimsókn Danadrottningar þrátt fyrir leiðinlegt veður EgQflstSðum. MARGRÉT Danadrottning og eiginmaður hennar, Henrik prins, komu flugleiðis til Egilsstaða frá Fagurhólsmýri um kl. 19.00 á laug- ardag ásamt forseta Islands, Vigdísi Finnbogadóttur, og fylgdarliði. Bogi Níelsson, sýslumaður Suð- ur- Múlasýslu, Sigurður Helgason, sýslumaður Norður-Múlasýslu, Jón- as Hallgrímsson, ræðismaður Dana á Seyðisfirði og Helgi Halldórsson, oddviti Egilsstaðahrepps, tóku á móti gestum á Egilsstaðaflugvelli ásamt eiginkonum og tvær ungar stúlkur frá Egilsstöðum færðu drottningu og forseta blómvönd. Veður var napurt, hiti um 7 stig og þokuslæðingur í lofti. Að lokinni móttökuathöfn á flug- vellinum heilsuðu Margrét drottn- ing og Henrik prins sem snöggvast upp á danska skáta er þama stóðu heiðursvörð, en skátahópur þessi hefur verið á ferðalagi hérlendis að undanfömu. Þessu næst var ekið að Hótel Valaskjálf þar sem snædd- ur var kvöldverður og gist aðfara- nótt sunnudagsins. Ráðgert var að halda til Borgar- fjarðar eystri að morgni sunnudags og snæða hádegisverð úti í guðs grænni náttúrunni, en hverfa varð frá þeirri áætlun vegna rigningar og kalsa. Þess í stað var ekið til Hafnar í Homafirði. A leiðinni til Hafnar var staldrað við á Lindarbrekku í Berufirði, þar sem hjónin Þórdís Guðjónsdóttir og Gunnar Guðmundsson, hreppstjóri, leiddu gesti til stofu og matreiðslu- meistarar Hótels Snæfells á Seyðis- firði framreiddu hádegisverðinn er ætlað var að snæða í Borgarfirði eystri. Þar vom ýmsar kræsingar á borðum, m.a. síldarréttir frá Verktökum hf. á Reyðarfirði og ósk drottningar um spenvolga mjólk að drekka var þegar uppfyllt. Meðan stansað var á Lindar- brekku skoðaði Henrik prins fjósið og spurði margs um íslenska naut- griparækt og cinkum þó kúabú- skap. Að lokinni máltíð afhenti Sigurð- ur Helgason, sýslumaður Norðmýl- inga, Margréti drottningu og Henrik prins að gjöf frá sýslunefnd Norður-Múlasýslu jaspissteina frá Borgarfirði eystri sem fyrirtækið Álfasteinn hf. hefur unnið. Og áður en hinir tignu gestir kvöddu heimil- isfólkið á Lindarbrekku gáfu Margrét drottning og Henrik prins hjónunum handmálaðan postulíns- disk með vangamynd af drottningu og manni hennar. Að svo búnu var ekið til Hafnar í Homafírði þaðan sem flogið var til Reykjavíkur, en stuttur stans var gerður á sýslumörkum Suður- Múlasýslu og Austur-Skaftafells- sýslu, þar sem Páll Bjömsson, sýslumaður, kom til móts við gesti. Þótt veðurguðimir hafi ekki leik- ið við þessa tignu gesti á ferð þeirra hér um Austurland að þessu sinni var ferðin engu að síður ánægjuleg. — Ólafur Skátar frá Kaupmannahöfn, sem hér eru á ferðalagi um þessar mundir, stóðu heiðursvörð við komu Margrétar drottningar til Egils- staða. Á bæjarhlaði Lindarbrekku i Berufirði: Sigurður Helgason sýslumað- ur Norðmýlinga, Henrik prins og Jónas Elíasson prófessor og sérlegur fylgdarmaður prinsins. Hjónin á Lindarbrekku, Þórdis Guðjónsdóttir og Gunnar Guðmunds- son, hreppstjóri, ásamt syni og tengdadóttur, Guðmundi Val og Ragnheiði Eiðsdóttur. Gunnar heldur á postulínsdiskinum er Mar- grét drottning og Henrik prins gáfu þeim hjónum að skilnaði. Heimilisfólkið á Lindarbrekku kvatt. Morgunbiaðíð/ói.K.u. í stofunni í Lindarbrekku: Sigurður Helgason sýslumaður færði Margréti drottningu og Henrik prins gjöf frá sýslunefnd Norður-Múlasýslu, jaspissteina úr Borgarfirði eystra unna af Alfasteini hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.