Morgunblaðið - 08.07.1986, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1986
23
Arturo Tolentino veifar til stuðningsmanna sinna þar sem hann tal-
ar við fréttamenn á hótelinu þar sem hann hélt til.
utanríkisráðherra, en níu mánuðum
síðar rak Marcos hann. Það var
vegna þess að Tolentino krafðist
þess að tveir kunningjar Marcosar
í ráðuneytinu yrðu reknir. í des-
ember komu þeir Marcos öllum að
óvörum þegar tilkynnt var um
framboð þeirra. Eftir kosningamar,
sem Marcos sagðist hafa unnið,
kom Tolentino lítið fram opinber-
lega. Sérstaka athygli vakti að
hann var ekki viðstaddur embættis-
töku Marcosar hinn 25. febrúar,
en nokkrum klukkustundum síðar
þurfti Marcos að flýja uppreisn
hersins.
Frá því hefur lítið farið fyrir
Tolentino, en hann segir að Marcos
hafí hringt f sig frá Hawaii og
skipað sér að lýsa sjálfan sig for-
seta eyjanna, þar til Marcos sæi
sér fært að snúa heim.
Dr. Kurt Waldheim settur inn í embætti:
Mótmæla- og hung-
urvaka fyrir fram-
an forsetahöllina
Vín og Jerúsalem, AP.
AUSTURRÍKISMENN helltu úr skálum reiði sinnar yfir nasistaveið-
arann Beate Klarsfield og fjóra Bandaríkjamenn, sem héldu áfram
mótmæla- og hungurvöku á mánudag til að mótmæla setningu dr.
Kurts Waldheim i embætti forseta Austurríkis.
Aðstoðarmaður Waldheims
gagnrýndi Heimssamband gyðinga
fyrir að reyna að dreifa margtuggn-
um „upplýsingum" sem nýjar væru
í því skyni að bendla forsetann til-
vonandi við stríðsglæpi.
Waldheim, sem sver embættiseið
sinn í dag, hefur verið sakaður um
að hafa logið til um athafnir sínar
í síðari heimsstyijöldinni. Heims-
samband gyðinga birti á mánudag
skjal, sem það kvað sanna þetta enn
frekar en áður hefði verið gert.
Abraham Weiss rabbíni, einn úr
hópi mótmælafólksins, sagði, að
morguninn hefði verið erfíður. „Við
lágum undir stöðugum svívirðing-
um og skömmum."
„ísraelsk stjómvöld munu halda
áfram að safna upplýsingum í máli
Kurts Waldheim, svo lengi sem
hann lætur undir höfuð leggjast að
gera hreint fyrir sínum dyrum varð-
andi fortíðina," sagði Simon Peres,
forsætisráðherra Israels, á frétta-
mannafundi í Jerúsalem. „Afstaða
ísraelsku stjómarinnar til Aust-
urríkis mun ráðast af svörum dr.
Waldheims."
Sendiherrar ísraels og Banda-
ríkjanna verða ekki við innsetning-
arathöfnina í Vínarborg. Um 10 af
90 þingmönnum Sósíalistaflokksins
í Austurríki hafa tilkynnt að þeir
verði ekki viðstaddir. Bera þeir við
veikindum.
„Dr. Waldheim var engin hetja
og heldur enginn nasisti," sagði
nasistaveiðarinn frægi, Simon
Wiesenthal, sem heldur fram, að
allar sannanir skorti gegn Wald-
heim. „Hann var bara tækifæris-
sinni, sem hafði það eitt að
markmiði að lifa af. Það er enginn
glæpur að hafa vitað um óhæfu-
verkin, og það verður enginn
stríðsglæpamaður fyrir það eitt að
segja ekki sannleikann."
Frakkland:
Veður
víða um heim
Lægst z * S
Akureyri 12 skýjað
Amsterdam 13 18 skýjað
Aþena vantar
Barcelona 24 skýjað
Berlín 15 20 skýjað
Brussel 9 19 skýjað
Chicago vantar
Dublin 12 17 heiðskfrt
Feneyjar 22 rigning
Frankfurt 14 22 skýjað
Genf 14 22 skýjað
Helsinki 16 19 skýjað
Hong Kong 25 32 heiðskírt
Jerúsalem 16 27 heiðskírt
Kaupmannah. 16 17 heiðskirt
Las Palmas 22 léttskýjað
Lissabon 16 28 haiðskfrt
London 14 19 skýjað
Los Angeles 17 27 hsiðskfrt
Luxemborg 13 rigning
Malaga 27 þoka
Mallorca vantar
Miami 22 30 rigning
Montreal vantar
Moskva 17 26 heiðskírt
NevwYork 21 37 heiðskírt
Osló 10 24 heiðskírt
París 14 19 skýjað
Peking 20 29 skýjað
Reykjavík 11 léttskýjað
Rfó de Janeiro 14 25 rigning
Rómaborg 15 32 skýjað
Stokkhólmur 15 20 heiðskirt
Lýsa ábyrgð á tilræðunum
París, AP.
FRÖNSKU hryðjuverkasamtökin Action Direct hafa lýst ábyrgð á
hendur sér á tveimur sprengjutilræðum í París á sunnudag. Þótt
enginn slasaðist í sprengingunum varð nokkuð tjón á mannvirkjum.
ERLENT
Báðar sprengjumar sprungu fyr-
ir framan fyrirtæki sem eiga
viðskipti_ við stjómvöld í Suður-
Afríku. í yfírlýsingu hryðjuverka-
samtakanna em tengsl Frakka og
Bandaríkjamanna við hvíta minni-
hlutann í Suður-Afríku fordæmd.
Önnur sprengjan var sérlega öflug,
en hún sprakk í bifreið í miðborg-
inni. Brotnuðu rúður í gasverk-
smiðju þar skammt frá og eldur
varð laus.
Talið er að Action Direct hafi
staðið á bak við um 50 sprengjutil-
ræði í Frakklandi síðan árið 1979.
NÝTT OG ENDURUNNIÐ
PERSÖNTJKORT
persónuleikakortinu.
Verð er ennþá það sama en þeir sem áður hafa fengið kort geta eignast þetta nýja kort á hálf- virði gegn framvfsun eldra korts. Við bjóðum tvær gerðir af stjörnukortum sem báðum fylgir skriflegur texti.
Persónukort:
Lýsir persónuleika þínum m.a.:
Grunntóni, tilfinningum, hugsun, ást og vináttu,
starfsorku og framkomu. Bendir á hæfileika þína,
ónýtta möguleika og varasama þætti.
Framtíðarkort
Hvað gerist næstu 12 mánuði?
Framtíðarkortið segir frá hverjum mánuði, bendir á
jákvæða möguleika og varasama þætti. Hjálpar þér
að vinna með líf þitt á uppbyggilegan hátt og finna
rétta tímann til athafna.
NÁMSKEIÐ f STJÖRNUSPEKI
Brasilíumaðurinn Howard Sasportas mun halda tvö helgar-
námskeið hér á landi 26. og 27. júlí og 2. og 3. ágúst.
26.-27. júlí — Húsin í stjörnukortinu.
2.-3. águst — Mannleg samskipti — sérstök áhersla lögð á Venus og
Mars.
Ath.: að hér er um einstakt tækifæri að ræða.
Howard er einn fremsti stjörnuspekingur sem starfar í dag. Þáttakendafjöldi er takmarkaður.
Skráning og upplýsingar í sfma 10377. Howard Sasportas er Brasilíumaður sem hefur verið
búsettur I London síðan 1973. Auk þess að kenna stjörnuspeki og halda fyrirlestra víða um
heim er hann meðstofnandi og samstarfsmaður Liz Greene í The Centre for Psychological
Astrology í London. Howard hefur M.A. gráðu í sálfræði. Hann er einnig útskrifaður úr skóla
breska stjörnuspekisambandsins og fékk gullverðlaun á lokaprófi þaðan 1979 fyrir besta árang-
ur það ár. Hann er höfundur bókarinnar „The Twelve Houses" — Húsin tólf og er eins og
stendur að skrifa bók með Liz Greene „Þróun persónuleikans" (The Development of the Per-
sonality).
Líttu við á Laugavegi 66 eða hringdu í síma
10377 og pantaðu kort.
+ mjí)RNUSR£KÍ_ *
lÍOSTÖOÍ