Morgunblaðið - 08.07.1986, Page 35
35
Stjörim-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
Fordómar
Fordómar eru merkilegt fyrir-
bæri, sem hijá alla menn að
einhveiju leyti, ef ekki á einu
sviði þá á öðru. Ég ætla í dag
að fjalla lítillega um þetta fyr-
irbæri, hugleiða hvaða afleið-
ingar þeir hafa fyrir okkur og
hvemig þeir myndast.
Hvað eru
fordómar?
Flestir geta verið sammála um
að fordómar fela í sér nei-
kvætt viðhorf til ákveðinna
mála. Fordómar fela oft i sér
stórar fullyrðingar eins og t.
d.: Negrar em verr gefnir en
hvítir menn. Sennilega stafa
þeir oftar en ekki af þekking-
arleysi eða einfaldlega af
hugsunarleysi.
Hugsunarleysi
Helst heldur undirritaður að
auk vanþekkingar megi rekja
fordóma til viðhorfa sem hafa
festst „ósjálfrátt" eða hugsun-
arlaust í minni okkar. Hugsum
okkur kennara sem er að segja
frá uppgötvunum í sínu fagi
og lætur í framhjáhlaupi falla
niðrandi athugasemdir um
aðra grein sem ekki er á
kennsluskrá skólans. Nemend-
ur heyra að viðkomandi grein
á ekki upp á pallborðið hjá
hæstvirtum kennara. Þetta
viðhorf situr síðan áfram í
hugarheimi nemenda en það
að aldrei fór fram málefnaleg
umræða gleymist. Þegar um-
ræða kemur síðar upp um
viðkomandi grein hafa menn
álit á reiðum höndum.
Upplýsinga-
skortur
Framantalið dæmi er kannski
ekki ítarlegt en er hugsað sem
ábending um það að við mynd-
um okkur oft skoðanir á
mönnum og málefnum á
harðahlaupum. Álit mitt á Jóni
Jónssyni útvegsfulltrúa er
mótað af glefsu úr sjónvarps-
viðtali, af lestri á hálfri grein
um hann í helgarblaði og því
að ég heyrði kunningja bölva
honum. Út af hveiju hann
bölvaði honum? „Æ, ég náði
því ekki alveg nógu vel.“ En
viðhorfið (og fordómamir) er
mótað, á litlum og kannski
röngum upplýsingum.
Fátœkur heimur
Hvaða áhrif skyldu fordómar
hafa á þann einstaklinginn
sem er fordómafullur? Fyrst
og fremst þrengja þeir sjón-
deildarhring viðkomandi. Ef
ég er búinn að mynda mér
fyrirfram skoðun á ákveðnu
máli, er líklegt að ég búi yfír
röngum eða ófullnægjandi
upplýsingum og telji ónauð-
synlegt að fræðast frekar. „Æ,
líkamsrækt, hún er stórhættu-
leg.“ (Er þá kyrrseta holl? Eða
hvað um fjölda æfínga og þ.
h.?) Í raun er sá sem verður
vís að fordómum að segja
meira um eigin hugsun en
umræðuefnið. Og það sem
meira er, hann er að gera heim
sinn fátæklegri. Hann sér ekki
þau mörgu og fallegu blóm
sem eru í umhverfí hans og
lokar á Qölbreytileika og feg-
urð heimsins.
Sjálfseyðilegging
Ég vil því enda þessa stuttu
hugleiðingu á því að hvetja þig
lesandi góður til að varast for-
dóma, þ.e., að varast að dæma
í ákveðnum málum, a.m.k. þar
til þú veist öll málsatvik. For-
dómar takmarka sjálfan sig.
Þeir þrengja þinn eigin sjón-
deildarhring og loka á mögu-
leika þinn til að öðlast
þekkingu og visku, hindra það
að þú getir búið yfir raunsærri
þekkingu. Fordómar eru ósið-
ur, sem auk annarra leiðin-
legra fylgikvilla, fyrst og
fremst eyðileggja þtna eigin
vitsmuni.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1986
X-9
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
FERDINAND
;;;iiii;iii;iirw;;;wiHiiiiMi;i;iijijiii»Miiii;i;;iii;;;iii;iii;iHn«immii;ii;;;ijiiniiiii;;iiiiijijiiiiuiini;iii;j;;ii{iiniiHniHui;i
SMÁFÓLK
Grjóthrun
Næat
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Austur gat ekki verið fullkom-
lega viss um að hann væri að"
gera það eina rétta, en hann
hugsaði sem svo, að það væri
synd að sleppa slíku tækifæri
til að sýna snilli.
Austur gefur; allir á hættu.
Norður
♦ 762
V-
♦ ÁKDGIO
♦ 98752
Vestur Austur
♦ Á108
♦ 105
♦ 4
♦ ÁDG10643
Suður
♦ DG54
♦ 7432
♦ 97532
♦ -
♦ K93
V ÁKDG986
♦ 86
♦ K
Vestur Norður Austur Suður
— — Pass 1 hjarta
2 lauf 2 tíglar Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Vestur spilaði út laufás gegn
fjórum hjörtum. Hvemig líst þér
á horfur sagnhafa?
Þær virðast nokkuð góðar.
Vestur getur tekið á spaðaásinn,
en fleiri slagi fær vömin ekki.
Eða hvað?
Það veltur á því hvað austur'-
gefur í fyrsta slag. Okkar maður
sá sér leik á borði og trompaði
laufás makkers og spilaði spaða-
drottningunni til bakal'Geysilega
vel heppnuð vöm og fullkomlega
rökrétt líka. Af sögnum og blind-
um að dæma liggur ljóst fyrir
að helsta von vamarinnar liggur
í spaðanum. Og það er mjög
líklegt að það verði að sækja
spaðann frá austurhendinni. Það
skiptir ekki máli þótt suður eigi
tvö lauf og tvo spaða, svo fremi
sem vestur á spaðaásinn. Vestu!**-
er í aðstöðu til að meta hvort
hann á að reyna að taka þrjá
spaðaslagi eða gefa makker
sínum aðra laufstungu.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á argentínska meistaramótinu
í ár kom þessi staða upp í skák
þeirra Mahia, sem hafði hvítt og
átti leik, og Campos.
Hvítur er heilum hrók yfir, en
virðist þó vera í vandræðum þar
sem báðir biskupar hans og báðir
hrókar standa f uppnámi. Hann
fann þó laglega leið til að halda
liðsyfirburðum: 27. Hxe6! —
Bxal, 28. Hel - Bc3, 29. Bd2
— Bxd2, 30. Rxd2 og svartur
gafst upp, því hann hefur engar
bætur fyrir manninn.