Morgunblaðið - 08.07.1986, Page 37

Morgunblaðið - 08.07.1986, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1986 37 í>að stansú. , flestxr i STAÐARSKALA Blað um Staðarskála í Hrútafirði I STAÐARSKÁLA í Hrútafirði hefur að vanda verið mikið um ferðamenn i sumar að sögn Magnúsar Gislasonar veitinga- manns en þeir i Staðarskála hafa nú gefið út bækling handa gest- um sinum. í bæklingnum er saga staðarins reifuð og sagði Magnús að ferða- menn hefðu bara tekið þessari nýbreytni vel. Upphaflega stóð til að gefa bæklinginn út í fyrra til að halda upp á að 25 ár voru frá því að Magnús og Eiríkur bróðir hans og fjölskyldur þeirra hófu veit- ingasölu í Staðarskála en bækling- urinn kæmi ekki út fyrr en í ár. Síðasta hálfa mánuðinn hefur veðrið verið gott og talsvert um fólk á leið á landsmót hestamanna við Hellu auk annarra. Útlendingar virtust líka nota sér mikið sértilboð Norðurleiðar, hringmiða og fleira. Greinilega hefur það gefíst vel hjá Norðurleið að gefa fólki kost á af- sláttarmiðum. Nú starfa 15 manns í Staðar- skála, þar af tveir matreiðslumenn, en veitingahúsið selur bæði veiting- ar og bensín auk þess sem nokkur gistiherbergi eru á staðnum. Aðal- annatímann sagði Magnús vera frá um 10. júlí fram að verslunar- mannahelgi og þá þyrfti hann að fjölga starfsmönnum eitthvað. TJöfdar til 11 fólks í öllum starfsgreinum! SVIPMYNDIR ÚR BORGINNI/óiafur Ormsson „Eg er starfsmaður hérna“ Varla hefur það farið fram hjá fólki að fyrstu dagana í júní og fram yfir miðjan mánuðinn var listahátíð í Reykjavík. Á hátíðinni komu fram margir góðir lista- menn við mikla hrifningu við- staddra og einmitt þá daga sem hátíðin stóð yfir var eins og borg- in fengi á sig alþjóðlegan svip. Hér dvaldi fólk frá mörgum heimshomum, af ýmsum litar- hætti og allt voru það góðir gestir. Ég leit inn í afmælisfagnað í Brekkugerði kvöldið áður en Dave Brubeck spilaði í Broadway og kvöldið eftir að Herbie Hancock spilaði í veitingahúsinu. Kunningi minn bauð til fagnaðar í tilefni af því að hann var orðinn hálffer- tugur sem er auðvitað enginn aldur þegar fjölmargir íslendingar ná því að verða sjötugir og þurfa sumir ekki einu sinni að nota gler- augu við lestur. Afmælisveislan var í íbúð hjá vinafólki kunningja míns. Afmælisbamið hringdi seint að kvöldi og bauð til fagnaðar. Sagði fagrar konur á staðnum, fjöruga músík og sumarið ailt í kring og boðið upp á notalega kvöldstund. Ég stóðst ekki svona freistandi boð. Þegar komið var á staðinn var þar fýrir hópur af fólki. Ég hringdi dyrabjöllunni og tveir hávaxnir blökkumenn komu tit dyra í kjallaraíbúðinni og ég hélt svei mér þá að ég væri að villast. Datt helst í hug að íbúðin væri á vegum framkvæmdastjóm- ar listahátíðar og að blökkumenn- irnir væru úr hópi listamanna á hátíðinni. Það reyndist ekki vera. Þeir voru gestir í afmælisfagnað- inum og kom í ljós að þeir hafa dvalið hér á landi um tíma, ljúfir menn og kurteisir. Annar þeirra var svo líkur Herbie Hancock að ég þakkaði honum fyrir frábæra frammistöðu í sjónvarpinu kvöldið áður í þætti frá tónleikunum í Broadway. Hann brosti og kvaðst ekki spila á annað en munnhörpu og auk þess minnir mig að hann heiti Brown. Síðar kom tækifærið til að þakka Herbie Hancock fyrir leik hans á Broadway. Það var eftir miðnætti þegar afmælisveislan var komin yfir á Hótel Borg. Þar var andrúmsloftið ekki síður al- þjóðlegt en í kjallaraíbúðinni í Brekkugerði enda ýmsir gestir listahátíðar einmitt gestir á hótel- inu á meðan þeir dvöldu hér á landi. Dave Brubeck og kona hans vom með herbergi á annarri hæð hótelsins og það hef ég eftir leið- toga og hugmyndafræðingi íslenskra jazzgeggjarar sem mikið umgekkst þau hjónin á meðan þau dvöldu hér, að þau hafí varla haft svefnfrið um nætur vegna hávaða og drykkjuláta frá ungmennum úti á Austurvelli og Pósthús- stræti. Bmbeck sagði það hafa minnt sig einna helst á óeirðir á rokkhátíð í Kanada fyrir um það bil þijátíu ámm. Kaffíhúsamenningin dafnaði prýðilega dagana sem listahátíðin stóð yfír. Það vom engar óeirðir í Nýja kökuhúsinu, öðm nær. Þar em ávallt prúðir gestir og boðið upp á góðar veitingar. Föstudags- morgun, annan eða þriðja dag listahátíðar, var þar nokkum veg- inn setið við hvert borð og það myndaðist löng röð viðskiptavina fyrir framan afgreiðsluborðið en allir fengu góða þjónustu eins og jafnan í þessu ágæta og vistlega húsi. Þar var myndlistarkonan Rúrí að kaupa nýbökuð brauð og fyrir framan kaffíkönnuna vom þrengsli. Greinarhöfundur var að búa sig undir að hella kaffí í bolla þegar kunnur Reykvíkingur, Jón Guð- mundsson, sölustjóri hjá Fast- eignamarkaðnum á Óðinsgötunni, umfangsmikill athafnamaður, sagði allt í einu: „Góðan daginn Ólafur. Ég er starfsmaður héma.“ — Ég veit allt um það, sagði ég og bauð einnig góðan dag. Eg sá að hann hafði ekki mikinn tíma og ætlaði aðeins að stoppa stutt í þetta sinn í Nýja kökuhúsinu og ég leyfði honum að vera á undan mér að könnunni. Hann var líklega að koma af hlutafélags- fundi eða á leiðinni á nýjan fund, því Jón kemur víða við í viðskipta- lífínu, ungur maður á uppleið og á framtíðina fyrir sér. Ég veit t.d. ekki betur en að hann sé hluthafi í því félagi sem á húsið þar sem Nýja kökuhúsið og Bókaverslun Isafoldar em til húsa og þess vegna að einhveiju leyti sjálfsagt starfsmaður í Nýja kökuhúsinu. Jón settist við borð þar sem félag- ar hans í viðskiptaheiminum sátu, t.d. Leó Löye og fleiri og ég tel Iíklegt að þeir hafí verið að ræða ný umsvif í atvinnurekstri í borg- inni, enda bjartsýnir menn — framtakssamir og þekktir fyrir góðan rekstur á þeim fyrirtækjum sem þeir reka. Þeir sátu þama um stund við borðið, reyktu vindla, með teikningar og skjöl fyrir framan sig og töluðu mikið. Á liðnum vetri keyptu þeir kvik- myndahúsið Nýja bíó við Lækjar- götu og hafa nú leigt það út til aðila sem er öllum hnútum kunn- ugur varðandi kvikmyndahúsa- rekstur. Þegar þeir félagarnir stóðu upp frá borðinu gengu þeir út af staðnum í einni röð, með svartar skjalatöskur í hendi og út á Austurvöll. Það hafði verið rigning en stytt upp og sá allt í einu til sólar. Við borðið þar sem Jón og tveir félagar hans sátu, settust fjórar konur eitthvað á milli tvítugs og þrítugs og þar sem ég sat ekki langt undan heyrði ég að þær ræddu ákaft úrslitin í borgarstómarkosningunum í lok maímánaðar síðastliðins og vom greinilega ekki ánægðar með ár- angur kvennalistans. Höfðu sennilega allar kosið listann en orðið fyrir vemlegum vonbrigðum með útkomuna. Eins og kunnugt er tapaði kvennaframboðið manni hér í höfuðborginni og allvemlegu fylgi- Konumar fjórar við borðið leit- uðu skýringa á þessum ósigri en vom ekki sammála. Ein þeirra sagði eitthvað á þessa leið: „Það er engin ástæða til að vera að bjóða fram lengur. Við konur höf- um náð árangri á svo mörgum sviðum. Af hveiju getum við t.d. ekki sett á stofn fyrirtæki og far- ið út í margs konar atvinnurekstur eins og karlarnir?" Og svo héldu þær áfram að ræða hina ýmsu möguleika sem konur hafa í at- vinnulífínu. Vom það nokkuð fróðlegar umræður um stöðu kvenna almennt. Niðurstaðan var eitthvað á þá leið að ekki væri nóg að tala um hlutina, það þyrfti að framkvæma þá. Það var ekki annað að heyra en að ein þessara kvenna væri ákveðin í að hasla sér völl í einkarekstri. Hún taldi ríkisrekstur og samvinnurekstur alltof áberandi í þjóðfélaginu og samkeppni af hinu góða ... mmmmmmm Kjörbókin er óbundin og örugg ávöxtunarleið. Hún ber háa vexti, sem leggjast við höfuðstól á 6 mánaða fresti. Til þess að tryggja aó Kjörbókareigendur njóti ávallt hagstæðustu kjara er ávöxtun Kjörbókarinnar ársfjórðungslega borin saman við ávöxtun bundinna 6 mánaða vísitölutryggöra reikninga og hagstæðari leiðin valin. Kjörbókin er góð bók fyrir bjarta framtíð. /W Landsbankl 1 Islands Banki allra landsmanna L

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.