Morgunblaðið - 08.07.1986, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1986
47
Listræn tilþrif hjá RAX
Trygjrvi V. Líndal, Freyjugötu
25, skrifar:
Kæri velvakandi:
Eg vil lýsa þakklæti mínu yfir
hversu margar myndir birtast í
blaðinu eftir ljósmyndara blaðsins,
Ragnar Axelsson. Að minni hyggju
ber hann höfuð og herðar yfir alla
aðra ljósmyndara, erlenda sem inn-
lenda að því er varðar listræn tilþrif,
frumleika og ferskleika. Hann ætti
að fá listamannalaun.
Vart er hægt að hugsa sér betri
kynningu á myndlist en í hinu að-
gengilegasta listformi, ljósmyndinni
á forsíðu víðlesnasta dagblaðsins.
Að vísu mun nú sérstakt ljósmynda-
blað vera að hefja göngu sína og
er það ánægjulegur viðbótarvett-
vangur. En ég vona að Ragnar
Axelsson eigi eftir að túlka sem
mest af hinum íslenska raunveru-
leika í ljósmyndum sínum í Morgun-
blaðinu á komandi árum, því hann
bregður skærum skáldaljóma á hina
hversdagslegustu hluti.
Aftur Dallas
Margrét Sigurðardóttir
hringdi:
Mig langar til að bera upp þá
frómu ósk að forráðamenn
Ríkisútvarpsins Sjónvarps festi
kaup á nýjum Dallas-þáttum. Það
var mér alltaf tilhlökkunarefni að
eiga von á þessum bráðskemmti-
legu þáttum á miðvikudagskvöld-
um. Maður var farinn að kannast
við sumar persónumar eins og
gamla kunningja. Siðferðið er
kannski ekki til fyrirmyndar hjá
Ewing-fjölskyldunni, en það er
nú heldur ekki siðferðið í heimin-
um yfirleitt.
„Draumur fjósa-
mannsins“
Halldóra Jóhanncsdóttir,
Hlaðhömrum 2, liringdi:
„Mig langar til þess að spyijast
fyrir um meðal lesenda blaðsins,
hvort þeir kannist ekki við eftir-
farandi erindi. Það er úr kvæði
er nefnist „Draumur fjósamanns-
ins“ að ég held. Mig vantar öll
erindin og einnig nafn höfundar-
ins. Gæti ekki einhver hjálpað
mér með það? En fyrsta erindið
er svona:
Mig langaði snöggvast að bregða mér brott,
frá baslinu heima og vera nú flott,
i spánnýum fötum mcð flibba um háls,
ég fór nú af stað, svona glaður og frjáls.
Eiga bændur að
eiga ísland?
H.J. hringdi:
„Mér finnst verða að taka tillit
til margra hluta í sambandi við
útburðarmálið á Höfða við Haf-
fjarðará. Er ekki bara gustuk að
láta þessar jarðir fara í eyði? Það
eykur þá ekki á vanda offram-
leiðslunnar í landbúnaði. Og varla
eiga bændur að eiga allt Island.
Við í þéttbýlinu höfum ekkert á
móti því að þeir eigi stóreignir í
Reykjavík, með Bændahöllina í
broddi fylkingar. Kolbeinseyjar-
hreppur segist vilja kaupa jarðim-
ar, — en til hvers? Hefur hann
svona mikil fjárráð? Elða fær hann
kannski lán í stofnlánadeild land-
búnaðarins þar sem bændur
skulda nú þegar þá ótrúlegu upp-
hæð, 3 milljarða?"
Vil þjóðar-
atkvæðagreiðslu
Vesturbæingur hringdi:
„Mér finnst það alveg ótrúlegt
ef ekki á að láta fara fram þjóðar-
atkvæðagreiðslu um það ef fjölga
á alþingismönnum og biskupum.
Þetta eru allt hátekjumennmenn
sem starfa hjá ríkinu í umboði
fólksins og því er rétt að þjóðin
sé látin taka ákvarðanir um það
hvort þeim sé fjölgað."
Hvaðan er orðatiltækið?
„Afjörðu ertu kom-
inn, að jörðu skaltu
verða, af jörðu skalt
þú aftur upp rísa “
í fyrstu Mósebók, 3,19 segir
Drottinn við Adam eftir synda-
fallið: „í sveita andiitis þín skalt
þú neyta brauðs þíns, þangað til
þú hverfur aftur til jarðarinnar,
því að af henni ertu tekinn; því
að mold ert þú og til moldar
skalt þú aftur hverfa!“
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRÐI, SlMI 651000.
NOIIO
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN DAGSINS í DAG
• Norsk gæðavara
• Margir möguleikar
• Ráögjöf í skipulagningu
Ath.
Læknastofa mín verður lokuð frá 7.-22. júlí
vegna sumarleyfa. Staðgengill minn verður
Sigurður Hektorsson læknir, Heimilislækn-
ingastöðinni v/Alftamýri, sími 688550.
Grímur Sæmundsen,
læknir.
SNITTVÉLAR
Oo
6c-
Frá því að við hófum innflutning á OGURA snittvélunum
höfum við aldrei getað annað eftirspurn.
Þær eru sérlega sterkbyggðar, léttar og
meðfærilegar og verðið er ótrúlega hagstætt.
OGURA snittvélarnar eru nú til á lager og til
afgreiðslu strax.
Allt til pípulagna
r
BURSTAFELL
Bygingavöruverslun
Bíldshöfða 14-110 Reykjavík
Sími38840