Morgunblaðið - 02.08.1986, Page 3
_________________MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1986_
Fiskvinnslan hefur ekki undan að vinna aflann:
3
Veðrið hefur leikið við skát-
ana í Viðey. Gamlir skátar
segjast ekki muna eftir öðru
eins blíðviðri á Landsmóti í
háa herrans tið. Enda hafa
skátarnir leikið við hvurn sinn
fingur.
Skátar
bjóða á
Þjóðhátíð
í Viðey
í dag
SKÁTAR halda þjóðhátíð i
Viðey í dag og er boðið þang-
að öllum sem vettlingi geta
valdið. Hátíðardagskráin
hefst klukkan þrjú með mót-
tökuathöfn og opnun skáta-
tívolís og annarra dagskrár-
atriða. Pulsupartý verður
klukkan sjö og siðan varðeld-
ur, kvöldkakó og flugeldasýn-
ing. Ferðir eru frá Sundahöfn
og fjölskyldubúðir opnar
þeim sem vilja dvelja um helg-
ina.
Lýðveldið í Viðey er nú viku-
gamalt og hafa um þúsund
manns, skátar og áhugafólk
dvalið á mótinu. Hefur fjölbreytt
dagskrá verið í gangi alla dag-
ana og síðastliðinn þriðjudag
fóru skátamir til Reykjavíkur,
fóru í götuleik og héldu boðs-
kvöldvöku í Laugardalshöll.
Veðrið hefur leikið við móts-
gesti og mega foreldrar skát-
anna búast við útiteknum
börnum heim á sunnudag en þá
líkur mótinu með helgistund.
Við fjöllum um mótið á innsíðum
og segjum frá fyrirhugaðri bylt-
ingu á skátastarfi á Islandi.
Sjá skátasíðu á bls. 24.
Siglufjörður:
Almenn
óánægja er
með skattana
Siglufirði.
ALMENNT virðist ríkja mikil
óánægja með skattana meðal
íbúa á Siglufirði. Fréttaritari
Morgunblaðsins kannaði hljóðið
meðal íbúa.
Ég talaði við marga sjómenn og
starfsmenn hjá Sfldarverksmiðjum
ríkisins, og voru flestir mjög
óánægðir með skattana sína, og
sérstaklega hefði sú óánægja
magnast, þegar Morgunblaðið upp-
lýsti það, að fjármálaráðuneytinu
hefði verið kunnugt um tekjubreyt-
inguna í apríl. Oánægjan virðist
vera nokkuð almenn hér á Siglu-
firði, en rhest virðist hún þó vera
meðal þeirra, sem leggja á sig mikla
vinnu og afla þannig þjóðinni tekna,
eins og tilfellið væri t.d. með sjó-
menn og starfsmenn síldarverk-
smiðjunnar. Menn eru hér þeirrar
skoðunar, tel ég, að ríkið eigi að
endurgreiða fólki þessa ofteknu
skatta.
Að öðru leyti er allt gott að frétta
frá Siglufirði. Hér er góðæri hið
mesta og allt á kafi í fiski og ganga
atvinnurekendur eins og grenjandi
ljón um götur, til þess að fá fólk
til að vinna um verslunarmanna-
helgina.
Fiskskortur er víða á mörkuð-
um en ástandið viðráðanlegt
„ÞVÍ ER ekki að neita að við gætum selt meira, einkum af
karfa. Eftirspurn eftir honum er nú mun meiri en framboð-
ið. Hins vegar tel ég ekki að neyðarástand sé að skapast á
mörkuðum vegna fiskskorts. Ástandið er þó víða knappt,“
sagði Sigurður Markússon, framkvæmdastjóri sjávarafurða-
deildar SÍS, í samtali við Morgunblaðið.
Sigurður og Friðrik Pálsson, uðum vegna þess hve illa gengi
framkvæmdastjóri Sölumið-
stöðvar Hraðfrystihúsanna,
sögðu það algengt ástand á
þessum árstíma að nokkur
skortur myndaðist á fiskmörk-
að manna frystihús. Sjómenn
moki upp afla en fískvinnslan
hafi ekki undan að vinna hann.
Af þessu leiðir að meira sé verk-
að í fljótunnar pakkningar til
Evrópu og Rússlands á kostnað
framleiðslu fyrir Bandaríkja-
markað.
„Eftirspurn á Bandaríkja-
markaði er mikil nú eftir
þorskflökum og sjálfsagt gæt-
um við selt meira en við höfum.
Það er þó ekki hægt að segja
að alvarlegur skortur standi
okkur fyrir þrifum. Þetta er
svona ár hvert á þessum tíma
og það má reikna með að
ástandið lagist fljótlega upp úr
verslunarmannahelginni," sagði
Sigurður.
Friðrik sagði að skorturinn
núna væri í sjálfu sér ekkert
alvarlegri en oft áður. „Það er
alltaf skortur á flökum á Banda-
ríkjamarkað. Það er vandi sem
við þurfum að glíma við allan
ársins hring,“ sagði Friðrik
Pálsson.
1986
Heimsmeistaraeinvígið hefst 28. júlí
í London. Á meðan það stendur yfir,
býður Útsýn hagkvæmar vikuferðir í
samráði við American Express, sem
sér um miðasölu einvígisins. Brottför
er á mánudögum. Verð frá
24.180
ÞU ATT LEIK
Viðskiptaferð
Skemmtiferð
Skákferð
Allt í einni ferð
Feröasknfstofan
Representative
Austustræti 17,
simi 26611.
Ennþá ertækifæri að
byggja sig upp fyrir
skammdegið og
veturinn.
Sumaraukaferðirnar eru að fyllast. Leiguflugs-
ferðirtil Costa del Sol eru uppseldartil 25. sept.
Vegna stöðugrar eftirspurnar bjóðum við okkar
ágætu viðskiptavinum aukasæti til Costa del Sol
með viðkomu í London fyrir óbreytt verð 22.,
29. ágúst og 5 og 9. sept.
LONDON
HEIMSMEISTARA-
EINVÍGIÐ í SKÁK
Sértilboð
Ítalía og Austurríki
28.ágúst
Tvegja vikna dvöl í LIGN-
ANO, og þú getur bætt
við aukaviku í ZELL AM
SEE, draumastaðnum í
austurrísku Ölpunum.
Portúgal
25. september
Þriggja vikna ferð til
ALG ARVE með viðkomu í
London íeina nótt á
heimleið.
Costa del Sol
2. október
Ódýrferð Í3 vikur.
Costa del Sol
25. september
Dvöl í 1 — 2 — 3 og 4 vik-
ur. Heim um London eftir
2 eða 3 vikur.
Drífðu þig áður en það verður um seinan, og verti
Rðlflrmonin ílíflnn í ór
Sui arauki
j sóUarlönduhJij
Matthias