Morgunblaðið - 02.08.1986, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.08.1986, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1986 j atvinna atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna j Karlar — Konur Lagerstarf Óskum að ráða starfsmann/konu nú þegar til afgreiðslu- og útkeyrslustarfa. Uppl. um aldur og fyrri störf sendist augl- deild Mbl. merkt: „E — 1556“ fyrir hádegi miðvikudaginn 6. ágúst. Kennarar — kennarar! Grunnskólann Hofsósi í Skagafirði vantar kennara í eftirtaldar greinar: íþróttir, smíðar, dönsku og kennslu yngri barna að hluta. Um er að ræða eina og hálfa stöðu og því tilvalinn möguleiki fyrir tvo að deila með sér. Gott húsnæði er í boði og leikskóli er á staðnum. Allar frekari upplýsingar veita skólastjóri, Svandís Ingimundar, í síma 91-41780 og formaður skólanefndar Pálmi Rögnvaldsson í síma 95-6400 og 95-6374. Grunnskóli Siglufjarðar Enn vantar okkur kennara í eftirtaldar greinar: — Stærðfræði og eðlisfræði, 7.-9. bekk. — Samfélagsgreinar, 7.-9. bekk. — íþróttir drengja. — Almenna kennslu í yngri bekkjum. í skólanum eru um 300 nemendur og yfir 20 kennarar. í boði er húsnæðisstyrkur. Frekari upplýsingar gefa formaður skóla- nefndar í síma 96-71616 (96-71614) og skólastjóri í síma 96-71686. Skólanefnd Laus störf Viðskiptafræðingur — áhugavert verkefni óskast til starfa hjá verslunarfyrirtæki í Reykjavík í 6-12 mánuði. Fyrirtækið er í endurskipulagningu. Viðkom- andi mun sjá um hana og stjórna rekstrinum í samvinnu við forráðamenn fyrirtækisins. Æskileg 2ja-4ra ára starfsreynsla, bókhalds- þekking og vinna við áætlanagerð. í boði er kerfjandi og vel launað starf. Móttaka — andlit fyrirtækisins Stór heildverslun við Sundahöfn vill ráða dugmikinn starfsmann í fullt starf. Starfsmaðurinn er andlit fyrirtækisins út á við, tekur á móti viðskiptavinum, annast síma- og póstþjónustu og aðstoðar á skrif- stofu. Hann þarf að vera þægilegur í framkomu, skipulagður og tilbúinn að axla ábyrgð. Góð íslensku- og enskukunnátta áskilin ásamt reynslu af vélritun. Nánari upplýsingar veitir Holger Torp. Umsóknir skilist fyrir 11. ágúst nk. FRUH1 Starfsmannastjómun-Ráðningaþjónusta Sundabofg 1-104 Reykjavík - Símar 681888 og 681837 | Fóstrur Fóstrur og starfsfólk vantar nú þegar eða frá 1. sept. að dagheimilinu Fálkaborg Breið- holti. Uppl. gefa forstöðumenn í síma 78230. Frísk kona Óskum eftir að ráða fríska konu til starfa í áfyllingadeild. Starfið felst m.a. í umsjón vörumiða og álímingu. Hafið samband við verkstjóra á staðnum milli kl. 13.00-15.00. VMmálning % St. Fransiskuspítal- inn í Stykkishólmi óskar eftir að ráða Ijósmóður helst með hjúkrunarmenntun sem fyrst. Uppl. veitir hjúkrunarforstjóri í síma 93-8128 og Ijósmóðir í síma 93-8149. Einnig óskum við eftir að ráða sjúkraþjálfara og hjúkrunarfræðing frá 1. september. Góð íbúð er til staðar og einnig dagvistun fyrir börn. Allar nánari uppl. veitir hjúkrunarforstjóri í síma 93-8128, Einstakt tækifæri Alþjóðlegt fyrirtæki með aðalbæki- stöðvar á Stóra-Bretlandi leitar eftir dreifingaraðila á ótrúlega miklu úrvali af varahlutum fyrir hvers konar iðnað. Óskað er eftir að viðkomandi geti lagt fram í stofnkostnað allt að 10.000 dollara. Gert er ráð fyrir að hagnaður geti orðið um 80.000 dollarar á ári. Starfið myndi henta vel ein- staklingi eða litlu fyrirtæki. Vinsamlegast sendið allar uppl. á ensku til okkar og mun fulltrúi okkar veita ykkur viðtal á íslandi. Mr. Don Mackenzie managing director MMP International Ltd. Bilton Court- Wetherby Road Harrogate, Nort Yorkshire United Kingdom. Skapandi störf Múlabær auglýsir eftir fólki í eftirtalin störf: Iðjuþjálfi. Hér er um að ræða nýtt stöðugildi við Hlíðabæ, þjónustudeild Múlabæjar að Flókagötu 53, sem opnuð var í mars sl. Starfið felst m.a. í uppbyggingu og mótun iðjuþjálfunar á deildinni með einstaklings- meðferð, hópstarf og fræðslu starfsmanna í huga. Stöðuhlutfall er samkomulagsatriði. Leiðbeinandi. Við sækjumst eftir fjölhæfri manneskju í vinnustofu Múlabæjar með menntun og/eða reynslu á sviði handavinnu, leirmunagerðar, smíða eða myndmenntar. Starfið er laust frá 1. september nk. Umsókn- arfrestur er til 15. ágúst 1986. Upplýsingar gefur forstöðumaður og deildar- stjóri í síma 687122 eða 621722 næstu daga. MÚLABÆR ÞJÓNUSTOMIÐSTÖÐ ALDBAÐRA OG ÖBYÍKJA BCTKJAVÍKUBDEILD BKt. S.t.B.S., SAUTÓK ALDBAÐUA Ritari óskast Lögmannsstofa óskar að ráða starfskraft til almennra skrifstofustarfa. Áskilin er góð vél- ritunar- og íslenskukunnátta. Umsóknir leggist inn á augldeild Mbl. merktar: „Ritari — 123“ fyrir 10. ágúst nk. Launadeild Fjár- málaráðuneytisins óskar eftir að ráða starfsfólk til vélritunar, launaútreiknings, tölvuskráningar, undir- búnings skýrsluvélavinnslu og frágangs- starfa. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi störf. Laun samkvæmt kjarasamningum fjár- málaráðherra, BSRB og Félags starfsmanna stjórnarráðsins. Umsóknir ergreini menntun og fyrri störf sendist launadeildinni fyrir 20. ágúst nk. Umsóknareyðublöð fást hjá launa- deild. Launadeild Fjármálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7. Frá Myllubakka- skóla í Keflavík — Kennara vantar við kennslu yngri barna. — Nemendur skólans eru á aldrinum 6-11 ára. — Við skólann starfa 30 kennarar. — Nemendur verða næsta skólaár um 780 og skiptast í 34 bekkjardeildir. Allar nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 92-1550 eða í síma 92-1884. Skólastjóri. Húsnæðisstofnun ríkisins — Lánadeild Óskað er eftir starfskrafti í fullt starf hjá lána- deild Húsnæðisstofnunar ríkisins sem er laust nú þegar. Æskilegt er að umsækjendur hafi viðskipta- menntun að baki eða séu óhræddir að vinna með vexti og vísitölur. Starfið er skrifstofustarf sem býður upp á ágæta vinnuaðstöðu og góðan starfsanda. Umsóknir berist til Húsnæðisstofnunar ríkis- ins, lánadeild, Laugavegi 77, 101 Reykjavík merktar Starfsumsókn í síðasta lagi 8. ágúst 1986. Einn kennara vantar Nú vantar okkur aðeins einn kennara að Egilsstaðaskóla. Sá kennari þyrfti að geta kennt dönsku m.a. Húsnæði í boði og flutn- ingsstyrkur greiddur. Frekari uppl. gefur skólastjóri, Helgi Halldórs- son í síma 91-13640 milli kl. 19.00-20.00 dagana 4.-8. ágúst. Skólanefnd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.