Morgunblaðið - 02.08.1986, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 02.08.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1986 9 CircusArena synirá Akureyri d Þórsvellinum Laugardaginn 2. ágústkl. 16.00 og 20.00. Sunnudaginn 3. ágústkl. 16.00 og 20.00. Forsala aðgöngumiða erí versluninni Kompunni, Skipagötu 2. Miðasala erá sýningarsvæði tveim tímum fyrir sýningu. OKKUR VANTAR UMSJÓNARMENN FYRIR POPPKORN FRÁ OG MEÐ 15. SEPT. 86. EF ÞAD ER GLÆTA í ÞÉR. ÞÁ SENDU OKKUR UMSÓKN EFTIR EIGIN HÖFÐI T.D. Á SNÆLDU, FYRIR 15. ÁGÚST TIL INNLENDRAR DAGSKRÁRDEILDAR SJÓNVA RPSINS. LAUGAVEGI 176. 105 REYKJAVÍK. Stjórnarsamstarf komandi ára Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins fjalla um möguleika á stjórn- arsamstarfi „morgundagsins" í þjóðmálaritinu Stefni, kosti og galla hugsanlegs stjórnarsamstarfs Sjálfstæðisflokks við annan hvorn eða báða A-flokkana annars vegar eða Framsóknarflokk hins vegar. „Mjög óæski- legtfyrir Sjálfstæðis- flokkinn Birgir ísl. Gunnarsson kemst m.a. svo að orði um hugsanlegt stjómar- samstarf Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks í þjóðmálaritinu Stefni: „Að mínu mati fer þvi þó fjarri að stjóra þess- ara tveggja flokka sé líklegra en annars konar stjómarmynstur eftir kosningar. Þar eru ýms- ar hindranir í vegi. Innan Alþýðuflokksins er sterkur hópur, sem hefur verið og er andvígur slíku samstarfi við Sjálf- stæðisflokkinn. Þá er líka nokkuð sterkt sjón- armið innan Alþýðu- flokksins að flokkurinn eigi ekki að taka sæti í stjóra, sem Alþýðu- bandalagið sé ekki jafn- framt þátttakandi í ... Þá má benda á, að ýmsir telja að núverandi formaður Alþýðuflokks- ins, Jón Baldvin Hanni- balsson, sé svo upptekinn af eigin persónu, að hann muni velja það stjóraar- samstarf sem færði honum forsætisráð- herraembættið. Hefð- bundin „vinstri stjóra" með Jón Baldvin sem forsætisráðherra sé þvi allt eins líklegur kostur eftir næstu kosningar. Því er ekki að neita að það samstarf sem Al- þýðuflokkur og Alþýðu- bandalag hafa tekið upp í ýmsum sveitarstjómum síðustu vikuraar renna stoðum undir þessa skoð- un þótt vafalaust ráði staðbundnar aðstæður þar einhveiju um. Þegar menn hugsa til viðreisnarstjórnannnar má ekki gleyma þvi að ein meginástæða þess, hve vel tókst til, var mjög náið persónulegt sam- band og trúnaður milli forystumanna Sjálfstæð- isflokksins og Alþýðu- flokksins á þessum árum. Ekkert slikt samband er fyrir hendi í dag milli þessara flokka. Niður- staða min um hugsanlegt samstarf Sjálfstæðis- flokks við Alþýðuflokk- inn er sú, að slíkt stjóraarsamstarf sé að ýmsu leytí æskilegt, en á þvi eru ýmsir annmarkar og þvi fer fjarri að hægt sé að líta á það sem liklegastan kost eftir kosningar." Um Alþýðubandalagið segir Birgir ísleifur: „Niðurstaða mín varð- andi hugsanlegt sam- starf við Alþýðubanda- lagið er sú, að slíkt samstarf sé mjög óæski- legt fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og að minu matí nánast óhugsandi.“ „Varnarmálin ekki vanda- mál“ Friðrik Sophusson fjallar í Stefnisgrein um hugsanlegt samstarf Sjálfstæðisflokks og Al- þýðubandalags og segir m.a.: „Varnarmálin ættu ekld að verða vandamál enda hefur Alþýðu- bandalagið i raun tekið þátt i ríkisstjóraum sem fylgt hafa afdráttar- lausri varnarstefnu með aðild NATO og varnar- samningi við Bandarik- in... Alþýðubandalagið hef- ur átt í innanflokksófriði undanfarin misseri og enn verður ekki séð fyrir endann á því striði. Deil- uraar í flokknum geta dregið kjark úr þeim, sem tilbúnir væru að taka áhættu af samstarfi við erkifjandann — íhald- ið. Að minnsta kostí er líklegt að allt kapp mundi verða lagt á að Alþýðu- flokkurinn yrði með i sliku samstarfi og þannig endurvakin nýsköpunar- stjóra. Sá galli er á þeirri hugmynd að eðli máls samkvæmt kýs Sjálf- stæðisflokkurinn fremur samstarf við einn flokk en tvo ... Niðurstaða höfundar er sú að tveggja flokka stjóra Sjálfstæðisflokks og Alþýðubandalags sé afar ólíklegur kostur en ekki með öllu útílokað- ur.“ „Klárhestur með óhreinan gang“ Halldór Blöndal segir i Stefnisgrein um sama efni að íslendingar hljótí fyrst og fremst að „beina kröftum sinum að því að auka afrakstur þjóðar- búsins með þvi að ráðast inn á ný svið, ástunda vöruvöndun, kynna okk- ur markaðinn og hasla ökkur vöU í nýjum út- flutningsgreinum og auka hlutdeUd islenskrar framleiðslu í markaðin- um hér innanlands." Síðan segir hann: „Nú er spurningin: Er líklegt að við náum þess- um markmiðum og öðrum, sem af þeim leiða, fremur í stjórnar- samstarfi við Framsókn- arflokkinn en aðra flokka? Um það er ég í miklum vafa. Framsókn- arflokkurinn er undar- lega samsettur. Við viss skilyrði er hægt að ná árangri í samvinnu við hann, en reynslan sýnir líka að honum má likja við klárhest með óhrein- an gang. Hann er líkleg- ur til að hlaupa út undan sér þegar sist skyldi. Það er vegna þess að úthaldið vantar. Og svo er þessi gamla árátta að vilja mis- muna, — að geta ekki skilið það, að hlutverk stjórnmálamanna er að skapa öUum sömu skil- yrði, en segja ekki: Þessi er góður, en þessi ekki. Niðurstaða mín er sú, að frekara stjórnarsam- starf við Framsóknar- flokldnn er ekki sá kostur, sem ég vil taka fram yfir aðra mögu- leika fyrirfram." hefst þriðjudaginn 5. ágúst í H-Húsinu, Auðbrekku 9, Kóp. og að Skólavörðustíg 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.