Morgunblaðið - 02.08.1986, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1986
13
Selma Kristinsdóttir: Líflegt og skemmtilegt starf.
Það á vel við mig að
vinna tvo daga og eiga
síðan frí næstu tvo
- segir Selma Kristinsdóttir á Hótel Esju
SELMA Kristinsdóttir vinnur við símavörslu á Hotel Esju, hún
tveimur árum eftir að hafa
kom út á vinnumarkaðinn fyrir
verið húsmóðir í 10 ár.
„Ég er ekta VR-manneskja því
áður vann ég alltaf við verslunar-
störf. En hér byijaði ég að vinna
fyrir einu ári og kann afskaplega
vel við mig. Þetta er tilbreyting-
arríkt starf, líflegt og skemmti-
legt. Öll símtöl hótelsins fara í
gegnum skiptiborðið héma hjá
okkur, en auk þess þurfum við
símadömurnar að veita upplýsing-
ar í afgreiðslunni þegar þannig
ber undir, því það er oft mjög
mikið álag héma. En fyrir mína
parta verð ég að segja að mér líkar
þetta mjög vel. Mér finnst gott
fyrirkomulag að vinna í tvo daga
og eiga svo frí næstu tvo. Það
kemur sér vel þegar mann langar
að geta sinnt áhugamálum sínum.
Ég spila mikið golf svo þetta er
hentugt fyrir mig.“
— Hvernig fannst þér að koma
út á vinnumarkaðinn eftir að hafa
verið heimavinnandi í 10 ár?
„Það sem kom mér mest á óvart
var hvað launin höfðu lítið hækk-
að. Ég myndi ekki geta lifað af
þessum launum, en ég hef aðrar
tekjur líka. Annars væri þetta
ekki hægt.“
Utlendingar fara
ekkert út íóvissuna
Margrét Haraldsdóttir í afgreiðslu Flugleiða.
- segir Margrét Haralds-
dóttir hjá Flugleiðum
ÞAÐ VAR mikill erill á
Reykjavíkurflugvelli þegar
Morgunblaðið lagði leið sína
þangað á fimmtudaginn, enda
verslunarmannahelgin að ganga
í garð.
Margrét Haraldsdóttir, gjaldkeri
hjá Flugleiðum, gaf sér samt tíma
til að líta upp frá störfum sínum
og spjalla aðeins við okkur. Hún
hefur unnið hjá Flugleiðum í 11 ár.
„Það er ofsalega gaman að vinna
hérna, mikið líf, margir sem fara
hér um og maður kynnist mörgum
í'þessu starfi. Svo er samstarfs-
fólkið mjög gott og ótrúlegustu
hlutir sem koma upp á sem gaman
er að. Auðvitað er oft mikið álag á
okkur starfsfólkinu, í júlí fara t.d.
að meðaltali 1.000 manns hér um
á dag.
Verslunarmannahelgin er mikil
álagshelgi. Á morgun fer 31 vél
héðan, þar af 15 til Vestmannaeyja
sem þýðir að þangað fara yfir 700
manns á morgun. Venjulega eru 3
vélar á dag til Eyja yfir sumarið.
Þá fara útlendingar mikið þangað
í dagsferðir."
— Eru útlendingar meirihluti
þeirra sem fljúga með ykkur á
sumrin?
„Kannski ekki í meirihluta, en
þeir eru fjölmennir. Stórir hópar
flúga héðan á morgnana og koma
oft til baka á kvöldin. Þeir fara
mikið í dagsferðir út á land. Útlend-
ingamir þurfa oft á tíðum meiri
þjónustu en íslendingar, allt þarf
að vera á hreinu áður en lagt er
af stað, verð, veðurspáin og fleira,
því þeir fara ekkert út í óvissuna."
— Hvað vinna margir hér í af-
greiðslunni?
„Það eru um 10 manns á vakt
hér í afgreiðslunni í einu. Við vinn-
um á vöktum, 12 tíma í senn.
Sumum líkar alls ekki svona vakta-
vinna, hún á ekki við alla og það
fólk endist ekki lengi héma. Við
vinnum svo auðvitað á frídegi versl-
unarmanna þótt við séum í VR, þá
er umferðin til Reykjavíkur.“
— En hvað um kaup og kjör?
„Launin eru betri núna en áður,
við fengum leiðréttingu um síðustu
mánaðamót, vaktaálagið var leið-
rétt og við fengum 5% launahækk-
um vegna sérkjarasamnings.
Vaktaálagið hífir launin upp, en þau
myndu samt ekki duga til að fram-
fleyta heimili, þótt láunin séu hærri
en VR-taxtarnir gera ráð fyrir. En
starfið hér hefur ýmsa kosti, við
höfum þau hlunnindi að geta nýtt
okkur laus sæti og ferðast fyrir
vægt verð.“
SUMARTILBOÐ
Við hvetjum húseigendur og sumarbústaðaeigendurtil þess að
nota sumarið vel og búa fasteignir sínar af kostgæfni undir veturinn.
_______Sértílboð okkar í sumar er: __
OnOZAFSLMTUR
Við erum austast og vestast í bænum.
BYGGINGAVÖRUR
Stórhöfða, sími 671100 - Hringbraut 120, sími 28600