Morgunblaðið - 02.08.1986, Page 14
14
MORGUNBÍAÐIÐ; LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1986
Frídagur verslunarmanna
Morgunblaðið/Magnús Gottfreðsson
„Þegar kúnninn er ánægður erum við ánægðir". Sigurbergur Sveins-
son og Bjarni Blómsturberg, kaupmenn í Fjarðarkaupum.
„Köttunnn neytti allra
bragða til að komastíbað“
Spjallað við Hönnu Halldórsdóttur í Gullfiskabúðinni
HANNA HaUdórsdóttir vinnur
við afgreiðslu í Gullfiskabúðinni
í Fischersundi. Hún hóf störf hjá
versluninni árið 1968 og hefur
starfað þar óslitið síðan að einu
ári undanskildu. Morgunblaðið
heimsótti Hönnu þar sem hún var
við vinnu sína innan um fiska,
fugla, ketti og hamstra.
Hún lét vel af vistinni, sagðist
líða vel innan um dýrin. „Ég hef
eignast marga vini gegnum þetta
starf. Stór hluti viðskiptavinanna
eru börn, og mér hefur ávallt líkað
vel við þau,“ sagði Hanna.
- Missir fólk áhuga á dýrum
þegar það eldist?
„Nei, alls ekki. Ef fólk hefur
raunverulegan áhuga á dýrum eld-
ist hann ekki af því. Margir sem
eru orðnir einir fá sér gæludýr er
aldurinn færist yfir og kunna vel
við það. Hafa ef til vill þörf fyrir
félagsskap og fuglar eru t.a.m. sér-
lega vel til þess fallnir að létta
lundina."
- Heldur þú upp á einhver sér-
stök dýr?
„Fuglar hafa alltaf heillað mig.
Ég átti eitt sinn fugl nokkum er
hét Máni. Hann var af sérstöku
dvergfuglakyni og gerðist svo fræg-
ur að koma fram í Bamatíma
Sjónvarpsins. Mér er einnig minnis-
stæður köttur nokkur sem ég
geymdi í nokkra daga fyrir væntan-
legan eiganda. Það var læða af
angómkyni, snjóhvít á litinn. Hún
var allsérstök að því leyti hversu
mjög hún sóttist eftir að komast í
vatn til að busla og baða sig. Ég
mátti ekki skrúfa frá krana á kvöld-
in til að vaska upp, þá stökk sú litla
umsvifalaust upp á eldúsborðið og
ofan í vatnið. Sama gilti um aðra
staði, hún vildi ólm fá að komast í
vatnið ef hún heyrði vatn renna í
baðkarið."
- Hvað um altalandi páfa-
gauka?
„Vinkona mín átti einn slíkan.
Hann var mjög málugur og hún tók
ræður hans upp á segulband!
Ef menn gera sér grein fyrir því
að dýrin em lifandi vemr eins og
við held ég að menn beri meiri virð-
ingu fyrir þeim og hugsi betur um
þau. Jafnframt hafa menn meiri
ánægju af þeim fyrir bragðið. Ég
held að sem betur fer sé yfirleitt
hugsað vel um dýr.“
Eru Islendingar dýravinir?
„Já það finnst mér. Auðvitað em
menn misjafnir og hugsa misvel um
skepnur rétt eins og menn, en að
öllu jöfnu held ég að Islendingar
séu menn dýrelskir. Fuglar em
bestir fyrir fólk sem býr eitt og
þarfnast félagsskapar. Þeir henta
betur en fiskar. Það er alltaf nota-
legt að hafa þessi litlu kríli
umhverfís sig, lífsglöð og kát.“
- Hvernig líkar þér starfið?
„Ég hef kynnst mörgum vegna
starfa míns og fellur vel að vera
innan um fólk og dýr allan daginn.
Kjörin em einnig ágæt og kann vel
við núverandi eigendur verslunar-
innar. Enda hefði ég ekki verið í
þessu öll þessi ár ef mér líkaði ekki
vel.“
„Lágt vöruverð
spyrst alltaf út“
Spjallað við Sigurberg Sveinsson kaup-
mann í Fjarðarkaupum
í HAFNARFIRÐI við Hólshraun lb stendur stórt hús. Utan á því
má lesa stórum stöfum Fjarðarkaup. Morgunblaðið leit inn í heim-
sókn rétt fyrir lokun og hitti Sigurberg Sveinsson kaupmann að
máli, en hann rekur verslunina ásamt félaga sínum, Bjarna Blómstur-
berg.
Talið barst fljótt að uppmna
Fjarðarkaupa. „Við Bjami hófum
rekstur verslunarinnar ásamt kon-
um okkar 7. júlí árið 1973.
Húsnæðið var þá ekki neitt í líkingu
við það sem það er í dag,“ sagði
Sigurbergur.
- Hversu umfangsmikil var
verslunin í upphafi?
„Við unnum fjögur við þetta,
tvenn hjón. Að auki var ein stúlka
okkur til aðstoðar. Verslunarplássið
var upp á 150 fermetra. Nú hefur
þetta undið upp á sig, því í dag em
40 heilsdagsstörf hjá Fjarðarkaup-
um og verslunarplássið er rúmlega
eitt þúsund fermetrar."
- Nú eruð þið þekktir fyrir
Iágt vöruverð. Hvemig tekst að
halda því niðri?
„Þar hjálpast margt að. Það hef-
ur vejið stefna okkar að halda
auglýsingum í algeru lágmarki. Við
teljum að selja megi góða vöm með
öðm móti. Lágt vömverð berst allt-
af fljótt út manna á meðal og með
því að sleppa auglýsingunum spör-
um við okkur umtalsverðan kostnað
sem skilar sér í lægra vömverði.
Lágt vömverð skilar sér í meiri
sölu. Nú, svo gemm við hagstæð
innkaup og fáum magnafslátt.
Síðast en ekki síst hefur það alltaf
verið okkar stefna að sníða okkur
stakk eftir vexti. Þegar við byggð-
um þetta hús sem nú hýsir Fjarðar-
kaup stefndum við að því að hafa
allt einfalt og látlaust. Hér reistum
við okkur ekki einhvem minnis-
varða úr steinsteypu heldur bygg-
ingu sem gegnir hlutverki sínu eins
og til var ætlast. Að auki höfum
við verið mjög heppnir með starfs-
fólk og það er ekki veigaminnsta
atriðið. Þegar þetta kemur allt sam-
an er unnt að halda vömverði niðri."
- Eru íslendingar kröfuharðir
kaupendur?
„Já, án alls vafa eru þeir það.
Það þýðir ekkert að bjóða lélega
vöm á lágu verði einungis vegna
þess hve ódýr hún er. Vömúrval
hefur breyst til batnaðar á þeim
tíma sem ég hef staðið í þessum
rekstri, enda er það svo að kaupend-
ur vilja hafa sem mest úrval til að
moða úr áður en þeir gera upp hug
sinn“.
- Hvað er það sem þér líkar
best við kaupmennskuna?
„Starfíð er íjölbreytt og ákaflega
lífrænt ef svo mætti að orði kom-
ast. Það er alltaf gaman að kynnast
fólki. Það má kannski segja að
ánægður viðskiptavinur sé mesta
umbunin. Ef kúnninn er ánægður
emm við ánægð.“
Hanna Halldórsdóttir og Erla Gissurardóttir afgreiðsludömur í Gullfiskabúðinni.
„Slappa af um helg-
ina og pakka niður
fyrir sumarleyfið“
- segir Sigurður Hróarsson hjá Góðu fólki
Hjá auglýsingastofum vítt og breitt um borgina starfar fjöldi tcxta-
gerðarmanna. Þeir eru félagar í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur.
Hjá Góðu fólki, Armúla 15, hittum við að máli Sigurð Hróarsson,
en hann sér um textasamningu fyrir auglýsingar sem samdar eru
hjá stofunni.
;V IE
...
Sigurður kvaðst hafa byijað fyrir
tæpu ári. „Ég tek þátt í skipulagn-
ingu auglýsingaherferða og hef af
þeim sökum mikil samskipti við við-
skiptavini stofunnar. Vömmar sem
verið er að auglýsa em margs kon-
ar, allt frá matvælum upp í bifreið-
ir,“ sagði Sigurður.
Er starfið fjölbreytt?
„Já, á því er enginn vafí. Hlut-
verk mitt felst bæði í því að koma
með hugmyndir og rita texta. Mað-
Morgunblaðið/Magnús Gottfreðsson
„Þetta er skemmtilegasti vinnustaður sem ég hef verið á“, segir
Sigurður Hróarsson textagerðarmaður hjá Góðu fólki.
ur kynnist mjög mörgum í starfí
sem þessu — auk þess er ég í snert-
ingu við marga aðra þætti í starf-
semi stofunnar en þá sem heyra
beint undir mitt verksvið. Á vegum
stofunnar em ekki einasta unnar
blaðaauglýsingar, heldur og bækl-
ingar og auglýsingar fyrir sjónvarp.