Morgunblaðið - 02.08.1986, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1986
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
„Hæ! Eins og fleiri þarf ég
bráðlega að velja í sambandi
við nám. Eg hef ekki hug-
mynd um hvað ætti best við
mig og er vægast sagt mjög
„ráðvillt". Ég vona að þú
fítir hjálpað mér eitthvað.
g er fædd 17.10. 1970 kl.
8.40 (um morgun) í Hafnar-
firði. Með fyrirfram þökk.
Vog.“
Svar:
Ég get reynt að gefa þér
almennar ráðleggingar sem
taka mið af því hvemig per-
sónuleiki þú ert. Ég get því
miður ekki nefnt eitt ákveðið
starf, enda tel ég slíkt vara-
samt þar sem ég væri þá að
binda hendur þínar um of.
Ég vil því biðja þig um að
líta á eftirfarandi sem tillög-
ur.
Merkin þín
Þú hefur Sól, Merkúr og
Rísandi merki í Vog, Tungl
í Nauti, Venus í Sporðdreka,
Mars í Meyju og Miðhiminn
í Ljóni.
Félagslynd
Tvennt vekur strax athygli
við kort þitt. í fyrsta lagi
sterk Vog. Það táknar að þú
ert félagslynd og þarft meira
á því að halda en margur
að umgangast fólk. Þú ættir
að taka mið af þessu þegar
þú velur þér nám. Mér dettur
t.d. í hug að gott væri fyrir
þig að velja félagsbraut í
menntaskóla eða læra fög
sem hafa með mannleg sam-
skipti að gera og gefa þér
kost á að vinna með fólki
að loknu námi. Mannmargur
vinnustaður á t.d. vel við
Vog.
Gestamóttaka
Vogir vinna oft við margs
konar gestamóttöku, t.d. á
hótelum eða starfa við mót-
töku í risafyrirtækjum. Þar
sem Sól þín er Rísandi og
Vogin er frumkvætt merki
gæti verið ágætt fyrir þig
að koma þér í aðstöðu til að
vera í einhvers konar félags-
legri stjórnun. Nám sem
gæti komið þér í slíka að-
stöðu er t.d. hótelnám eða
lögfræði. Lögfræði flallar
um reglur í mannlegu sam-
félagi og er nám sem gefur
möguleika á margs konar
félagslegu starfí.
Fegurð
Vogin er listrænt merki, er
næmt á fegurð og jafnvægi
hluta og lita í umhverfl sínu.
Þú ættir að þroska þennan
þátt með þér. Störf sem hafa
með fegrun að gera gætu
komið til greina, s.s. hár-
greiðsla eða snyrting. Mér
datt í hug gullsmíði er ég
var að skoða kort þitt, en
kannski frekar í táknrænni
merkingu, vegna þess að í
korti þínu má sjá ákveðna
fágun.
Ljúf
Um persónuleika þinn má
annars segja: Þú ert ljúf og
þægileg persóna, reynir að
vera réttlát og sjá fleiri en
eina hlið á hvetju máli: Tungl
í Nauti táknar að þú hefur
rólegt lundarfar og þarft ör-
yggi og varanleika í daglegt
líf. Þú þarft að eiga gott
heimili og hafa trygga af-
komu. Venus í Sporðdreka
táknar að þú hefur sterkar
en dular ástartilfinningar og
þarft að varast að bæla til-
fínningar þínar niður. Þú
þarft því að læra að opna
tilfínningar þínar. Mars í
Meyju táknar að þú er ná-
kvæm og dugleg í vinnu.
Ljón á Miðhimni táknar að
þú vilt vissa virðingu frá
samferðamönnum þínum og
vera í starfí sem er lifandi
og reynir á sjálfa þig á skap- .
andi hátt.
Anina I'ttmnvm-
CourtrÆy fVost,
jultttviV. Komo-
Íil S'ótta-
6V4.5Í6
))»8S Kmg Fedlures Syrtdicale. Int Worldrighlt reterved a
é/c/v/? \UHfrVe/,3£M,
K4J&/0 /?r/tf4A/A/ \£6 7Xt//£**r*0
//£##{ V//H/V
//Hezrx/. Kemí//?/f£* lf/0/’/’/V//*/(
£*■/// X ÓMMr * ££///*////: -
K
. *
M//r/n/~ r£££//&
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
HANN A VIB>
A1ÖSAPÓNNUKÖKUr\/)
wfnniiniiiimiiuniiiiiiiiiiiiiiiimniiniiiiiiiiiiiiiiimiiiiiii
...:•: ........................................ ............
LJÓSKA
Mér finnst það synd að Lítið bara á heiminn í Hugsið ykkur bara alla Já, ef þessi klettur væri
láta sér Ieiðast kringum ykkur ... dásemdirnar sem við get- ekki fyrir ...
um séð allt í kring ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Getur suður unnið flóra spaða
með bestu vöm. Þér er alveg
óhætt að skoða allar hendur.
Norður gefur; allir á hættu.
Vestur
♦ D7
♦10852
♦ K9862
♦ 103
Norður
♦ 1043
VKD
♦ Á74
♦ ÁK872
111
Suður
♦ ÁK852
♦ 976
♦ D53
♦ 54
Austur
♦ G96
♦ ÁG43
♦ G10
♦ DG96
Vestur Norður Austur Suður
1 grand Pass 3 spaðar
Pass 4 spadar Pass Pass
Pass
Vestur spilar út hjartatvisti.
Lítum fyrst á hvemig líklegt er
að spilið gangi fyrir sig. Austur
drepur á hjartaás og skiptir yfir
í tígulgosa. Suður setur lítið
heima og drepur strax á ás
blinds. Tekur svo tvo efstu í
trompi og fer í laufíð, tekur ÁK
og stingur lauf. Spilar síðan
hjarta á kóng blinds og trompar
aftur lauf. Síðan stingur hann
hjarta í borðinu og spilar fímmta
laufínu, sem nú er frítt. Hvort
sem austur trompar eða ekki
mun tígull fara niður í laufíð og
samningurinn er þar með kom-
inn heim.
En þetta var ef austur drap
strax á hjartaás í upphafí. Ef
hann geymir hjartaásinn fækkar
hann innkomum sagnhafa í
blindan og banar spilinu um leið.
Umsjón Margeir
Pétursson
Við skulum líta á æsispenn-
andi skák frá sovéska meistara-
mótinu í Kiev í vor. Meistarinn
Jakovich hafði hvítt, en sigur-
vegarinn á mótinu, stórmeistar-
inn Vitaly Tseshkovsky hafði
svart og átti leik.
Svartur virðist í vandræðum,
því Hc8 og Rg4 standa báðir í
uppnámi. En Tseshkovsky hafði
séð lengra: 26. — Rxe3!, 27.
fxe3 - Hc2, 28. Hf2 - Hxf2?
Svartur gat unnið með því að
leika 28. — Dxe3! því 29. Re4!
(eina vömin) má svara með 29.
— Rc4! sem vinnur samstundis.
Eftir þessi mistök bjargar hvítur
sén 29. Kxf2 — Df6+, 30. Kgl
- Dxd6, 31. Bxe5 - Dxe5, 32.
Dc4 - g6, 33. Dc6 - De6, 34.
Dxe6 — fxc6, 35. a4 og hvítur
hélt peðsendataflinu. Þrátt fyrir
þennan klaufaskap varð Tsesh-
kovsky skákmeistari Sovétríkj-
anna 1986.