Morgunblaðið - 02.08.1986, Qupperneq 37
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1986
Unnið af fullum krafti við uppsetningu skfðaiyftunnar i Hlíðarfjalli.
Ný skíðalyfta sett
upp í Hlíðarfjalli
steypuframkvæmda. Við höfum
farið fram á steypu þrátt fyrir sum-
arleyfin, en án árangurs. Með þvf
að nota þyrlu í þetta, þurfum við
mjög gott veður en í ágúst er meiri
hætta á verri veðrum en nú. í góðu
veðri ljúkum við verkinu á tveimur
dögum og á þá steypan eftir að
þoma vel áður en við reisum möstr-
in.“
Nýja toglyftan kemur í framhaldi
af tveimur öðrum lyftum, stóla- og
toglyftu, sem hafa verið í fjallinu
til þessa, og flytur nýja lyftan sama
fjölda á klukkustund og hinar tvær
til samans. Togbrautin er 900 metra
löng og hefur 280 metra hæðar-
mun. Stólalyftan er 1.000 metra
löng og gamla toglyftan 700 metra
löng. Efri endi nýju lyftunnar er í
900 metra hæð yfír sjó.
Áður en framkvæmdir hófust við
nýju lyftuna, var gamla toglyftan
færð úr stað, en hún var áður þar
sem nýja lyftan á að koma og er
nú samsíða stólalyftunni.
ívar sagði að framkvæmdir í
fjallinu hafí lengi verið á dagskrá
bæjaryfírvalda, en nú væri fyrst að
rætast úr. Með nýju lyftunni opnuð-
ust nýjar skíðaleiðir og svæðið yrði
allt skemmtilegra fyrir skíðafólk.
Afkastagetan eykst þá um helming
f HLÍÐARFJALLI á Akureyri er nú unnið að uppsetningu nýrrar
togtyftu og þegar henni lýkur hefur afkastageta lyftnanna þar auk-
ist um helming, úr 500 manns á klukkustund f 1.000 manns. Auk
þess Iengist lyftuleiðin um 300 metra.
Sex til átta manna vinnuflokkur
hefur unnið að framkvæmdum í
fíallinu sl. tvo mánuði en fyrirsjáan-
leg er seinkun nú um tíu daga þar
sem starfsmenn steypustöðvarinnar
á Akureyri fara í sumarfrí 2.-11.
ágúst. Ráðgert hafði verið að steypa
sökkla nýju lyftunnar í gær og í
dag með hjálp þyrlu Landhelgis-
gæslunnar, en hún er nú biluð svo
ljóst er að ekki getur orðið af verk-
inu fyrr en í fyrsta lagi 11. ágúst
nk. að sögn ívars Sigmundssonar,
framkvæmdastjóra skíðasvæðisins
i Hlíðaifyalli.
„Sumarfrí starfsmanna steypu-
stöðvarinnar koma okkur afar illa
nú, enda er þetta besti tími til
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir
Menntamálaráðherrarnir Bertel Haarder og Sverrir Hermannsson
skoða Lystigarðinn ásamt Jóhanni Siguijónssyni skólameistara MA.
Ráðherrar á ferð um Norðurland:
Fornám að háskólanámi hefst í haust:
Kennsla í hjúkrunar-
fræðum og iðn-
rekstrargreinum
SVERRIR Hermannsson, menntamálaráðherra, hefur gefið leyfi sitt I
fyrir því að auglýst verði aðfaranám í hjúkrunarfræðum við öldunga- i
deild Menntaskólans á Akureyri og hefst það 1. október nk. um leið
og menntaskólinn tekur til starfa. Hjúkrunarfræðingar landlæknis-
embættisins hafa að undanförnu unnið að tiUögum að fornáminu.
Þær greinar sem kenndar verða eru: eðlisfræði, efnafræði, líffræði,
sálfræði, fagenska, stærðfræði og tölvufræði. íslensku hefur verið
bætt við námsskrá að ósk menntamálaráðherra.
Sverrir sagði í samtali við Morg-
unblaðið að stefnt yrði að því að
háskóladeild í hjúkrunarfræðum
yrði sett á stofti á Akureyri haustið
1987 og yrði sú deild í beinum
tengslum við Háskóla íslands.
Jóhann Sigurjónsson, settur
skólameistari MA, sagði í samtali
við blaðamann að hægt yrði að taka
á móti allt að 30 nemendum S að-
faranámið samkvæmt fjárhags-
áætlun og yrði námið auglýst strax
eftir verslunarmannahelgina.
„Nemendur geta ráðið sjálfír hversu
margar einingar þeir taka f þessu
fornámi, það fer algjörlega eftir
undirbúningi hvers og eins. For-
námið er hugsað fyrir þá sem hafa
gamalt stúdentspróf og vilja rifla
upp áður en farið er í háskóla og
eins er það hugsað fyrir þá hjúkr-
unarfræðinga sem próf hafa úr
Nýja hjúkrunarskólanum eða
Hjúkrunarskóla íslands og vilja nú
bæta háskólaprófi við sig, en sam-
kvæmt nýju reglunum þurfa þeir
að byija frá grunni í hjúkrunar-
fræðinámi háskólans vilji þeir
háskólagráðu."
Jóhann sagði að hjúkrunarpróf
frá Nýja hjúkrunarskólanum og
Hjúkrunarskóla íslands gæfí ekki
nema 80 einingar á móti 132 eining-
um úr stúdentsprófí. „Aðfaranámið
er fyrst og fremst undirbúnings-
nám, oft kallað 0-áfangi, sem veitir
engin réttindi nema betri undir-
búning undir háskólanám og er það
trú mín að þeim nemendum, sem
tekið hafa fomámið, muni ganga
mun betur en öðram í háskóla."
í haust hefst síðan aðfaranám
að háskólanámi í iðnrekstrargrein-
um við Verkmenntaskólann á
Akureyri, en gert er ráð fyrir há-
skólanámi í þeim fræðum á
Akureyri einnig næsta haust.
Bæjarstjóm Akureyrar hefur
boðist til að Ieggja til húsnæði und-
ir háskólakennslu á Akureyri,
gamla iðnskólahúsið, sem verið hef-
ur húsnæði Verkmenntaskólans til
þessa, en Verkmenntaskólinn er að
flytja í nýtt húsnæði á Eyrarlands-
holti. Jóhann sagði að gamla
iðnskólahúsið væri mjög vel fallið
til starfseminnar. Hægt yrði að taka
á móti allt að 350 nemendum með
góðu móti auk þess sem húsið hefði
verið byggt á sínum tíma með til-
liti til verklegrar kennslu.
Síðuskóli:
Ríkið skuld-
ar 35 millj.
RÍKIÐ skuldar Akureyrarbæ nú
um 35 miiyónir króna vegna bygg-
ingar Siðuskóla í Glerárhverfi. Um
90 milijónum króna hefur verið
varið til byggingarinnar og á
kostnaður að sldptast jafnt milli (
ríkis og bæjar. Rikið hefur aðeins
greitt 10 miiyónir króna til þessa.
Bygging skólans hófst fyrir um
þremur árum og er enn ekki að fullu
lokið þó kennsla sé hafín. í haust er
stefnt að þvi að bæta við fjórum
kennslustofum og er kostnaður við það
og frekara áframhald um 10 milljónir
króna. Hlutur ríkis og bæjar verður
þá um 50 milljónir hvors um sig.
Sigurður J. Sigurðsson, einn bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að nú hefði
verið skipuð nefnd til viðræðna við
ríkið um greiðslu þessarar skuldar og
hæfust þær fljótlega. Hann sagði við-
brögð stjómvalda jákvæð og að mikil
áherzla yrði á það lögð, að hlutur rðds- ?_
ins skilaði sér á sem skemmstum tfma.
Bæjarstjóm Akureyrar samþykkti I
þessari viku 12 milljóna króna auka-
fjárveitingu til framkvæmda við
Síðuskóla.
Skoðuðu MA
og Lystigarðinn
KennslumAlaráðherra Danmerkur, Bertel Haarder, og Sverrir
Hermannsson menntamálaráðherra fóru sl. fimmtudag um Norður-
land ásamt einginkonum sínum og öðru föruneyti, en danski
ráðherrann er staddur hér á landi í opinberri heimsókn vegna undir-
ritunar samkomulags um handritamálið.
Flugvél Landhelgisgæslunnar
flutti gestina norður í land á
fimmtudagsmorgun og lent var á
Aðaldalsflugvelli kl. 11.00 árdegis.
Þaðan var haldið að Grenjaðarstað,
þar sem séra Sigurður Guðmunds-
son vígslubiskup tók á móti hópnum
og sýndi bæði kirkjuna og minja-
gripasafnið þar.
Frá Grenjaðarstað lá leiðin að
Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit þar
sem snæddur var hádegisverður og
eftir matinn var farin skoðunarferð
um Mývatnssveit, að Námaskarði,
Höfða, Gijótagjá og víðar.
Því næst var haldið til Akureyrar
með viðkomu við Goðafoss. Þegar
komið var til Akureyrar var gamli
bæjarhlutinn skoðaður, sem öðru
naftii kallast „§aran“. Þar höfðu
dönsku kaupmennimir lengi vel
aðsetur og mörg húsin þar reist af
Dönum. Því næst var ekið að
Menntaskólanum á Akureyri og
sýndi Jóhann Siguijónsson, settur
skólameistari, ráðherranum hús-
næði skólans. Þá var gengið um
Lystigarðinn, sem er steinsnar frá
skólanum, áður en farið var til
kvöldverðar í boði bæjarstjómar
Akureyrar í veitingahúsinu „Fiðlar-
anum á þakinu". Flogið var frá
AkureyrarflugveUi til Reykjavíkur
um kvöldið kl. 22.30.
í gær var haldið til Borgarfjarðar
og Þingvalla seinnipartinn en þar
var einmitt skrifað undir samning
um lok handritamálsins. íslending-
ar hafa þá fengið Vahluta gömlu
handritanna til landsins. Þó gerir
samningurinn ráð fyrir að íslend-
ingar fái að taka afrit af þeim hluta
sem Danir hafa undir höndum.
Ueimsókn dönsku ráðherrahjón-
anna til íslands lýkur í dag.
r
Meiriháttar
verðlækkun
EN&IA60RNIN
Laugavegi 28
V.