Morgunblaðið - 13.08.1986, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1986
Höfðingjar
Því er stundum haldið fram að
útvarpið hafi sáralítil áhrif í
samanburði við sjónvarpið. En er
þessu þannig varið? í svæðisútvarpi
fyrir Reykjavík og nágrenni, sem
er í umsjón Sverris Gauta Diego,
Sigurðar Helgasonar, Steinunnar
H. Lárusdóttur og Þorgeirs Ólafs-
sonar, var í fyrradag rætt við
Hermann Þorsteinsson formann
bygginganefndar Hallgrímskirkju.
Hermann skýrði frá því að síðastlið-
inn fímmtudag, í kjölfar áskorunar
í svæðisútvarpinu til Reykvíkinga
um að mæta nú í kirkjuskipið að
hreinsa timbur sem selja á svo unnt
verði að ljúka kirkjubyggingunni
fyrir afmælisdag Hallgríms, hafi
bókstaflega drifíð að fólk úr öllum
áttum eða einsog Hermann orðaði
það, „þetta var eins og stórhátíð á
jólunum og hvílík afköst".
Já, slíkur er áhrifamáttur út-
varpsins kæru lesendur og svo
sannarlega er gleðilegt að enn skuli
fólk geta unnið saman í þágu hug-
sjónarinnar án tiílits til efnalegs
ávinnings. Var máski timburhreins-
unin á Skólavörðuhæð ákall sáln-
anna til þess er ber byrðar vorar?
Guði sé lof að enn er neisti guð-
dómsins kvikur í hjörtum fólksins.
Á meðan svo er er enn von og ég
fann í orðum Hermanns ljósið æðsta
er á eftir að lýsa musterið helga.
Minnumst orða sjáandans
Hallgríms, lokaorðanna:
Dýrð, vald, virðing og vegsemd hæst
vizka, makt, speki’ og lofgjörð stærst
sé þér, 6 Jesú, herra hár,
og heiður klár,
amen, amen, um eilíf ár!
Höfðingjar
En menn gera sér fleira til dund-
urs en hreinsa timbur í þágu
guðdómsins. I hinum notalega en
máski fulllanga óskalagaþætti
Helga Más Barðasonar á rás 2 er
hann nefnir Allt og sumt og kynnir
tónlist úr öllum áttum, þar á meðal
óskalög íbúa ákveðinna landsvæða,
síðast hlustenda í Mýrasýslu, Borg-
arfírði og á Akranesi, var í fyrradag
upplýst að nokkrir ungir sveinar á
Akranesi hafí nýlega haldið upp á
tvítugs afmælið í hvorki meira né
minna en 200 fermetra tjaldi þar
sem öllum bæjarbúum var boðið til
veislu. Mér fínnst þetta framtak
ungu mannanna á Ákranesi alveg
stórkostlegt og það sýnir að enn
ríða höfðingjar um héruð. Menn
hafa tuggast á því hér í tíma og
ótíma að landið byggi nú Kot-
ungakyn og höfðingjar Islands hafí
nánast dáið út með Einari Ben. og
Jóni Sigurðssyni en hvað um ungu
mennina á Akranesi er reisa tjald
að fomum sið og bjóða til veislu?
Mér varð hugsað til Njáls og Gunn-
ars er Helgi Már sagði frá tjald-
búðinni miklu við Akranes. Rís
máski nýtt höfðingjakyn senn við
hafsbrún, landvættum til fulltingis?
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
Þættir úr sögu Reykjavíkur:
Lifað o g leikið sér
IMNH í kvöld verður
Ol 30 fjallað um
" skemmtanir
Reykvíkinga á öldinni sem
leið og félagslífið í bænum
í Þáttum úr sögu Reykja-
víkur á rás eitt.
Fram kemur meðal ann-
ars að dansleikir voru mjög
vinsæl skemmtun alla öld-
Ymsar
hliðar
í kvöld er á dag-
on 30 skrá rásar eitt
^ O þáttur Bem-
harðar Guðmundssonar,
Ýmsar hliðar, sem fjallar
um málefni þriðja heims-
ins.
Þátturinn er vikulega á
dagskrá og kveðst Bem-
harður leitast við að draga
upp mynd af lífinu í þróun-
arlöndunum og tengja það
íslenskum veruleika, „enda
heimurinn ein heild" eins
og Bemharður orðar það.
í þættinum í kvöld ætlar
Bemharður að ræða um
áhrif þess að tæknin hefur
innreið sína í dæmigert
þróunarland. í því sam-
bandi tekur hann tali þá
Jens Andrésson og Guð-
mund Kristjánsson úr
áhöfn Fengs en þeir hafa
báðir unnið að þróunarað-
stoð á Grænhöfðaeyjum.
Loks ætlar Bernharður
að ræða við Ástu K. Ragn-
arsdóttur um unga íslend-
inga á krossgötum.
Bemharður
Guðmundsson
ina þótt erlendum ferða-
löngum þætti víst lítill
menningarbragur á þeim
skemmtunum bæjarbúa.
Umsjónarmaður hefur
leitað heimilda í ýmsum
ritum og má þar nefna
meðal annars Lífíð í
Reykjavík, eftir Gest Páls-
son, Ur heimsborg í grjóta-
þorp, eftir Lúðvík
Kristjánsson, og Lifnaðar-
hættir í Reykjavík á síðari
helmingi 19. aldar, eftir
Þórberg Þórðarson.
Auk þess verður gluggað
í kaflann Gömul Reykjavík-
urbréf 1835-’99 í bókinni
íslensk sendibréf.
Umsjónarmaður er
Gerður Róbertsdóttir og
lesari Auður Magnúsdóttir.
Síðustu dagar
Pompei
2105
Nú er búið að
sýna helminginn
af ítalsk-banda-
Flugleiðir í Paragvæ
21
H í kvöld er á dag-
50 skrá sjónvarps
mynd sem ís-
lenskir kvikmyndagerðar-
menn gerðu um leiguflug
Flugleiða til Paragvæ síð-
astliðinn vetur. Einnig
verða sýnd viðtöl sem tekin
voru við ráðamenn Flug-
leiða um leiguflug félags-
ins.
Framleiðednur eru Mynd-
varp og Frétta- og fræðslu-
þjónustan. Kvikmyndatöku
annaðsit Baldur Hrafnkell
Jónsson og hljóðupptöku
Böðvar Guðmundsson. Um-
sjón og stjóm Rafn Jónsson.
rísku þáttunum um síðustu
daga Pompei, Gli Ultimi
Giomi Di Pompei, í sjón-
varpinu og fer að færast
fjör í leikinn.
í kvöld verður sýndur
fjórði þátturinn af sex.
Áhugamenn um sögu
Rómaveldis ættu því að fá
nóg fyrir sinn snúð í sjón-
varpinu þessa dagana en á
sunnudaginn sýndi sjón-
varpið fyrsta þáttinn af
frægum myndaflokki,
Masada, sem fjallar um
átök gyðinga og Rómveija
á fyrstu öld eftir Krist.
Þættirnir um síðustu
daga Pompei em byggðir
á sagnfræðilegri skáldsögu
Edwards Bulwer Lytton og
em gerðir undir leikstjóm
Peters Hunt.
Fjöldi leikara kemur
fram í þáttunum en fræg-
astur þeirra er vafalaust
Bretinn Laurence Olivier
sem leikur Caio.
Þýðandi er Þuríður
Magnúsdóttir.
UTVARP
MIÐVIKUDAGUR
13. ágúst
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.16 Morgunvaktin
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.16 Veöurfregnir.
8.30 Fréttir á ensku.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Olla og Pési" eftir
löunni Steinsdóttur. Höf-
undur les (5).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.45 Lesið úr forystugreinum
dagblaöanna.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur frá kvöldinu áöur
sem Guðmundur Sæ-
mundsson flytur.
10.10 Veöurfregnir.
10.30 Áöur fyrr á árunum.
Umsjón: Ágústa Björnsdótt-
ir.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón:
Guömundur Jónsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn — Börn
og umhverfi þeirra. Umsjón:
Anna G. Magnúsdóttir og
Lilja Guðmundsdóttir.
14.00 Miödegissagan:
„Katrin", saga frá Álands-
eyjum eftir Sally Salminen.
Jón Helgason þýddi. Stein-
unn S. Siguröardóttir les
(32).
14.30 Segöu mér aö sunnan.
Ellý Vilhjálms velur og kynn-
ir lög af suörænum slóðum.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Á hringveginum —
Noröurland. Umsjón: Örn
Ingi, Anna Ringsted og Stef-
án Jökulsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tónlist eftir Pjotr
Tsjaíkovskí.
a. Forleikur aö Balletinum
„Rómeó og Júlía". Hallé-
hljómsveitin leikur; Okko
Kamu stjórnar.
b. Balletttónlist úr óperum.
Hljómsveit konunglegu
óperunnar í Covent Garden
leikur. Colin Davies stjórnar.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpiö. Stjórn-
andi: Vernharöur Linnet.
Aöstoöarmaöur: Sigurlaug
M. Jónasdóttir.
17.45 í loftinu. — Hallgrímur
Thorsteinsson og Guölaug
María Bjarnadóttir. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Aö utan. Fréttaþáttur
um erlend málefni.
20.00 Sagan: „Sundrung á
Flambardssetrinu" eftir K.
M. Peyton. Silja Aöalsteins-
dóttir les þýöingu sína (21).
20.30 Ýmsar hliöar. Þáttur i
umsjá Bernharðs Guö-
mundssonar.
21.00 (slenskir einsöngvarar
og kórar syngja.
21.30 Þættir úr sögu Reykja-
vikur — Lifaö og leikiö sér.
Umsión: Gerður Róberts-
dóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orö kvöldsins.
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Hljóö-varp. Ævar Kjart-
ansson sér um þátt i
samvinnu viö hlustendur.
23.10 Djassþátlur. — Tómas
R. Einarsson.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
13. ágúst
9.00 Morgunþáttur
í umsjá Kolbrúnar Halldórs-
dóttur, Kristjáns Sigurjóns-
SJÓNVARP
19.00 Ur myndabókinni —
15. þáttur
Barnaþáttur með innlendu
og erlendu efni. Fálynd
prinsessa, Bleiki pardusinn,
Villi bra bra, Snúlli snigill og
Alli álfur, Ugluspegill, Raggl
ráöagóöi, Alfa og Beta,
Klettagjá og Hænan Pippa.
Umsjón Agnes Johansen.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Smellir — Rolling Ston-
es — Seinni hluti. Umsjónar-
menn Snorri Már Skúlason
og Skúli Helgason. Stjórn
upptöku: Friörik Þór Friö-
riksson.
MIÐVIKUDAGUR
13. ágúst
21.05 Siöustu dagar Pompei
(Gli Ultimi Giorni Di Pompei)
Fjóröi þáttur. (talsk-banda-
riskur framhaldsmynda-
flokkur í sex þáttum, geröur
eftir sagnfræöilegri skáld-
sögu eftir Edward Bulwer
Lytton. Þýöandi: Þuriöur
Magnúsdóttir.
21.50 f leiguflugi — Flugleiöir
i Paragvæ
íslenskir kvikmyndageröar-
menn fylgdust meö áhöfn
flugmanna á leiö frá íslandi
til Paragvæ á liönum vetri
og fjallar myndin um flug-
ferö þá. Einnig er rætt viö
ráðamenn Flugleiöa um
leiguflug félagsins. Fram-
leiðendur: Myndvarp og
Frétta- og fræösluþjónust-
an. Umsjón og stjórn: Rafn
Jónsson. Kvikmyndataka:
Baldur Hrafnkell Jónsson.
Hljóö: Böðvar Guðmunds-
son.
22.10 Hafnarstræti
Þáttur sem Sjónvarpiö gerði
sumariö 1970. Rakin er
saga gamalla húsa viö
Hafnarstræti. Texti: Árni
Óla.
Umsjónarmaöur: Andrés
Indriöason. Áður sýnt i des-
ember 1970.
22.35 Fréttir í dagskrárlok.
sonar, og Siguröar Þórs
Salvarssonar. Guöríöur Har-
aldsdóttir sér um barnaefni i
fimmtari mínútur kl. 10.05.
12.00 Hlé.
14.00 Kliöur
Þáttur í umsjá Gunnars Svan-
bergssonar og Siguröar Krist-
inssonar. (Frá Akureyri.)
15.00 Nú er lag
Gunnar Salvarsson kynnir
gömul og ný úrvalslög að
hætti hússins.
16.00 Taktar
Stjórnandi: Heiöbjört Jó-
hannsdóttir.
17.00 Erill og ferill
Erna Arnardóttir sér um tón-
listarþátt blandaöan spjalli við
gesti og hlustendur.
18.00 Tekiö á rás
Ingólfur Hannesson og Samú-
el Örn Erlingsson lýsa leikjum
i undanúrslitum bikarkeppni
Knattspyrnusambands (s-
lands. IA og Valur keppa á
Akranesi og Fram og ÍBK á
Laugardalsvelli í Reykjavik.
21.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 15.00, 16.00
og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæöisútvarp fyr
ir Reykjavík og nágrenni — FM
90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæöisútvarp fyr-
ir Akureyri og nágrenni — FM
96,5 MHz.