Morgunblaðið - 13.08.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1986
Fiskafli tæp
780þús.tonn
HEILDARFISKAFLI á fyrstu sjö mánuðum þessa árs er 799.978
tonn eða rúmum 47 þúsund tonnum meiri en á sama tíma í fyrra.
Þar af er þorskafli 244.483 tonn, en var á sama tíma í fyrra
227.063 tonn. 350.468 tonn af loðnu hafa borist á land fyrstu sjö
mánuði ársins en á sama tíma í fyrra var loðnuveiðin 344.572 tonn.
Aflahæsta verstöðin er Vestmannaeyjar með samtals 112.728 tonn,
en þar var einnig mestur afli kominn á land á sama tíma í fyrra,
102.982 tonn.
Aflinn það sem af er þessu ári
skiptist þannig að bátar eru með
575.067 tonn og togarar 224.911
tonn og er það svipuð skipting og
á sama tíma í fyrra. Aflinn skiptist
þannig milli landshluta: Suðurland
137.386 tonn, Reykjanes 155.729
tonn, Vesturland 61.821, Vestfirðir
62.465, Norðurland 119.613 tonn,
Austfirðir 179.923 tonn og erlendis
var landað 83.041.
Af þorskafla það sem af er þessu
ári hefur mestu verið landað í Ól-
afsvík, 13.229 tonnum, næst kemur
Keflavík með 13.056 tonn og þvi
næst Vestmannaeyjar með 12.777
tonn. Heildarsala erlendis það sem
af er þessu ári er 83.041 tonn en
var á sama tíma í fyrra 52.465
tonn. Heildarafli í júlímánuði nú var
69.905 tonn, en var í júlí í fyrra
69.335 tonn.
Morxunblaðið/Ámi Sæberf?
Rauði kross íslands afhenti Landhelgisgæslunni í gær sjö sjúkrabörur tíl nota í þyrlum gæslunnar. Á
myndinni sést er Guðjón Magnússon formaður RKÍ afhendir Gunnari Bergsteinssyni forstjóra Land-
helgisgæslunnar börurnar. Vinstra megin við þá stendur Jón Ásgeirsson framkvæmdastjóri RKÍ.
Rauði kross íslands:
Færði Landhelgisgæslunni
sjö sjúkrabörur að gjöf
Ungt fólk með hlutverk:
Loren Cunningham talar
á samkomu í Neskirkju
RAUÐI kross íslands færði
Landhelgisgæslunni í gær að
gjöf sjö sjúkrabörur til notkunar
í þyrlum.
Börur þessar eru af tveimur gerð-
um. Sex þeirra eru af venjulegri
gerð, en þó þannig að hægt er að
leggja þær saman, svo lítið fer fyr-
ir þeim. Hingað til hefur Land-
helgisgæslan notast við óhentugri
börur sem taka svo mikið rými í
þyrlunum að þær hefur oft þurft
að skilja eftir ef ekki er farið í
sjúkraflug. Einar börur eru sérstak-
lega gerðar til að flytja sjúklinga
sem eru brotnir á hrygg eða hálsi.
Guðjón Magnússon, formaður
Rauða krossins, afhenti börumar
og sagði við það tækifæri, að þótt
Rauði krossinn hefði rúmlega 50
bifreiðir víða um land við sjúkra-
flutninga, þá mætti ekki gleyma
sjúkraflutningum í lofti. „Það hafa
orðið straumhvörf í sjúkraflutning-
um með skipulagningu Landhelgis-
gæslunnar á vinnu fjölda manna
og þá ekki síst vegna þyrlunnar,"
sagði Guðjón. „Góður búnaður
skiptir þar miklu máli, en góðir
starfsmenn ekki síður“.
Gunnar Bergsteinsson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, veitti börun-
um viðtöku og sagði að þær kæmu
sér afar vel, því eldri börur hefðu
verið mun óþjálli. „Það skiptir sköp-
um að í stærri þyrlu Landhelgis-
gæslunnar komast nú fjórir
sjúklingar í einu, auk læknis og
áhafnar. í minni þyrluna komast
tvennar börur,“ sagði Gunnar. Þá
sagði hann að yfir 30 sjúkra- og
leitarflug hefðu verið farin það sem
af er þessu ári.
Jón Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri Rauða kross Islands, sagði
að stutt væri síðan ákvörðun var
tekin um kaup á sjúkrabörum.
„Börumar voru keyptar af Lands-
sambandi hjálparsveita skáta og
kostuðu tæpar 80 þúsund krónur,“
sagði Jón. „Þær eru þegar komnar
í notkun og kom Frakki hingað til
lands til að kenna starfsmönnum
Landhelgisgæslunnar notkun þeirra
í stærri þyrlunni," sagði Jón.
SAMTOKIN Ungt fólk með hlut-
verk munu í kvöld og annað
kvöld verða með tvær almennar
samkomur í Neskirkju í tilefni
af komu alþjóðlegs leiðtoga
kristniboðssamtakanna „Youth
with a Mission", Loren Cunning-
ham.
Cunningham er nú staddur hér
á landi ásamt konu sinni og Eivind
Fröen frá Noregi og Thomas Juul
Askham frá Færeyjum.
Kristniboðssamtökin hafa nú um
5 þúsund starfsmenn í fullu starfí
á sínum snæmm víðs vegar um
heiminn og um 20 þúsund starfs-
mönnum í hlutastarfi í 65 löndum.
Samtökin voru stofnuð árið 1960
af Loren Cunningham og skiptist
starf þeirra aðallega í þrennt;
kristniboð, kennslu og hjálparstarf.
Hafa þau árum saman tekið þátt í
hjálparstarfí meðal flóttamanna
víða um heim, og eru nú til dæmis
að hefja slíkt starf í Súdan í sam-
vinnu við Sameinuðu þjóðimar.
Mr-'sg §■
& gnn ssaw’ Sfc S 55 <ss
m s^r!*5i "jíl. w* ^2 ^5- .Bí
•e SE 'Sk im
Aerobic leikfimi er dúndur stuðleikfimi með músík.
Tímar fyrir byrjendur og lengra komna, einnig opnir
tímar. Teygjuæfingar og sérlega góð úthaldsþjálfun.
Æft þrisvar í viku.
mm an i
in&fl
4-6 teknir í nám í
f lugnmfer ðar stj ór n
Flugumferðarsljórn hefur
auglýst eftir umsóknum um nám
Stöðuhækkun en
ekki ný staða
- segir samgöngu-
ráðherra
„ÁSTÆÐULAUST þótti að auglýsa
stöðu aðstoðarmanns Póst og síma-
málastjóra lausa til umsóknar því
einungis var um að ræða stöðu-
hækkun hjá einum framkvæmda-
stjóra stofnunarinnar, en ekki nýja
stöðu,“ sagði Matthías Bjarnason,
samgönguráðherra, er hann
var að því spurður hvernig á því
hefði staðið að þessi nýja staða
hefði ekki verið auglýst á dögunum
eins og staða Póst og símamála-
stjóra.
Guðmundur Bjömsson, sá er hlaut
þessa stöðuveitingu, hefur verið einn
fimm framkvæmdastjóra Pósts og
síma, og sagði Matthías að mikilvægt
hefði verið að koma þessari stöðu á
laggimar til að ljóst væri hvcr stað-
gengill Póst og símamálastjóra væri
þegar hann væri fjarverandi. Sagði
hann það því hafa legið beint við að
veita einum þessara framkvæmda-
stjóra stöðuhækkun og hann tekið þá
ákvörðun að ráða Guðmund þar sem
hann hefði sótt um stöðu Póst og síma-
málastjóra og verið viðskiptafræði-
menntaður.
í fluguniferðarstjórn og sagði
Einar Einarsson, skólastjóri hjá
Flugumfeðarþjónustunni, að
fjórir til sex umsækjendur yrðu
teknir inn að þessu sinni og að
mikið hefði verið um að eyðublöð
varðandi námið hefðu verið sótt
á skrifstofuna.
Fjöldi umsókna hefur á undan-
fömum árum orðið allt að 70, og í
fyrra bárust 40 umsóknir. Einar
sagði að til umsækjenda væru gerð-
ar kröfur um stúdentspróf og þeir
sem uppfylltu þær yrðu síðan að
þreyta próf í íslensku, ensku, stærð-
fræði og eðlisfræði, og einnig yrðu
þeir látnir sæta læknisskoðun og
fara í viðtal til sálfræðings. Sagði
Einar að síðan yrðu fjórir til sex
umsækjendur valdir til að sækja
nám í flugumferðarstjórn í níu
mánuði í Kanada, og fara þeir þang-
að í byijun næsta árs. Að afloknu
námi í Kanada koma þeir hingað
til lands og þreyta svonefnt starfs-
réttindapróf.
Nú eru sjö íslendingar við nám
í flugumferðarstjóm í Kanada og
ljúka þeir því í nóvember og koma
þá heim.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
' stóum Moggans!
Hressandi leikfimi með músík fyrir konur með góðum
teygjuæfingum og mjög úthaldsaukandi. Æft tvisvar í
viku.
mSS& f&rvs, iíSfe g B »
I fr&SL SZ ^ ísr-a asss w’ ?
Bjóðum upp á mjög fjölþætta þjálfun í tækjasal, þrek-
þjálfun, líkamsræktarþjálfun og kraftþjálfun fyrir allar
tegundir íþrótta. Við viljum vekja athygli á því að tækja-
þjálfun er heppilegasta þjálfunarleiðin fyrir fólk sem
ekki hefur æft lengi og fyrir þá sem komnir eru yfir
miðjan aldur, jafnt fyrir konur sem karla.
Þá bjóðum við upp á Ijósaböð, böð, vatnsgufuböð og
nuddpotta.
Hjá okkur er aðstaða fyrir börn meðan foreldrar æfa.
Upplýsingar og innritun í símum 46900, 46901,46902,
frá kl. 1 4.00 til kl. 22.00 frá mánud. til fimmtud., kl.
14.00 til kl. 21.00 áföstud. og frá kl. 10.00 til 18.00
á laugardögum.
ÆFINGÁ5VOÐIN
ENGIHJALLA 8 * ^46900