Morgunblaðið - 13.08.1986, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1986
9
UTSAIA
40-50% lækkun á
veggfóðri og efnum.
Mikil verðlækkun á
sumarfatnaði
Dæmi:
Kjólar: frá 990.-
Bolir: frá 375.-
Kápur: frá 2900.-
%istan
Laugavegi 99, sími 16646.
Jíafa ‘Royal
Sumartilboð
20% verðlækkun á
öllum harðviði
Baðinnréttingar fyrir þá sem haffa
góöan smekk.
VALD. POULSEN f
Suðurlandsbraut 10 — Sími 686499
SHwgmiMfifrtfe
Askriftcirsíminn er 83033
feiítoMmsp
Petra Kelly til 1
Islands í boði ungra
framsóknarmanna
Ungir framsóknarmenn
og Græningjar
Morgunblaðið skýrði frá því á laugardaginn, að Samband ungra
framsóknarmanna (SUF) hefði boðið Petru Kelly, fyrrum þing-
manni Græningja í Vestur-Þýskalandi, að koma hingað til lands
og sitja þing SUF, sem haldið verður í Eyjafirði um næstu mán-
aðamót. í fréttinni sagði, að Petra Kelly myndi að öllum líkindum
þekkjast boðið og taka að auki með sér til íslands Gert Bast-
ian, þingmann Græningja og fyrrum hershöfðingja. í Staksteinum
í dag er farið nokkrum orðum um hinn óvænta vinskap ungra
framsóknarmanna og Græningja og spurt, hvað í honum felist.
Grænmgjar
ysttilvinstri
í frétt Morgunblaðsins
á laugardaginn segir
ma.: „Finnur Ingólfsson,
formaður SUF, var
spurður hvers vegna
Petru Kelly væri boðið á
ráðstefnuna og hvort
hún hefði þekkst boðið.
Finnur sagði, að um-
hverfismál yrðu stór
þáttur í ráðstefnunni,
sem ber yfirskriftina
„Framsóknarflokkurinn:
Afl nýrra tima“, og sú
umræða væri ástæða
þess, að Petru Kelly hefði
verið boðið.“
Ekki er óeðlilegt að
tengja saman Græningja
og umhverfismál, enda
er flokkur þeirra gjarn-
an nefndur „flokkur
umhverfisvemdar-
sinna“. En þeir, sem
fylgjast með fréttum,
ættu að vita, að Græn-
ingjar hafa ekki aðeins
áhuga á umhverfismál-
um t þröngum skilningi,
heldur einnig og kannski
ekki síst öryggis- og
vamarmálum. I þeim
efnum er stefna þeirra
skýr: Þeir em andsnúnir
aðild Vestur-Þýskalands
að Atlantshafsbandalag-
inu og vilja einhliða
kjamorkuafvopnun
Vesturlanda. Fyrir þessu
hafa þeir barist af mikl-
um ákafa á undanföm-
um árum og skipað sér
framarlega i raðir hinna
svonefndu „friðarhreyf-
inga“. Innan Græningja-
flokksins em síðan
margvíslegar fylkingar
með ólík hugðarefni og
áherslur: þ. á m. hvers-
kyns draumórafólk og
„náttúmböm" og jafnvel
andstæðingar þingræðis-
og lýðræðisskipulags.
Sú spuming er áleitin,
hvaða þættir ■ stefnu
Græningjanna höfða sér-
staklega til ungra
framsóknarmanna. Finn-
ur Ingólfsson segir, að
umhverfismál verði á
dagskrá á SUF-þinginu,
en varla er það eina
ástæðan fyrir boðinu til
Græningjanna. Nema þá
ungir framsóknarmenn
hafi svona litla hugmynd
um raunveruleg stefnu-
mál Græningjanna. Eða
ætla þeir kannski að sam-
þykkja einhveijar rót-
tækar ályktanir um
umhverfismál í víðum
skilningi i anda Græn-
ingja, sem tækju þá
jafnvel til kjamorku-
mála? Er hugsanlegt, að
þeir ætli að breyta um
afstöðu til Atlantshafs-
bandalagsins ogtaka upp
stefnu i anda Græningja?
Þetta verður bara að
koma í ljós, en óneitan-
lega er það furðulegt að
á sama tima og
Steingrímur Hermanns-
son, formaður Fram-
sóknarflokksins, leggur
áherslu á samstarf við
stjómmálaflokka i Al-
þjóðasambandi fijáls-
lyndra flokka og sækir
þing þeirra, skuli unglið-
amir í flokknum leita
eftir sambandi við flokk,
sem er yst til vinstri f
vestur-þýskum stjóm-
málum. Hvað ætli
„bræðraflokki" Fram-
sóknarflokksins í Vest-
ur-Þýskalandi, Frjálsa
demókrataflokknum,
finnist um slíka hegðun?
Og munu framsóknar-
menn skipa sama sess f
alþjóðasamstarfi eftir
Græningjaævintýrið?
Það er lfka ástæða til
að velta þvi fyrir sér,
hvort ungir framsóknar-
menn viti almennt um
það, hvað vakir fyrir for-
ystu SUF. Einhveijir
þeirra hljóta að spyija
sig, hvort það sé ekki
rétt að eftirláta Alþýðu-
bandalaginu og Kvenna-
listanum boð til Petm
Kelly og annarra Græn-
ingja. Fróðlegt verður að
sjá, hvort þessir menn
hafa hugrekki til að láta
undrun sina og hneyksl-
un i Ijós opinberlega áður
en SUF-þingið kemur
saman eða á þvi sjálfu.
„Aflnýrra
tíma“
Svo sem fyrr segir
verður yfirskrift SUF-
þingsins i Eyjafirði
„Framsóknarflokkurinn:
Afl nýrra tíma“. Þetta
heiti gefur ágæta
vísbendingu um „hug-
myndaauðgi" ungra
framsóknarmanna. Ná-
kvæmlega sama kjörorð
var yfirskrift 27. þings
Sambands ungra sjálf-
stæðismanna, sem lialdið
var í Reykjavík í septem-
ber 1983, og hefur oft
síðan verið notað af
SUS-mönnum um Sjálf-
stæðisflokkinn, m.a. i
tengslum við siðustu
sveitarstjómarkosning-
ar. Nú má auðvitað deila
um það, hvor flokkurinn
sé „afl nýrra tíma“, en
naumast þarf að deila um
hitt, að þama er um ann-
að tveggja að ræða:
framsóknarlega eftiröp-
un eða ótrúlega van-
þekkingu.
Það á eftir að koma í
ljós, í hvaða skilningi
Framsóknarflokkurinn
er „afl nýrra tima“. Ekki
virðast kjósendur vera
sammála því og ekki
heldur þeir, sem spurðir
em í skoðanakönnunum.
Kannski er átt við ein-
hveija umhverfisvemd-
arstefnu, sem mörkuð
verður á SUF-þinginu.
Varla er verið að minna
á, hvar þingið er haldið;
nefnilega í kjördæmi
Ingvars Gislasonar og
Stefáns Valgeirssonar,
sem líkur benda til að
muni áfram vera í for-
ystusveit Framsóknar-
flokksins í næstu
kosningum og þar með
helstu máttarstólpar afls
„hins nýja tíma“!
Hólahátíð næsta sunnudag:
I fyrsta sinn síðan ákveðið
var að endurreisa biskupsstól
Næstkomandi sunnudag verður
hin árlega Hólahátíð haldin
heima á Holum í Hjaltadal. Þau
merku timamót hafa orðið siðan
Hólahátíð var síðast haldin að
nú er ákveðið að vígslubiskup
Hólastiftis, sr. Sigurður Guð-
mundsson flytji heim að Hólum,
en þar hefur hann verið kosinn
sóknarprestur. Virðist þar komið
í höfn eitt aðalmarkmið Hólafé-
lagsins, sem heldur Hólahátíðina.
Hátíðin hefst sunnudaginn 17.
ágúst kl. 14 með hátíðarmessu í
dómkirkjunni. Þar predikar séra
Pétur Þórarinsson á Möðruvöllum
og kirkjukór Hóla og Viðvíkur syng-
ur. Organisti er Rögnvaldur Val-
bergsson. Prestar víðs vegar úr
Hólastifti þjóna fyrir altari.
Valur Amþórsson, kaupfélags-
stjóri, mun flytja aðalræðuna á
hátíðarsamkomu að lokinni guðs-
þjónustu. Þar mun einnig Rögn-
valdur Valbergsson spila á orgel
og Sveinn Sigurbjörnsson á tromp-
et. Elísabet Waage syngur einsöng
við undirleik Gunnars Óla Gunnars-
sonar og Thymothi Beyldy á
Sauðárkróki mun leika á fiðlu. Séra
Hjálmar Jónsson prófastur Skag-
firðingar flytur ávarp og lokaorðin
mun síðan eiga Hólabiskupinn, séra
Sigurður Guðmundsson.
Eftir guðsþjónustu drekka
kirkjugestir saman kaffi í skólahús-
inu og kl. 16.30 verður samkoma
fyrir börn.
Það hefur löngum þótt ömggt
að gott veður væri á Hólahátíð og
trúa margir Skagfirðingar og fleiri
Norðlendingar því, að Guðmundur
góði sjái til þess.