Morgunblaðið - 13.08.1986, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1986
Norrænir forsætisráðherrar ræða
um S-Afríku:
Carlsson fellst
á viðskiptabann
Kaupmannahöfn, frá Ib Björnbak, frétta-ritara Morgunbladsins.
Forsætisráóherrar Noróurianda sitja þessa dagana á rökstólum
og fer fundur þeirra fram i Oðinsvéum á Fjóni. I fyrradag, mánu-
dag, snerust umræður þeirra einkum um afstöðuna tii viðskiptabanns
á Suður-Afríku.
Jerúsalem, AP.
Mjög hart hefur verið lagt að
Ingvari Carlsson, forsætisráðherra
Svía, að taka þátt í samnorrænu ________________
viðskiptabanni á Suður-Afríku en *
hann er enn þeirrar skoðunar, að Israel:
eðlilegast sé, að öryggisráð Samein- -----------
uðu þjóðanna hafi frumkvæði að
slíku banni. Afstaða Dana er skýr-
ari því að þjóðþingið ákvað í trássi
við stjórnina að hætta öllum við-
skiptum við Suður-Afríku.
Danir eiga nú sæti í öryggisráði
SÞ og vill sænska stjómin, að þeir
taki þetta mál upp á þeim vett-
vangi. Á því hafa Danir hins vegar
engan áhuga. Telja þeir fullvíst, að
Bandaríkjamenn muni beita neitun-
arvaldi og því sé það ekki skynsam-
legt að vera að hreyfa málum, sem
engin von er til, að verði samþykkt.
Á forsætisráðherrafundinum í
Óðinsvéum hefur Ingvar Carlsson
gefið nokkuð eftir í þessu máli og
á blaðamannafundi seint á mánu-
dag sagði hann, að sér þætti best,
að öryggisráðið sæi um þetta mál,
en ef ekkert yrði af því ættu Norð-
urlöndin að sameinast um viðskipta-
bann. Taka mætti ákvörðun um það
fyrir árslok.
Þetta mál verður til umræðu á
fundi utanríkisráðherra Norður-
landa, sem hefst í dag, miðvikudag,
í Kaupmannahöfn. Þar verður einn-
ig fjallað um öryggisráðstefnu
Evrópu, eftirlit með vígbúnaði, af-
vopnun, mannréttindamál og al-
þjóðlegt samstarf í efnahagsmálum.
Anatoly Shcharansky var meðal þeirra, sem tóku þátt í mótmælaað-
gerðum fyrir framan skrifstofu Shimons Peres forsætisráðherra
Israels í gær. Hvöttu mótmælendur stjórnina til að taka ekki upp
stjórnmálasamband við Sovétmenn nema gyðingum verði heimilt að
flyljast frá Sovétríkjunum. AP/símamynd
Vilja ekki sljórnmála-
samband við Sovétmenn
— nema gyðingum verði leyft að flytjast frá Sovétríkjunum
TUGIR sovéskra innflytjenda 1 ísrael og hundruð stuðningsmanna
þeirra hvöttu á sunnudag stjórn landsins til að taka ekki upp stjórn-
málasamband við Sovétríkin fyrr en stjómvöld þar veita þeim
gyðingum, sem vilja flytjast úr landi, brottfararleyfi.
Fremstur í flokki mótmælenda
var Anatoly Shcharansky, sem var
leystur úr haldi í Sovétríkjunum og
leyft að flytjast til ísrael í febrúar
sl. Um fjögur hundruð manns söfn-
uðust saman fyrir utan skrifstofu
forsætisráðherra ísraels, Shimons
Peres, um tvær klukkustundir með-
an á ríkisstjómarfundi stóð, en þar
var rætt um fyrirhugaðar viðræður
ísraela og Sovétmanna í Helsinki
um leiðir til að endumýja stjóm-
málasamband ríkjanna tveggja.
Á ríkisstjórnarfundinum var
ákveðið að leggja aðaláherslu á
málefni gyðinga í Sovétríkjunum í
viðræðunum í Finnlandi.
Að sögn útvarpsstöðvar hersins
vom tveir ráðherrar Likud-banda-
lagsins sammála sovésku útlögun-
um og stuðningsmönnum þeirra um
að gera það að skilyrði fyrir end-
urnýjun stjómmálasambands
ríkjanna að sovéskum gyðingum
verði heimilt að að flytjast úr landi.
Veður
víða um heim
Lægst
Akureyri
Amsterdam
Aþena
Barcelona
Berlín
Briissel
Chicago
Dublin
Feneyjar
Frankfurt
Genf
Helsinki
HongKong
Jerúsalem
Kaupmannah. 11
Las Palmas
Lissabon 16
London 14
LosAngeles 17
Lúxemborg
Malaga
Mallorca
Miami
Montreal
Moskva
New York
Osló
París
Peking
Reykjavík
Rfódeianeiro 15
Rómaborg 18
Stokkhólmur 12
Sydney 7
Tókýó 25
Vfnarborg 19
Þórshöfn
13
13
11
19
16
15
26
19
Hæst
14
22
36
26
27
24
18
30
29
26
18
29
30
21
23
25
21
30
16
24
29
23
24
30
21
25
29
9
35
36
16
16
30
29
11
hálfskýjað
skýjað
heiðskírt
léttskýjað
vantar
heiðskírt
skýjað
skýjað
þokum.
heiðskírt
skýjað
skýjað
skýjað
heiðskírt
heiðskfrt
skýjað
skýjað
skýjað
skýjað
rigning
léttskýjað
vantar
skýjað
skýjað
skýjað
skýjað
skýjað
skýjað
heiðskírt
skúrir
skýjað
heiðskírt
skýjað
heiðskírt
heiðskirt
skýjað
súld
Chile:
Ritari
páfa
datt
af hjóli
Vatikaninu, AP.
SÉRA Emery Kabongo,
einkarítari Jóhannesar Páls
páfa II., datt af hjóli í gær
og viðbeinsbrotnaði. Ka-
bongo, sem er frá Zaire, var
fluttur á Policlinico Gemelli-
sjúkrahúsið og óttast læknar
að hann hafi fengið heila-
hrísting.
Kabongo var að hjóla í garðin-
um við sumardvalarstað páfa í
Gandolfo-kastala suður af Róm.
Hann var gerður að einkaritara
páfa fyrir fjómm árum og hafði
þá starfað tíu ár í utanríkis-
þjónustu Vatikansins.
Leynilögregla finiiur
vopnabúr skæruliða
Santiago, AP.
AUGUSTO Pinochet, forseti
Chile, sagði á mánudag að örygg-
issveitir hefðu fundið vopnabúr
í vogi einum við Kyrrahaf og þar
hefði leynst sprengiefni, sem
nægði til að sprengja hálfa Sant-
iago, höfuðborg Chile, í loft upp.
Leynilögregla hersins í Chile
sýndi vopnin, sem fundust, og sagði
að þetta væri mesti vopnaforði
skæruliða, sem fundist hefði síðan
Pinochet komst til valda með bylt-
ingu 1973.
Vopnabúrið var dulbúið sem
birgðastöð veiðmanna í Carrizal-
vogi um 660 km norður af Sant-
iago. Þar voru 348 rifflar, 210.000
skothleðslur, nokkrar sprengju-
vörpur og þrjátíu tonn af hand-
sprengjum og öðru sprengiefni, sem
flutt var í land frá sovéskum fiski-
skipum í gúmbátum knúnum
utanborðsmótor, að því er sagði í
tilkynningu leynilögreglunnar.
Pinochet skoðaði vopnin í höfuð-
stöðvum leynilögreglunnar í Sant-
iago og sagði eftir það við
blaðamenn: „Hér eru vopn fyrir
heila herdeild [20.000 manns].
Þetta sannar að ég segi sannleik-
ann. Við eigum í stríði, en stjóm-
málamennimir láta sér nægja að
tala,“ sagði leiðtogi herforingja-
stjómarinnar og bætti við: „Hér
höfum við fundið það sem upp úr
stendur af ísjakanum. Fyrir neðan
er ýmislegt annað að finna.“
Stjóm Pinochets þurrkaði út alla
andstöðu eftir að Salvador Allende
var steypt af stóli 1973. En undan-
farin ár hefur vinstri sinnuðum
skæruliðum vaxið fiskur um hrygg
auk þess sem almenningur hefur
gripið til friðsamlegra mótmælaað-
gerða gegn herstjóminni.
Pinochet hefur sakað andstæð-
inga sína, sem ekki em marxistar
og tala máli fjölda Chilebúa, um
að ganga erinda skæmliða í bylting-
arhug.
Harðar aðgerðir gegn bresk-
um knattspyrnuáhugamönmim
Amstordam, London, AP.
STJÓRNENDUR breska feiju-
fyrírtækisins Sealink hafa
ákveðið að grípa til harðra að-
gerða til að hjálpa til í baráttunni
gegn óeirðum í röðum breskra
Bandaríkin:
Verðurbannað að
reykja í flugvélum?
Waahington, AP.
Bandaríska vísindaakademían hefur hvatt til, að reykingar
verði með öllu bannaðar um borð í sumum áætlunarflugvélum.
Áskomn vísindaakademíunnar
kemur fram í skýrslu, sem birt
var nú í vikunni, og er búist við,
að hún verði til að kynda að nýju
undir gömlum deilum um hvort
takmarka skuli enn frekar
reykingar um borð í flugvélum.
Er í skýrslunni bent á, að þeir,
sem ekki reykja, neyðist til að
anda að sér svælunni frá
reykingamönnum auk þess sem
öryggi farþega og áhafnar sé bein
hætta búin af reykingunum.
Þetta mál hefur að mestu legið
í láginni síðan bandaríska flug-
málastjómin ákvað fyrir tveimur
ámm að hvetja til banns við
reykingum um borð í farþegaflug-
vélum, sem em tvo tíma eða
skemur að komast á áfangastað.
Stjóminni snerist hins vegar strax
hugur og lagði til, að bannið
næði aðeins til flugvéla, sem hefðu
sæti fyrir 30 farþega eða færri.
Vísindaakademían vill hins vegar,
að bannið nái til a.m.k. sumra
stórra farþegavéla á langleiðum.
knattspymuáhangenda.
Yfírlýsing stjómenda Sealink
kemur eftir að fótboltabullur slóg-
ust um borð í feijunni Koenigin
Beatrix á föstudag. Þrír menn vom
stungnir hnífí í átökunum.
Fetjur Sealink munu ekki flytja
áhangendur breskra félagsliða
framvegis nema lögregla sé um
borð og standi vörð við hafnir.
Einnig getur farið svo að vega-
bréf knattspymuáhugamanna verði
gerð upptæk meðan á ferð með
feijum Sealink stendur og félagslið-
in, sem em að fara að keppa
erlendis, greiði fyrirtækinu trygg-
ingu og ábyrgist áhangendur sína.
Tryggingin yrði endurgreidd við
komu í áfangastað, en greiðsla fyr-
ir skemmdir dregin frá, ef ein-
hverjar yrðu.
Breskum knattspyrnuliðum hef-
ur verið bannað að taka þátt í 711
knattspyrnumótinu, sem haldið er
árlega í Hollandi áður en keppnis-
tímabilið hefst, að sögn fram-
kvæmdastjóra mótsins, Jack van
Zanten.
„Þeir [breskir fótboltaáhuga-
menn] hafa engan lærdóm dregið
af harmleiknum á Heysel-leikvang-
inum í Bmssel," sagði van Zanten
og bætti við að aðstendur 711-
mótsins, sem haldið var um helg-
ina, væm orðlausir yfír óeirðum
breskra fótboltabulla í Amsterdam
og víðar í Hollandi.
Sovétríkin:
Víðkunnur sagn-
fræðingur látinn
Moskvu, AP.
NIKOLAI M. Druzhinin,
víðkunnur rússneskur sagnfræð-
ingur, lést sl. föstudag, 100 ára
að aldri.
Dmzhinin skrifaði um 150 rit-
verk og er saga rússneskra bylting-
arhreyfínga á 19. öld þeirra best
þekkt. Hann var gagnrýndur á ár-
unum upp úr 1950 fyrir skort á
ættjarðarást, en var hrósað sem
fyrirmyndarborgara og vísinda-
manni í minningargrein sem
Mikhail S. Gorbachev leiðtogi Sov-
étríkjanna o.fl. undirrituðu. Dmz-
hinin var meðiimur sovésku
vísindaakademíunnar og prófessor
við Moskvuháskóla.