Morgunblaðið - 13.08.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1986
23
Japanir minnast mesta f lugsly ss
sögunnar:
Ljósmyndir
teknar á síðustu
augnablikunum
Tókýó, APÁ—*
Ar er nú liðið frá mesta flugslysi sögunnar en það
varð þegar 520 manns fórust með japanskri breiðþotu
í innaniandsflugi. Hefur þess verið minnst með margvís-
legum hætti í Japan. I gær lögðu margir ættingjar hinna
látnu leið sína á fjallið þar sem harmleikurinn varð.
Fyrrum forseti Japanska flug-
félagsins, Yoshumoto Takagi,
sem sagði af sér eftir slysið, var
meðal þeirra, sem fóru upp á
fjallið, en þar ætlaði hann að
biðjast fyrir við mikinn bauta-
stein úr graníti.
Japanska lögreglan skýrði frá
því í gær, að hún hefði undir
höndum ljósmyndir, sem teknar
voru á síðustu augnablikum ör-
lagaferðarinnar fyrir ári.
Kyodo-fréttastofan sagði, að
myndimar, sem væru 11 talsins,
sýndu hvítt kóf inni í vélinni og
flugfreyjur, sem væru að hjálpa
farþegum með súrefnisgrímur.
Talsmaður lögreglunnar sagði,
að vitað væri hver hefði tekið
myndimar en að það yrði ekki
látið uppi. Aðeins ijórir komust
lífs af úr slysinu.
Ekki er enn fuliljóst hvað slys-
inu olli en rannsóknarmenn
hallast helst að því, að þrýstings-
þil aftarlega í vélinni hafí gefíð
sig. Við það eyðilagðist vökva-
kerfí vélarinnar og 30 mínútum
áður en hún hrapaði hafði flug-
stjórinn misst að mestu stjóm á
henni.
Mikoko Yoshizaki, átta ára gömul, var ein fjögurra kvenna, sem lifðu flugslysið af. Hér er verið
að bera hana burt úr flakinu.
Yfirmaður hryðju-
verkasveita sikha
a bak við
Amritsar, Indlandi, AP.
ÖRYGGISSVEITIR handtóku í
gær næstæðsta yfirmann hryðju-
verkasveita sikha, Tarsem Singh
Kuhar. Hann er yfirmaður Frels-
isfylkingar Khalistan og var
handtckinn í Karputhala-hérað-
inu austan við Amritsar. Á
Iaugardaginn var náðist einnig
Manbir Singh, yfirmaður „Hers
Khalistan", en það eru öflugustu
hryðjuverkasamtök á Indlandi.
Samtök Kuhars eru sérstakur
lás o g slá
hópur innan „Hers Khalistan“. Þau
bera ábyrgð á flestum hryðjuverk-
um i Gurdaspur-héraðinu í Punjab,
en þar hafa flest hryðjuverk verið
unnin undanfarið.
Hryðjuverkamenn sikha héldu
uppteknum hætti í gær. Þeir myrtu
þrjá meðlimi hindúafjölskyldu í
þorpi skammt frá Gullna musterinu
í Amritsar, sem og tvo hindúa í
þorpinu Purana Pind, sem er 40
kílómetra fyrir norðan Amritsar.
Menningarhryðjuverk:
Brennd eldspýta send
fyrir stolið málverk
Sydney, AP.
ÞJÓFARNIR, sem stálu málverkinu „Grátandi kona“ eftir
spánska listamanninn Pablo Picasso af safni á Ástralíu, hótuðu
fyrir þremur dögum að brenna listaverkið og sendu áströlsku
lögreglunni í gær brennda eldspýtu. Eldspýtunni fylgdi orðsend-
ing: „Hafið þökk fyrir stuðninginn. Annar liður aðgerðarinnar
hefst innan skamms."
Þjófamir kalla sig „menningar- „Grátandi kona" var máluð
hryðjuverkamennina" og hafa 1937 og er hún dýrasta málverk,
embættismenn, sem telja brunnu sem safn á Ástralíu hefur keypt.
eldspýtuna hafa táknrænt gildi, Lögregla leitar nú fímm
sent viðvörun til helstu listaverka- manna, sem grunaðir eru um
safna í Viktoríu-fylki, þar sem þjófnaðinn. Hún telur að þeir séu
stuldurinn var framinn, um að listamenn af staðnum fremur en
gæta fyllsta öryggis. atvinnuþjófar.
Frakkland:
Hætta kaupum
á líbýskri olíu
Nikósiu, Kýpur, AP.
FRÖNSK olíufélög í ríkiseigu og nokkur dótturfyrirtæki alþjóðlegra
olíufélaga hafa hætt að kaupa líbýska olíu og oliuvörur. Kom þetta
fram í gær í virtu tímariti um efnahagsmál.
í tímaritinu Middle East Ec-
onomie Survey, sem gefið er út í
Nikósíu á Kýpur og fjallar um efna-
hagsmál í Miðausturlöndum, sagði,
að það sem fyrir frönskum stjóm-
völdum vekti væri „að styðja á
hljóðlátan hátt bann Bandaríkja-
stjómar við viðskiptum við Líbýu-
menn“. Hafa Frakkar þá orðið
fyrstir Evrópubandalagsþjóðanna
til að taka þátt í viðskiptabanninu.
Fimm bandarísk olíufyrirtæki, sem
vom með starfsemi í Líbýu, hættu
henni 30. júní sl. að skipun banda-
rískra stjómvalda.
nögu'eikar
Vinding b'
\lexb 31
210 véiinn*
snúningar'
Þvottavélar búnar
stórkostlegum
tækninýjungum.
Blomberg þvottavélarnar fást
alhvítar, stílhreinar og með stór-
kostlegum tækninýjungum.
VM 1210
• Nýtt dælukerfi, sem fullnýtir
sápuefnin. Stórkostlegur
sparnaður.
• Mjög lítil vatnsnotkun aðeins
95 I.
•Vinding með hléum uppi 1200
snúninga.
Raki í þvotti aðeins 55%.
• Ryðfrýr stálþelgur og tromla.
Ryðvarið ytrabyröi.
• E-þvottakerfi, sparar straum
og tíma.
•2ja ára ábyrgð.
Fullkomin leiðbeiningabók á íslensku fylgir Blomberg þvottavélunum
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRATI I0A - SlMI 16995