Morgunblaðið - 13.08.1986, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1986
b
fclk í
fréttum
ABBA-afkomendur
í sviðsljósinu
Jenny Seagrove
farin að klífa fjöll
Sakleysið uppmálað?
Það er alltaf gaman að virða fyrir sér gamlar myndir og velta því
fyrir sér hvemig fðlk og fyrirbæri hafi nú staðist tímans tönn. Flest-
ir munu sammáia um að konan, sem þessi æskumynd er af, hafi hreint
ekki elst illa. Hins vegar má e.t.v. segja að hún hafi breytt um stíl í klæða-
burði frá því að þessi mynd var tekin og hálsmálin á kjólunum sem hún
klæðist í dag séu oftast heldur flegnari en á þessum sakleysislega skóla-
búningi. Þó er eitthvað kunnuglegt við svipinn, eða hvað? Jú, mikið rétt,
þetta er sjálf erkidrottning sápuóperanna, hin eina sanna Joan Collins.
Skyldi hún hafa verið byrjuð að brugga mönnum svipuð launráð og persón-
urnar sem hún er frægust fyrir leika gera nú á dögum?
Morgunblaðið/Fríða Proppé
Okkar maður á Selfossi
Snorri Örn Rafnsson sagðist hann heita — einn af „okkar mönnum"
á Selfossi. Blaðamaður hitti hann þar á níunda tímanum einn sóiar-
lausan morgun í síðustu viku. Sagði hann aðspurður að útburðurinn gengi
bara vel. Hann kvaðst bera út 27 blöð og vera í u.þ.b. hálfa klukkustund
að því. Afraksturinn væri rúmlega tólf hundruð krónur. Hvemig honum
líkaði? „Þetta er ágætt, gott að fá peninginn," sagði hann.
forks. Frammistaða hennar í þeim
þáttum þótti svo til fyrirmyndar,
að kvikmyndaframleiðendur víða
um heim slást nú um að fá hana í
hlutverk alls kyns frumkvöðla og
forystusauða. En Seagrove er
vandlát kona, sem lætur ekki
skyndilega frægð stíga sér til höf-
uðs. Undanfama mánuði dundaði
hún sér við handritalestur og hafn-
aði hveiju atvinnutilboðinu á fætur
öðru. „Það verður erfitt að fylgja
þessari veigengni eftir,“ sagði hún,
„og J/ess vegna mun ég vanda val-
ið. Eg verð að finna mér eitthvert
hlutverk, sem virkiiega höfðar til
mín — ég verð sjálf að hrífast af
verkinu, eigi mér að takast að túlka
það á viðunandi hátt.“ — Margir
voru því farnir að efast um að Jenny
myndi nokkuð ieika aftur, héldu að
hún væri orðin of hrædd við að
missa það, sem hún hafði áunnið
sér — virðingu og vinsældir. — En,
loks barst inn um lúgu hennar hand-
rit sem gjörsamlega hreif leikkon-
„Við skiljum ekki
þennan áhuga fjðl-
miðla á okkar einka-
málum,“ segja þau
Hasse og Helen og
harðneita að gefa
nokkuð upp um sam-
band sitt.
Abba-flokkurinn
barðist við að halda
börnum sínum frá
sviðsljósinu.
Hver man ekki eftir leikkonunni
Jenny Seagrove, sem birtist
okkur á sjónvarpsskjánum á sunnu-
dagskvöldum nú í vetur? Þar fór
hún með hlutverk kjamakonunnar
Emmu Harte — feikiiegs dugnaðar-
Foreldrar þeirra höfðu hamast
við að halda þeim frá sviðsljós-
inu allan þann tima sem þau stóðu
sjálf í eldlínu poppheimsins. Varla
höfðu þau þó fyrr dregið sig út úr
því brölti fyrr en böm þeirra, Hasse
og Helen, vom orðin aðalefnið í
frásögnum fjölmiðla. Móðir hans
er Frida, fyrnim söngkona ABBA-
flokksins, en hún er hins vegar
dóttir Benny Anderson. Hasse og
Helen hafa um árabil verið afskap-
lega góðir vinir, en nú leikur víst
grunur á að samband þeirra sé eitt-
hvað annað og meira en vinátta.
En það virðist ætla að ganga illa
að fá orðróm þennan staðfestan.
Bæði eru þau nefnilega með ein-
dæmum feimin og óframfærin og
kunna lítt við afskipti fjölmiðla af
einkamálum sínum. — En ætlar
unga fólkið ekkert að leggja tónlist-
ina fyrir sig, feta í fótspor foreldr-
anna, eins og svo algengt er? „Ekki
ég,“ fullyrðir Helen, en Hasse er
óráðnari. Hann hefur verið að
glamra eitthvað á gítarinn að und-
anfömu og segja þeir, sem til
þekkja, ekki ólíklegt að hann muni
troða upp opinberlega áður en langt
um líður. Bróðir Helenar, Peter
Grönvall, er hins vegar kominn í
hljómsveit, sem heitir því frumlega
nafni „Sound of Music" og vegnar
bara vel. Svo hver veit nema í upp-
siglingu sé annað ABBA-Qölskyldu-
fyrirtæki.
i