Morgunblaðið - 13.08.1986, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1986
Morgunblaðiö/Einar Falur.
• Ásta M. Reynisdóttir sóst hér f baráttunni um knöttinn í leiknum
gegn KA f gær sem einkenndist af mikilli hörku.
Miðjan hjá Stuttgart
sú besta í Þýskalandi
- sagði Fuchs þjálfari Homburg eftir tapið
Frá Skapta Hallgrímssyni, blaöamanni Morgunblaösins f Stuttgart.
FYRSTI leikur Ásgeirs Sigurvins-
sonar sem fyrirliða Stuttgart á
heimavelli var ánægjulegur fyrir
hann og féiaga hans. Þeir sigruðu
Homburg í gærkvöldi í Bundeslig-
unni 4:0 eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 3:0.
Sigur Stuttgart hefði allt eins
getað orðið 10:0, svo miklir voru
yfirburðir liðsins, en þess má geta
að leikurinn fór fram í hellirigningu
og hér í Stuttgart rigndi í allan
gærdag.
Andreas Miiller skoraði 2 mörk
fyrir Stuttgart í gærkvöldi. Hann
skoraði fyrsta mark leiksins með
skalla á 30. mínútu og það síðasta
með glæsilegri hjólhestaspyrnu
skömmu fyrir leikslok. Júgóslavinn
Predrag Pasic skoraði annað mark
Stuttgart með þrumuskoti af
Bikarkeppni kvenna:
Harkan í fyrirrúmi
í GÆRKVÖLDI áttust við f 4ra liða
úrslitum í bikarkeppni kvenna
UBK og KA. UBK hafði undirtökin
allan tímann og vann 3:1 en KA-
liðið barðist vel.
Á 11. mínútu tók Ásta María
Reynisdóttir aukaspyrnu rétt fyrir
utan teig KA og skoraði fallegt
mark, óverjandi fyrir góðan mark-
vörð KA. Síðan komu þrjú dauða-
færi í röð frá UBK sem ekki tókst
að nýta. Kristrún L. Daðadóttir
skaut beint á markvöröinn þegar
hún stóð ein og óvölduð fyrir mark-
inu, Magnea Magnúsdóttir komst
ein inn fyrir vörnina en skaut of
snemma beint á markvörðinn aftur
og síðan átti Svava Tryggvadóttir
gott skot á markið sem var vel
varið.
Ásta B. Gunnlaugsdóttir skoraði
Ekki Örn
f umfjöllun okkar um lelk Fram
og Vals í blaðinu f gær var sagt
að Örn Valdimarsson úr Fram
hefði rennt knettinum fyrir fætur
Valsmanna þegar þeir skoruðu
eina mark jeiksins. Þetta er al-
rangt því Öm var hvergi nærri
er þetta átti sér stað og er hann
beðinn velvirðingar á þessu.
síðan annað mark UBK rétt fyrir
lok hálfleiksins úr þröngri stöðu.
UBK var því yfir í hálfleik 2—0.
Strax á 4. mínútu skoraði Sigríður
Sigurðardóttir gott mark með
skalla fyrir UBK eftir fyrirgjöf frá
Kristrúnu. Á 2. mínútu skoraði Erla
Sigurgeirsdóttir síðan mark fyrir
KA eftir að hafa komist ein inn
fyrir vörn UBK. Fleiri urðu mörkin
ekki og UBK spilar því úrslitaleikinn
við Val sem verður leikinn 31.
ágúst. Hjördís Úlfarsdóttir, Erla
svo og markvörður KA áttu góðan
leik en hjá UBK bar mest á Svövu
Tryggvadóttur og einnig var Sigríð-
ur Jóhannsdóttir örugg í vörninni.
KMJ
stuttu færi á 41. mínútu. Hann
skaut í stöngina, knötturinn hrökk
í varnarmann og inn. Einni mínútu
fyrir hálfleik skoraði Karl Allgöver
með skalla.
Ásgeir góður
Ásgeir lék mjög vel í gærkvöldi
og stýrði liöi sínu eins og herfor-
ingi. Hinar frægu langsendingar
hans voru jafnglæsilegar og ávallt
áður og kom hann andstæðingum
sínum oft í opna skjöldu með þeim.
„Já, ég er mjög ánægður með
leikinn. Við gerðum út um þetta í
fyrri hálfleik og lékum þá mjög
vel," sagði Ásgeir eftir leikinn í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins. „Við ætluðum okkur að
leika örugga vörn og halda hreinu
á heimavelli. Við ætluðum að skora
mörk, en stefndum ekki endilega
á markamet."
-Hvernig iíst þér á keppnistíma-
bilið?
„Mér líst mjög vel á það. Við
spiluöum mjög vel í Mannheim í
fyrsta leiknum og vorum óheppnir
að tapa. Það var leikur sem við
áttum að vinna og hefðum við
gert það værum við með fullt hús.
Byrjunin hjá okkur er ágæt og við
erum allir mjög bjartsýnir á tíma-
bilið."
Ásgeir sagði slæmt að missa
Karl-Heinz Förster úr vörninni, en
hann var seldur til Frakklands.
Allgöver tók stöðu hans á móti
Mannheim, en Guido Buchwald lék
þar nú og Allgöver var framar á
miðjunni. Virtist sú uppstilling
koma mjög vel út.
„Förster var seldur á 3 og hálfa
milljón marka, en við keyptum
góða menn í staðinn og erum því
með sterkan hóp. Það var einmitt
það sem var að í fyrra — hópurinn
var ekki nógu sterkur. Ef einhver
meiðist nú kemur annar jafngóðuji
í staðinn," sagði Ásgeir.
Besta miðjan
hjá Stuttgart
„Við vissum aö þetta yrði erf-
itt," sagði Fritz Fuchs, þjálfari
Homburg, eftir leikinn. „Við erum
meö ungt lið og þetta var aðeins
annar leikur okkar í Bundeslig-
unni. Sigur Stuttgart hefði getað
orðið enn stærri og ég er þeirrar
skoðunar að miðjuleikmenn Stutt-
gart séu þeir bestu í Bundeslig-
unni. Því verður Stuttgart í 1.-4.
sæti þegar upp verður staðið."
3. deild:
Leiftur vann
LEIFTUR vann Þrótt, Neskaup-
stað, 3:0 í 3. deild i knattspyrnu
í gærkvöldi, staðan í hálfleik var
1:0.
Helgi Jóhannsson, Óskar Ingi-
mundarson og Hafsteinn Jakobs-
son skoruðu mörk heimamanna.
Bæöi liðin sýndu ágætis tilþrif og
börðust vel. Eitt stig aöskilur nú
Tindastól og Leiftur á toppnum i
B-riðlinum.
Mjólkurbikarinn:
Undanúrslit íkvöld
i KVÖLD klukkan 19 hefjast und-
anúrslitaleikirnir í Mjólkurbikar-
keppni KSÍ. Fjögur efstu liðin í
1. deild eru eftir í keppninni. Bik-
armeistarar Fram og ÍBK leika á
Laugardalsvelli og ÍA og Valur á
Akranesi.
Fram og ÍBK, liðin sem léku til
úrslita um bikarinn í fyrra, ætla sér
bæði að komast áfram í úrslit og
því má búast við miklum baráttu-
leik í Laugardalnum í kvöld.
Innbyrðisleikir liðanna í 1. deild í
sumar hafa einkennst af mikilli
baráttu, þar sem ekkert hefur ver-
ið gefið eftir. ÍBK vann fyrri leikinn
í Laugardalnum 1:0 og var markið
skorað undir lok leiksins, en Fram
hafði átt meira í leiknum. Viðureign
liðanna í Keflavík endaði 1:1.
Leikurinn á Skaganum ætti ekki
síður að geta orðið skemmtilegur.
Valur vann ÍA 1:0 á Hlíðarenda í
1. deild, en liðin leika á Skaganum
í síðustu umferð. Valsmenn eru á
hraðri siglingu í deildinni og stefna
á að vinna tvöfalt. Skagamenn eiga
tölfræðilega möguleika á deildar-
titlinum, en bikarinn stendur þeim
nær.
Morgunblaðsliðið -14 . umferð
I ÞRÍR nýliðar eru i liðl 13. umferðar hjá okkur, einn úr Val, einn úr KR og einn úr ÍBK. Leikreyndustu I I menn liðsins eru þeir Guðni Bergsson úr Val og Viðar Þorkelsson úr Fram en þeir hafa báðir verið í I
I lidi umferöarinnar sex sinnum í sumar.
Quðmundur Hreiðarsson Val (3)
Þorgrímur Þráinsson Val (1) Ársœll Kristjánsson Val (2) Heimir Guðmundsson ÍA (S)
Guðni Bergsson Val (6)
Hilmar Sighvatsson Guðjón Guðmundsson Gunnar Skúlason
Val (2) Víði (2) KR (1)
Ingvar Guömundsson Freyr Sverrisson
IBK (1) ÍBK (2)
Fjögur bestu lið landsins í dag
leika í kvöld, en hvað segja þjálfar-
ar liðanna um leikina?
Ásgeir Elíasson,
þjálfari Fram:
„Við ætlum okkur í bikarúrslitin
og því er ég bjartsýnn. Við getum
ekki annað en stefnt upp á við
eftir leikinn gegn Val og í kvöld
reynum við að bæta það sem mið-
ur fór á sunnudaginn og má vel
vera að ég breyti liðinu. Ég legg
aðaláherslu á að vinna deildina,
en við höfum einnig hug á að halda
bikarnum."
Hólmbert Friðjóns-
son, þjálfari ÍBK:
„Þetta verður erfiður og harður
leikur, en við tökum hann eins og
hann kemur fyrir. Frammarar
koma ákveðnir til leiks eftir slakan
leik gegn Val, en við erum tilbúnir
að taka á móti þeim. Við áttum
góðan leik í Eyjum um helgina og
ég sé því ekki ástæöu til að breyta
byrjunarliðinu, en við leikum aö-
eins einn leik í einu.“
Jim Barron, þjálfari ÍA:
„Ég á von á góðum leik í kvöld,
því bæði liðin hafa leikið skemmti-
lega knatspyrnu upp á síðkastið.
Valsmenn voru mjög góðir á móti
Fram og við lékum ágætlega gegn
FH um helgina. Ég hlakka mikið
til leiksins, þetta verður góður
dagur jafnt fyrir áhorfendur sem
leikmenn og ég geri ráö fyrir að
stilla upp sama liði og á móti FH.“
lan Ross, þjálfari Vals: <r
„Hjá mér skiptir mestu máli að
vera í undanúrslitum. Leikurinn í
kvöld verður á milli tveggja góðra
liða og því tel ég að leikurinn verði
skemmtilegur. Nokkrir minna
manna eiga við smámeiðsli að
stríða eftir leikinn gegn Fram, en
þeir hafa fengið góða hvíld og
líklega verður byrjunarliðið eins.“
Valur
ÍA
í dag kl. 19.00.
Sætaferðir frá
Valsheimilinu í dag
kl. 17.00.
Knattspyrnudeild
Vals.