Morgunblaðið - 13.08.1986, Page 48
SEGÐU
RnARHÓLL
ÞEGAR
ÞU EERÐ ÚTAÐ BORÐA
----SÍMI18833—-
heimSbókhaw®
MIÐVIKUDAGUR 13. AGUST 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Fyrsta
„hvíta“
nauta-
-Jkjötið á
markaðinn
Sulan EA siglir med fullfermi inn Eyjafjörð á leið til verksmiðjunnar á Krossanesi.
• •
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Flein bræðslur taka til starfa
EINN loðnubátur tilkynnti afla
á loðnumiðunum við Jan Mayen
í fyrrinótt. Það var Gísli Arni
sem var með um 600 tonn.
Enn sem komið er eru aðeins
tvær verksmiðjur komnar í gang,
á Raufarhöfn og Krossanesi, en
búist er við að verksmiðjan á
Siglufírði taki til starfa nú í vik-
unni. Þá er vitað að Aðalsteinn
Jónsson á Eskifirði er farinn að
undirbúa bræðslu í verksmiðju
sinni og eru tveir báta hans komn-
ir á loðnumiðin.
Aðalsteinn sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði
ákveðið að he§a bræðslu þegar
að því kæmi að verksmiðjumar
fyrir norðan hefðu ekki undan og
myndu bátar hans freista þess að
landa þar fyrst, áður en siglt yrði
til Eskifjarðar.
Alls munu 12 skip byijuð veið-
ar af tæplega 50, sem leyfi hafa
til loðnuveiða.
Verulega dregið úr fram-
leiðslu á Bandaríkjamarkað
Trúi ekki öðru en menn hafi langtímasj ónarmið í
huga, segir Magnús Gústafsson forstjóri Coldwater
NÝLEGA var fyrstu hvítakjöts-
kálfunum slátrað á Selfossi og í
Borgamesi. Kálfarnir vom aldir
á mjólk og var tilgangurinn að
framleiða hvítt nautakjöt úr
umframmjólk. Kjötið varð þó af
einhveijum ástæðum dekkra en
menn áttu von á.
Halldór Guðmundsson slátur-
hússtjóri hjá Sláturfélagi Suður-
lands á Selfossi sagði að þangað
hefðu komið tveir hvítakjötskálfar
til slátrunar. Kjötið hefði verið fal-
legt, en það hefði þó alls ekki verið
eins hvítt og menn áttu von á.
Kálfamir eru báðir frá sama bæn-
um og voru þeir aldir á mjólk vegna
þess að bóndinn sá fram á að klára
fullvirðisrétt sinn löngu fyrir Iok
verðlagsársins. Ekki vissi hann
hvemig hefði verið staðið að fram-
leiðslunni, hvort kálfamir hefðu
verið aldir á mjólk eingöngu, eins
og nauðsynlegt er til að fá hvíta
kjötið. Halldór sagði að þessir kál-
far hefðu verið 4 '/2-5 mánaða og
igfcvegið rúmlega 120 kg hvor. Þetta
sýndi að mjólkin skilaði sér vel í
vextinum, enda kálfamir helmingi
þyngri en jafnaldrar þeirra sem ald-
ir eru á venjulegan hátt.
Við Bændaskólann á Hvanneyri
hafa verið gerðar tilraunir með að
ala kálfa á mjólk til að fá hvítt
nautakjöt. Fyrstu kálfunum þaðan
var slátrað í Borgamesi fyrir
skömmu. Sveinn Hallgrímsson
skólastjóri sagði að kjötið liti vel
út, en það væri ekki eins ljóst og
ætlast væri til. Ekki vissi hann
hvað hefði valdið því, en kálfamir
vom 2ja mánaða og aldir eingöngu
á mjólk frá fæðingu. Kjötið var lá-
tið til þriggja hótela þar sem það
^ verður prófað. Kálfamir döfnuðu
^ vel af mjólkinni, raunar betur en
menn áttu von á.
Tekinn með
2 kg af hassi
TOLLVERÐIR á Keflavíkurflug-
veli fundu um 2 kíló af hassi er
þeir leituðu á ungum manni við
komu hans frá Luxemburg á
mánudaginn. Var hann afhentur
fíkniefnalögreglunni sem eftir
nánari eftirgrennslan handtók
stúlku sem talið er að hafi verið
í vitorði með manninum.
Maðurinn vakti grunsemdir toll-
~"*Varða á Keflavíkurflugvelli sem
síðan leituðu á honum og fundu þá
hassið, sem talið er að sé að sölu-
verðmæti um 1500 þúsund krónur.
Óalgengt er að svona mikið magn
af fíkniefnum sé handlagt í einu.
VERULEGA hefur dregið úr
framleiðslu margra hraðfrysti-
húsa fyrir Bandaríkjamarkað að
undanförnu og þau snúið sér
meira að Evrópumarkaði. Jón
Páll Halldórsson framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihússins Norð-
urtangans hf. á Isafirði segir að
þessar breytingar hafi orðið
vegna þess að nú sé orðið hag-
stæðara að framleiða á Evrópu-
markað en Bandaríkjamarkað
vegna gengisþróunarinnar að
undanförnu. Magnús Gústafsson
forstjóri Coldwater Seafood í
Bandaríkjunum segir að vissu-
lega þyrftu sölufyrirtækin í
Bandaríkjunum meiri fisk en
hann tryði ekki öðru en frysti-
húsin hefðu langtímasjónarmið í
huga og stæðu þannig að málum
að hægt yrði að standa við gerða
samninga.
Jón Páll Halldórsson sagði að það
væri staðreynd að það borgaði sig
ekki fyrir frystihúsin að vinna fisk-
inn fyrir Bandaríkjamarkað og
hefði framleiðslan þangað því
snarminnkað að undanfornu. Hann
sagði að þetta væri í sjálfu sér
slæmt, en frystihúsamenn gætu
einfaldlega ekki annað en bjargað
eigin skinni og framleitt það sem
hagkvæmast væri hveiju sinni. Þau
hefðu ekkert svigrúm til annars,
sem meðal annars sæist á því að
fiskverðsákvörðun hefði miðast við
að dollarinn væri í 42,30 kr. en nú
rétt héngi hann í 40 krónum. Jón
sagði að ekki kæmi nema tvennt
til greina til að snúa þessari þróun
við: Verðhækkun á vörunni sem fer
til Bandaríkjanna eða bein stýring
á framleiðslunni þangað.
Magnús Gústafsson sagði að
ástandið núna væri sérstætt og
hefði varað svo skamman tíma að
ekki væri hægt að draga of miklar
ályktanir af því. Það þyrfti ekki að
líta lengra aftur en til fyrrihluta
síðasta árs, þá hefði verið svo hag-
stætt að framleiða fyrir feandaríkja-
markað að menn hefðu verið orðnir
hræddir um að birgðir hlæðust upp
síðari hluta ársins og nauðsynlegt
yrði að takmarka framleiðsluna
þangað. En sú hefði sem betur fer
ekki orðið raunin. Magnús sagði
að Bandaríkjamarkaðurinn væri svo
hagstæður að hann tryði ekki öðru
en stjómendur frystihúsanna hefðu
langtímasjónarmið í huga og hjálp-
uðu til að standa við þá samninga
sem gerðir hefðu verið við við-
skiptavini í Bandarikjunum og
halda áunnum orðstír þar. Vonaðist
hann til að ástandið lagaðist eftir
að sumarleyfum lyki og þá ykist
aftur framleiðslan fyrir Bandarikja-
markað.
Strandir:
Tvær konur slasast
ALLHARÐUR árekstur varð rétt norðan við
Hólmavík laust fyrir klukkan fjögur í gærdag
er fólksbíll og jeppi rákust saman á blindhæð
með þeim afleiðingum að senda þurfti tvær kon-
ur með sjúkraflugi í Borgarspítalann í
Reykjavík.
Lögreglan á Hólmavík sagði bflana báða vera
ónýta eftir áreksturinn, samanlögð hemlaför þeirra
mældust um 50 metra. í öðrum bílnum var þrennt,
maður og kona í framsætum og fullorðin kona í
aftursæti. Fótbrotnaði farþeginn í aftursætinu, en
fólkið í framsætinu var hvort tveggja í öryggisbelt-
um. í hinum bflnum voru piltur sem ók og stúlka
farþegi í framsæti. Var hvorugt þeirra í bflbelti og
slasaðist stúlkan á höfði.