Morgunblaðið - 22.08.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986
3
Á myndlistarsýningu í grunnskólanum gekk Vigdís um salinn ásamt ungum Esk-
firðingum. Spjölluðu þau við forsetann um viðhorf sin til verkanna og spurði hún
þau hvað þeim þætti til um þau og hvers vegna.
Kristján Kristjánsson, rafveitustjóri, sýnir Vigdisi muni úr sögu gömlu rafstöðvarinn-
ar sem þau voru stödd í.
' Reyktur lax
798 kr. kg
Nýreykt
London Lamb
298 kr. kg
Úrb. Lambabógar 259,00 kr. kg
Kryddlegnar Lamba Lærisneiðar
228,00 kr. kg
Bacon-, Skinku- og paprikukjötfars
159,00 kr. kg
Kindakæfa 188,00 kr. kg
2 kg. Strásykur 37,80
2 kg. Júvel Hveiti 44,80
Svali 6 stk. á 66,00 kr.
VISA
Opið til kl. 21.00 I kvöld IE
N autahamborgar i
m/brauði
19 kr. stk.
Forseti Islands í opin-
berri heimsókn á Eskifirði
Eskifirði, frá blaðamanni Morgunbladsins,
FORSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, kom í opinbera
heimsókn til Eskifjarðar í gær-
morgun, í tilefni af 200 ára
afmæli kaupstaðarins. í gær
heimsótti forsetinn hátiðarsýn-
ingarnar í grunnskólanum,
barnaheimilið Melbæ og rafveitu
Eskifjarðar. Þá snæddi hún
kvöldverð í boði bæjarstjórnar-
innar og hélt síðan í samkomu-
húsið Valhöll til kvöldskemmtun-
ar með bæjarbúum. Heimsókn
frú Vigdísar lýkur í dag.
Við komu forsetans til Egils-
staðaflugvallar tóku á móti henni
Bogi Nilson, sýslumaður, Hrafnkell
Jónsson, forseti bæjarstómar,
Bjami Stefánsson, bæjarstjóri, og
Aðalsteinn Valdimarsson, formaður
afmælisnefndarinnar. Þau óku
síðan um Fagradal til Eskifjarðar,
Benedikt Stefánssyni.
sem skartaði sínu fegursta í glaða
sólskini, þótt síðar um daginn
þykknaði upp.
Dagskrá heimsóknarinnar hófst
með þvi að forsetinn skoðaði sýn-
ingamar í nýja skólahúsinu. Þar
opnuðu á afmælisdaginn, 18. ágúst,
sex sýningardeildir. Meðal þess sem
þar gefur að líta em bækur og rit,
gefin út eða skrifuð af Eskfirðing-
um, og sýning á handmáluðu
postulíni, unnu af konum í bænum.
Þegar frú Vigdís gekk um sýningu
á málverkum sem Alþýðusamband-
ið lánaði bænum fylgdi hópur
yngstu bæjarbúanna henni og
spjölluðu þau við forsetann um inni-
hald verkanna. „Þetta er með
skemmtilegasta fylgdarliði sem ég
hef haft á málverkasýningu," sagði
frú Vigdís.
Frá gmnnskólanum hélt forset-
inn og fylgdarlið hennar til bama-
heimilisins Melbæjar. Þar tóku tvö
prúðbúin böm, Hildur Rós Guðna-
dóttir og Daði Þór Magnússon á
móti henni og færðu forseta sínum
blóm og eintak af „Fréttum frá
Melbæ". Öll bömin héldu á íslenska
fánanum. Þau höfðu beðið heim-
sóknarinnar með eftirvæntingu, en
ekki var laust við að lögreglubílarn-
ir í fylgd forsetans drægju að sér
hluta af athyglinni.
Kristján Kristjánsson, rafveitu-
stjóri, tók á móti forseta við gömlu
rafstöðina. Stöðin var gangsett árið
1911 og framleiðir enn rafmagn ef
þörf krefur. Stöðin virkjar Ljósána
og getur framleitt 100 kw straum.
Skoðaði forsetinn ýmsa gamla gripi
sem tengjast sögu rafveitunnar en
í tilefni 75 ára afmælis hennar hef-
ur safn þetta verið opnað almenn-
ingi.
í gærkvöldi snæddi forsetinn
kvöldverð í boði bæjarstjómarinnar
en síðan var haldið til kvöldskemmt-
unar í Valhöll. Þar komu meðal
annars fram listamenn ættaðir úr
bænum, Rögnvaldur Siguijónsson,
Róbert Amfinnsson, Ásdís Skúla-
dóttir og Gísli Magnússon. Lúðra-
sveit Neskaupstaðar lék og
Eskjukórinn söng.
STÓRMARKAÐUR Lóuhólum 2—6, sími 74100
/svínakótilettur
498 kr. kg
Morgunblaðið/Símamynd/ÞorkeU
í tilefni hátíðahaldanna á Eskifirði var efnt til sýninga í kaupstaðn-
um. Á myndinni sýnir Hildur Metúsalemsdóttir Vigdísi Finnbogadótt-
ur nokkra gripi, þar á meðal handmálaðan platta með mynd af
Vigdísi.