Morgunblaðið - 22.08.1986, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986
íslandsmótið í hestaíþróttum:
Fimm jjull, tvö silfur og eitt brons var eftirtekjan hjá Sigurbirni á
þessu Islandsmóti og hér tekur hann Kalsa frá Laugarvatni til kost-
anna, en þeir sigruðu í fimmgangi og gæðingaskeiði.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Dómararnir stóðu sig- vel
þegar þeir loks mættu
ÞÁ ER áttunda íslandsmótinu
lokið og má segja það velheppnað
í stórum dráttum. Góð þátttaka
var í flokki fullorðinna og hest-
arnir sem þarna komu fram með
besta móti. En það sem er
kannski athyglisverðast við þetta
mót var frammistaða dómara.
Yfirleitt er ekki minnst á dómara
i umfjöllun eftir mót nema þá
helst til að hnjóða i þá fyrir slaka
frammistöðu og þá gjarnan talað
um mikið misræmi. Sjaldan eða
aldrei hafa verið birtar opin-
berlega úttektir á þessum hlutum
en menn meira byggt gagnrýni
sína á tilfinningu en hinu að far-
ið sé ofan i hlutina af nákvæmni.
Á þessu móti var misræmi milli
dómara sáralítið og raunar ekki
hægt að ætlast til að það sé minna.
Til gamans er hér birt tafla yfir
meðaltal á þessu margumrædda
misræmi. Þess má geta að í íþrótta-
keppnum er hámarkseinkunn 15 en
þessi niðurstaða væri vel viðunandi
og eðlileg þótt hámarkseinkunn
væri 10.
Töltbama 0,72
Fjórgangur barna 0,55
Töltunglinga 0,53
Fjórgangur unglinga 0,57
Fimmgangur unglinga 0,77
Tölt fullorðinna 0,49
Fjórgangur fullorðinna 0,48
Fimmgangur fullorðinna 0,61
Meðaltal fyrir allt mótið 0,55
Þessar niðurstöður eru eingöngu
byggðar á dómum í forkeppni en
vafalaust hefur verið meira mis-
ræmi í úrslitum en þar er ekki um
einkunnagjöf að ræða heldur röðun
í sæti. Þótt þessi niðurstaða sé
óneitanlega jákvæð ber að varast
að líta svo á að nú séu dómaramál-
in í höfn og ekki þurfi að hafa
áhyggjur af þeim á næstunni. Léleg
mæting hjá nokkrum dómurum
setti þó leiðinlegan svip á annars
góða frammistöðu þeirra og.bitnaði
það helst á unglingunum, þeim sem
síst skyldi.
Leitað eftir
EM-kandídötum
Þótt nú sé eitt ár í næstu Evr-
ópumót eru menn nú þegar farnir
að spá í það hveijir munu berjast
um þau sjö sæti sem verða í vænt-
anlegu EM-liði. Voru margir sem
töldu að þetta mót gæfi nokkra
vísbendingu þar um. Miðað við
styrkleika mótsins nú má búast við
að ísland tefli fram sterku liði og
eru menn nú famir að eygja von
um góða fjórgangshesta í liðið.
En svo við snúum okkur að sjálfu
íslandsmótinu þá sigraði Olil Amble
á Snjalli frá Gerðum í tölti og er
hún þar með fyrst til að vinna þenn-
an eftirsótta titil tvisvar en hún
sigraði 1982 þá á Fleyg frá
Kirkjubæ. Snjall hefur reyndar líka
sigrað í tölti á íslandsmóti en þá
sat Þórður Þorgeirsson hann á
Faxaborg 1983. Olil og Snjall urðu
í öði-u sæti í fjórgangi en þar urðu
þau að láta í minni pokann fyrir
Sigurbimi Bárðarsyni á Gára frá
Bæ sem nú sigraði í fjórða skiptið
í þessari grein. Margir hafa reiknað
með að Sigurbjöm myndi tefla Gára
fram í úrtöku fyrir næsta EM á
næsta ári en ljóst er að svo verður
ekki því hann er seldur til Þýska-
lands og mun Sigurbjörn keppa á
honum á þýska meistaramótinu í
lok ágúst.
í fimmgangi var keppnin afar
spennandi. Evrópumeistarinn í
þessari grein Benedikt Þorbjöms-
son var efstur eftir forkeppnina
með 60,2 stig á Brandi frá Runnum
en þeir Sigurbjöm á Kalsa og Tóm-
as Ragnarsson á Berki fylgdu fast
á eftir. í úrslitunum hafði Sigur-
björn betur en Benedikt varð annar.
Að öllu forfallalausu má reikna með
þeim Brandi og Kalsa í úrtökuna á
næsta ári en þessir hestar eru geysi
sterkir í íþróttakeppni.
Sigurbjörn sigraði einnig á Kalsa
í gæðingaskeiðinu en Eiríkur Guð-
mundsson varð annar á Villingi frá
Möðruvöllum þeim kunna vekring.
í þriðja sæti varð svo Hörður Há-
konarson á Þór frá Kvíabekk sem
er gamalkunnur kappreiðavekring-
ur. Þrátt fyrir að hellirigndi meðan
á gæðingaskeiðinu stóð sáust marg-
ir góðir sprettir en aðstaða fyrir
niðurhægingu var frekar bágborin
og kom það sérilla fyrir marga
keppendur.
I hlýðnikeppni og hindmnar-
stökki vom fáir keppendur eins og
oft áður og fannst manni það furðu-
legt hversu mikið hindmnarstökkið
gefur í stigakeppninni en þrír efstu
keppendur þar vom með yfir 70
stig en til samanburðar má geta
þess að í fjór- og fimmgangi þykir
gott að ná fimmtíu stigum.
Keppt á tveimur völlum
— tvöf öld úrslit
Að þessu sinni var keppt á tveim-
ur völlum samtímis í forkeppninni
og er það tvímælalaust hagræði af
því. Flýtir þetta fyrir dómstörfum
og var nú boðið upp á tvenn úrslit
í þremur greinum fullorðinna á
sama hátt og hefur tíðkast á Evr-
ópumótum. Gengu hlutimir vel fyrir
sig á þessu móti þrátt fyrir frekar
leiðinlegt veður á laugardag og
kemur þar þrennt til : röggsamleg
stjómun, stundvísi keppenda og það
hversu margir keppendur mættu
ekki til leiks. Á laugardag var dag-
skrá að vísu ekki lokið fyrr en
klukkan að verða níu um kvöldið
og vom það skeiðkappreiðar sem
drógu dagskrána svo á langinn.
Hefði að skaðlausu mátt sleppa
þessum kappreiðum því yfírdrifið
nóg er að hafa hinar eiginlegu
íþróttagreinar á tveggja daga móti.
Ef minnið svíkur ekki greinarhöf-
und þá var ályktað fyrir nokmm
ámm á ársþingi íþróttaráðs á þá
leið að íslandsmót skuli ekki haldið
í tengslum við önnur mót og aðeins
keppt í íþróttagreinum. Kappreiða-
skeið er ekki talið til hinna svoköll-
uðu hestaíþróttagreina hérlendis.
Ekki gekk þrautalaust að koma
verðlaunum út fyrir skeiðið því
menn greindi á um það hver skyldi
hljóta fyrstu verðlaun í 250 metra
skeiði. Reynir Aðalsteinsson á Spóa
og Sigurbjörn Bárðarson á Gormi
voru með sama tíma eftir fyrri
sprett en Reynir dæmdur sjónar-
mun á undan. í seinni spretti náði
Gormur sama tíma og í þeim fyiri
en Spói lá ekki sprettinn. Stóð síðan
styrinn um það hvort gilti að Spói
var sjónarmun á undan í fyrri
sprettinum eða hitt að Gormur var
með betri samanlagðan tíma úr
báðum sprettum. Endirinn varð sá
að Reynir fékk gullið en Sigurbjörn
silfrið. í kappreiðareglunum er
kveðið á um að þegar tveir hestar
eru með sama tíma ráði samanlagð-
ur tími en hinsvegar er ekki getið
um sjónarmun. Virðist því að hér
sé um túlkunaratriði að ræða í það
minnsta hafa komið fram tvær
skoðanir á þessu máli og er þarft
að fá umræðu um þetta mál því
þessi staða getur komið upp seinna
og þá er betra að hafa hlutina á
hreinu. Reyndar má geta þess að í
samtali við Magnús Hákonarson á
Selfossi sem var af starfsmönnum
mótsins sagður formaður kapp-
reiðadómnefndar kom fram að
engin formleg kappreiðadómnefnd
var skipuð en Magnús sagði að
hann hafi verið gripinn úr áhorf-
endabrekkunni ásamt tveimur
öði-um og hefðu þeir átt að segja
til um röð hesta í mark. Einnig
benti hann á að ekki hafi verið til
staðar kappreiðareglur. Taldi
Magnús að dæma ætti þessar kapp-
reiðar ólöglegar því þarna hefði
verið brotið í bága við kappreiða-
reglurnar. Nefndi hann í því
sambandi að ekki hefði verið raðað
í riðla í seinni sprett eftir tímum
úr fyrri spretti og hitt að fimm
hestar voru í riðli. Sagði Magnús
að endingu að það mætti strika
yfir þessa vitleysu sem þarna fór
fram.
Fáliðuð
unglingakeppni
Svo er að geta unglingakeppn-
innar þar sem þátttakendur voru í
færra lagi og það verður að segjast
eins og er að í heildina séð hafa
sést sterkari keppendur meðal ungl-
Hrímnir frá Hrafnagili var sýndur á mótinu og hefur án efa yljað
mörgum um hjartarætur með fegurð sinni og glæsileika. Knapi er
Björn Sveinsson.
Fimm efstu í fimmgangi frá vinstri talið: Sivaldi á Tinna, Reynir á Spóa, Tómas á Berki, Benedikt á
Brandi og Sigurbjöm á Kalsa.