Morgunblaðið - 22.08.1986, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986
KIKK í Grófinni
DANSLEIKUR verður haldinn í
Grófínni i kvöld. Hljómsveitin
^KIKK ætlar að spila vinsælustu
danslögin á Grófartorgi og er
aðgangur öllum heimill og
ókeypis.
Hljómsveitin KIKK hefur legið í
dvala um nokkurt skeið, en leikið
á dansleikjum undanfarið. Hljóm-
sveitina skipa nú þau Guðmundur
Jónsson, gítarleikari, Helga Magn-
úsdóttir, hljómborðsleikari, Jón
Björgvinsson, trommuleikari,
Sigríður Beinteinsdóttir, söngkona
og Sveinn Kjartansson, bassaleik-
ari.
(Fréttatilkynning)
Leika djass í Roxzy
DJASSTRÍÓIÐ „Súld“ leikur í
fyrsta skipti opinberlega sunnu-
dagskvöldið 24. ágúst í Roxzy.
Hljómleikarnir hefjast kl. 21.
Trióið skipa pólski fiðluleikarinn
Szymon Kuran, bassaleikarinn
Stefán Ingólfsson og trommar-
inn Steingrímur Guðmundsson.
Kuran hefur verið varakonsert-
meistari Sinfóníuhljómsveitar
•^islands undanfarin ár, en hefur allt-
af leikið djass samhliða klassfkinni.
Stefán Ingólfsson hefur nýlokið
námi við Musician Institute í Los
Angeles en þar hafa Bjöm Thor-
oddsen, Jón Páll og Bjami Svein-
bjamar einnig numið.
Steingrímur Guðmundsson
Steingrímssonar er búsettur í New
York þar sem hann leikur bæði
djass og rokk. Hann hefur haldið
tvenna hljómleika á ísiandi í ár með
föður sínum og leikið á trommur,
tabla og dumþak — en nú fáum við
að heyra hann glíma við sveifluna
í nútímalegum diassi með rafblæ.
(Ur fréttatilkynningu)
„Skuldafen“
— frumsýnd í Laugarásbíói
LAUGARÁSBÍÓ hefur hafíð sýn-
ingar á gamanmyndinni Skulda-
fen (Money Pit). Þetta er mynd
framleidd af Steven Spielberg.
»%\ðaJleikarar eru Tom Hanks,
Shelley Long og Alexander Go-
udunov. Leikstjóri er Richard
Benjamin.
Myndin fjallar um parið Walter
og Onnu, sem býr saman í íbúð
fyrrum eiginmanns konunnar.
Ovænt heimkoma ibúðareigandans
verður svo til þess að þau hendast
af stað til að kaupa íbúð sem verð-
ur bæði að vera á mjög viðráðanlegu
verði og laus strax. Gamalt virðu-
legt hús freistar þeirra og virðist
við fyrstu sýn uppfylla alla þeirra
dfclrauma. Þau flytja alsæl í sitt nýja
hús, en Adam var ekki lengi í
Paradís, því að von bráðar kemur
í Ijós að húsið hefur ýmsa leynda
galla sem þarfnast viðgerða hið
snarasta. Hryllingurinn hefst þó
fyrir alvöru þegar kalla þarf iðnað-
armenn til verksins. Þá fyrst gera
þau sér grein fyrir að þau duttu
ekki í lukkupottinn heldur í skulda-
fen.
„Kvótinn er
bæði óréttlát-
ur og vitlaus“
— segir 75 ára trillukarl á Bíldudal
ÞÓRÐUR Jens Jónsson varð fyrstur til að Ijúka kvótanum á
Bíldudal. Hann er jafnframt elstur smábátasjómannanna á þeim
slóðum, 75 ára gamall.
Blaðamaður Morgunblaðsins
hitti hann og aðra trillukarla að
máli við höfnina í blíðskaparveðri
um miðjan ágústmánuð. Þórður
var að ganga frá bátnum sfnum
Höfrungi BA, sem er 12 tonn að
stærð. „Ég er ekki físknari en
hinir, þótt ég sé fyrstur búinn
með kvótann, ég er bara kunn-
ugri á fískislóðunum," sagði
Þórður af hógværð.
„Við erum í Patreksfjarðarfló-
anum og ég þekki hann betur en
hinir. Það er eiginlega eini staður-
inn þar sem við getum verið í friði
núorðið. Það er búið að hleypa
stórum bátum hér inn um alla
fírði. Þetta er alveg eins og að
hleypa togurum hér inn um allt,
þeir taka af okkur allar bleyðum-
ar okkar. Núna er lokað fyrir þá
frá Blakk í Kop, en það þyrfti að
loka úr Bjargtöngum í Barða.“
Ungur sjómaður, Gunnar Karl
Garðarsson, sem fylgdist með
samtalinu skaut því að, að bátam-
ir væm alls staðar að af landinu,
frá Vestmannaeyjum til ísafjarð-
ar. Þetta em dragnótabátar. Frá
Bíldudal em gerðir út fímm bátar
frá 10 til 20 tonn að stærð, tveir
bátar 21 og 22 tonn og ein trilla
undir 10 tonnum að stærð, auk
skuttogarans Sölva Bjamasonar.
„Þú mátt hafa það eftir mér
að kvótakerfíð sé djöfulsins vit-
leysa, það er bæði ranglátt og
heimskulegt," sagði Þórður. Til
dæmis um það er að í fyrra höfðu
10 til 20 tonna bátamir þorskk-
vóta upp á 42 tonn, bátamir sem
em rétt yfír 20 tonnum fengu
aftur á móti hátt í 100 tonna
kvóta og trillan, sem er undir 10
tonnum og þessvegna utan kvóta,
veiddi tæp 100 tonn, með alveg
sömu veiðarfæmm og hinir.
Frá Bíldudal hafa menn veitt
jöfnum höndum botnfisk, skelfísk
og rækju. Skelfiskkvótinn er nú
75 tonn á bát, en ekki áttu þeir
félagar von á að fá að veiða neina
rækju í haust, vegna friðunarað-
gerða. Gunnar Karl sagði að til
marks um samdráttinn á þeim
veiðum væri að 1981 hefðu þeir
veitt 112 tonn í Amarfírði, en í
ár ekki ekki nema 37 tonn. Þessa
aflaminnkun þótti þeim óréttlátt
að fá ekki bætta með auknum
botnfiskkvóta. „Afkoman er
slæm,“ sagði Gunnar Karl, „en
þetta bjargast af þvi að bátamir
em gamlir og kosta lítið“.
Morgunblaðið/Þorkell
Þórður Jens Jónsson fékk sér
i nefíð þegar hann var búinn
með kvótann. Hann hefur
stundað sjó frá fermingu fram
á þennan dag, en hann er nú
orðinn 75 ára gamall.
Þórður hefur stundað sjóinn frá
fermingu á þessum slóðum, lengst
af frá Tálknafirði, en frá 1968 frá
Bíldudal. Ekki var neinn bilbug á
honum að finna, „ég held þessu
áfram eins lengi og ég get,“ sagði
hann. Báturinn hans, Höfmngur,
er gamall, smíðaður 1929, en
„bátabanamennimir (skipaskoð-
unarmennirnir) hafa ekki fundið
neitt að honum enþá, enda ekkert
að fínna, en maður veit aldrei
hveiju þeir fínna upp á,“ sagði
Þórður og kímdi. Þá vildi hann
að lokum taka það fram að áhöfn-
in hjá honum væri góð, sem skipti
miklu máli upp á hvemig gengi,
en þeir em þrír á bátnum.
BÞ
Sýning á
glerlista-
verkum í
Hótel Örk
Selfossi.
Um þessar mundir sýnir Halla
Haraldsdóttir myndlistarmaður
19 glerverk á Hótel Örk í Hvera-
gerði. Um er að ræða verk sem
unnin voru á tveimur siðustu
árum. Halla er Hvergerðingum
að góðu kunn þar sem gluggi i
Hveragerðiskirkju er eftir hana.
Myndir Höllu hafa verið eftirsótt-
ar bæði hérlendis og erlendis. Frá
1978 hefur Halla átt samstarf við
D.H. Oidtman, listaverkafyrirtæki
í Þýskalandi sem hefur sérhæft sig
í gerð steindra glugga, glermósaik
og annnarra glerverka. Ein mynda
Höllu var 1982 valin á jólakort hjá
Kiefel forlaginu sem gefur út kort
fyrir lútherstrúarmenn og kaþól-
ikka.
Á sýningu Höllu í Hótel Örk em
einnig nokkur málverk sem hún
hefur málað að undanfömu. Sýn-
ingin stendur í nokkrar vikur og
er öllum heimill aðgangur.
Sig Jóns.
MorgunblaÓid/Sigurður Jónsson
Halla Haraldsdóttir myndlistarkona við eitt verka sinna á sýning-
unni í Hótel örk.
Tennisvellir Hótels Arkar opnir
HINIR nýju tennisvellir Hótels
Arkar í Hveragerði stóðust vel
prófraunina sem var íslandsmót-
ið I tennis um sl. helgi. Veliirnir
verða opnir hótelgestum og öðr-
um sem áhuga hafa á að leika
tennis. Tennisvellirnir eru reknir
í tengslum við aðra íþróttaað-
stöðu hótelsins og munu tennis-
spilarar einnig geta notað
sundaðstöðuna þar.
Arkarvellimir em einu tennisvell-
imir hér austanfjalls sem em opnir
almenningi og hafa löglega stærð.
í hléi milli leikja á íslandsmótinu
fékk Helgi Þór Jónsson stutta leið-
sögn í tennis hjá Guðmundi Eirfks-
syni og tók nokkur slög til að reyna
hina nýju aðstöðu sem án efa er
ánægjuefni fyrir tennisáhugamenn
á Árborgarsvæðinu og annarsstað-
ar.
Fyrirhugað er að útbúa einn
tennisvöll til viðbótar á útivistar-
svæði Arkar og að hann verði
jafnvel malarvöllur eins og þeir
gerast erlendis.
Sig Jóns.