Morgunblaðið - 22.08.1986, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986
Ríkisstjórnin ræðir fjárlögin:
Oskir ráðuneyta
lækkaðar um 5
milljarða króna
Fjárlagafrumvarpið og ný
lánakjör Húsnæðisstofnunar
voru til umfjöllunar á ríkisstjórn-
arfundi sem haldinn var á
ÞingvöUum í gær. Að sögn Þor-
steins Pálssonar, fjármálaráð-
herra, var farið yfir fjölda mála
varðandi fjárlagagerðina sem
ganga þurfti frá áður en lengra
væri haldið.
„Fýrir þennan fund var búið að
lækka útgjaldaóskir ráðuneyta um
5 milljarða króna frá því tillögur
komu fyrst fram, og þrátt fyrir að
vandinn sé mikill hefur okkur miðað
vel áfram en eigum samt eftir að
fá niðurstöður í einstökum atrið-
um,“ sagði Þorsteinn er Morgun-
blaðið innti hann eftir því sem rætt
hefði verið um varðandi fjárlaga-
gerðina.
Þorsteinn gat þess að það hefði
legið fyrir þegar vinna við fjárlaga-
gerð hófst að þau yrðu afgreidd
með halla, en stefnt hefði verið að
því að afgreiða þau með minni halla
en fyrir þetta ár. „Við ætlum að
INNLENT
minnka hallann en til þess að jafna
metin þarf þrjú til ijögur ár, og
veltur það á hvemig staða efna-
hagsmála verður og hver verð-
mætasköpun þjóðfélagsins verður,"
sagði Þorsteinn.
Aðspurður um umræðumar á
ríkisstjómarfundinum um ný láns-
kjör Húsnæðisstofnunar sagði
fjármálaráðherra að hann hefði
gert grein fyrir ákveðnum hug-
myndum varðandi Qármagnsmark-
aðinn og hefði verið samstaða um
þær í ríkisstjóminni. Hann kvað
þessar hugmyndir þó ekki endan-
lega frágengnar en vonaðist til að
geta greint frá þeim í dag.
Morgunblaðið/Börkur
Ríkisstjómarfundurinn í gær var haldinn á Þingvöllum Á myndinni eru Ragnhildur Helgadóttir, Hall-
dór Ásgrímsson, Þorsteinn Pálsson og Matthías Á. Mathiesen á leið til hádegisverðar.
Embættismenn og fulltrúar umhverfisverndarsamtaka í Bandaríkjunum:
Telja hvalveiðibannið
vera að liðast í sundur
Kurt Juuranto
Kurt Juuranto,
aðalræðismaður
í Helsinki,
er látinn
Kurt Juuranto, aðalræðismað-
ur íslands í Helsinki, lést í
bifreiðaslysi í Helsinki sl. mánu-
dag.
Juuranto fæddist árið 1927 og
varð aðalræðismaður íslands í Hels-
inki árið 1961.
Frá Jóni Ásgeiri Sigurðssyni, fréttaritara
^ Morgunblaðsins í Bandaríkjunum.
ÓLJOST er hversu sterka laga-
lega stöðu Bandaríkjamenn hafa
í sambandi við afskipti af inn-
flutningi Japana á hvalkjöti. Á
samráðsfundi ráðuneyta, starfs-
manna þingnefnda og fulltrúa
umhverfisvemdarsamtaka i
Washington í gær vom menn
sammála um að hvalveiðibann
Alþjóðahvalveiðiráðsins sé að lið-
ast í sundur vegna vísindaveiða
á hvölum.
Dr. Anthony Calio, sem stjómar
sjávarútvegsdeild viðskiptaráðu-
neytisins, bað fundarmenn að hafa
sem fæst orð um umræðumar á
fimdinum. Þó hafa nokkrir af fund-
armönnum tjáð fréttaritara Morg-
unblaðsins að meðal annars hafi
tvíhliða samningur Bandaríkjanna
og Japan komið til umræðu. í því
sambandi kom fram að lögfræði-
deild viðskiptaráðuneytisins kannar
nú lagalega stöðu Bandaríkjanna,
með hliðsjón af hugsanlegum ráð-
stöfunum til að hindra sölu á
íslensku hvalkjöti til Japan.
„Halldór Ásgrímsson gerði okkur
greiða, þegar allt kemur til alls,“
sagði Dean Wilkinson hjá Green-
peace í samtali við fréttaritara
Morgunblaðsins. „Hann sneypti við-
skiptaráðherra og Dr. Calio með
því að finna gat í samþykktum Al-
þjóðahvalveiðiráðsins og vann þar
með oirustu, en ekki stríðið. í
Washington segja þeir „ekki ijúka
upp, náðu þér niðri,“ og það hefur
Halldór nú kallað yfir sig. Fundar-
menn voru almennt sammála um
það að vísindaveiðamar séu að gera
hvalveiðibannið að engu. Ég held
að Dr. Calio hafi þó verið að grínast
þegar hann sagði að jafnvel Sovét-
ríkin hygðust leggja fram vísindaá-
ætlun um hvalveiðar næsta sumar."
Samráðsfundurinn í Washington
í gær var sá fyrsti til undirbúnings
ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins
næsta sumar. Næsti fundur verður
1. nóvember og síðan verða haldnir
mánaðarlegir fundir eftir áramót.
Viðkomandi ráðuneyti og þing-
nefndir eiga fulltrúa á samráðs-
fundum þessum, auk umhverfis-
vemdarsamtakanna. Dr. Lambert-
son, sem hefur verið íslendingum
tii ráðgjafar í hvalveiðimálum, sat
fundinn í gær.
Ákærður fyrir um-
fjöllun um sígarettur
Telja verður birtingu mynda og texta í
Samúel brot á lögum um bann við tóbaks-
auglýsingum, segir í ákæru ríkissaksóknara
RITSTJÓRI og ábyrgðarmaður
tímaritsins Samúels, Ólafur V.
Hauksson, hefur verið ákærður
fyrir meint brot á lögum um tób-
aksvamir. Ríkissaksóknari
krefst þess að hann verði dæmd-
ur i sektir eða varðhald skv. 19.
grein laga um tóbaksvarnir frá
86 hvalir
komnir á land
HVALVEIÐI hefur gengið vel
eftir að veiðar hófust á ný síðast-
liðinn sunnudag. í gær, fimmtu-
dag, höfðu veiðst 6 langreyðar
og 5 sandreyðar frá því á sunnu-
dag.
Alis hafa því veiðst á vertíðinm
86 hvalir þar af 65 langreyðar og
21 sandreyður. Ætlunin er að veiða
80 langreyðar og 40 sandreyðar á
yfírstandandi vertíð.
Heilahimnubólgufaraldur í Bretlandi:
Landlæknir sér ástæðu
til að vera á verði
LANDLÆKNIR telur ástæðu til að vera á verði gagnvart heila-
himnubólgu, en undanfarið hefur heiiahimnubólgufaraldur
gengið yfir nokkur hémð i Bretlandi, m.a. þar sem íslensk böm
hafa sótt sumarskóla. Ekki hefur enn orðið vart við að þetta
afbrigði heilahimnubólgu hafi borist hingað til lands.
Heilahimnubólgan sem heijað árunum 1976-78 og hefði þá ver-
hefur á bresk skólaböm er af teg-
undinni B15 og varð fyrst vart
við hana 1980. Þetta sama af-
brigði olii einnig faraldri í Noregi
á áttunda áratugnum.
Ólafur Ólafsson, landlæknir,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að síðasti heilahimnubólgufarald-
ur hérlendis hefði gengið yfir á
ið reynt að bólusetja við henni.
„Ekki hefur enn tekist að finna
rétt bóluefni við öllum afbrigðum
heilahimnubólgu. Ég hef fylgst
vel með rannsóknum og leit að
bóluefni og eru ailar iíkur á að
bóluefni sem dugar sé á leiðinni.
Enn sem komið er hefur verið
gripið til þess ráðs að gefa þeim
sem taldir eru í smithættu sýkla-
lyf þegar faraldrar sem þessir
hafa komið upp. Þó faraldurinn
sem hér um ræðir hafi enn ekki
borist hingað tii lands er full
ástæða til að vera á verði."
Helstu einkenni heilahimnu-
bólgu eru hár hiti, stffleiki í hálsi,
höfuðverkur,'svimi, uppköst, ljós-
fælni og oft á tíðum útbrot. Sé
brugðist skjótt við og sjúklingi
gefin sýklalyf er hægt að koma í
veg fyrir alvarlegar afleiðingar
sjúkdómsins eins og heiiaskaða
eða dauða.
1984. Þess er einnig krafist, að
hann verði dæmdur til greiðslu
alis sakarkostnaðar, að sögn
Braga Steinarssonar, vararíkis-
saksóknara. Af hálfu ákærða er
krafist sýknu af ákærunni.
Forsaga þessa máls var ítarlega
rakin í Morgunblaðinu í byijun
þessa árs. Þá kærði Hollustuvemd
ríkisins ritstjóra Samúels til ríkis-
saksóknara fyrir að hafa brotið
gegn banni um tóbaksauglýsingar
og var málinu vísað til rannsóknar
hjá rannsóknardeild Lögreglunnar
í Reykjavík. Þeirri rannsókn lauk
snemma í vor og málinu vísað aftur
til ríkissaksóknara til ákvarðana-
töku. Ákæra á hendur Ólafí
Haukssyni var gefin út 6. maí sl.
og málið þingfest í Sakadómi
Reykjavíkur í byijun júní.
Ólafur er ákærður fyrir að hafa
birt í desemberhefti Samúels um-
fjöllun í myndum og texta um
þýskar sígarettur undir fyrirsögn-
inni „Þýskar gæðasígarettur á
markaðinn". Segir í ákæmnni, að
telja verði þessa umfjöllun auglýs-
ingu á tóbaksvömm, sem sé brot á
7. grein laganna um tóbaksvamir.
Ágúst Jónsson dómarafulltrúi í
Sakadómi Reylqavíkur dæmir í
málinu. Hann sagði í gær að skrif-
legri vöm í málinu yrði væntanlega
skilað í lok september og mætti því
búast við dómi fyrri hluta október-
mánaðar.