Morgunblaðið - 22.08.1986, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986
En ég hef alltaf heyrt að þú
sért tónskáld fyrst og fremst, þó
ég hafi að vísu ekki heyrt eftir
þig neitt utan „sónatíuna" í Nor-
ræna húsinu. Hvor kemur á
undan, klarinettan eða tónsmíðin?
„Klannettan. í það minnsta
núna. Ég hef ekkert stundað
tónsmíðar að ráði. Bara fíktað
svolítið og ekkert lært í því fagi.
Mér finnst líka að maður verði
að leggja sig fram við eitthvert
hljóðfæri fyrst, ná á það sæmileg-
um árangri áður en lengra er
haldið. Það er ekki hægt að fresta
hljóðfæranámi, því manni fer
mest fram við svoleiðis meðan
maður er ungur. Tónsmíðamar
má alltaf taka til við seinna. Vona
ég.“
Og hvað finnst' þér svo um
músíklífið hér í Reykjavík, eftir
að hafa kynnst öðmm löndum og
borgum? Fær það hagstæðan
samanburð?
„Já, já, að mörgu leyti. Það er
að minnsta kosti sett hér heims-
met í tónaflóði miðað við höfða-
tölu á hverju ári. Gæðin eru
vitaskuld upp og niður og kröfum-
ar nokkuð markaðar af kunnings-
skap og velvild. Hér þekkjast allir,
ekki satt? Hvort það er til góðs
eða ills, veit ég varla, en það er
óneitanlega þægilegt. En hvað er
klukkan á þessum Drottins degi?“
Þijú. Vantar tvær mínútur.
„Þá verð ég að hraða mér upp
í Landakot. Æfingin á að byija
klukkan þijú. Stundvíslega. Og
þetta er fyrsta æfingin og ég er
spenntur að sjá hvemig þetta
gengur."
Og ég lít við á æfingunni seinna
um daginn og þau eru að spila
rondóið í Mozartkonsertinum af
miklu fjöri. Tempóið er í hraðasta
lagi fyrir tóma „kirkjuakústikk-
ina“, en það lagast þegar Krists-
kirkja fyllist af fólki á sunnudag-
inn kemur kl. 20.30. Það er ég
viss um.
Tónleikar í Kristskirkju á
sunnudaginn
Leifur Þórarinsson
ræðir snögglega við
Guðna Franzson
klarinettuleikara
Menn hljóta að muna eftir
sl. listahátíð. Eitthvað. Annars
er ótrúlegt hvað atburðir á
slíkum markaði líða fljótt og
átakalaust út í óminnisgeim og
jafnvel fyrst þeir sem mest var
hampað og gerður af vindur
úr öllum áttum. Svo er nú það.
En sitthvað lifir þó með
manni og veldur ánægju komi
það upp í hugann, stutta stund
á sjónvarpslausu kvöldi. Til
dæmis tónleikar Guðna Franz-
sonar og Ulriku píanóleikara
frá Svíþjóð (eða var það Noreg-
ur), þar sem flutt voru einleiks-
verk fyrir klarinettu og dúó
fyrir klarinettu og píanó, eftir
nokkur bráðung íslensk tón-
skáld. Þetta var í Norræna
húsinu og það var gaman.
Og nú erum við Guðni úti í
garði við Ránargötuna og sötr-
um kaffi í steikjandi sólskini.
Guðni kom hér við til að segja
mér frá væntanlegum tónleik-
um í Kristskirkju, þar sem hann
verður einleikari með 25
manna hljómsveit íslenskra
ungmenna, sem stunda fram-
haldsnám í útlöndum.
„Þetta er bráðskemmtilegt
uppátæki," segir Guðni, „því við
þekkjumst flest héðan úr skólan-
um „heima“, en höfum dvalið við
nám hér og þar í heiminum undan-
farin ár. Getum þá borið saman
bækurnar og skemmt okkur við
yndislega músík um leið.
„Já, þetta er u.þ.b. 25 manna
hljómsveit, líklega heldur nær 30,
sem Hákon (Tumi) Leifsson
stjómar, en hann er að leggja í
hann til náms í þeim fræðum í
Vínarborg. Aðalverkið, í það
minnsta fyrir mig, er klarinettu-
konsertinn eftir Mozart, þetta
draumastykki allra klarinettuleik-
ara og ömgglega besti klarinettu-
konsert í heimi. Ég hef auðvitað
æft hann áður, en aldrei spilað
hann opinberlega og hlakka sann-
ast að segja heil ósköp til. Hin
verkin eru líka spennandi: Söng-
lög eftir Mahler, þ.e. „Lieder eines
fahrende Gesellen" í" útsetningu
Schönbergs, sem Ragnheiður
Guðmundsdóttir syngur, og
„Wintemacht" eftir Hans Abra-
hamsen, danskt tónskáld af
næstyngstu kynslóðinni, svona
um þrítugt eða svo.
Það er alveg rétt, að Guðni
Franzson er einn af aiefnilegustu
blásumnum okkar og hann hafði
vakið athygli fyrir fallegan klarin-
ettuleik áður en hann útskrifaðist
úr Tónlistarskóla Reykjavíkur,
fyrir 2—3 ámm. Sl. tvö ár hefúr
hann verið við nám í Hollandi, á
Sweelinck-konservatoríinu í
Amsterdam, og?
„Já, mér líkar vel í Hollandi.
Þar er allt svo mátulega stórt og
engin læti þó mikið sé um að vera.
Músíklífið er þó sérlega magnað
í Amsterdam, þar sem ég er stað-
settur í skóla, en þó ekki svo
Guðni Franzson
hrikalegt að maður geti ekki
fylgst með öllu nokkum veginn
átakalaust. Þetta er miklu erfíð-
ara í stærri „forhollum", t.d.
London, sem er þó vissulega heill-
andi og eiginlega næsti áfanga-
staður minn ef allt gengur að
óskum. En ég hef rosalega góða
kennara í Hollandi: George Peter-
son, sem er fyrsti sólóklarinettisti
í Concertgebow-hljómsveitinni, og
svo Boyekens, sem er alþjóðlegur
„sólisti" á heimsvísu. Og ég lærði
bæði nýja og gamla tækni og stíla
hjá þessum mönnum, sem eru
reyndar mjög ólíkir, annar af
þýsk-enska skólanum, hinn meira
upp á það franska. í öllu falli
þarf ég ekki að kvarta yfir að
ekki sé vel við mig gert.“
Heimsmet í tónaflóði
David Tutt pfanóleikari og Hlíf Siguijónsdóttir halda tónleika í
Norræna húsinu á sunnudaginn.
Tónleikar í Norræna húsinu
685009
2ja herb. íbúðir
Vesturberg. 65 fm íb. á 2. hæö
i lyftuhúsi. Góðar innr. Húsvöröur.
Hraunbær. 65 «m ib. á 1. hæö.
Gott fyrirkomul. Afhend. í ágúst.
Langholtsvegur. Einstakiíb.
ca 40 fm. Sérinng. Góðar innr. Verð
tilboö.
Tómasarhagi. Rúmg. íb. á
jaröh. Sérinng. og sérhiti. Björt íb. Lítiö
áhvílandi.
3ja herb. íbúðir
Bogahlíð. Nýkomiö í sölu
rúmgóö íb. á 1. hæö (ekki jaröh.)
íb. er til afh. strax. Engar áhvil-
andi veösk. Góö staðsetning.
4ra herb. íbúðir
Kleppsvegur. íb. í góöu ástandi
í kj. Sérhiti.
Ljósheimar. 105 fm fb. 1 tyftu-
húsi. Mikið útsýni. Lagt fyrir þvottavól
á baöi. Verö 2,6 millj.
Hraunbær. 4ra-5 herb. íb. á 2.
hæð. 4 svefnherb. Gluggi á baði. Gott
fyrírkomulag. Afh. eftir samkomulagi.
Sérhæðir
Fossvogur. Neðri sérhæð f
glæsil. tvíbhúsi. Sérinng. Faliegur garö-
ur. Vandaöar innr. i eldhúsi og á
baöherb. Verö 3,5 millj.
Bergstaðastræti. Hæð og
kj. í góöu steinhúsi. Eignin er nýtt sem
tvær íb. en gæti hæglega hentað sem
ein íb. Afh. samkomulag. Engar áhv.
veðskuldir.
685988
Raðhús
Garðabær. Raöhús VÍÖ
Kjarrmóa. Húsiö er fullb. og sérstakl.
vandaö. Sérinng. Á neöri hæö er: hjóna-
herb., stofa, eldhús, baöherb. og
andyri. Á efri hæö er: stofa og geymsl-
ur. Bílskréttur. Afh. eftir samkomulagi.
Einbýlishús
Álftanes. Nýlegt steinh. á einni
hæö ca 165 fm. Tvöf. bilsk. Fráb. staö-
setn. Eignin er í góöu ást. Skipti á íb.
mögul.
Klapparberg. Nytt hús, tiib. u.
tróv. og máln. Fullfrág. að utan. Til afh.
strax. Skipti mögul. á ib.
Hringbraut Hf. Húseign á
tveimur hæöum ca 160 fm. Tvær sam-
þykktar íb. í húsinu. Bílsk. Til afh. strax.
Skipti mögul. á minni eign.
Nýlendugata. Nýkomið
í sölu Iftið steinhús á 2 hæðum.
f húsinu eru nú 2 2ja herb. íbúöir
i góðu ástandi. Húsið mætti nýta
sem eina íb. Rúmgóður verk-
stæöisskúr á baklóð. Engar áhv.
veðsk. Verð 3300 þús.
Borgarholtsbraut
Kóp. Nýkomið í sölu steinhús
ca 156 fm. Nýr bilsk. 36 fm ekki
fullb. Húsið stendur á hornlóð.
Ákv sala. Eignaskiptl mögul.
Ýmislegt
Söluturn á góðum stað f Vestur-
borglnni. Örugg og góð vetta.
Vagnhöfði. Vel staðsett iönaöar-
húsn. Til afh. strax. Eigninni getur fylgt
byggréttur.
Oen. V.S. WHumi Iðgtr.
ÓMur OuAMundsson eðkwtýórt.
Akstursgjald
ríkisstarfs-
manna hækkar
Ferðakostnaðarnefnd hefur
ákveðið nýtt akstursgjald í akst-
urssamningum ríkisstarfsmanna
og tekur það gildi frá og með
I. september næstkomandi.
Breytingin á gjaldinu felur í sér
1-2% hækkun.
Akstursgjaldi var síðast breytt í
marsmánuði á þessu ári, en þá var
það lækkað um 13-14% í kjölfar
tollalækkana á bifreiðum og verð-
lækkunum á bensíni. Helstu breyt-
ingar frá síðustu ákvörðun eru að
bensínverð innanlands hefur lækk-
að um tæplega 14%, en á móti því
vegur 10-11% hækkun bílverðs og
varahluta, auk þess sem viðgerðar-
kostnaður hefur hækkað í kjölfar
launahækkana að undanförnu.
Sem dæmi um breytingar á akst-
ursgjaldinu má nefna að almennt
gjald fyrir fyrstu 10 þúsund kíló-
metrana sem eknir eru greiðast
II, 80 krónur á hvem kílómetra.
Þegar um sérstakt gjald er að ræða
eru 13,70 krónur greiddar fyrir
hvem kílómetra innan við 10 þús-
und kílómetra akstur og sé um
torfærugjald að ræða er gjaldið
17,70 krónur.
Næstkomandi sunnudag, 24.
ágúst kl.17:00, halda Hlíf Sigur-
jónsdóttir fiðluleikari og David
Tutt píanóleikari tónleika i Nor-
ræna liúsinu.
Á efnisskrá tónleikanna em eftirtal-
in verk fyrir fíðlu og píanó: Sónatína
eftir Franz Schubert, Fimm melódí-
ur opus 35 eftir Prokoffieff, ítölsk
svíta eftir Stravinsky og sónata í
d-moll eftir Johannes Brahms.
Hlíf Siguijónsdóttir lauk einleik-
araprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík árið 1974, en stundaði
síðan framhaldsnám í Bandaríkjun-
um og Kanada. Hún hefur um
árabil fengist við bæði kennslu,
hljómsveitarleik og einleik. Að und-
anfömu hefur hún starfað í Sviss
og er nú fastráðin hjá Kammer-
hljómsveitinni í Zurich.
David Tutt stundaði nám í heima-
landi sínu, Kanada. Hann hefur
áður haldið tónleika á íslandi, m.a.
hjá Tónlistarfélaginu á ísafirði.
Hann hefúr leikið einleik með sin-
fóníuhljómsveitinni í Tórontó,
Edmonton og Calgary í Kanada og
nú síðast með útvarpshljómsveitinni
í Búdapest. Davit Tutt er búsettur
og starfar í Sviss.
Sumarbústaður
óskast
Höfum kaupanda að sumarbústað á Suður- eða Vestur-
landi. Heitt vatn er skilyrði. Upplýsingar veitir:
26600f
FatMgnaþjónuttan
AmtvntmU 17,«. 28600
Þorstelnn Stemgrímsson
lögg. fasteignasali