Morgunblaðið - 22.08.1986, Side 7

Morgunblaðið - 22.08.1986, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986 7* Þú svalar lestraiþörf dagsins á sídum Moggans' ✓ OwnB Bæjarsljórn Kópavogs: Samskíptin við Bandaríkj astj órn verði endurskoðuð „MÉR líkar ekki framkoma Bandaríkjamanna við okkur undanfarið í sambandi við hvalamálið og Rainbow málið; mér finnst þeir farnir að haga sér við okkur eins og bananalýöveldi," sagði Richard Björg- vinsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Kópavogs, en í ályktun sem hann flutti og samþykkt var á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag er skorað á ríkisstjórn íslands að endurskoða samskipti Islendinga við Bandaríkjamenn. Ályktunin var samþykkt sam- hljóða á fundinum og hún send ríkisstjórninni og fjölmiðlum. „Ég veit náttúrulega ekki hvað verður um hana hjá ríkisstjóminni, en þetta var gert til að láta koma fram okkar hug í þessum málum," sagði Richard. Hann sagðist vona að aðr- ar bæjarstjómir fetuðu í fótspor bæjarstjómar Kópavogs hvað þetta mál snerti. Ályktunin hljóðar í heild á þessa leið: „Bæjarstjóm Kópavogs for- dæmir framkomu ríkisstjómar Bandaríkjanna í hvaiamálinu gagn- vart íslendingum, sem talið hafa Bandaríkin vina- og bandalagsþjóð. Þessi framkoma lýsir bæði van- þekkingu og vanvirðu við lífsbjarg- arviðleitni smáþjóðar í Norðurhöf- um. Bæjarstjóm skorar á ríkisstjóm Islands að taka til endurskoðunar og álita samskipti okkar við Banda- ríkin." Richard sagði að hann teldi nokk- uð langt gengið þegar íslenskir ráðherrar þyrftu að sækja um leyfi hjá ráðmönnum í Washington til að veiða og selja hval; frjáls verslun væri þessari eyþjóð ákfalega mikils virði og ekki mættu vera á henni hömlur. „Við ísiendingar emm mjög sjálfstæð þjóð og eigum að halda okkar reisn og ekki að beygja okkur alltaf í duftið." Hann sagði að endurskoða þyrfti t.d. kjötinnflutning vamarliðsins á Kelfavíkurflugvelli og koma þyrfti á jafnrétti hvað varðaði vegabréfaá- ritanir milli landanna. Richard sagðist ekki vera að hvetja til þess að Islendingar hætti að selja Bandríkjamönnum afurðir sínar. „Bandaríkjamarkaðurinn hefur verið okkur ákaflega mikils virði, en við eigum ekki að beina öllum okkar útflutningi þangað. Við eig- um að reyna að dreifa viðskiptum okkar á önnur lönd líka,“ sagði Richard. Töluverðar umræður urðu um síðustu setninguna í ályktuninni, þar sem ekki var í fyrstu ljóst hvem- ig túlka mætti orðalagið. „Ég vil taka það skýrt fram að ég er ekki að mælast til þess að herinn verðir rekinn úr landi, eða að Island skuli úr NATO, eða neitt í þá átt,“ sagði Richard. Hann sagði að orðalag ályktunarinnar hafí vilj- andi verið haft nokkuð opið og víðtækt, þannig að fulltrúar allra flokka í bæjarstjórninni gætu fallist á hana. BÆNDUR - JARÐEIGENDUR: BYLTING í GIRDING ARIX/IÁLUIVI! SILVA rafgirðingar eru ekki aðeins afbragðsgódar girðingar, heldur er tilkoma þeirra nánast bylting f girðingarmálum, hér sem annars staðar. Þær sameina kosti venjulegrar girðingar og rafgirðingar og eru svar nútfmans við kröfum um sterkari, öruggari og hagkvæmari girðingar. Helstu eiginleikar: • Lítið viðhald • Auðveld uppsetning • Má tengja jafnt við rafgeyma sem landsrafkerfið • Standa vel af sér snjó • Geta komið í stað venjulegrar girðingar og spara þá staura og annað girðingarefni CJARl * Fjölmargir fylgihlutir • Ódýr og hagkvæm lausn. Leitið nánari upplýsinga hjá okkur. RAFMAGNSTENGI INANGRUNARRÖR LÁGMÚLI 5 • 108 REYKJAVÍK-SÍMI6815 55 Hljómsveitin sem leikur í Landakotskirkju á sunnudagskvöld er skipuð ungum hljóðfæraleikurum sem ýmist hafa verið í námi erlendis eða enn starfandi hérlendis. Hlj'ómleikar í Landakotskirkju TÓNLEIKAR verða í Landakotskirkju á sunnudagskvöld kl. 20.30. Hljómsveit ungra hljóðfæraleikara undir stjóm Hákons Leifssonar leikur og Ragnheiður Guðmundssdóttir syngur. Fyrst á efnisskránni er verk Mahler í útsetningu Amolds eftir ungt danskt tónskáld, Hans Schönberg fyrir litla hljómsveit. Abrahamssen, sem tilheyrir skóla Síðasta verkið á efnisskránni er sem er kenndur við „Nýjan ein- svo konsert fyrir klarinett og faldleika". Því næst verða flutt hljómsveit eftir Wolfgang Ama- sönglög við eigin ljóð eftir Gustav deus Mozart. Þátttakendur á námskeiði Jacques og Beatrice Chapuis f Félagsstofnun stúdenta. Morgunblaðið/Einar Faiur Félag tónlistarkennara: Námskeið 1 píanókennslu með aðferð Edgars Willems ÞESSA dagana stendur yfir námskeið á vegum félags tónlist- arkennara þar sem Jacques Chapuis og kona hans Beatrice, tónlistarkennarar frá Sviss, kynna svokallaða aðferð WUlems í tónlistarkennslu, en það er píanókennsla fyrir algjöra byij- endur og allt til þeirra sem langt em komnir í píanónámi. Að- ferðin er kennd við upphafs- mann hennar Edgar Willems. Þetta er í fyrsta skipti, sem að- ferð Willems er kynnt hér á landi, en aðferðin byggist á máli tónlistar- innar sjálfrar við mjög ung böm. Þar sem aðferðin byggir á algildum sálarlífsgrunni, má beita henni- með einhveiju móti í öllum löndum heims. Þar að auki hefur hún þann kost, að búa böm undir hljóðfæra- leik á lifandi hátt, gleðiríkan og stig af stigi. Nemendur öðlast eðli- lega tónlistargáfu og tilfínningu fyrir takti og hraða. Tóneyra þróast fyrir skilningi á laglínu og hljómum; líkaminn fær undirbúning fyrir hljóðfærið og nemendur em undir- búnir fyrir lestur, skrift og spuna. Grundvallaratriðin gilda allan tímann sem tónlistamámið fer fram og er leitast við að hafa námið sem samfelldast. Þegar Jacques Chapuis lauk tón- listamámi í Sviss 1948, þar sem hann hlaut tilsögn og kennslu margra viðurkenndra lærimeistara, hófst ferill hans sem einleikari og kennari á píanó. 1960 stofnaði hann einkaskóla í tónlistarkennslu, þar sem Edgar Willems og Lily Merm- inod áttu samstarf á sviði tónlistar- kennslu bama. Síðan 1968 hefur Chapius veitt forstöðu alþjóðlega Willems- tón- listarkennslufélaginu, sem hefur höfuðstöðvar sínar í París og frá 1983 hefur hann verið forstöðu- maður Frakklandsdeildar Evrópu- samtaka píanókennara (EPTA). Námskeiðið stendur til 26. ágúst og er haldið í Félagsstofnun stúd- enta við Hringbraut. Það er öllum opið sem áhuga hafa en fram að þessu hafa fjölmargir tónlistar- kennarar og aðrir tónlistarmenn sótt námskeiðið. Jacques Chapuis Iætur hér börnin greina á milli mismunandi hljóða og áhuginn hjá þeim er greinilega mikili.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.