Morgunblaðið - 22.08.1986, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986
11
Líkanið af suðvestur-
horni landsins:
Leiðrétting
ÞAU mistök urðu í Morgiuiblað-
inu þann 21. ágúst, þar sem
fjallað var um smiði þá er hönn-
uðu líkanið af suðvesturhorni
Islands, sem til sýnis er á tækni-
sýningunni i Borgarleikhúsinu,
að þar var sagt að Axel Helgason
hefði skorið út plöturnar og límt
þær upp. Nafn Kristjáns Sigurðs-
sonar flokksstjóra féll þar brott,
en hann límdi upp plöturnar i
verkinu. Morgunblaðið biðst vel-
virðingar á þessum mistökum.
Geislavirk
A slóðum Twains
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Fljótarottan (The River Rat).
Sýnd í Regnboganum. Sljömu-
gjöf: ☆ ☆
Bandarísk: Leikstjóri og
handritshöfundur: Tom Rick-
man. Framleiðandi: Bon Lar-
son. Tónlist: Mike Post.
Klipping: Dennis Virkler. Kvik-
myndataka: Jan Kiesser. Helstu
hlutverk: Tommy Lee Jones,
Brian Dennehy og Martha
Plimpton.
Fljótarottan (The River Rat),
sem sýnd er í Regnboganum, eft-
ir nýliðann Tom Rickman er ansi
skemmtilegur og oft spennandi
ævintýraþriller sem gerist við
Mississippi-fljótið og er ekki laust
við að sé veikt bergmál frá sögum
fljótabúans fræga, Marks Twain.
Hvemig ætti annars að vera hægt
að gera mynd við fljótið án þess
að Twain komi í hugann?
Fljótarottan gerist í samtím-
anum og er um 12 ára gamla
stelpu sem lendir í ýmiskonar
klandri með pabba sínum. Hann
er nýsloppinn úr fangelsi og ætlar
að hafa upp á peningunum sem
hann rændi áður en honum var
stungið inn. Jonsy (Martha Plimp-
ton) fæddist eftir að pabbi hennar
fór í tugthúsið svo hún þekkir
hann ekkert þegar hann birtist
allt í einu einn daginn. Billy
(Tommy Lee Jones) hefur að sama
skapi aldrei séð dóttur sína og
partur af því sem er svo heillandi
við Fljótarottuna er hvernig þau
kynnast smám saman. Jonsy hefði
getað verið vinur Stikilsberja-
Finns. Hún er kjaftfor, ævintýra-
gjörn og bráðskemmtileg. Billy
er aftur þungur á brún, einrænn
og kaldur en bráðnar fljótlega í
samvistum við dótturina.
I stað þess að verða væmin
tekur myndin á sig svip þrillersins
þegar Doc (Brian Dennehy) kem-
ur til sögunnar. Hann girnist
peninga Billys og það hefst elt-
ingaleikur upp og niður Miss-
issippi.
Fljótarottan er lítil og ódýr
mynd, meinlaus og vel gerð í alla
staði en með heldur snubbóttum
endi. Rickman tekst ekki að halda
spennu út alla myndina en honum
tekst þeim mun betur með sam-
band feðginanna. Þetta er fyrsta
myndin sem hann leikstýrir þó
hann hafi komið nálægt kvik-
myndagerð áður því hann skrifaði
handritið að Dóttur kolanámu-
mannsins.
Martha Plimpton er senuþjófur-
inn í hlutverki Jonsy, Tommy Lee
Jones bætir litlu nýju við feril sinn
í hlutverki Billys, sem er enginn
glæpamaður í eðli sínu, og Brian
Dennehy sem skálkurinn Doc
tekst að vera viðkunnanlegur og
næstum elskulegur í hlutverki
sínu um leið og hann beinir byssu
að feðginunum.
hreindýr
„Ame Treholt er mesti föður-
landssvikari Noregs, síðan Qvisling
var uppi,“ sagði einn af hershöfð-
ingjum Norðmanna fyrir nokkrum
mánuðum, „og skaðinn sem hann
hefur valdið á sviði vamarmála er
í sumum tilvikum svo mikill að það
mun taka langan tíma og kosta
mikið fé að bæta úr og í sumum
tilvikum er það varla hægt!
Veijendur Treholts og vinir, sem
sumir eru áhrifamiklir, hafa ekki
getað hmndið þessum hörðu orðum,
eða fengið þau dæmd ómerk. Þeir
hafa þó haldið uppi málþófi og útúr-
snúningum og reynt að afsaka
gerðir hans. I vor hafði Treholt
ráðgert að flýja úr fangelsi og hefði
það sennilega tekist ef einn af kunn-
ingjum hans hefði ekki komið upp
um ráðabmggið. Treholt varð þá í
skyndi fluttur í annað og traustara
fangelsi. Fullvíst er að flóttaáætlun
hans mun síst bæta málstað hans.
☆
Sjóeldi hér í Noregi færist mjög
í vöxt, en segja má að það hafi
hafist fyrir alvöm kringum 1970.
Nú á svo að heita að leyfi þurfí til
að byija á sjóeldi. Ymsir aðilar hafa
þó ráðist í það í smáum og stómm
stíl án fullnægjandi leyfa. Fram-
leiðsla á fiski í sjókvíum og flotþróm
er nú talin meiri en þorskafli lands-
manna, sem farið hefur minnkandi.
Blikur á lofti em þó miklar í fisk-
eldismálum. Aukið framboð af laxi
veldur verðfalli og alvarlegir fisk-
sjúkdómar heija æ meir á laxinn.
í slíkum tilvikum er þá oft eina
ráðið að skera niður og slátra öllum
fiski, sótthreinsa, eða flytja til ann-
arra staða.
☆
Þegar þetta er ritað hafa alls 7
farist við jökulinn Jostedalsbre og
Svartisen. Fimm þeirra voru erlend-
ir ferðamenn, sem lentu undir
snjóflóði við Jostedalsjökulinn. Slys
sem þessi em mjög sjaldgæf. Nú
em jöklar þó taldir hættulegri en
áður, og ferðamenn virða að vett-
ugi aðvörunarskilti, meira að segja
þótt þau séu á þrem tungumálum!
☆
Fífldjarfir fallhlífamenn hafa
Jöklaferðir í Noregi verða sífellt hættulegri. Myndin er frá skrið-
jökli við Jostedatsjökul.
Geislavirkni í hreindýrakjöti er nú svo mikil um miðhluta Noregs að kjötið verður ekki notað til manneldis.
síðustu árin kastað sé fram af fjall-
inu Trollveggen í Romsdal og látið
sig svífa niður á sléttlendið fyrir
neðan. Sumir þeirra hafa beðið bana
eða slasast þegar vindhviður hafa
feykt þeim á berghamrana. Fyrir
nokkmm missemm lét erlendur
ferðamaður lífið af þeim sökum.
Eiginkona hans, sem varð sjónar-
vottur að slysinu, stökk nokkru
síðar út frá fjallinu, en kom heilu
og höldnu niður.
Norðmenn hafa nú bannað með
lögum fallhlífarstökk þarna, en er-
fitt getur verið að bjarga fólki, sem
lent hefur á bergsyllum. Mikil slysa-
hætta fylgir björgunarstörfum, þar
eð vindsúgurinn frá þyrlum björg-
unarmanna losar oft lausagijót úr
fjallinu. Lögregla fylgist nú með
fólki á þessum slóðum og strang-
lega er bannað að vera með sér
fallhlíðabúnað í nágrenninu.
☆
Geislavirkni í hreindýrum og
sauðfé um miðhluta Noregs er nú
svo mikil, að kjöt af þessum dýmm
verður ekki notað til manneldis.
Geislavirkni í urriða og öðmm fiski
á sömu slóðum er einnig mikil.
Geislavirkni þessi stafar frá at-
burðunum í Chernobyl sl. vor.
Samkvæmt mælingum sérfróðra
manna er geislavirknin milli 20.000
og 50.000 beequerel cesium í hverju
kílói af hreindýrakjöti en allmiklu
minni í kindakjöti. Norðmenn setja
hættumörkki við 600 becq. Geisla-
virkni í gróðri þeim sem hreindýr
éta er mikil og fer vaxandi, og því
ástandið ekki gott. Ekki er ákveðið
hvað gera skal við kjöt af sláturdýr-
um, sem ekki verður neyzluvara.
Bændur munu hinsvegar fá tjónið
bætt frá því opinbera.
☆
Síðastliðið vor komu hingað
skæmliðaforingjar frá Afghanistan
og auk þess óbreyttir borgarar til
Oslo. Með þeim var Sovétmaður
sem verið hafði í sovéska innnrásar-
hernum, en gerst liðhlaupi. Þetta
fólk tók þátt í vitnaleiðslu um
ástandið í Afghanistan. Það hafði
ófagrar sögur að segja af grimmd-
arhernaði Sovétmanna í landinu.
Ekki er nóg með það að þeir varpi
sprengjum og eiturefnum á þotq)
og bæi, heldur er síðan farið með
skriðdreka yfir húsarústirnar og ei
skeytt um þótt börn eða hrum gam-
almenni kunni að vera þar. Ástandið
hefur farið mjög versnandi, eftir
að hinn tungulipri Gorbachev settist
á valdastól í Kreml.
Einum skæmliðaforingjanna var
boðið til Bergen, þar sem hann
heimsótt meðal annars gagnfræða-
skóla. Honum var vel fagnað af
nemendum, en fólk í Bergen hefir
reyndar áður veitt skæmliðum
stuðning með því að safna fjármun-
um til matvæla- og vopnakaupa.
„Gleymið okkur ekki, og baráttu
okkar fyrir fijálsu og óháðu Afgh-
anistan,“ sagði skæruliðaforinginn,
og bætti við „okkur vanhagar nú
mest um matvæli og loftvarnar-
byssur til að skjóta niður þyrlur
óvinarins, en önnur vopn tökum við
frá andstæðingunum."
Norðmenn hafa síðustu árin sent
lækna og sjúkraliða inn í Afghanist-
an, til héraðs þar sem skæruliðar
em vel vopnaðir, og harðir bardaga-
menn. Þeir hafa að mestu fengið
að vera í friði, að því undanskildu
að þyrlur Sovétmanna hafa gert
árásir á matvælageymslur og eyði-
lagt akra og ávaxtagarða. Norð-
menn sem komu heim frá þessum
slóðum vom sjónarvottar að því
þegar sovéskar þyrlur skutu eld-
flaugum á varnarlítil þoiq) og á
friðsamt fólk á ökrum úti. Loforðum
Sovétmanna um að þeir vilji draga
sveitir sínar á brott frá landinu trúa
sjúkraliðarnir ekki, heldur telja þeir,
að hér sé um að ræða blekkingavef
frá herranum í Kreml.
EG
Alþýðubandalagið:
Ofteknir
vextir verði
endurgreiddir
ÞINGFLOKKUR Alþýðubanda-
lagsins samþykkti eftirfarandi
ályktun á fundi sínum 20. ágúst
sl.
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
vekur athygli á því að Seðlabanki
íslands hefur viðurkennt að greið-
endur innheimtuskuldabréfa hafi
greitt hærri vexti af skuldum sínum
en leyfilegt var allt frá því í ágúst
1984, þegar rikisstjórnin hleypti
svokölluðu vaxtafrelsi af stað.
Alþýðubandalagið krefst þess að
þeir viðskiptabankar sem tekið hafa
of háa vexti, endurgreiði þá tafar-
laust og bendir á sjóði Seðlabankans
í því skyni, svo og gróða viðskipta-
bankanna. Alþýðubandalagið telur
óþolandi að það fólk, sem er að
beijast við að koma yfir sig hús-
næði beri milljónaskaða af rangri
stjómarstefnu og vanrækslu Seðla-
bankans við að auglýsa hæstu
lögleyfðu vexti.