Morgunblaðið - 22.08.1986, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 22.08.1986, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986 Forsætisráðherra Súdan: Leitum friðsam- legrar lausnar — þrátt fyrir árás uppreisnarmanna Karthoum, AP. FORSÆTISRÁÐHERRA Súdan, Sadek El-Mahdi, sagði á blaða- mannafundi í gær að byltingin í suðurhluta landsins væri „hreyfing hryðjuverkamanna", en hét þvi þó að hann myndi reyna að finna friðsamlega lausn á deilunni þrátt fyrir ákvörðun stjórnar sinnar um að hætta viðræðum við uppreisnarmenn. El-Mahdi sagði það sanna að saman mílli Garangs og stjómar- Frelsisher Súdan (SPLA) væri hreyfíng hryðjuverkamanna að fé- lagar í honum hefðu skotið niður súdanska farþegaflugvél á laugar- dag: „Þetta eru hryðjuverkamenn með óljós markmið, sem þeir ætla að ná fram með ofbeldi." Þrátt fyrir að vélin hefði verið skotin niður, bætti El-Mahdi við, „ætlum við að reyna að finna pólitíska lausn til að stilla til friðar". Þetta voru fyrstu opinberu um- mæli forsætisráðherrans um árás- ina á flugvélina á laugardag. Þá skutu uppreisnarmenn undir for- ystu John Garang, fyrrum yfír- manns í súdanska heraum, niður tvíhreyfla Fokker Friendship-flug- vél í flugtaki á flugvellinum í Malakal, sem er um 750 km suður af Khartoum, höfuðborg Súdan. 57 farþegar og þriggja manna áhöfn var um borð og létu allir lífíð. Frelsisher Súdan lýsti þegar ábyrgð á verknaðinum á hendur sér í útvarpi sínu og var hótað að skjóta niður allar flugvélar sem flygju yfír yfirráðasvæði uppreisnarmanna. Mohammed Tewfík, upplýsinga- ráðherra Súdan, sagði í útvarpi á þriðjudag að árásin hefði leyst yfír- völd undan allri skuldbindingu til viðræðna við uppreisnarmenn. Ahmed sagði í viðtali, sem birtist í gær, að stjómin virti að vettugi viðvaranir Frelsishers Súdan til borgarbúa um að flýja fjórar stórar borgir í suðurhluta landsins til að verða ekki fyrir yfírvofandi árás. Malakal er meðal þessara borga. El-Mahdi kvaðst á blaðamanna- fundinum hissa á árásinni á laugar- dag þrátt fyrir hótanir Frelsishers Súdan um að grípa til slíkra að- gerða. Sagði hann að dregið hefði V estur-Þýskaland: Þrír hryðju- verkamenn handteknir Karlsruhe, AP. VESTUR-ÞÝSK yfirvöld lýstu yfir því i gær að þrír menn, sem talið er að séu félagar í Rauðu herdeildinni (RAF), hefðu verið handteknir. Hans Jurgen Förster, talsmaður yfírsaksóknara, sagði að þremenn- ingarair væri grunaðir um aðild að sprengingu í lögreglustöð 11. ágúst. Loftskeytatum skaddaðist í spreng- ingunni en engan sakaði. Sagði Förster að Norbert Hof- meier og Barbara Perau hefðu verið handtekin á miðvikudag og Thomas Karl-Heinz Thomeme 15. ágúst. Sagði hann að handtaka Eva- Sybille Haule-Frimpong, eftirlýsts hryðjuverkamanns úr RAF, og tveggja samverkamanna hryðju- verkasamtakanna 2. ágúst hefði leitt til þess að þremenningamir voru handteknir. Þau búa þrjú í Duisburg og að sögn Försters leitaði lögregla í íbúð þeirra aðeins tveimur dögum eftir sprengjuárásina. Fundust þá afrit af bréfínu, sem skilið var eftir til að lýsa yfír ábyrgð á verknaðinum. innar í viðræðum undanfarið og ágreiningurinn hefði verið orðinn lítill. El-Mahdi vísaði til fundar síns og Garangs i Addis Ababa, höfuð- borg Eþíópíu, fyrir þremur vikum og viðræðna sem fylgdu, milli SPLA og erindreka stjómarinnar. Frelsisher Súdan hefur lýst því yfír að hann ráði yfír mestum hluta sveitanna umhverfís borgimar íjór- ar í suðurhluta landsins. Stjóm Súdan ræður aftur á móti yfír öllum flugvöllum á svæðinu og segir El- Mahdi að haldið hafí verið áfram að. fljúga til og frá flugvellinum í Malakal síðan á laugardag. El-Mahdi sagði einnig á blaða- mannafundinum að Sovétmenn hefðu samþykkt að auka gagn- kvæm tengsl við Súdan, þ. á m. ætluðu Sovétmenn að hjálpa til við að gera upp sjúkrahús og rannsókn- arstofur í dýralækningum, sem þeir reistu fyrir tveimur áratugum. Suður-Afríka: Símamynd/AP Benigno Aquino minnst Forsetí Filippseyja, Corazon Aquino, afhjúpaði S gær hellu úr graníti í Manila til minningar um mann hennar, Benigno Aqu- ino. Hellunni var komið fyrir á þeim stað á flugvelli borgarinnar, þar sem Benigno var myrtur, en það var 21. ágúst 1983. GENGI GJALDMIÐLA London, AP. Bandaríkjadalur hækkaði í verði á gjaldeyrismörkuðum í Evrópu, en sérfræðingar segja lækkun forvaxta í Bandaríkjun- um hafa lítil áhrif haft á gengi dalsins. Gullúnsan hækkaði í verði um 6 dollara. Sérfræðingar segja stöðuna á gjaldeyrismarkaði óljósa og ill- mögulegt að átta sig á hvert stefnir. Búist er við breytingum á gengi gjaldmiðla ef forvextir lækka einnig í Japan og Vestur-Þýzka- landi, eins og búist er við. Dalurinn hækkaði gagnvart sterlingspundinu, sem kostaði 1,4970 dali miðað við 1,5045 á miðvikudag. Annars var gengi dalsins á þann veg að fyrir hann fengust: 2,0480 vestur-þýzk mörk (2,0487) 1,6485 svissneskir fí’ankar (1,6477) 6,7095 franskir frankar (6,6875) 2,3080 hollenzk gyllini (2,3110) 1.413,00 ítalskar lírur (1.410,50) 1,3915 kanadískir dalir (1,3905) í Japan lækkaði dalurinn úr 153,05 í 153,03 jen og í London var hann skráður á 153,30 jen. Gullúnsan hækkaði úr 377,50 dollurum í 384 í London og úr 377,50 í 383 í Zurich. Stj órnarsinnar beina spjótum sínum að Tutu Jóhannesarborg, AP. ANDRIES Treurnicht, formaður suður-afríska íhaldsflokksins, sem langt er tíl hægri í stjómmálum, sagði í gær að ekki mættí láta viðgangast að Desmond Tutu biskup héldi áfram að hvetja tíl efna- hagslegra refsiaðgerða gegn Suður-Afriku. í blaðinu Civilian, sem styður stjóra hvita minnihlutans, var Tutu kveðinn niður og lfkt við „trúarlega poppstjörnu. Tutu kom í gær til Suður-Afríku úr ferð til Japan, Kína og Jamaica. Á ferðalagi sínu hvatti biskupinn til þess að gripið yrði til refsiað- gerða vegna kynþáttaaðskilnaðar- stefnu stjómarinnar. „í öllum öðmm ríkjum væri litið á athafnir og yfírlýsingar Tutus sem landráð. Það þarf strax að taka á máli þessu," sagði Treumicht og sakaði stjómina um linkind í við- skiptum sínum við nóbelsverðlauna- hafann. Pietie du Plessis, vinnumálaráð- herra, veitti Tutu vinsamlega viðvömn, eins og hann orðaði það, um að krafa Tutus um refsiaðgerð- ir væm ekki aðeins „eftiahagsleg skemmdarverk, heldur jöðmðu við landráð". Tutu verður vígður erkibiskup Höfðaborgar 7. september og hefur boðið ýmsum háttsettum stjóm- málamönnum, skemmtikröftum og talsmönnum mannréttinda til að vera viðstaddir athöfíiina. í leiðara blaðsins Civilian sagði að greinilegt væri að Tutu ætlaði sér að hagnast á kirkjulegum frama sínum og var þar tekið fram að á gestalistanum væm margir harðir gagnrýnendur á stefnu suður- afrísku stjómarinnar. í blaðinu stóð að skemmtikraft- amir — þeirra á meðal söngvarinn Stevie Wonder og leikarinn Bill Cosby — ættu „álíka mikið erindi til vígslu hans og karlinn í tungl- inu“. „Það er deiluefni hvort stjómin eigi að virða hann vettugi eða lög- sælq'a hann og gera hann þannig að píslarvætti í ofanálag. En eitt er víst: Enginn er stærri þymir í augum Suður-Afríkumanna, en þessi kirkjunnar maður, sem stikar um heiminn lfkt og trúarleg popp- stjama," sagði í niðurlagi leiðarans. Ritstjórar suður-afrískra dag- blaða birtu í gær fyrsta sinni fréttir af aðgerðum lögreglu síðan neyðar- lögin vom sett 16. júní. í blaðinu Cape Times var það rakið, sem gerst hefur undanfama tvo mánuði og dagblöðin þorðu ekki að birta vegna ákvæða um ritskoðun í neyð- arlögunum. Ástæðan fyrir þessari breytingu er sú að stjómin viðurkenndi fyrir rétti á miðvikudag að tvö ákvæði neyðarlaganna um fjölmiðla hefðu ekki verið kunngerð með réttum hætti og væm því ógild. Svíþjóð: „Sneru sér á hina hliðina og héldu áfram að sofa“ — segir formaður Palme-nefndarinnar um við- brögð margra ráðamanna við morðinu á Palme Stokkhólmi, AP. HÁTTSETTIR menn í stjórnkerfinu voru látnir vita allt of seint um morðið á Olof Palme, forsætisráðherra, og þegar þeir höfðu fengið að vita það „sneru margir sér á hina hliðina og héldu áfram að sofa“. Formaður Palme-nefndarinnar tók þannig tíl orða í gær i viðtali við sænskt dagblað. Per-Erik Nilsson, ármaður sænska þingsins í dómsmálum og formaður Palme-nefndarinnar, sagði í viðtali við Stokkhólmsblaðið Dagens Nyheter, að ástæða væri til að hafa miklar áhyggjur af öryggis- og vamarviðbúnaði þjóðar- innar á hættustund, hvort sem styijöld steðjaði að eða önnur vá. Það hefði sýnt sig best í viðbrögðum lykilmanna við morðinu á Olof Palme. „Næstum allir þessara ráðmanna tóku það sem sjálfsagðan hlut, að morðið á Palme væri einangraður atburður," sagði Nilsson, „þótt það hefði eins getað verið liður í atlögu hryðjuverkamanna að allri ríkis- stjóminni eða undanfari innrásar í Svíþjóð." Nilsson kvaðst sjalfur hafa heyrt fréttimar fyrst í útvarpinu, tveimur stundum eftir að Palme var myrt- ur, og hann sagði, að ekki hefði náðst í Karl Gústaf, konung, Lenn- art Ljung, yfirmann sænska hersins eða Hans Holmer, yfírlögreglu- stjóra í Stokkhólmi, fyrr en nokkr- um stundum síðar. Sagði Nilsson, að margir emb- ættismenn, sem fengu fljótt að vita um morðið, hefðu átt „að sýna meiri árvekni". „Það sem í raun gerðist var að þeir snera sér á hina hliðna og héldu áfram að sofa eftir að nætursvefn þeirra hafði verið traflaður með þessum tíðindum." í viðtalinu viðDagens Nyheter lagði Nilsson áherslu á, að hann væri aðeins að tala frá eigin bijósti en ekki allrar Palme-nefndarinnar, sem á að skila lokaskýrslu um rann- sóknina snemma næsta árs. Til þessa hefur nefndin alls rætt við 60 háttsetta menn í stjómkerfínu, her og lögreglu. „Mér fannst það strax af viðræð- unum við þessa menn, að þeir hefðu aldrei trúað að neitt þessu líkt gæti gerst í Svíþjóð. Sú spuming hefur því vaknað hjá mér hvort afstaða okkar mótist ekki af tómum bamaskap, þrátt fyrir allar áætlan- irnar um hvemig bregðast skuli við á hættustund," sagði Nilsson. í viðtalinu sagði Nilsson það sína skoðun, að allir helstu ráðamenn þjóðarinnar ættu alltaf að hafa á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.