Morgunblaðið - 22.08.1986, Side 36
36
aæi TáöoÁ .ss íiuaA.a'j.T&ofi '.gioajshuohom
MORGUNBLAÐIÐ, F6STUDAGUR 22:-ÁGÚST“1986
fclk í
fréttum
Fonda í hlutverki
drykkjusjúkrar kvikmyndastjörnu
Það þótti það mörgum æði
fáránlegt, ef ekki bara fyndið,
að sjá eina helstu
forsvarsmanneskju heilbrigðs
lífernis, leikkonuna Jane Fonda,
púa hvetja sígarettuna á fætur
annarri í kvikmyndinni „Agnes,
barn Guðs“ á dögunum. Fonda
hefur nefnilega undanfarin ár háð
harða baráttu gegn offitu og
kyrrsetu, sent frá sér hvetja
heilsuræktarbókina á fætur
annarri, svo og myndbönd, þar sem
hún leiðbeinir letibykkjunum við
iðkunina. Nú berastokkur
hinsvegar þær fregnir að aðdáendur
leikkonunnar megi búa sig undir
enn eitt áfallið hvað varðar ímynd
goðsins. Jane Fonda hefur nefnilega
fallist á að leika drykkjusjúka,
miðaldra kvikmyndaleikkonu í
myndinni „The Moming After“. Þar
mun hún vera allt annað en
hraustleg að sjá, visin og vanhirt.
Reisnin mun líka verða á bak og
burt því Fonda ku nefnilega súpa
af stút í heila tvo tíma og slíkt
hefur aldrei talist beint
hefðarkonulegt. Mótleikari Fonda í
þessari ágætu mynd erenginn
annar en Jeff Bridges, sem lesendur
kannast eflaust við úr myndinni
„Against All Odds“. „Ég stend á
nokkurs konar tímamótum á
listferli mínurn," segir Jane.
„Núorðið tek ég aðeins að mér þau
hlutverk sem éger ekki alveg viss
um að ég valdi. Þetta hlutverk gerir
t.d. alveg ofboðslegar kröfur til
mín. Eg verð að setja mig inn í
hugarheim, sem égekki þekki.
Skilja konu sem er alger andstæða
Getið þið ímyndað
ykkur Jane Fonda
súpa af stút i heila
tvo tíma? - Ekki
það, nei! - Það ger-
ir hún engu að síður
í myndinni „The
Moming After“.
mín. Og það er hægara sagt en
gert skal ég segja ykkur. Hitt er
svo annað mál að ég hef lært
ótrúlega mikið á þessu og þykist
nú skilja betur bæði orsakir og
afleiðingar svona sjálfstortímingar.
Þetta víkkar sjóndeildarhringinn
afskaplega mikið — veitir manni
innsýn í mannlegt eðli og þroskar
mann um leið,“ segir hún. „Hugsið
ykkur líka hvað starfið yrði
leiðigjarnt ef maður léki alltaf fólk
sem væri nákvæmlega eins og
maður sjálfur. - Að ég tali nú ekki
um hvað áhorfendur yrðu fljótt
þreyttirámanni."
M
NYJASTANYTT
Blístrandi
bleyjur
eðal þess sem mjög hefur
breyst á undanfömum árum
eru blessuð bústörfin. Bleyjuþvottur
heyrir nú t.a.m. næstum því sögunni
til. Bréfbleyjumar hafa leyst þær
sem búnar voru til úr bómull af
hólmi - öllum til mikils léttis. Enn
sér þó ekki fyrir endann á bylting-
unni í bleyjumálum. Nú eru nefni-
lega komnar á markað í Frakklandi
blístrandi bleyjur, ef svo má að orði
komast. Bleyjur þessar em búnar
þeim eiginleikum að í hvert sinn sem
bamið bleytir sig hefst hljómleika-
hald í húsinu. Sérstöku og sérhönn-
uðu rafhlöðu-tæki er komið fyrir á
milli bréfsins og plastsins og um
leið og tækið skynjar einhveija vætu
hefur það upp „raust“ sína og spilar
fyrir viðstadda lagið „When the Sa-
ints Go Marching In“ - og linnir
hreinlega ekki látum fyrr en blaut
bleyjan hefur verið fjarlægð.
Framleiðendur þessarar nýjungar
em að vonum afar stoltir af hugviti
sínu og framtakssemi og segja að
bleyjumar blístrandi spari foreldrum
mikinn tíma. Þær gera það óþarft
að foreldrar séu sí og æ að fylgjast
með bleyjum bamsins og koma einn-
ig í veg fyrir að barn geti gengið
um með blauta bleyju án þess að
nokkur viti af því. Éini ókosturinn
við þetta er verðlagið, sem er nokk-
uð hátt, enn sem komið er, eða um
320 krónur hver bleyja, hvorki meira
né minna. - En ekki fagna þó allir
þessari „framför" í bleyjumálunum.
Sálfræðingar hafa t.d. látið málið
til sín taka og óttast þeir að auka-
verkanimar verði miður skemmtileg-
ar. Dr. Edwige Antier er meðal
þeirra sem er andvíg þessari nýju
tónlistar-bleyjutegund. „Ég álít að
um leið og bamið geri sér grein fyr-
ir þessu samhengi milli vætunnar:
og tónlistarinnar, álykti það að tón-
listin sé nokkurs konar verðlauna-
veiting og muni því reyna að hljóta
þessa vætu-viðurkenningu í tíma og
ótírna," segir hún. „Einnig tel ég það
vel mögulegt að þetta geti orsakað
að í hvert sinn sem viðkomandi heyr-
ir þetta ákveðna lag, síðar á lífsleið-
inni, þá bleyti sá hinn sami buxumar
- og það sér það hver heilvita mað-
ur að það eitt gæti skapað virkilegt
vandræðaástand," bætir hún við. —
En hveiju svara framleiðendurnir
gagnrýni á borð við þessa? „Við
hlustum ekki á svona kjaftæði,“
segja þeir ákveðnir í bragði. „Þessar
bleyjur eru alveg frábærar og ef þær
hafa einhveijar aukaverkanir felast
þær helst í því að bamið verður
bara tónelskara. Bleyjurnar skerpa
tónheyrn þess.“ - Ja, flest er nú
til...
Frank hefur
áhyggjur af fjárútlátum
frúarinnar
„Hún ætti fyllilega
skilið svarta beltið
í íþróttinni „kaup
og kjör“,“ segir
Sinatra um konu
sína, Barböru.
Söngvarinn Frank Sinatra er
þekktur fyrir hversu vel hann
nær til áheyrenda sinna, með hlý-
legri framkomu og vingjarnlegu
spjalli sínu. Á dögunum tók hann
sig til og trúði aðdáendum sínum
fyrir því að kona hans, Barbara,
væri eyðslusöm í meira lagi. „Hún
elskar það að versla," upplýsti hann
yfir heilan sal. „Eiginlega er
frammistaða hennar svo til fyrir-
myndar að hún ætti fyllilega skilið
að fá svarta beltið í þeirri íþrótta-
grein,“ bætti hann við. „Ekki svo
að skilja að eyðuslusemi hennar sé
að gera mig gjaldþrota, langt frá
því. En óneitanlega hvarflar það
stundum að mér þegar við komum
heim úr samkvæmum og eyru henn-
ar og háls eru hlaðin öllu þessu
glingri — að eiginlega ætti ég bara
að stinga öllu höfðinu á henni inn
í blessaðan peningaskápinn.“
Islendingar á hljómleikum
Þó íslenska þjóðin hafi aldrei
getað talist stór hvað varðar
höfðatölu, hefúr hún löngum
hneigst til ferðalaga og ekki látið
það aftra sér þó hún búi frekar
afskekkt, lengst í norðri.
Islendingar þeir sem nú dveljast
á Gosta del Sol á vegum Útsýnar,
notuðu tækifærið er hljómsveitin
Queen hélt þar tónleika, til að líta
goðin augum og fjölmenntu þeir
alls 120 talsins á tónleikana, sem
haldnir voru í Marbella, sem er
hvað frægust fyrir að þar eyða
margir af ríkustu mönnum heims
sumarleyfum sínum. Queen hóf
hljómleikaferð sína um Spán á Rayo
Vallecano leikvanginum í Madrid
þann 1. ágúst sl., og voru það
stærstu útihljómleikar sem þeir
hafa haldið hingað til. Til að gera
þetta mögulegt fluttu þeir með sér
svið mikið, 160 fet að flatarmáli,
tæpa 14 kílómetra af snúrum,
hljómkerfi, sem taldist yfir 500
QUEEN
þúsund „vött“ og 70 hjálparmenn.
Koma þeirra til Spánar hefur vakið
talsverða athygli og hafa fjölmiðlar
keppst um að birta af þeim fréttir
og í þættinum „Informe Semanal",
sem er einskonar Kastljós spænska
sjónvarpsins, var 10 mínútna viðtal
á Spáni
Freddy Mercury, söngvari og
höfuð hljómsveitarinnar hlýtur að
vera í mjög góðu formi þessa dag-
ana, því hann var á stöðugum
hlaupum um allt sviðið, sem var á
við þá félaga, það fyrsta sem þeir þremur hæðum samtals. Mest áber-
hafa veitt í ein 5 ár. andi voru Mercury að sjálfsögðu og
Þann 3. ágúst héldu þeir svo tón- Brian May, gítarleikari sveitarinn-
leika í Barcelona og 5. ágúst í ar, sem tók lengsta „gítarsóló" sem
Marbella. Uppselt var á hljómleik- undirritaður hefur heyrt, en það var
ana í Marbella og rúmlega það, því þó á köflum æði rýrt að innihaldi.
hvorki fleirum né færri en 30 þús- Þeir kumpánar fluttu þama sín
und manns var þar kyrfílega þekktustu lög, s.s. Bohemian
pakkað inn á knattspymuvöll bæj- Rhapsody, Radio Ga Ga og One
arins. Vision.