Morgunblaðið - 22.08.1986, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986
*í
*
e> 1984 Unlversal Press Syndlcate 7-3
u5uo 6Cufo\: Ef þú vilt 0)trOL c'itthvab
o& gaqni hkrna. he-'tma., af hverju mÁLar
þú þá ekJci ^rlndi/orkiÖ ? "
Ég bið þig að nefna þetta
ekki við neinn!
Ertu viss um að þetta sé
tréð?
HÖGNIHREKKVÍSI
VEISTO HVAO ?-> ■ ■■ éG E.R HÆ.TTOJ?
VIÐ BÁSÓNUMA.' '»
Sýningin á Kjarvalsstöðum skemmtileg
Gunnar Sverrisson skrifar.
„Eins og flestir vita stendur nú
yfir sýning á Kjarvalsstöðum sem
helguð er 200 ára afmæli Reykja-
víkur.
Ég lagði leið mína á sýninguna
og verð að segja að mér fínnst hún
mjög vönduð. Gömlu myndimar af
Reykjavík standa fyrir sínu og
gamla krambúðin sem sett hefur
verið upp er afar forvitnileg.
Leikþátturinn var skemmtilegur
og vel að honum staðið, sérstaklega
í ljósi þess að aðstæður eru ekki
sem bestar þama til að flytja leik-
rit. Það er greinilegt að borgina
okkar byggja nú sem fyrr margir
hæfíleikamenn sem geta kætt og
glatt hugi samborgaranna.
Þótt ég minnist aðeins á fátt af
því sem þessi afmælissýning hefur
upp á að bjóða fínnst mér rétt að
geta þess að heildaryfírbragð sýn-
ingarinnar er mjög vel heppnað.
Vonandi getur þessi sýning orðið
til þess að fræða unga borgarbúa,
og jafnvel þá sem eldri em, eitthvað
um sögu borgarinnar okkar.“
Víkverji skrifar
Borgarbúum gefst nú í tilefni af
200 ára afmæli höfuðborgar-
innar fyrsta tækifæri til að fá
nasasjón af nýja Borgarleikhúsinu,
sem Reykjavíkurborg og Leikfélag
Reykjavíkur eru í sameiningu að
reisa í nýja miðbænum. Þessi mikla
bygging er nú að miklu leyti tilbúin
að utanverðu og þeir sem sækja
tæknisýninguna, sem þar er haldin
innan dyra, fá nú í grófum dráttum
mynd af því hvemig það lítur út hið
innra, leikhúsið sem ætlað er að
leysa Iðnó við Reykjavíkurtjöm af
hólmi sem leikhús borgarbúa að um
það bil tveimur ámm liðnum.
Það er í senn gaman og fróðlegt
að ganga um nýja leikhúsið undir
leiðsögn þeirra manna sem hvað
mest hafa komið við sögu byggingar
þess og heyra hvaða sjónarmið hafa
einkum verið höfð að leiðarljósi við
hönnun þess, líkt og Víkveiji átti
kost á skömmu áður en tæknisýning-
in hafði lagt undir sig húsnæðið.
Hin sérstæða og jafnvel einstæða
samvinna borgaryfírvalda og leik-
félags borgarinnar virðist ætla að
fæða af sér byggingu sem á sér
vart fyrirmynd í nágrannalöndunum.
Hér em hvorki borgaryfírvöld, leik-
arar eða arkitektar að reisa sér
minnisvarða fyrst og fremst heldur
er byggingin reist í kringum leiksvið-
ið með þarfír leiklistarinnar í huga.
Leikfélagsmenn lögðu á það meg-
in áherslu við hönnun nýja Borgar-
leikhússins að aðalsalurinn væri
þannig úr garði gerður að halda
mætti hinum nánu tengslum milli
leikenda á sviði og áhorfenda í sal,
sem menn þekkja úr Iðnó. Þess
vegna er hætt við að mörgum muni
bregða í brún, þegar þeir sjá hversu
lítill aðalsalur hússins virkar við
fyrstu sýn og muni eiga erfitt með
að trúa því að hann muni geta rúm-
að 570 manns í sæti. En salurinn
er slíkur hönnunargaldur að hann
er við það miðaður að áhorfendur
hafí allir jafn glögga sýn inn á svið-
ið og að hinir öftustu séu ekki lengra
frá leikurunum á sviðinu heldur en
þeir sem nú sitja á svölum salarins
í Iðnó. Tekur þó sá salur vart nema
helming þess sem aðalsalur nýja
leikhússins mun gera.
Fyrir utan aðalsaljnn er minni
salur sem getur rúmað liðlega 200
áhorfendur í sæti svo að í heild geta
verið í leikhúsinu um eða yfir 800
manns á einu kvöldi sem er meira
en Þjóðleikhúsið rúmar. Hvað alla
starfsaðstöðu leikhússfólks varðar
markar nýja Borgarleikhúsið auðvit-
að enn meiri tímamót, því að eins
og flestir vita er gamla leikhúsið við
Tjömina fyrir löngu búið að sprengja
utan af sér allt sem þar þarf að
rúmast.
Aðstandendur nýja Borgarleik-
hússins hafa farið víða um álfuna
til að kynna sér nýju leikhúsin sem
þar er að fínna og til að læra af
þeim mistökum sem þar þykja hafa
verið gerð. Vonandi er það til marks
um það að vel hafí til tekist að þeg-
ar Ingmar Bergman, sá mikli leik-
húsmaður og kvimyndaleikstjóri, var
hér á ferð í vor, þá gerði hann ein-
ungis eina athugasemd við fyrir-
komulagið í Borgarleikhúsinu, þegar
hann skoðaði það. Hann óttaðist að
sameiginlegt anddyri fyrir stóra og
litla sviðið gæti valdið því að hávaði
bærist á milli sviða. Sérfræðingar
leikhússins í hljómburði og hljóðein-
angrun fullyrða hins vegar þessi
ótti sé ástæðulaus og takast muni
að fyrirbyggja að nokkur truflun
berist þama á milli.
Og vel að merkja - fyrst Ingmar
Bergman ber á góma. Hvernig væri
nú að þeir Leikfélagsmenn legðu nú
að því drög að fá Bergman hingað
til lands til að setja upp sýningu á
vígsluári nýja Borgarleikhússins.
Gmndvöllurinn fyrir því hefur þegar
verið lagður með heimsókn hans
hingað á listahátíð í vor og skoðunar-
ferð um Borgarleikhúsið. Hvað segja
menn t.d. um Fjalla-Eyvind undir
stjóm Bergmans en landi hans og
fyrirrennari í sænskri kvikmynda-
gerð, Viktor Sjöström, gerði einmitt
því verki skil með ógleymanlegum
hætti á hvíta tjaldinu á bernsku-
skeiði kvikmyndalistarinnar?
XXX
Eins og flestar aðrar þjóðir erum
við Islendingar ákaflega upp-
teknir af keppnisíþróttum og þá
einkanlega af knattleikjum á borð
við knattspymu, handknattleik og
körfuknattleik. Við erum svo sem
ekki einir um þetta og á alþjóðlegan
mælikvarða spjörum við okkur býsna
vel í þessum greinum, ef miðað er
við mannijölda.
Einstaklingsíþróttimar eiga hins
vegar snöggtum erfíðara uppdrátt-
ar. Að vísu em sum svið þeirra e.t.v.
vinsælustu almenningsíþróttimar,
svo sem sund, skíði, golf og hlaup
(skokk) en þegar kemur að þeim sem
keppnisgreinum er áhuginn tak-
markaður og áhorfendur láta sig
iðulega vanta á mót, þar sem keppt
er í þessum greinum. Þess vegna
er það með ólíkindum hversu góðir
íþróttamenn koma oft á tíðum fram
hér á landi í þessum einstaklings-
greinum. Allir þekkja orðið árangur
spjótkastaranna okkar, Einars Vil-
hjálmssonar og Sigurðar Einarsson-
ar og nú síðustu daga fáum við
fregnir af frábærum árangri sund-
mannsins, Eðvarðs Þórs Eðvarðs-
sonar, á heimsmeistaramóti
sundmanna og árangri golfarans
unga, Úlfars Jónssonar, á eins konar
heimsmeistaramóti ungra kylfinga.
Báðir eru þeir Eðvarð og Úlfar
innan við tvítugt og því prýðilegir
merkisberar, þeirra ungu kynslóðar
sem nú er að vaxa úr grasi á ís-
landi. Eins og jafnan áður eru þeir
þó til af eldri kynslóð sem fínna
unga fólkinu allt til foráttu. Að
minnsta kosti hefur það farið ákaf-
lega fyrir brjóstið á Víkverja hvernig
fólk virðist bregðast á annan hátt
við útiskemmtun unga fólksins á
Amarhóli í fyrrakvöld heldur en
sjálfri afmælishátíðinni kvöldið áður.
Kvartanir berast til lögreglu úr öllum
hverfum borgarinnar og jafnvel ofan
úr Mosfellssveit út af tónleikum
unga fólksins, þó að þeir hafí varla
getað verið svo miklu hávaðasamari
heldur Reykjavíkurflugumar kvöldið
áður. Og nú þykir skyndilega tiltöku-
mál þótt rusl og glerbrot verði á
vegi löggæslu- og hreinsunarmanna
sem ekki þótti orð á gerandi kvöldið
áður.
Er nema von þótt ungt fólk sé
iðulega í uppreisnarhug, þegar um-
burðarlyndið nær ekki lengra en
þetta hjá þeim sem eldri eru?
;U n v