Morgunblaðið - 22.08.1986, Side 48
SEM
wml
SEGÐU
RNARHÓLL
ÞEGAR
ÞU EERÐ ÚTAÐ BORÐA
-----SÍMI18833------
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Kópavogur, Hafnar-
fjörður, Garðabær
og Neskaupstaður:
Engar
áfengis-
útsölur á
næsta ári
EKKI er útlit fyrir að Áfengis-
og- tóbaksverslun rikisins opni
áfengisútsölur á næsta ári í þeim
fjórum kaupstöðum sem þess
hafa óskað að undanförnu.
Meirihluti kosningabærra manna
í Neskaupstað, Kópavogi, Hafnar-
firði og Garðabæ samþykkti opnun
t áfengisútsölu í almennri atkvæða-
greiðslu fyrr á þessu ári og í
framhaldi af því óskuðu bæjar-
stjómimar eftir að fá áfengisútsöl-
ur. Fjármálaráðuneytið hefur nú
sent bæjarstjómunum svarbréf þar
sem segir að ekki sé gert ráð fyrir
því í fjárhagstillögum fyrir árið
1987 að opnaðar verði áfengisútsöl-
ur á þessum stöðum. Því er hinsveg-
ar lýst yfir að beiðnir bæjarfélag-
anna verði teknar til athugunar við
fjárlagagerð fyrir árið 1988.
Þór Oddgeirsson staðgengill for-
r stjóra ÁTVR og Lárus Ögmundsson
deiidarstjóri f fjármálaráðuneytinu
sögðu að þó málið yrði tekið upp
við íjárlagagerð fyrir árið 1988
væri ekki þar með sagt að útsölur
yrðu opnaðar á öllum þessum stöð-
um þá. Lárus sagði að það vantaði
tilfinnanlega leiðbeiningu fyrir
ríkisvaldið um hvenær ætti að opna
nýjar útsölur og hvenær ekki. Hann
sagði að sumir túlkuðu niðurstöður
atkvæðagreiðslu um opnun áfengis-
útsölu sem skyldu ÁTVR til að opna
þar útsölu.
Áfengisverslunin undirbýr nú
opnun á tveim nýjum áfengisútsöl-
um í Reykjavík, í Kringlunni og
Mjóddinni. Talið er ólíklegt að til
k viðbótar þessum útsölum sem þegar
hafa verið ákveðnar verði opnaðar
útsölur í Kópavogi, Hafnarfirði og
Garðabæ. Það bíður hins vegar
seinni tíma að taka ákvörðun um
það hvort og þá í hvaða bæjarfélagi
af þessum þremur opnuð verði
áfengisútsala á árinu 1988 eða
síðar.
MorgunblaðM/Slmamynd/Þorkell
/ OPINBERRIHEIMSOKN A ESKIFIRÐI
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, kom til Eskifjarðar í gær
í opinbera heimsókn í tilefni af 200 ára afmæli staðarins. Á
myndinni spjallar hún við fulltrúa yngri kynslóðarinnar. Verið
er að gera heimildamynd um hátíðina og spurði Andrea Ásbjörns-
dóttir forsetann einnar spumingar: „Finnst þér gaman að koma
til Eskifjarðar?" Svarið var stutt og laggott: „Já, nyög.“
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Hart barist í landsleik íslands
og Sviss, sem lauk með sigri
Sviss, 3:1. Sjá nánar á bls. 47.
Framkvæmdastj óri VSÍ um Hafnarfjarðarsamningana:
Skattpeningar nýttir
til stefnumörkunar
„ÞAÐ er ærið öfugsnúið þegar
hið opinbera notar skattpening-
ana til að vera stefnumarkandi
í launamálum og það vekur vissu-
lega áhyggjur hvemig hið
opinbera gengur á undan með
launahækkanir,** sagði Þórarinn
V. Þórarinsson, framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambands
Islands, um nýgerðan samning
fjögurra verkalýðsfélaga í Hafn-
arfirði við bæjarfélagið. Sam-
kvæmt þeim samningi fá á annað
hundrað starfsmenn bæjarins um
10% kauphækkun frá 1. ágúst sl.
umfram heildarsamning ASÍ og
samtaka vinnuveitenda frá S
febrúar sl.
„Þessi samningur er enn eitt
dæmið um að sveitarfélögin eru að
semja um verulegar launahækkanir
umfram það sem hefur verið að
gerast á launamarkaði í landinu,"
sagði Þórarinn. „Þær upplýsingar,
Aðgerðir lögreglunnar í Reykjavík í ágústmánuði:
45 ökumenn í blóðtöku og 656
kærur vegna umferðalagabrota
LÖGREGLAN í Iteykjavík hefur það sem af er ágústmánuði fært
45 ökumenn til blóðtöku vegna meintrar ölvunar við akstur. Alls
hefur lögreglan í Reykjavík tekið 630 ökumenn vegna ölvunar-
aksturs það sem af er árinu. Þessar upplýsingar komu fram er
Óskar Olason, yfirlögregluþjónn umferðardeildar, var spurður
um árangur þeirrar könnunar sem lögreglan hefur að undan-
förnu verið að vinna að varðandi ölvunarakstur og ökuhraða.
Að sögn Óskars hefur lögreglan
í Reykjavík gefíð það sem af er
ágústmánuði 656 skýrslur um
ýmis umferðarbrot og eru þá ekki
taldar kærur fyrir stöðubrot.
„Tvær helgar í þessum mánuði,
aðfaranótt laugardags og sunnu-
dags, fóru fram sérstakar kann-
anir varðandi meinta ölvun við
akstur," sagði Óskar. „Stöðvaðir
voru 3.012 ökumenn og reyndist
ástæða til að færa 45 ökumenn
til blóðtöku. Það var nýmæli í
sambandi við blóðtökumar að nú
voru ökumennimir færðir á lög-
reglustöðina, en áður var farið
með þá á slysadeild Borgarspítal-
ans. Læknar frá slysadeiid voru
í sérstöku læknaherbergi sem hér
er á stöðinni og þar fór blóðtakan
fram. Þetta er í mfnum augum
mikið framfaraspor, að þurfa ekki
að fara með borgarana á slysa-
deild, þar sem fullt er af fólki í
alls konar meðferð, heldur getum
við sinnt þessu hér,“ sagði Óskar.
„Fjórir lögreglumenn í tveimur
bifreiðum hafa sinnt hraðamæl-
ingum sérstaklega og hafa þeir
mælt ökuhraða 9.713 vélknúinna
ökutækja. Kærðir hafa verið 354
ökumenn og 1.272 áminntir,"
sagði Óskar. Hann sagði að við
þessa athugun hefði komið fram,
að á götum þar sem leyfður öku-
hraði er 50 kílómetrar, reyndist
1.591 ökumaður aka talsvert und-
ir leyfðum hraða við bestu
aðstæður, og var hraði þessara
ökumanna frá 30 til 48 km á
klukkustund. Á götum þar sem
leyfður ökuhraði er 60 kílómetrar
mældust 3.214 ökumenn aka und-
ir leyfðum hraða, eða á hraða frá
40 til 58 km.
„Þetta er athyglisvert að
mínum dómi,“ sagði Óskar, „því
þarna kemur í ljós að stór hópur
manna ekur við bestu skilyrði
undir leyfðum hraða, sem aftur
hefur í för með sér hættu á
frammúrakstri."
sem við höfum, benda til að launa-
þróun hjá hinu opinbera — ríki og
sveitarfélögum — hafí almennt ver-
ið all verulega umfram það sem
hefur verið að gerast á almennum
vinnumarkaði og talsvert miklu
meiri en gera mátti ráð fyrir í kjöl-
far heildarsamninganna í febrúar."
Gunnar Rafn Sigurbjömsson,
bæjarritari í Hafnarfirði, sagði að
hann vildi ekki bera á móti því að
með þessum samningum væri farið
út fyrir ramma „þjóðarsáttarinnar"
í febrúar. „Ég er ekki stjómmála-
maður og kann ekki reiknisformúl-
una sem gerir forystumönnum
Dagsbrúnar og Reykjavíkurborgar,
svo maður taki dæmi af handahófí,
kleift að finna út að miklu hærri
samningar sem þeir hafa gert, séu
innan markanna," sagði hann.
Hann sagði að útreikningar bæj-
arsjóðs bentu til, að kostnaðarauki
bæjarsjóðs vegna þessa samnings
frá 1. ágúst til áramóta væri um
1,3-1,5 milljónir króna og að áæt.l-
aður útgjatdaauki vegna nýlegs
samnings við Starfsmannafélag
Hafnarfjarðarbæjar væri um átta
milljónir króna. „Það gildir auðvitað
sama lögmál hér í Hafnarfirði og
hjá ríkinu og víðar, að útsvars-
álagningin reyndist mun drýgri en
menn áttu von á. Okkur sýnist til
dæmis hér, að útsvarstekjur bæjar-
ins á þessu ári verði um ellefu
milljónum króna hærri en ráð var
fyrir gert.“
Eftir nýgerða samninga Hafnar-
fjarðarbæjar við starfsmannafélag
bæjarins og verkalýðsfélögin fjögur
munu lægstu mánaðarlaun hjá bæj-
arstarfsmönnum þar vera um 29
þúsund krónur.