Morgunblaðið - 25.11.1986, Síða 1
80 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
266. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1986
Prentsmiðja Morgiinblaðains
Repúblikan-
ar g-agnrýna
vopnasöluna
Washington, Reuter, AP.
RONALD REAGAN Bandaríkjaforseti sagðist í gaer ekki hafa í hyggju
að víkja háttsettum embættismönnum úr starfi vegna vopnasölunnar
til Iran. Forsetinn sagði að sér hefðu ekki orðið á mistök þegar hann
heimilaði vopnasendingarnar.
til fran. Bob Dole, leiðtogi repúblik-
ana í öldungadeildinni, kvaðst á
sunnudag telja breytingar á stjóm-
inni óhjákvæmilegar.
Dagblaðið The Washington Post
sagði um helgina að margir helstu
stuðningsmenn og vinir Reagans
forseta í Kalifomíu legðu nú hart
að honum að víkja þeim Donald
Regan, Shultz utanríkisráðherra og
John Poindexter öryggismálaráð-
gjafa úr embætti.
í nýjasta hefti tímaritsins News-
week er fullyrt að írönum hafí verið
seld vopn að andvirði 100 milljóna
Bandaríkjadala. Ennfremur segir
þar að bandaríska leyniþjónustan,
CLA, hafi skipulagt þessar aðgerðir
og að varahlutir í bandarískar F-14
orustuþotur kunni að hafa verið á
meðal vopnabúnaðarins sem fluttur
var til íran. Embættismenn Banda-
ríkjastjómar hafa hingað til fullyrt
að írönum hafi eingöngu verið seld
flugskeyti til að granda skriðdrek-
um.
Sjá einnig leiðara á miðopnu
blaðsins.
Ýmsir leiðtogar Repúblikana-
flokksins í öldungadeild Bandaríkja-
þings hafa gagnrýnt helstu
aðstoðarmenn Reagans vegna
vopnasölunnar og lýst því yfír að
nauðsynlegt sé að gera breytingar
á stjóminni.
John Whitehead, aðstoðamtanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, sagði í
gær að nauðsynlegt yæri að endur-
skoða starfshætti Oryggisráðsins.
Hann kvað enn ekki ljóst hvers kon-
ar vopnabúnaður hefði verið seldur
Líbýa
dreifir
sovésku
taugagasi
London, AP.
AP/Símamynd
Rafael Ileto, sem tekið hefur við embætti vamarmálaráðherra af
Juan Enrile, hélt blaðamannafund i gær og tilkynnti að opinber
rannsókn myndi fara fram á valdaránstilrauninni á Filippseyjum.
Að baki hans hangir mynd af Corazon Aquino forseta Filippseyja.
Svíþjóð:
Dæmdir fyr-
ir að upp-
lýsa mál
Stokkhólmi, AP.
TVEIR sænskir lögregluþjón-
ar, sem komu upp um eitur-
lyfjasala í Stokkhólmi fyrir
tveimur árum, voru i gær
fundnir sekir nm að hafa tek-
ið þátt i dreifingu fíkniefna.
Lögreglumennimir, sem vom
óeinkennisklæddir, vom á gangi
í miðborg Stokkhólms og þótt-
ust vera fíkniefnaþrælar. í
eiturlyQaleit. Maður einn vatt
sér að þeim og bauð þeim eitur-
lyf til sölu og þekktust þeir
boðið. Að kaupunum loknum var
eiturlyfjasalinn handtekinn.
Dómari í Stokkhólmi komst í
gær að þeirri niðurstöðu að lög-
reglumennimir hefðu fengið
manninn til að selja sér eitrið.
Dómarinn sagði að lögreglu-
mennimir hefðu þar með fengið
manninn til að fremja glæp sem
hann hefði að öðmm kosti ekki
gerst sekur um.
Að sögn Gunnars Axberger
lagaprófessors verður málinu
áfiýjað til Hæstaréttar Sviþjóð-
ar. Sagði hann að hér væri um
prófmál að ræða þar eð sænsk
lög væm óskýr hvað varðaði
mál sem þetta. Samkvæmt lög-
um er heimilt að blekkja menn
í því skyni að upplýsa lögbrot.
Hins vegar er óheimilt að hvetja
menn til að fremja glæpi sem
þeir hefðu annars ekki framið.
LÍBÝUMENN hafa síðustu vik-
umar selt írönum og Sýrlending-
urn sovéskt taugagas, að því er
sagði f grein f breska blaðinu
Sunday Telegraph um síðustu
helgi. Að sögn blaðsins geta Sýr-
lendingar skotið taugagasinu með
sovéskum SS-1 flugskeytum á all-
ar borgir i ísrael.
Grein þessa ritaði Simon 0’ Dwy-
er-Russell en hann er dálkahöfundur
blaðsins og skrifar um vamarmál. Á
sunnudag átti breska ríkisútvarpið,
BBC, við hann viðtal og kvaðst hann
telja þetta ákaflega alvarlegar frétt-
ir þar eð vígstaða Sýrlendinga hefði
með þessu styrkst mjög gagnvart
ísraelum. Sagði hann breska leyni-
þjónustumenn hafa sannanir fyrir
því að taugagasið væri sovéskt en
kvaðst jafnframt telja ólfklegt að
Sovétmenn hefðu ætlað því að vera
dreift með þessum hætti. Auk Sýr-
lendinga ráða Líbýumenn og íranir
yfir SS-1 flugskeytum.
í greininni sagði að eitt flug-
skeyti með taugagasi gæti eytt öllu
lífí á 64 ferkflómetra svæði.
Valdaráni afstýrt á Filippseyjum:
F orsetinn skipar nýja
stjórn á næstu dögnm
Manila, AP, Reuter.
TÆPLEGA 200 menn ráðgerðu um helgina valdaránstilraun á Filipps-
eyjum, að því er talsmaður Corazon Aquino forseta sagði i gær.
Sagðist hann ennfremur hafa heimildir fyrir því að andstæðingar
Aquinos hefðu ætlað að ráða hana af dögum. Juan Enrile vamarmála-
ráðherra er sagður hafa staðið að baki ráðagerðum þessum og sagði
hann af sér á sunnudag að beiðni Corazon Aquino. Forsetinn hefur
krafist afsagnar ráðherra ríkisstjórnarinnar og verður skipan nýrrar
stjómar tilkynnt siðar í vikunni.
Corazon Aquino tilkynnti á sunnu-
dag að hún hefði krafíst afsagnar
þeirra 25 ráðherra sem sitja í ríkis-
stjóm hennar. Ennfremur sagði hún
að Fidel Ramos, yfirmaður stjómar-
hers Filippseyja, hefði komið í veg
fyrir tilraun til valdaráns. Að sögn
talsmanns forsetans komu 180 and-
stæðingar stjómarinnar saman til
fundar á laugardag á heimili Antoni-
os Carag, stuðningsmanns Ferdin-
ands Marcos, fyrrum forseta
Filippseyja, og ræddu valdaránið.
Höfðu mennimir uppi áætlanir um
að taka þinghúsið á sitt vald með
aðstoð fylgismanna Enriles innan
hersins og boða til forsetakosninga.
Upp komst um ráðabmgg þetta á
laugardag aðeins fjórum klukku-
stundum áður en fylgismenn Enriles
ætluðu að hefjast handa. Ramos
fyrirskipaði hermönnum að vera í
viðbragðsstöðu á mikilvægum stöð-
um í Manila og gaf hemum jafn-
framt fyrirskipun um að hlýða ekki
fyrirmælum Enriles vamarmálaráð-
herra.
Á sunnudag krafðist Aquino af-
sagnar allra ráðherra ríkisstjómar
sinnar og tilkynnti að Rafael Ileto
hershöfðingi hefði tekið við starfí
Enriles. Aquino sagði jafnframt að
gripið yrði til harðra aðgerða gegn
þeim öflum sem vildu stjóm hennar
feiga. Teodoro Benigno, talsmaður
forsetans, sagði að skipan nýrrar
ríkisstjómar yrði kunngjörð síðar í
Flutningaskipið
„Kowloon Bridge“
strandaði snemma
í fyrrinótt á skeij-
um undan suður-
strönd írlands.
Björgunarmenn
komu aðvífandi i
tveimur þyrlum og
áttu fullt í fangi
með að bjarga 28
manna áhöfn
skipsins vegna
veðurofsans.
Sjá nánar á bls.
32.
AP/Símamynd
vikunni.
Fréttir herma að Juan Enrile
hyggist fara í mánaðarlangt frí til
útlanda. Hann hefur ekki gefið nein-
ar opinberar yfirlýsingar frá þvi
hann sagði af sér. Teodoro Benigno
vildi ekkert láta uppi um hvort, og
með hvaða hætti, Enrile og stuðn-
ingsmönnum hans yrði refsað fyrir
valdaránstilraunina. Stuðningsmenn
Ferdinands Marcos kváðust í gær
vera saklausir af ákæmm um að
þeir hefðu ráðgert að steypa stjóm
Corazon Aquino og bám til baka
fullyrðingar um að þeir hefðu átt
fund með fylgismönnum Enriles.
Sjá ennfremur „Af erlendum
vettvangi" á miðopnu blaðsins.