Morgunblaðið - 25.11.1986, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1986
Nokkrir nemenda og kennara Tjarnarskóla ásamt gjöfinni góðu, en að baki henni stendur fulltrúi
HekJu, Finnbogi Eyjólfsson.
Tjarnarskóli fær gjöf
Hinum unga einkaskóla við
Tjörnina, Tjama.rskóla., barst
fyrir skömmu ánægjuleg gjöf frá
fyrirtækinu Heklu. Blaðafulltrúi
Heklu, Finnbogi Eyjólfsson afhenti
gjöfína, sem var tvíþætt, því fyrir-
tækið gaf skólanum bæði mynd-
bandstæki og sjónvarp.
Ekki er að efa að bæði tækin
muni koma nemendum og kennur-
um að miklum notum og geta
einfaldað marga kennslu og um leið
gert hana skemmtilegri og sumt
námsefni aðgengilegra en ella. Má
hugsa sér að nemendur hafí gaman
af að fylgjast með Gísla Súrssyni
ljóslifandi á flótta undan Berki
digra, í beinu framhaldi lestri Gísla
sögu.
Notin af tækinu geta verið
margvísleg, því það getur nýttst til
tungumálakennslu, líffræðikennsla
verður mun auðveldari þegar hægt;
er að sýna ýmsa líkamsstarfsemi
og ferli á skjánum og ennfremur
er hægt að fá mannkynssöguna á
myndræmu.
Að sögn Margrétar Theódórs-
dóttur er svo rausnarleg gjöf
ómetanleg fyrir unga stofnun sem
skólann, sem er að byggja upp
tækjakost sinn. Þá opna tækin nýj-
ar dyr í kennslustarfí og gjöfín því
hvatning til þess að takast á við
Qölbreytt verkefni, sem ávallt eru
fyrir hendi í skólastarfi.
Geldof heldur fast um budduna
Að undanförnu hefur mikið
verið rætt um hjálparstofn-
anir og rekstur þeirra. Hafa menn
velt vöngum um fjáröflun, kostn-
að við yfírbyggingu og hvemig
peningum er ráðstafað. Nú er
aðstoð við sveltandi þjóðir mörg
og margvísleg, en sú aðstoð sem
mesta athygli hefur vakið er
líklegast Band-Aid, sem írinn Bob
Geldof stóð fyrir. Þá kom fjöldi
þekktra popptónlistarmanna fram
beggja vegna Atlantsála og lék
af fíngrum fram í beinni útsend-
ingu um gervihnött.
I nýlegri rannsókn, sem gerð
var á rekstri breskra hjálparstofn-
ana kom fram að af því fé sem
hjálparstofnanir hafa umleikis,
fari um 2-20% í rekstrarkostnað.
Sér á parti var þó Band-Aid því
að einungis sex %o fara í rekstur-
inn — sem þýðir að af hveijum
hundraðkalli sem safnast í bauk-
inn fara 99 krónur og 94 aurar
til aðstoðar við hungraðan heim.
Rétt er þó að taka fram að
Band-Aid er ekki fyllilega saman-
burðar hæf við aðrar hjálparstofn-
anir, því að aðstoð hennar er
einungis neyðarhjálp. Hinar hefð-
bundnari hjálparstofnanir fást
hins vegar einnig við langtíma-
verkefni til uppbyggingar í hinum
hijáðu löndum.
Hvað um það, þessi niðurstaða
er Geldof og nótum hans samt til
vegsauka og öðrum til fyrirmynd-
ar.
Bob Geldof og Paula, eiginkona hans.
Clint Eastwood
lætur til sín taka
Svo sem lesendum Morgun-
blaðsins ætti að vera í fersku
minni, var leikarinn Clint Eastwood
kjörinn borgarstjóri í heimabæ
sínum Carmel. Aðaltilgangur Clints
var að koma þáverandi borgarstjóra
frá, en hann taldi stjómsemi hans
ekki vera bænum til framdráttar.
Upphaflega töldu menn að Clint
myndi láta sér nægja að vera hinn
góði borgarstjóri, sem sæi um að
götumar væm hreinar, útsvarið
lágt og flækingar utan bæjarmark-
anna. Svo er þó ekki, því nú hefur
hörkunaglinn Clint látið til sín taka
á landsvísu, svo eftir var tekið.
Fyrir skömmu voru haldnar
kosningar í Bandaríkjunum og var
bæði kosið til Öldungadeildarinnar
í Washington og ýmissa annarra
embætta. í Bandaríkjunum tíðkast
það að kosið sé um öll embætti,
hvort sem um er að ræða hunda-
fangara borgarinnar, slökkviliðs-
stjóra eða dómara.
Nú á dögunum var m.a. kosið
um hvort Rose Elisabeth Bird, for-
seti hæstaréttar Kalifomíufylkis,
skyldi sitja áfram eður ei. Bird þessi
hefur getið sér orð fyrir að vera
„fijálslyndur" dómari, en hún hefur
hnekkt öllum dauðadómum, er
fylgjandi fijálsum fóstureyðingum
og hefur verið andstæð bænum
bama í skólum. Tillagan um að
Bird færi frá vakti athygli um öll
Bandaríkin, því hún hefur verið eins
konar merkisberi „hinna fijálslyndu
dómara", eins og þeir em nefndir,
en að undanfömu hafa áhrif þeirra
dvínað á öllum sviðum dómskerfis
Bandaríkjanna. Ber nú mest á
„hefðbundnum" dómurum, sem
telja að dómstólamir eigi að vera
einstaklingunum vörn gegn ríkis-
valdbeitingu og að hlutverk þeirra
sé að refsa misgjörðamönnum, en
ekki að gera þá að betri mönnum.
Eastwood taldi að Bird færi of
fijálslega með lagastafínn og að
hún þjónaði ekki lengur hagsmun-
um og öryggi borgaranna. Þess
vegna hratt hann af stað herferð
gegn Bird og kostaði m.a. um
27.000 Bandaríkjadölum til sjón-
vaipsauglýsinga gegn Bird.
I auglýsingunum kom fram móð-
ir sem tjáði áhorfendum það að einn
Díana prinsessa, margs vísari eftir heimsóknina í
kvennabúrið.
Díana í dyngjunni
Breskt kóngafólk er ávallt á
ferð og flugi, eins og íslenskir
sjónvarpsáhorfendur hafa getað
fylgst með á Stöð tvö undanfarnar
vikur. Nú síðast fréttist að Prinsinn
af Wales og Díana prinsessa hefðu
farið í opinbera heimsókn til Óman
á Arabíuskaga.
Athygli hefur vakið að Díönu var
boðið sérstaklega af kvenþjóð
Óman, en vegna skoðana múslima
á stöðu kvenna var heimsóknin
nokkuð sérstök fyrir Díönu. Hún
var nefnilega nær eingöngu meðal
kvenna og fékk m.a. að heimsækja
kvennabúr þjóðhöfðingjans, en
karlpeningi Ómans fékk hún ekki
að kynnast. Þangað inn stígur eng-
inn karlmaður, en Díana og fylgdar-
konur hennar dvöldu þar drykk-
langa stund.
Díana vildi fátt segja um veru
hennar í dyngjunni, en þó hafði ein-
hver upp úr henni að heimsóknin
hefði verið hin fróðlegasta og er
ekki að efa það.