Morgunblaðið - 25.11.1986, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1986
Stærðfræðikeppniframhaldsskólanema:
Viðurkenningarskj öl
veitt fyrir fyrri hluta
Viðurkenningarskjöl voru veitt 20 efstu keppendum á hvoru stigi.
Hér er hluti hópsins sem hlaut viðurkenningu.
Stærðfræðikeppni framhalds-
skólanema veturinn 1986—1987
er í tveimur hlutum. Þriðjudag-
inn 14. október 1986 fór fram
keppni í fyrri hluta. Keppnin var
í tveimur stigum: neðra stigi, sem
er ætlað nemendum á fyrri
tveimur árum framhaldsskóla,
og efra stigi, sem er ætlað nem-
endum á seinni tveimur árum
framhaldsskóla. Alls tóku 511
nemendur frá 17 skólum þátt í
keppninni, þar af tóku 275 nem-
endur þátt í neðra stigi og 236
í efra stigi keppninnar.
Viðurkenningarskjöl voru veitt
20 efstu keppendum á hvoru stigi.
Auk þess verður 5 efstu keppendum
á neðra stigi og 20 efstu keppendum
á efra stigi keppninnar boðið að
taka þátt í lokakeppni, sem fer fram
við Háskóla íslands í marz 1987.
Niðurstöður þeirrar keppni verða
hafðar til hliðsjónar við val þátttak-
enda í Ólympíukeppni Norðurlanda
í stærðfræði, sem verður haldin í
skólum keppenda 30. marz 1987,
og Alþjóðlegri ólympíukeppni í
stærðfræði í Havana á Kúbu í júlí
1987.
Neðra stig
í tuttugu efstu sætum á neðra
stigi keppninnar voru eftirtaldir
nemendur:
1. Guðbjöm Freyr Jónsson,
Menntaskólanum á Akureyri, 2.
Agni Ásgeirsson, Menntaskólanum
í Reykjavík, 3. Halldór Ámason,
Menntaskólanum í Reykjavík, 4.
Bragi R. Jónsson, Fjölbrautaskólan-
um Breiðholti, 5. Haukur K.
Bragason, Verzlunarskóla íslands,
6. Máni Þorsteinsson, Menntaskól-
anum í Reykjavík, 7. Gísli Magnús-
son, Menntaskólanum í Reykjavík,
8.-9. Kristján Leósson, Mennta-
skólanum í Reykjavík, 8.-9. Yngvi
Sigurjónsson, Menntaskólanum í
Reykjavík, 10. Kári Gíslason,
Menntaskólanum í Reykjavík, 11.
Kristrún Ámadóttir, Fjölbrauta-
skólanum Breiðholti, 12. Kristján
V. Jónsson, Menntaskólanum við
Sund, 13.—14. Ásta Kr. Sveins-
dóttir, Menntaskólanum í
Reykjavík, 13,—14. Ófeigur Fann-
dal Birkisson, Menntaskólanum á
Akureyri, 15,—16. Jóhannes Svein-
bjömsson, Menntaskólanum á
Laugarvatni, 15.—16. Melkorka T.
Ólafsdóttir, Menntaskólanum í
Reykjavík, 17. Katrín Anna Guð-
mundsdóttir, Verzlunarskóla ís-
lands, 18. Leifur Geir Hafsteinsson,
Menntaskólanum við Hamrahlíð,
19. Siguijón Ólafsson, Menntaskól-
anum á Laugarvatni, 20. Bjami
Sigurðsson, Menntaskólanum í
Reykjavík.
Efra stig
í tuttugu efstu sætum á efra
stigi keppninnar voru eftirtaldir
nemendur
1. Geir Agnarsson, Menntaskól-
anum í Reykjavík, 2. Sverrir Öm
Morgunblaðið/ÓUCM.
Reynir Axelsson afhentir hér Geir Agnarssyni viðurkenningarskjal,
en hann var í fyrsta sæti í efra stigi keppninnar.
Þorvaldsson, Menntaskólanum í
Reykjavík, 3. Matthías Magnússon,
Menntaskólanum í Reykjavík, 4.
Kristján Magnús Arason, Mennta-
skólanum í Reykjavík, 5. Guðmund-
ur Birgisson, Menntaskólanum við
Sund, 6. Einar Karl Friðriksson,
Menntaskólanum við Hamrahlíð, 7.
Pétur Lúðvík Jónsson, Menntaskól-
anum í Reykjavík, 8. Davíð Aðal-
steinsson, Menntaskóla Kópavogs,
9. Sveinn Valfells, Menntaskólanum
í Reykjavík, 10. Ómólfur E. Rögn-
valdsson, Menntaskólanum við
Hamrahlíð, 11. Tryggvi Egilsson,
Menntaskólanum á Akureyri, 12.
Bjöm Þorsteinsson, Menntaskólan-
um við Hamrahlíð, 13. Ari Kristinn
Jónsson, Menntaskólanum í
Reykjavík, 14. Jón Hersir Elíasson,
Menntaskóla Kópavogs, 15. Ami
Loftsson, Menntaskólanum við
Hamrahlíð, 16. Guðmundur Magn-
ússon, Menntaskólanum á Akur-
eyri, 17. Magnús R. Guðmundsson,
Menntaskólanum í Reykjavík, 18.
Páll Eyjólfsson, Menntaskólanum í
Reykjavík, 19. Gunnar Hansson,
Menntaskólanum við Hamrahlíð,
20. Kjartan Guðmundsson, Mennta-
skólanum í Reykjavík.
í KVÖLD, 25. nóvember, kl. 20.30
mun Landfræðifélagið gangast
fyrir Grænlandskvöldi í Norræna
húsinu, en nú eru 1000 ár liðin
frá landnámi Eiriks rauða á
Grænlandi.
Dr. Ólafur Halldórsson handrita-
fræðingur spjallar um Eiríkssögu
rauða, dr. Páll Imsland jarðfræðing-
ur sýnir myndir úr Grænlandsferð
sumarið 1984, dr. Þorleifur Einars-
son segir frá jarðsögu landsins og
dr. Agnar Ingólfsson frá gróðurfari.
Fundurinn er öllum opinn.
1000 ár
frá landnámi
Eiríks rauða
Selfoss:
Fyrsta skemmt-
unin í væntanlegri
félagsmiðstöð
SelfossL
NEMENDUR Gagnfræðaskólans
á Selfossi héldu nýlega fyrstu
samkomuna i væntanlegri félags-
miðstöð unglinga á Selfossi, i
kjallara skólans.
Að undanfömu hefur verið unnið
við að gera kjallarann tilbúinn fyrir
starfsemi félagsmiðastöðvarinnar.
Krakkamir hafa tekið þátt í þess-
ari vinnu, málað saumað og gert
ýmislegt annað. Mikil eftirvænting
hefur ríkt meðal unglinganna varð-
andi þetta húsnæði. Þar g'á þeir
fram á aðstöðu fyrir minni skemmt-
anir og afþreyingu.
Fyrsta skemmtunin var diskótek
hjá skólafélaginu. Tómstundaráð
nemenda, sem tekur þátt í skipu-
lagningu tómstundastarfs í skólan-
um, og kjallararáð, sem vinnur að
úrbótum á húsnæðinu, sáu um
framkvæmdina þetta kvöld undir
umsjá kennara. Ágæt stemmning
var þetta fyrsta kvöld og auðséð
að allir skemmtu sér vel, eins og
meðfylgjandi myndir bera meðs
sér.
Sig Jóns.
1 ®P.:. Æ Uf ‘41 ki
■ Wmsm K -íy