Morgunblaðið - 25.11.1986, Blaðsíða 48
48
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1986
Afmæliskveðja:
Bogi Eggertsson
frá Laugardælum
Hinn kunni hestamaður Bogi
Eggertsson er 80 ára í dag. Hann
varð starfsmaður Hestamannafé-
lagsins Fáks árið 1944 og formaður
félagsins árin 1949—1953. Á þess-
um árum var starfsemi félagsins á
Laugalandi í Laugardal, og bjó
Bogi þar ásamt fjölskyldu sinni.
Félagsstarfið mæddi því mikið á
heimili þeirra. Bogi er mikill hesta-
maður og því hefur verið fleygt að
hestum sé sérlega vel við hann og
ieggi sig fram um að þóknast hon-
um og komi jafnvel með dansspor,
sem engan grunaði að leyndist með
þeim, ef hann var í hnakki. Bogi
hefur verið ötull við að hafa áhrif
á framgang hestamennsku í
landinu, m.a. var hann einn af
stofnendum Landssambands hesta-
mannafélaga, og hann hefur ritað
margar greinar um þjálfun og með-
ferð hrossa og þykir einstaklega
glöggur á að sjá hvaða kostum
þeir eru búnir. Bogi hefur verið
sæmdur æðstu heiðursmerkjum
Landssambands hestamannafélaga
og Hestamannafélagsins Fáks.
Fáksfélagar óska Boga og fjöl-
skyldu hans innilega til hamingju á
þessum tímamótum og þakka fyrir
vel unnin störf í þágu félagsins og
hestamennskunnar í landinu.
Hestamannafélagið Fákur
Bogi Eggertsson fyrrverandi
yfirverkstjóri í Áburðarverksmiðju
ríkisins í Gufunesi er áttræður í
dag. Bogi fæddist og ólst upp í
Laugardælum í Flóa og var bú-
stjóri þar ásamt konu sinni,
Hólmfríði Guðmundsdóttir frá Læk,
en hún lést árið 1972. Þeim hjónum
varð sjö bama auðið en sex eru á
lífí.
Bogi fluttist til Reykjavíkur með
fjölskyldu sína 1937 og vann að
ýmsum störfum fyrstu árin en 1944
gerðist hann ráðsmaður hjá Hesta-
mannafélaginu Fáki. Hestar höfðu
verið snar þáttur í lífi Boga austan
fjalls og áhuginn hélst enda þótt
hann væri kominn á möiina. Með
þessu skrefi hefst hið merka starf
Boga í þágu hestsins okkar og fé-
lagsmála hestamanna í landinu.
Ég finn nokkra hvöt hjá mér til
þess að færa Boga Eggertssyni
nokkur þakklætis- og viðurkenning-
arorð, og ég veit að þar tala ég
einnig fyrir munn margra annarra
sem hafa svipuð áhugamál og Bogi.
Mér er ljóst að Boga finnst fremur
lítið koma til er honum em færðar
þakkir eða viðurkenning vegna
starfa hans í þágu áhugamálsins,
en þetta verður hann nú að þola.
Um það leyti sem við í Kjalarnes-
þingi stofnuðum Hestmannafélagið
Hörð 1949 hófst samband milli
Harðar og Fáks um samstarf á
sviði kynbóta, og var Bogi hvata-
maður að því. Bogi var fenginn til
þess að velja kynbótahest og þá
kom í héraðið Reykur 367 eða Fé-
lagsbrúnn frá Svaðastöðum. Þetta
var mikill gæðingafaðir og eignað-
ist ég hryssuna Venus undan
honum og þar með hófst úrval og
vísir að ræktun á mínu búi sem
hefir reynst happadijúgt.
Bogi starfaði hjá Fáki til ársins
1953 er hann hóf störf í Áburðar-
verksmiðjunni. Hann var formaður
félagsins síðustu 2 til 3 árin sem
hann starfaði þar og var seinna
kjörinn heiðursfélagi.
Sporaslóðir okkar Boga lágu
saman er Landssamband hesta-
mannfélaga var stofnað 1949 og
hann var einn af brautryðjendum
samtakanna. Flestum frístundum
sínum varði hann áhugamálinu
íslenska hestinum, ræktun hans og
velferð. Það er með ólíkindum hve
drjúgur Bogi var á þessu sviði en
hann var varaformaður LH fyrstu
árin. Hann samdi með félögum
sínum í stjóminni fundasköp, reglu-
gerðir og lög og studdi þessi stóru
og merkilegu samtök fyrstu sporin.
Síðan hlóðust á hann mikil störf á
stórmótum hestamanna enda
manna fróðastur um öll þessi mál-
efni og naut mikils trausts sem
réttsýnn og vandaður dómari.
Það verða að teljast merkileg
tímamót er þeir Bogi og Gunnar
Bjamason ráðunautur sömdu
kennslubók í tamningum sem kölluð
var „Á fáki“. Fram að því var af
mörgum talið svo, að snilligáfa
góðra hestamanna væri meðfædd
vöggugjöf fárra útvaldra og þessi
fræði yrðu alls ekki kennd af bók
svo gagn væri í. Bogi taldi að þetta
mætti vel kenna af bókum og fyrir-
lestrum með viðeigandi æfingum.
Nú vita allir að þetta er viðurkennd
staðreynd.
í annan stað þóttu það tíðindi
þegar Bogi, sem er einn okkar fær-
asti sérfræðingur í hestamennsku,
ætlaði sér að taka þátt í námskeiði
er þýskir buðu upp á hér á landi
til kynningar á hinum evrópska
reiðskóla. Bogi var viss um að þarna
mátti sitthvað læra og lét hrakspár
ýmissa manna ekki aftra sér. Nú
vita allir að áhrif af þessu tiltæki
hafa komið okkur og meðferð
íslenska hestsins að góðum notum.
Eins og áður er sagt var títt leit-
að til Boga í allskonar dómsstörf
en hann gat ei að síður komið því
við að sýna sína gæðinga sem voru
margir góðir, en þó bar Stjarni frá
Oddstöðum af. Bogi náði því að
vinna góðhestaverðlaun á hann á
Landsmóti 1954 og 1962 en 1958
varð hann í öðru sæti á eftir Goða
Sveins á Sauðárkróki. Stjarni bar
eiganda sínum gott vitni, alltaf í
góðu standi, listilega vel taminn
atgervishestur með fjölþætt gang-
rými, viljugur, lipur og fagur í reið.
Bogi er frábær reiðmaður og situr
hesta sína vel og tignarlega. Maður-
inn er þéttur á velli og allstórvaxinn,
en er sest var í hnakkinn bar ekki
á öðru en að vel færi á með manni
og hesti og það svo af bar. Taum-
haldið lipurt, hesturinn fijáls og
glaðlegur og virtist vilja gera allt
vel fyrir knapann.
Bogi þótti nokkuð fastur fyrir
við ýmis tækifæri bæði í dómnefnd-
um og á fundum en hann fylgdi
sínum málum fram af einurð og
festu en ávallt af drengskap og
sanngirni. Hann ofmetnaðist ekki
af eigin sigrum eða velgengni, en
tók að sama skapi því vel ef miður
gekk.
Á þessum tímamótum viljum'við
vinir og kunningjar Boga færa hon-
um bestu þakkir fyrir samstarfið
og framlag hans til mála er varða
íslenska hestinn. Við viljum árna
ÞETIA ER TOLVÍ'MM!
FYRIR EI/MSTAKLINGA OG FYRIRTÆKI
AMSTRAD PCWtölva með íslensku RITVINNSLUKERFI, ísl. 3ja tíma leiðbeiningum á snældum,
SAMSKIPTAFORRITI fyrir telex, gagnabanka o.fl. og PREIMTARAI- fyrir aðeins 39.900,-kr. Stóri
bróðir, AMSTRAD 8512, er með 2 drifum og stærra minni og kostar aðeins 49.900,-kr. Hann er
auk þess hægt að fá með fullkomnu fjárhagsbókhaldi eða með viðsklptamanna-, sölu- og
lagerkerfi fyrir 59.900,-kr., og með hvoru tveggja fyriraðeins 64.900,-kr. — allt í einum pakka
- geri aðrir beturl
AMSTRAD PCW 8256
ritvinnslutölvan: 256 K RAM (innbyggður RAA/1 diskur), 1 drif;
skjár: 90 stafir x 32 línur. Prentari: Punktaprentari, 90 stafir á sek.
AMSTRAD PCW 8512
ritvinnslu-og bókhaldstölvan: 512 K RAM (innb. RAIVI diskur),
2 drif (B-drif er I megabyte), skjár: 90 st. x 32 línur. Prentari:
punktaprentari, 90 stafir á sek.
Báðum geröum fylgir fslenskt ritvinnslukerfi (LOGO-
SCRIPT), Dr. Logo og CP/M+, ísl. lyklaborð, fsl.
leiöbeiningar, 3ja tíma kennsluefni á 2 snældum (fsl.).
prentari með mörgum fallegum leturgerðum og
-stæröum. Meö AMSTRAD 8512 er einnig hægt að fá
fullkomin bókhaldskerfi sem henta mjög vel litlum og
meðalstórum fynrtækjum.
IMámskeið: Tölvufræðslan sf. Aimúla 36, s. 687590 & 686790:
Fjárhagsbókhald 6 tímar aOeirts 2.500 kr.
Viöskiptamanna-, sölu- og lagerkerfí ótímar aöeins 2.500 kr.
Ritvinnslunámskeiö 6 tímar aðeins 2.500 kr.
FORRIT FYRIR AMSTRAD:
Samsklptaforrlt: BSTAM, BSTMS, Chit-Chat, Crosstalk. Honeyterm
8256, Move-it. Áactlana- og reiknlforrlt: Pertmaster, Milestone.
Brainstorm, Statflow, Cracker, Master Planner, Multiplan, PlannerCalc.
SuperCalc. Gagnagrunnsforrlt: Cambase, Cardbox, dBase II, dGraph,
dUtil, Delta, Flexifile. Telknlforrlt: Dataplot plus, Datplot III, DR Draw,
DR Graph, PolyploL Polyprint. Forrltunarmál: DR C Basic, Mallard,
Basic, Microsoft Basic, Nevada Basic, Cis-Cobol, Nevada Cobol, RM
Cobol, HiSoft C, Nevada Fortran, Pro FortrarvDR PL/I, DR Pascal MT+,
Nevada Pascal. Pro Pascal, Turbo Pascal. Annað: Skákforr/L Bridgeforrít.
Islensk forrlt: Ritvinnsla (fylgir). Fjárhagsbókhald. Viðskiptamannafor-
rit. Sölukerfi, Lagerbókhald. Nótuútprentun. LímmiÖaútprentun.
Auk púsunda annarra CP/M forrita.
|>TK Bökabúð
l££}Braga
TÖIVUDEILD |9
v/Hlemm Símar 29311 & 621122
TÖLVULAND HF., SÍMI 17850
öll verö miöuö við gengi I. sept. 1986 og staðgreiöslu.
honum og fjölskyldu hans allra
heilla í nútíð og framtíð. Hann er
sá úr sveit brautryðjendanna sem
var sístarfandi að framfara- og
velferðarmálum, hvort heldur var á
fundum, stórmótum eða hvar sem
eitthvað var að gerast hjá hesta-
mönnum. Hann á því láni að fagna
að hafa séð draumana rætast um
framtíð íslenska hestsins og björt-
ustu vonir nálgast veruleika enda
þótt enn sé þetta aðeins áfangi eins
og málin standa í dag. Hesturinn
okkar hefir hlotið verðskuldaða at-
hygli og viðurkenningu allra þeirra
utanlands sem innan sem nokkuð
vit hafa á þessum málum.
Bogi var kjörinn heiðursfélagi
Landssambands hestamannafélaga
og hefír hlotið ýmsa aðra virðingu
og heiður af hálfu hestamanna mjög
verðskuldað. Nú situr Bogi á friðar-
stóli í faðmi Rögnu dóttur sinnar
og Viðars tengdasonar á Vatns-
endabletti 235 með hesthúsið á
næsta leiti. Lifíð heil.
JMG
*
Attræð:
Guðný E.
Ingvarsdóttir
Áttræð er í dag, 25. nóvember,
amma mín og vinur, Guðný E. Ingv-
arsdóttir, Lundargötu 13b, Akur-
eyri.
Ég þakka ömmu minni ómetan-
legan stuðning og hjálpsemi í
gegnum árin, sem varpað hefur
birtu á tilgang lífsins í augum
mínum. Megi hamingja og kærleik-
ur fylgja þér um alla eilífð, amma
mín.
Óðinn Helgi Jónsson
Guðný tekur á móti gestum á
heimili ættingja sinna að Munka-
þverárstræti 35 á Akureyri milli kl.
15 og 19 í dag, afmælisdaginn.