Morgunblaðið - 25.11.1986, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1986
\
Jóhannesarfoorg, AP.
BARCLAYS-bankinn í Bretlandi
hefur ákveðið að selja útibú sitt
í Suður-Afríku, Barclays Natio-
nal Bank of South Africa.
Aðalástæðan var sögð vera slæm-
ar efnahagshorfur í Suður-
Afríku, en jafnframt viðurkennt,
að stjórnmála- og efnaliags-
þvinganir gegn aðskilnaðar-
stefnunni ættu einnig þátt í
ákvörðuninni.
ákvörðun væri viðskiptalegs eðlis
en ekki stjómmálaákvörðun og það
væri því ekki í verkahring stjómar-
innar að skipta sér af henni.
Salan á Barclays í Suður-Afríku
nú kemur ekki á óvart. Að undanf-
ömu hafa ýms bandarísk stórfyrir-
tæki hætt starfsemi sinni þarí landi.
Finnland:
Þeirra á meðal eru IBM, General
Motors og Eastman Kodak. Hafa
þau borið fyrir sig aðskilnaðarstefn-
una í landinu en einnig samdrátt á
viðskiptasviðinu. Líkt og hjá Barcla-
ys eru það innlendir aðilar í
Suður-Afríku, sem hafa yfírtekið
starfsemi dótturfyrirtækjanna þar.
Barclaysbankinn selur
útíbú sitt í Suður-Afnku
Miðflokksmenn vilja
varðveita helgisögu
um Kekkonen forseta
Helsinkl, frá Lars Lundsten, fréttaritara
FINNSKIR miðflokksmenn segj-
ast vera hneykslaðir vegna þess
hversu mikið Kekkonen, fyrrum
forseti, hefur verið gagnrýndur
undanfarið. Miðflokksmenn
sögðu ekki beint, hvaða gagnrýni
þetta væri. En almenningi er
ljóst, að ástæðan fyrir hneykslun
þeirra er sjónvarpsmyndaflokk-
ur um valdaskeið Kekkonens.
Framhaldsmyndin „Valdhafarn-
ir“ er skrifuð af fyrrum þingmanni
Jafnaðarmannaflokksins. í mynd-
inni er Kekkonen, fyrrum forseti,
frekar valdafíkinn og eigingjam og
allir hinir stjómmálamennimir eru
einskonar fábjánar.
Flokksstjóm Miðflokksins kom
saman um helgina og ræddi helstu
deilumál flokksins við jafnaðar-
menn. Þrátt fyrir að flokkamir tveir
séu saman í stjóm greinir þá á um
margt, vegna þess hve stutt er í
næstu kosningar. Kekkonen var
leiðtogi Miðflokksins áður en hann
varð forseti 1956. Núverandi for-
ysta flokksins vill minna á að
Miðflokkurinn gegndi mikilvægu
hlutverki sem forystuflokkur lands-
ins á dögum Kekkonens. Miðflokk-
urinn vill vera arftaki Kekkonens
Morgunblaðsins.
og er þess vegna kappsmál að varð-
veita ákveðna helgisögu um hann.
Fyrir nokkrum dögum ákvað
flokksráð jafnaðarmanna að bera
upp við flokksþingið, að Koivisto
forseti verði forsetaefni jafnaðar-
manna 1988. Jafnaðarmenn telja
sig hafa hag af því að gefa í skyn,
að Koivisto sé miklu lýðræðislegri
í stjómarháttum en fyrirrennari
hans, Kalevi Sorsa forsætisráð-
herra, og formaður jafnaðarmanna
lét einnig i Ijós, að Koivisto væri
eini forsetinn, sem væri jafn lýð-
ræðissinnaður og fyrsti forseti
Finnlands, Stáhlberg. Hann var
höfundur stjómarskrár landsins og
varð frægur meðal annars vegna
þess að hann neitaði að láta kjósa
sig nema einu sinni.
Ódýr fjársjóður
AP/folmamynd
Roy Whetstine heldur hér á 1.905 karata safír, sem hann keypti
í febrúar fyrir tíu dollara á eðalsteinasýningu áhugamanna í
Tuscon í Arizona-fylki í Bandaríkjunuin. Safírinn hefur síðan
verið slípaður og er hann nú metinn á 2,28 milljónir dollara.
Whetstine ætlar að selja eðalsteininn til að tryggja fjárhag sona
sinna til dauðadags.
Geimvarnir:
Sovétmenn komnir lengra
en Bandaríkjamenn?
Barclays-bankinn í Suður-Afríku
verður ekki lagður niður, heldur
verða hlutabrefín í honum seld.
Kaupendumir eru Anglo-American
Co., sem er innlend fyrirtækjasam-
steypa og sú stærsta á sviði
námugraftar í Suður-Afríku. Tvö
önnur innlend fyrirtæki þar munu
einnig eiga aðild að hlutabréfakaup-
unum.
Hér er um að ræða sölu á stærsta
fyrirtæki Breta í Suður-Afríku til
þessa, en Barclays er annar stærsti
bankinn þar í landi með um 26.000
manna starfsliði. í gær var haft var
eftir Chris Ball, framkvæmdastjóra
Barclays í Suður-Afríku: „Mikil vin-
átta hefur verið um langt skeið með
Barclays og Suður-Afríku. Það sem
við erum nú að gera, er því ekki
gert í því skyni að refsa Suður-
Afríku, heldur vegna stjómmála-
legra og fjárhagslegra þvingana."
Talsmenn Verkamannaflokksins
í Bretlandi fögnuðu þessari ákvörð-
un í gær, en nokkrir áhrifamiklir
menn innan íhaldsfíokksins lýstu
yfír andstöðu sinni við hana.
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra vildi ekki tjá afstöðu sína.
Sagði talsmaður hennar, að þessi
ERLENT
0] Electrolux 0] Electrolux ffl Electrolux
RYKSUGUR
í ÚRVALI
Mikill sogkraftur
Frábær ending
Einnig EURO-KREDIT kjörin.
Vörumarkaðurinn hf.
Eiöistorgi 11 -simi 622200
London, Moskva, Reuter.
SOVÉTMENN eru líklega komn-
ir lengra en Bandaríkjamenn,
hvað varðar rannsóknir á geim-
varnarkerfum, að því er ritstjóri
virts rits um varnarmál, Jane’s
Weapon Systems, segir í ritinu
er út kom í gær.
Ritstjórinn, Bemard Blake, segir
m.a. í umijöllun sinni um andstöðu
Sovétmanna við geimvamaráætlun
Bandaríkjamanna, að þeir sem álíti
Sovétmenn ekki búa yfír þekkingu
til að smíða slíkt keifí hafí rangt
fyrir sér. Sovétmenn eigi eina
vopnakerfíð sem til sé. í heiminum
sem geti eytt gerfíhnöttum og séu
að þróa nýtt, mjög fullkomið rat-
sjárkerfi. Blake heldur því fram og
ber fyrir sig bandaríska heimildar-
menn, að um 10.000 vísinda- og
tæknimenn í Sovétríkjunum séu að
vinna að verkefni í sambandi við
notkun leysigeisla og fjöldi annarra
vinni að þróun ýmiskonar vopna-
búnaðar. Blake heldur því einnig
fram, að mesta hætta á að kjam-
orkustíð brjótist út sé vegna þess,
hve mörg þriðja heims ríki eigi
kjamorkuvopn, fremur en að slík
átök bijótist út á milli stórveld-
anna. Tilraunir til að stöðva út-
breiðslu kjamorkuvopna hafi
mistekist.
Um síðustu helgi kom út í
Moskvu bók eftir nokkra af fremstu
vísindamönnum Sovétríkjanna, þar
sem því er haldið fram að Sovét-
mönnum ætti ekki að verða skota-
skuld úr því að veikja þannig
geimvamarkerfi það er Bandaríkja-
menn hafa á pijónunum að það
reyndist gagnslaust sem vamar-
kerfí. Bókin nefnist „Space
Weapons: a Security Dilemma", er
lauslega mætti þýða „Geimvopn:
öryggisvandamál“.* Meðal höfunda
hennar er Yevgeny Velikhov,
stjam- og eðlisfræðingur, sem er
einn af helstu ráðgjöfum stjómar-
innar varðandi geimvopn og var í
föruneyti Gorbachev, aðalritara, er
hann kom til fundar við Reagan í
Reykjavík nú fyrir skömmu. í bók-
inni er því haldið fram, að kostnaður
Sovétmanna vegna aðgerða gegn
geimvamaráætlun Bandaríkja-
manna muni aðeins verða brot af
því, sem það kerfí muni kosta
Bandaríkjamenn.
Norskur sjávarútvegur:
Spá 70% aukn-
iiig'u á útflutn-
ingsverðmæti
Osló, frá Hirtí Gíslasyni, blaðamanni Morgunbladsins.
ÞAÐ ERU bjartar horfur í norskum sjávarútvegi. Áætlad er að út-
flutnmgsverðmæti af fiski muni aukast um 70% á næstu fjórum
árunum, eða fari úr u.þ.b. 10 miiyörðum norskra króna, í 17 millj-
arða árið 1990, miðað við fast verðlag þessa árs. Þessar upplýsingar
koma fram í norska blaðinu Norges Handels- og sjöfartstídende í gær.
Blaðið segir jafnframt að þessi góða
niðurstaða sé byggð á varlegum
útreikningum og aukningin geti
þess vegna orðið meiri. Það segir
að aukningin verði fyrst og fremst
í útflutningi á þorskafurðum og eld-
isfíski. Blaðið hefur eftir banka-
stjóranum Magne Bjömarheim í
Bergen Bank að þessir útreikningar
byggist á spám fiskifræðinga og
jafnframt væntanlegri mikilli aukn-
ingu á fískeldi. Menn hafi farið
mjög varlega í þessa útreikninga,
sem miðast við meðal annars að
verð á fiskafurðum verði sama í dag
og í vissum tilfellum lægra.
Fiskimálastjórinn í Sogni og
fírðafylki, Rolf Petter Vetvik, segir
í samtali við blaðið að sú verðmæta-
aukning, sem fyrirsjáanleg er, muni
hafa veruleg áhrif á ekki aðeins
útgerð og fískvinnslu heldur þau
fyrirtæki sem tengjast sjávarútveg-
inum, sérstaklega þjónustufyrir-
tæki.