Morgunblaðið - 25.11.1986, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 25.11.1986, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1986 55 þangað. En þeir tóku myndir af öllum skjölum og bókum, sem ég á. Þetta hefur ugglaust verið gert til viðvörunar, til að telja fólki trú um að vinna mfn væri á mörkum hins löglega." - í bókinni segir að þú hafir til- búna kafla til að setja inn í bókina ef þú þurfír að fella aðra niður. Áttu mikið efni, sem ekki hefur birst? „Þetta efni myndi ég ekki nota lengur. Nú hef ég fengið sýnu at- hyglisverðara efni. Síðan bókin kom út hafa vitni gefið sig fram og sagt frá hlutum, sem aðeins er ýjað að í „Niðurlægingunni". í síðasta kafla bókarinnar sýni ég að „þrælasalam- ir“ eru reiðubúnir til að ganga svo langt að leggja líf erlendra verka- manna í hættu og senda þá út í opinn dauðann í kjamorkuveri. Nú hef ég fengið sannanir fyrir því að í kjamorkuverum hafa út- lendingar verið látnir vinna hættu- leg störf án þess að þeir væru látnir hafa spjöld til að mæla geislun. Ég hef vissu fyrir því að síðan hafa útlendingar verið látnir vinna, þar sem geislun var mest í verunum og óhjákvæmilegt var að þeir myndu bíða af heilsutjón. Ég veit nú um fimm kjamorkuver þar sem slíkt hefur gerst. Þetta vissi ég aft- ur á móti ekki þegar ég skrifaði bókina. Og skyndilega kemst maður að því að raunveruleikinn varpar skugga á hugmyndaflugið." -I bókinni segir þú að það hafi tekið þig tíu ár að manna þig upp í að takast á við hlutverk Alis. Eru önnur hlutverk, sem þú hefur enn ekki safnað kjarki til að takast á við? „Vissulega. Svona nokkuð gerj- ast með mér, brýst um f mér. Ég er þegar reiðubúinn til að ganga í næsta mál. Ég bíð þess að málaferl- unum ljúki svo ég geti hafist handa. Ég get ekki dregið það lengi því að það bíður mín staða, sem ég get komist í. En ég get ekki greint nánar frá því nú af augljósum ástæðum." -Hafa aðrir blaðamenn reynt að grafast fyrir um athafnir þínar þeg- ar þú ert að störfum undir fölsku flaggi? „Ritstjóm Bild hefur reynt að láta hafa uppi á mér hafði ekki erindi sem erfiði. Ég tek slíkt með í reikninginn og geri ráðstafanir til að koma í veg fyrir það. Leyniþjón- ustan hefur tekið þátt í þessu." -Hvaða leyniþjónusta? „Vestur-þýska leyniþjónustan (Bundesnachrichtendienst) lét hlera hjá mér símann og leyfði ritstjóm Bild í Köln að hlýða á samtöl mín af segulbandi. Þetta komst síðar upp: fréttastjóri á Bild kjaftaði frá. Ritstjóramir voru síðar dæmdir, en útsendarar leyniþjónustunnar, sem gerðu þeim þetta kleift, hafa enn ekki verið dregnir fram í dagsljósið til að standa skil gerða sinna. Vegna þessa verður vinnan sífellt erfiðari, ég þarf að undirbúa mig betur og ganga rösklegar til leiks. En þetta gengur. -Hvaða erindi á svo „Niðurlæg- ingin" til íslendinga? „Erfið spuming. Ég þekki ekki til þeirra vandamála, sem hér em fyrir hendi, og er því ekki dómbær. Eg tel þó kost að hér er auðveldara að fylgjast með. Það er auðvelt að hafa yfirsýn yfir þetta land og lýð- ræði virðist standa hér föstum gmnni. Einnig er náttúran hér ein- stök og má líta á hana sem náðar- gjöf. Aftur á móti tel ég að ég myndi koma auga á marga veika bletti ef ég byggi hér. Eg gæti komið mér fyrir á nokkmm stöðum og ég hugsa að til dæmis í frystihús- um megi bæta úr ýmsu. Ég gæti einnig trúað að á afskekktum stöð- um verði maður að vera í þunga- miðju hlutanna til að vita hvað í raun fer fram. En ég get ekki sagt hvað. Það litla sem ég hef séð af landinu heillar mig og ég hef hug á að koma hingað aftur á næsta ári til lengri dvalar," segir Wallraff og kveður, tannlæknirinn bíður hans. Viðtal: KB FJÁRFESTINGARFÉIAGSINS BRAUT ÍSINN FYRIR TÍU ÁRUM Tilgangur verðbréfamarkaðs Fjárfestingar- félagsins var upphaflega byggður á ráðgjöf og persónulegri þjónustu við almenning og fyrirtæki. Sérfræðingar okkar tryggðu spariQáreigendum raun- verulegan arð af sparifé sínu og veittu fyrirtækjum haldgóða aðstoð við fjár- mögnun. Tilgangurinn er ennþá óbreyttur! Við hjá Verðbréfamarkaði Fjárfestingar- félagsins höfum svo sannarlega verið í fararbroddi f verðbréfaviðskiptum síðast- liðin tíu ár. Á tíu ára starfsafmæli okkar brjótum við enn einu sinni ísinn og bjóðum viðskiptavinum okkar ný bréf - TEKJUBRÉF. Þau skila eigendum sínum ársQórðungslegum launum, sem send eru heim til þeirra í ávísun eða eru lögð inn á bankareikning þeirra. Verðbréfamarkaður Fjárfestingarfélagsins bauð í fyrstu upp á spariskírteini ríkisins. Því næst bættust við verðtryggð veð- skuldabréf, fjárvöxtunarsamningar og kjarabréf. Starfsfólk okkar mun kappkosta að veita ykkurarðbæra ráðgjöf, nú sem áður, enda höfum við frá upphafi lagt áherslu á trausta þjónustu og góða ávöxtun. Q2> FJÁRFESTINGARFÉIAG ÍSIANDS HF Verðbréfamarkaður í tíu ár. Það borgar sig að ræða við okkur um peningamál! !
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.