Morgunblaðið - 25.11.1986, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.11.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1986 19 Gamli bærinn eftirPétur Gunnarsson Reykjavík hlýtur að teljast ung borg. Tvær aldir vega ekki þungt í samanburði við staði úti í Evrópu sem rekja uppruna sinn tvö þúsund ár aftur í tímann eins og að drekka vatn. Við þurfum þó ekki lengi að grúska til að aldur Reykjavíkur snögghækki. Elsti kjaminn á rætur að rekja til innréttinga Skúla fóg- eta upp úr 1750. Og þó eru ekki öll kurl komin til grafar því eins og gerist bara í hnitmiðaðasta skáldskap, valdi Skúli Innréttingum sínum stað á sömu torfu og Ingólf- ur Amarson reisti bæ sinn tæpum 900 ámm fyrr. Sögulega séð ætti því ekki að þurfa að fara mörgum orðum um miðbæinn gamla. Við emm að tala um upphaf íslandsbyggðar og Reykjavíkur í sama orðinu. Allir myndu reka upp ramakvein ef landslagsarkitektar létu uppi áform um að breyta Þingvöllum. Byggja út í vatnið, fylla upp í nokkr- ar gjár og breyta ásýnd Skjald- breiðar. Enda friðum við Þingvelli og gætum þess vandlega að þar sé ekki hróflað við steini. I dag stöndum við andspænis skipulagstillögu sem gerir ráð fyrir útrýmingu margra elstu húsa Reykjavíkur. Svo virðist sem eftir samfelldan hrakfallabálk síðustu ára dragi til úrslita einmitt nú og því er brýnt að staldra við og at- huga vandlega sinn gang. Leiðarljós í umgengni okkar við gömul hús hlýtur að vera saga þeirra. Tökum sem dæmi Unuhús, rautt timburhús í Garðastræti. Vissulega er það fágætt af sjálfs- dáðum vegna þess hve gengið hefur á timburhúsaforða borgarinnar á síðustu ámm. Að auki er það fal- legt í umhverfi sínu. En það kemur annað til sem hlýtur að ráða úrslit- um um vemdun þess: saga Unuhúss ljær því beinlínis helgi. Hér stóð óformlega akademía Islands þegar hún hafði tekið sig upp af lands- byggðinni og flust í bæinn. Um það vitna ótal dæmi í bókmenntum okk- ar og persónusögu. Setjum svo að þessu húsi yrði mtt brott og í staðinn kæmu nokk- ur bflastæði. „Hér stóð Unuhús" gætum við sagt afkomendum okkar og bent inn á milli bflanna. „Það var hér sem Halldór og Þórbergur létu Ijós sitt skína og Ragnar í Smára og Páll ísólfsson. Það var Pétur Gunnarsson hér sem fullkomni maðurinn átti heima og móðir hans sem húsið heitir í höfuðið á. Það var hér sem Stefán frá Hvítadal og Steinn Stein- arr áttu samastað. Þama inn á milli stöðumælanna var sundið sem Halldór orti um „Upp þetta dimma sund: Þar lá mín leið“, o.s.frv. Mikið myndi baminu þykja erfítt að henda reiður á þessari menning- arsögu á einu bílastæði! Ekki er ýkja langt síðan að neð- arlega við Túngötu stóð lítið timburhús sem á var festur skjöldur með áletruninni: „í þessu húsi bjó Jónas Hallgrímsson" og síðan kom ártal. Bömin stautuðu sig framúr orðunum og um leið var komið beint samband við listaskáldið og öldina hans. Síðar var þetta litla hús fjar- lægt og í staðinn unnust bílastæði fyrir eina ijóra bfla. En við reynum ekki einusinni að upplýsa bömin okkar um að undir tilteknum hjól- barða hafí einusinni búið þjóðskáld! Með sama áframhaldi kynni svo að fara að við byggjum í bæ sem hefði misst minnið. Rótlausum, eirðarlausum bæ sambandslausum við fortíð sína. Við sem nú erum á dögum þurf- um ekki að ímynda okkur að við eigum gamla bæinn. Aftur á móti hefur okkur verið trúað fyrir honum stutta stund og eftir því verður tek- ið hvemig við skilum honum áfram til afkomenda. Fáum blandast hug- ur um að í gamla miðbænum hafa verið gerð skipulagsleg mistök sem skaga upp úr, öllum augljós og verða tæplega aftur tekin. En það væri sjaldgæf forherðing að ætla að afmá lýtin með því að þurrka út það sem brotið hefur verið á! Hér er ekki látið að því liggja i*V 40% afsláttur >Mandarínur kr. Appelsínur kr. Bananar kr. Epli, rauð kr. Epli, gul kr. Vínber kr. 56, -pr.kg.| 49,-pr.kg. | 72,-pr.kg. 57, -pr.kg. 56,-pr. kg. 180 VOMUBL Þverbrekku 8 Kópavogi - Símar 42040 og 44140 að gamli bærinn sé góður eins og hann er. Á það skortir mikið og gera þyrfti myndarlegt átak til umhirðu og frágangs. Ríkjandi stefnuleysi og glundroði hafa verið þess valdandi að hvað eftir annað hefur verið hrapað að niðurrifí húsa og önnur látin drabbast niður í van- hirðu og slóðaskap. Borgaryfírvöld verða að móta stefnu í umgengni við gamla miðbæinn þar sem tekið er mið af sögulegu gildi og núver- andi handhöfum þessara húsa gert skylt og kleift að sýna þeim ræktar- semi og virðingu. Miðbærinn er hjarta Reykjavíkur og því eðlilegt að ásókn sé mikil til hámarksnýtingar og gróðastarf- semi. En það er ekki hægt að eiga bæði kökuna og eta. Ef gömlu hús- in verða látin víkja fyrir skamm- sýnni gróðafíkn fáeinna einstakl- inga er hætt við að það aðdráttarafl sem gamli bærinn býr yfír slokkni og músíkin þagni. Auk þess er ástæðulaust að láta sér yfírsjást að margháttuð starfsemi sem rekin er í þessum gömlu húsum nýtur ein- mitt þess andrúms sem þau skapa. Leiðsögumenn ferðamanna geta borið um hve brúnin á útlendingum léttist þegar komið er í gamla mið- bæjarkjamann þótt þeir haldi að leiðsögumaðurinn sé að reyna að losna við þá þegar hann þjappar þjóðarsögunni saman á þessari litlu torfu. Sagan er sameign okkar allra og skyldur okkar við fortíðina þær sömu. Þess væri óskandi að á 200 ára ártíð Reykjavíkur mætti nást samkomulag og friður um gamla bæinn. Viðreisn hans væri verðug afmælisgjöf frá landsmönnum til sinnar höfuðborgar og jafnframt viðurkenning á þeirri staðreynd að án sögulegs jarðvegs erum við litlu betur stödd en gróður án moldar. ©C2Q\^7t^ INkURINN MEÐ DRIFI Á ÖLLUM HJÓLUM FYRIR BÆNDUR - VERK- TAKA - BJÖRGUNARSVEITIR □ 250 cc fjórgengisvél □ Sjálf- stæð fjöðrun á hverju hjóli □ Drifsköft □ Val um drif aftan/ aftan + framan □ Handlæsing á drifi (100% læsing) □ 5 gfrar áfram 1 afturábak □ 3 gíra lágadrif □ Hraðamælir □ 12 I. bensíngeymir □ Hæð undir lægsta punkt 20 sm. □ Þyngd 232 kg. W UMBODID HF. Skútahraun 15, S: 65-17-25, P.o. Box 59,220 Hafnarfjörður. „BIONDA 44 wilkens BSF ''Wlg*'' SILFURBÚÐIN LAUGAVEG 55 SÍMI 11066 SÉRVERSLUN MEÐ BORÐBÚNAÐ í 29 ÁR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.