Morgunblaðið - 15.03.1987, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 15.03.1987, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987 Nefnd skipuð til að gera tillögur um björgunarmál Á að ljúka störfum fyrir mánaðamót DÓMSMÁLARÁÐHERRA hefur skipað þriggja manna nefnd til að gera tillögnr um framtíðarskipun björgunar- mála á hafinu, þar á meðal hver eigi að hafa yfirumsjón með björgunarstjórnstöð þeirri sem er skilyrði fyrir að Islendingar geti skrifað undir samning Alþjóðlegu sigl- ingamálastofnunarinnar um skipulag björgunar á hafinu. Nefnd þessi er skipuð Böðvari Bragasyni lög- reglustjóra í Reykjavík sem er formaður, Snæbirni Jónassyni vegamálastjóra og Þorgeiri Pálssyni dósent og á hún að Ijúka störfum fyrir næstu mánaðamót. Böðvar Bragason sagði í sam- tali við Morgunblaðið að nefndin hefði þegar haldið allmarga fundi og rætt við þá aðila sem eiga hagsmuna að gæta í þessu máli, INNLENT en á sínum tjma voru í gangi við- ræður milli Landhelgisgæslunnar, Slysavamafólags íslands, Flug- umferðastjómar, Siglingamála- stofnunar og Pósts og síma um áðumefnda björgunarstjómsstöð. Upp úr þeim viðræðum slitnaði árið 1985. Nú liggur fyrir Alþingi þings- ályktunartillaga um björgunar- stjómstöð sqm ríkisstjómin komi á fót og stöðinni verði stjómað af björgunarráði. Böðvar sagði aðspurður að nefndarskipunin stangaðist ekki á við þessa tillögu því það væri skylda stjómvalda að vinna að lausn þessara mála og þau hefðu áhuga á að fullgilda alþjóðasáttmálann um björgun á hafínu. Því yrðu stjómvöld að taka ákvörðun hvað sem liði tillögum á Alþingi um skipan mála. Ámi Johnsen alþingismaður flutti tillöguna á Alþingi um björg- unarstjómstöð ásamt fleiri sjálf- stæðismönnum. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að nefnd dómsmaálaráðherra væri að vissu leyti að vinna á svig við tillögu sína, enda væri álitamál hvort þessi mál heyrðu undir dómsmála- eða samgönguráðuneytið. Ami sagðist reikna með að tillaga sín yrði afgreidd á Alþingi fljótlega en hún er nú í allsheijamefnd. Frá því vandamálið með björg- unarstjómstöðina kom upp á yfírborðið eftir síðustu áramót, hefur verið talsverð umræða um björgunarmál meðal björgunarað- ila og sjómanna. Farmanna- og fískimannasambandið gekkst meðal annars fyrir lokuðum fundi síðastliðinn miðvikudag þar sem björgunaraðilar og aðrir þeir sem látið hafa þessi mál til sín taka voru fengnir til að ræða ástandið í björgunarmálum á hafínu og hvemig þeim yrði best stjómað. Skipuleg leit að brjóst- krabbameinum hefst í haust SKIPULEG röntgenmyndun bijósta I leit að krabbameinum hefst í haust og hafa fimm milljónir króna verið veittar til verkefnisins. Sænskar rannsóknir hafa sýnt að hægt er að lækka dánartíðni sjúkl- inga með brjóstkrabbamein um þriðjung sé skipulagðri leit beitt. Á fyrstu tveimur árunum verður reynt að ná til kvenna á aldrinum frá 40 til 69 ára, auk 35 ára kvenna, eða alls um 33.000 kvenna. Konum- ar verða síðan skoðaðar á tveggja ára fresti, segir í frétt Heilbrigðis- mála. Stefnt verður að því að sameina þessar rannsóknir leghálskrabba- meinsleitinni, en leit að legháls- krabbameini hefst eftir sem áður við 25 ára aldur. Árið 1985 greind- ust bijóstakrabbamein í 99 konum hér á landi. Fyrstu árin eftir að hópskoðun með röntgenmyndatöku hefst er talið að ár hvert muni um 100 krabbamein greinast í leit og innan við 80 á annan hátt, segir jafnframt í fréttinni. Þá segir að með röntgenrann- sóknum sé hægt að greina mun minni hnúta en með öðrum aðferð- um. „Ef æxlið er ekki orðið stórt er hægt að komast hjá því að taka allt bijóstið. Hópskoðanimar munU því leiða til þess að unnt verður að beita minni háttar skurðaðgerð oft- ar en nú tíðkast.“ Talið er að sjúkrahús muni geta annað þeirri ijölgun skurðaðgerða sem leitin hefur í för með sér, að- staða til lyfjameðferðar og eftirlits sjúklinga sé viðundandi, en óvíst hvort unnt verði að veita geislameð- ferð fyrr en línuhraðall verður tekin í notkun á Landspítalanum snemma árs 1988. Samningur byggingarmanna og viðsemjenda: Knut 0degárd, forstjóri Norræna hússins, og Ólafur Kvaran, sem sá um uppsetningu sýningarinnar, við verk Sigurðar Guð- mundssonar. „Sjávarlandslag“ í Norræna húsinu SÝNINGIN „ Sj ávarlandslag" verður opnuð I Norræna húsinu í dag, sunnudaginn 15. mars kl. 15.00. Á sýningunni eru mál- verk eftir tvo norska málara, Olav Stromme og Björn Tufta, og skúlptúrar eftir íslendingin Sigurð Guðmundsson. Í fréttatilkynningu Norræna hússins segir: „Olav Stromme (1909-1978) er af þeirri kynslóð norskra lista- manna, sem varð fyrir áhrifum af alþjóðlegum straumum í mál- aralist um 1935, einkum súrreal- isma. Þess háttar list átti ekki upp á pallborðið í Noregi lengi vel og svo fór að Olav Stremme var sá eini þessara listamanna, sem hélt sínu striki og er nú viður- kenndur brautryðjandi nútíma- málaralistar þar í landi. Bjöm Tufta er aftur á móti af yngstu kynslóð norskra málara, fæddur 1956. Hann kom fyrst fram á sýningu 1979 með stóra landslagsmynd, en landslags- myndir hafa jafnan verið mikil- vægar í norskri list. Bjöm Tufta hefur að mestu haldið sig við þær, en túlkað yrkisefnið á sinn eigin hátt. Myndir hans þylq'a þó minna á myndir Olav Stromme frá fímmta áratugnum og er fróð- legt að bera saman myndir þeirra á sýningunni. Sigurð Guðmundsson ætti að vera óþarft að kynna mörgum orðum. Hann er einn fárra íslend- inga, sem hafa gert garðirin frægan úti í hinum stóra heimi. Hann hefur verið búsettur í Hol- landi undanfarin ár, en vakti fyrst athygli hér með SÚM-hópnum kringum 1970. Hann hefur feng- ist við margs konar listform, en á þessari sýningu eru sem fyrr segir eingöngu skúlptúrar eftir hann.“ Akvæðisvmna hækkar um 8,5% Frá undirritun samninganna. AÐ mati vinnuveitenda er samn- ingur sá sem gerður var við byggingarmenn í fyrrakvöld inn- an þess ramma, sem settur var í samningi Alþýðusambands ís- lands og Vinnuveitendasambands íslands f desember á síðasta ári. Lágmarkslaun eru þau sömu og hjá öðrum iðnaðarmönnum, en ákvæði eru um aldurhækkanir eftir starf í eitt og þijú ár. Ákvæð- isvinna hækkar um 8,5% frá gildistöku samningsins og er þar Leiðrétting í forystugrein Morgunblaðsins í gær um sigur Vöku félags lýðræðis- sinnaðra stúdenta f stúdentaráðs- kosningunum segir, að hlutfall Vöku í þessum kosningum, 40,9%, sé hið hæsta, sem félagið hafí hlo- tið í hálfrar aldar sögu sinni. Þetta er ekki rétt. Vaka hefur nokkrum sinnum hlotið yfír 50% atkvæða og hlaut til dæmis 1940 56,9%. í kosn- ingunum nú var hins vegar fylgis- aukning Vöku frá kosningunum á síðasta ári meiri en nokkru sinni síðan 1938 eins og Eyjólfur Sveins- son, formaður Vöku, benti á í Morgunblaðssamtali á föstudaginn. innifalin áfangahækkun 1. júní. 1,5% áfangahækkun kemur 1. október, eins og ákvæði eru um í ASÍ/VSÍ samningnum og greiðslur vegna vinnufata, fæðis og ferða á vinnustað hækka. Samningurinn gildir án uppsagn- arákvæða frá 1. mars til áramóta. Gunnar S. Bjömsson, formaður Meistarasambands byggingar- manna, telur að samningurinn þýði 3-3,6%. raunhækkun launa, sem einkum sé tilkomin vegna hækkunar ákvæðisvinnunnar, en um fjórðung- ur vinnumagns þessara hópa sé unninn í ákvæðisvinnu. „Samningur- inn er alveg tvímælalaust í anda ASÍ/VSÍ samkomulagsins. Samn- ingaviðræður gengu svona hægt fyrir sig vegna ágreinings um þau mörk, sem þar eru sett, en það tókst að halda samningnum innan þeirra marka," sagði Gunnar. „Ég tel að það hafí náðst áfangi að því marki, sem við stefndum að, að færa taxtana að greidda kaupinu, þó hann sé ekki stór,“ sagði Bene- dikt Davíðsson, formaður Sambands byggingarmanna. Hann sagði að það sem byggingarmenn hefðu fyrst og fremst haft við samning ASÍ og VSI í desember að athuga væri að hann hefði einungis verið grunnur, sem eftir hefði verið að fylla út í og bygg- ingarmenn hefðu tekið skref í þá áttina með þessum samningi. Við gildistöku samningsins hækk- ar ákvæðisvinna um 8,5%. Þar er um 5% grunnkaupshækkun að ræða, 2% koma vegna launahækkunarinn- ar 1. mars og 1,5% vegna samnings- bundinnar launahækkunar 1. júní, sem kemur til framkvæmda strax frá gildistöku samningsins. í samn- ingnum eru ákvæði um að allt Stór-Reylqavíkursvæðið, utan Mos- fellssveitar, verði eitt vinnusvæði. Við það spara vinnuveitendur sér kostnað af flutningi og fæði starfs- manna og fá þeir í staðinn greiddar 4 króna mætingagjald fyrir unnna klukkustund. Þá hækkar vinnufata- gjald um krónu á klukkustund og verður 2,60 í stað 1,60 áður. Gerður er fastlaunasamningur með tveimur starfsaldurshækkunum við þá sem starfa á verkstæðum. Lágmarkslaun verða 36.200 krónur og kemur 3% hækkun á þau eftir starf í greininni í eitt ár og 6% eftir starf í þijú ár. Auk þess eru ákvæði um að flokkstjórar fái 15% hækkun ofan á taxta. Lágmarkslaun í tíma- vinnu verða við gildistöku samnings- ins tæpar 250 krónur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.