Morgunblaðið - 15.03.1987, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 15.03.1987, Blaðsíða 31
■ ' r v-,w. >■/ /: WT*;anv\W fiioi/. rg|,i!»f%ROM QR • MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987 31 hafi horfið, enginn veit hvert, þó er vitað að stund og stund þurfti hann að eyða í tugthúsi sakir slagsmála og óhóflegrar notkunar á brennivíni og eitur- lyfjum, sem hafa fylgt leikaran- um alia tíð. Það er ekki lengra síðan en í vetur að honum var stungið inn eftir að á honum fannst talsvert magn af hassi. Kvikmyndir og sjónvarp Síðari hluta áttunda áratugar- ins lifði Stacy Keach í kyrrþey. Hann lék að vísu í örfáum kvik- myndum, fæstum góðum, en var þá að byrja að leika í sjón- varpsþáttum, vinum hans og velgjörðamönnum til mikils ama og vonbrigða. Hvað var orðið af manninum sem sagður var arftaki sjálfs Brando? Keach bjó í fjögur ár með söngkonunni Judy Collins, lærði á píanó og gítar og dreymdi í þessari vímu um að verða rokkstjarna ekki ósvipuð Alice Cooper vini sínum. Það var svo árið 1980 að Stacy tók höndum saman við bróður sinn, James, og þeir skrifuðu kvikmyndahandrit um þá alræmdu glæpabræður Frank og Jesse James. Þeir fengu aðra raunverulega bræð- ur sem þeir þekktu til að leika hina félagana í Jesse James- genginu. Það voru þeir Randy og Dennis Quaid, Keith og Ro- bert og David Carradine, og Nicholas og Christopher Guest. Myndin, sem nefndist The Long Riders, þótti heppnast mjög vel, með henni var kúrekamyndin endurlífguð eftir ára langa niður- lægingu. Þar með var Stacy Keach aftur mættur til leiks, hressari og fjörugri en nokkru sinni. En þó er ekki hægt að segja að hann hafi leikið í betri mynd- um en áður. Þvert á móti, kvikmyndir hans á níunda ára- tugnum (dæmi: Fiðrildið með Piu Zadoru) eru flestar best gleymdar. Það var hins vegar í sjónvarpinu sem Stacy Keach vakti fyrst verulega eftirtekt. Hann byrjaði á því að leika lífvörð Lincolns í þáttaröðinni Blátt og grátt, (sem leikarinn lítur á sem sitt besta verk), síðan lék hann í Daisy prinsessu og í Dóttur Mistrals þar strax á eftir. Enn er ónefndur Mike Hammer, sem nú fer hamförum á íslenska ríkissjónvarpsskján- um. Sögurnar af Mike Hammer (sem eru alveg kostulegt sam- safn af gömlum klisjum) komu fyrst fram í bókarformi kringum 1950 og gerðu höfund þeirra, Mickey Spillane, heimsfrægan á augabragði. Stacy Keach er kannski ekki alveg fæddur inn í þetta hlutverk; og þó, hann nýt- ur sín ansi vel í hlutverki aðal- hetjunnar, sem er í rauninni ekki svo ólík gömlu hlutverkunum hans á skjánum, kaidrifjaðir menn sem unna mest kvenfólki og kampavíni milli þess sem þeir kreppa hnefana og senda byssukúlur herbergja á milli. „Það skemmtilegasta við að leika Mike Hammer," segir Stacy Keach, „var að byrja á leikfimiæfingunum aftur, en þeim hætti ég fyrir mörgum árurn." Keach fékk sérstakan þjálfara til verksins, engan ann- an en einkaþjálfara John Tra- volta, en sá kann að pískra vini sína áfram uns árangur næst. Stacy Keach hefur alltaf haft áhuga á að leikstýra mynd sjálf- ur og um þessar mundir er hann að leita að hentugu handriti. HJÓ sftwsteífegnjí í atvinnueldhúsið Eigum til afgreiðslu af lager 10 bakka gufusuðu, bökunar- og steikarofna frá Senking-Juno í Vestur-Þýskalandi. Tugir slíkra ofna eru í notkun hér á landi. Leitið nánari upplýsinga á skrifstofu okkar. jonco JÓN JÓHANNESSON & CO. S.F. UMBOÐS OG HEILDVERSLUN Hafnarhúsinu v/Tryggagötu, sími 15821. Þegar tœknilegir yf irburðir og glœsileg hönnun fara saman, -er útkoman: Volkswagen Golf Þeir sem kunna aö meta bíl sem er allt í senn: Fallegur og vandaöur, netturog rúmgóöur, kraftmikill og sterk- byggöur- þeir velja V.W. Golf. Aksturseiginleikar V.W. Golf eru frábærir. Þar kemur fyrst og fremst til framhjóladrifiö, sérstaklega mikið fjöðrunarsvið, bæöi áfram- og afturási, hæfilega mjúk fjöðrun, afar rásfast tannstangarstýri og tiltölulega langt hjólahaf, ásamt mikilli sporvídd áfram- ási. Allt þetta ásamt mjög lágum vind- stuöli gerir V.W. Golf aö óskabíl viö allar aðstæður. V.W. Golf er með vélbúnað, sem erfitt er að finna samjöfnuð við. Sjálfur hreyfillinn hefur viðbragðsflýti og afl, sem kröfuharðir bílstjórar kunna vel að meta. Niðurfærsluhlutföll á gírkassa og drifi eru valin með tilliti til hámarksaf- kasta en lágmarkseyðslu eldsneytis. All- ur vélbúnaður í Golf er gerður til að end- ast og þess vegna er viðhaldskostnaður ótrúlega lítill. V.W. Golf er bíll, sem hefur öðlast fastan sess í vitund manna fyrir alhliða kosti og áreiðanleika. Hann heldur verðgildi sínu lengur og betur en fiestir aðrir bílar vegna þess hversu endingar- góður og vinsæll hann er. m HEKLAHF Laugavegi 170-172 Slmi 69 55 00 ekkert annaó er Volkswagen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.