Morgunblaðið - 15.03.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987
37
Þorlákshöfn:
Björgunarsveitarmenn byggja
Þrjár plötur gefnar út í
tengslum við söngvakeppnina
STEINAR hf. hafa sent frá sér
þrjár hljómplötur með lögfum sem
verða í undanúrslitum í „Söngva-
keppni sjónvarpsins“, sem nú er
að hefjast. Hér er um að ræða
tveggja laga plötur, en þó sömu
lögin á báðum hliðum og eru þau
sungin öðru megin en eingöngu
leikin á hinni hliðinni.
Lögin á plötunum er „LSfið er lag“
eftir Friðrik Karlsson, Gunnlaug
Briem og Birgi Bragason í flutningi
hljómsveitarinnar Model, „Norður-
ljós“ eftir Gunnar Þórðarson við
texta Ólafs Hauks Símonarsonar,
sungið af Eyjólfí Kristjánssyni og
„Sofðu vært“ eftir Ólaf Hauk Símon-
arson í flutningi söngkonunnar
Diddú.
Eins og fram hefur komið í frétt
Morgunblaðsins hefur fyrirkomulagi
söngvakeppninnar verið breytt frá
því í fyrra. Höfundar bera nú sjálfir
ábyrgð á lögum sínum hvað varðar
útsetningar og flytjendur og munu
sömu flytjendur fylgja lögunum á
leiðarenda. Þá hefur hljómplötuút-
gefendum gefist kostur á að taka
þátt í framkvæmdinni með útgáfu-
rétti á einstökum lögum og hafa
Steinar h.f. hér riðið á vaðið með
útgáfu á þessum þremur lögum.
Þorlákshöfn.
BJ ÖRGUN ARSVEITIN í Þor-
lákshöfn stefnir að því að flytja
í nýtt húsnæði á þessu ári en við
það gjörbreytist aðstaðan. Nú-
verandi húsnæði er alltof lítið
og óhentugt en það var á sínum
tíma hálfgerður kofi sem björg-
unarsveitarmenn gerðu upp.
Nýja húsið er 10x25 metra stál-
grindahús, keypt hjá Garða Héðni
í Garðabæ. Byggingaframkvæmdir
hófust 28. september 1985. í dag
er húsið rúmlega fokhelt og farið
að vinna að innréttingum.
Fé til byggingarinnar er víða að
komið, frá Slysavarnafélagi íslands
200.000 kr., frá Ölfushreppi
500.000 kr., og sama fjárhæð er á
áætlun hreppsins á þessu ári. Tölu-
vert fé hefur einnig safnast hjá
einstaklingum, fyrirtækjum og fé-
lagasamtökum.
Þessir aðilar hafa líka verið
ósparir á að lána vélar og tæki
endurgjaldslaust
Aðaltekjuöflun deildarinnar hef-
ur verið að selja blóm og kaffi sem
þorpsbúar hafa tekið frábærlega
vel.
Félagar sveitarinnar og velunn-
arar hafa unnið samtals 833
vinnustundir og er þó hætta á að
eitthvað sé vantalið.
Jón Ii. Sigurmundsson
Steinar h.f
Jass og blús
á Hótel Borg
JASSVAKNING efnir til tón-
leika á Hótel Borg á næstkom-
andi miðvikudagskvöld. Á
tónleiknum verður eingöngu
flutt jass og blús-tónlist.
Meðal flytjenda er hljómsveitin
Blúshundar, sem fram kemur í
fyrsta skipti. í hljómsveitinni eru
Bubbi Morthens, Björgvin Gísla-
son, Guðmundur Ingólfsson,
Þorleifur Guðjónsson og Ásgeir
Óskarsson. Þá mun hið sígilda
jass-tríó Guðmundar Ingólfssonar
koma fram svo og hljómsveitin
Súld, sem vakti verulega athygli
á síðustu tónleikum Jassvakning-
ar á Borginni.
(Fréttatílkynníng)
Morgunblaðið/Einar Falur
Bubbi Morthens verður meðal
þeirra sem koma fram á jass-
blúskvöldinu á Borginni á
miðvikudagskvöld.
Morgunblaðið/Þorkell
Flytjendur og höfundar tveggja af þeim þremur lögum sem Steinar
h.f. hafa gefið út, Eyjólfur Kristjánsson, Gunnar Þórðarson, Ólafur
Haukur Símonarson og hljómsveitin Model, en hana skipa Eiríkur
Hauksson, Edda Borg, Eva Albertsdóttir, Friðrik Karlsson, Erna
Þórarinsdóttir og Gunnlaugur Briem.
APRÍL
ÁGÚST
ÁGÚST
ÁGÚST
OKTÓBER
OKTÓBER
OKTÓBER
SEPTEMBER
SEPTEMBER
SEPTEMBER
Benidorm sumaráætlunin 1987 er komin. Pantaðu tímanlega því s.l.
sumar komust færri með en vildu á Hvítu ströndina á Spáni. Benidorm
býður upp á góða gistingu, frábæra matsölu og skemmtistaði. Aðstaða
til íþróttaiðkunar er einstök, skemmtigarðar og tívolí af bestu gerð.
Auðvitað er líka hægt að njóta lífsins í ró og næði á ströndinni og fara
í skoðunarferðir um nágrennið með fararstjórum Ferðamiðstöðvar-
innar. Benidorm er einn sólríkasti staðurinn á suðurströnd Spánar,
það mælast 306 sólardagar á ári.
Pantaðu strax, dagsetningarnar á brottfarardögunum eru hér í auglýs-
ingunni. Við Iánum þér myndband um Benidorm endurgjaldslaust.
FERÐA.. C&HÍccd
MIÐSTOÐIIXI Tccwd
Páskaferð — 2 vikur 15. apríl — Verð frá kr. 27.200.-
AÐALSTRÆTI 9-REYKJAVÍK - S. 2 8 1 3 3
BJARN) D/SlA