Morgunblaðið - 15.03.1987, Qupperneq 9
V'Oí.'r VílAM ?ir ÍIITI"'/'fTTyT/ÍMTTO flT'TTA TfII/TT
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987
P
9
HUGVEKJA
Kanverska
konan
eftir séra JÓN RAGNARSSON
Sagan af kanversku konunni
er, eins og fleiri kraftaverkasögur
Nýja testamentisins, saga af trú
— og af svari Guðs við þeirri trú.
Þetta er einnig saga um trú, sem
Drottinn prófar.
Kanverjar voru í litlum metum
meðal gyðinga á dögum Jesú.
Þeir voru minnihlutahópur, sem
ekki tilheyrði ísraelslýð og þeir
tignuðu ekki ísraels Guð. Þeir
máttu því venjast afgæðingshætti
og fyrirlitningu í samskiptum
sínum við syni og dætur Síonar.
Þessi kona, sem kom og leitaði
eftir hjálp Jesú vegna dauðvona
dóttur sinnar, var vön því að vera
niðurlægð. Hún lifði við háðung
og sársauka, en var tilbúin að
þola það allt, ef það mætti verða
barni hennar til lífs.
Þess vegna áræðir hún að
ávarpa Jesúm og biðja hann að
lúta svo lágt að hlusta á sig. —
Hann er fár í fyrstu, og kvabbið
í konunni fer í taugamar á læri-
sveinunum. Þeim leiðist að hafa
þennan kvenmann volandi og
nauðandi á eftir sér um allan bæ,
og biðja Jesúm að gera eitthvað,
til að losna við hana.
Jesús segist eiga að sinna týnd-
um sauðum af húsi ísraels, fyrst
og fremst. Aðrir verði að bíða.
En þessi kona lætur sig ekki
við fyrstu mótbámr. Hún veit að
hún hefur allt að vinna. Hún er
af vanvirtri þjóð og hefur því ekki
mannorðs að gæta — og dóttir
hennar er dauðvona. Hún hefur
engu að tapa.
Jesús svarar henni út úr, eins
og hún mátti búast við af ísraels-
manni.
Hann líkir sér við lifandi brauð,
sem sent er bömum ísraels. Kraft-
ur hans er ætlaður húsi og
kynþætti Davíðs. Hann er ekki
sendur öðru fólki, ekki minnihátt-
ar þjóðum.
En trú konunnar tekur hann á
orðinu. Allt atferli hennar vitnar
um trú. Hún hefur ákveðið að
setja allt traust sitt á Jesúm, og
hún hefur ákveðið að gefast ekki
upp í því trausti. Hún þráast við
í trú sinni. Hún bítur sig fasta i
það, að bónleið skuli hún ekki
snúa heim.
Margur hefði snúið frá við þau
nöturlegu svör, sem hún fékk í
fyrstu. Trúarþrek er ekki öllum
gefið í það óendanlega. Hún
þreytist ekki að biðja, þó að lítið
komi út úr því á stundinni. .
Hún skynjar almætti Guðs og
kærleika í Jesú.
Hún kemur með lífsblóm sitt
deyjandi og biður af öllu hjarta,
allri sálu og öllum mætti. Hún
biður um bót í lífsins stríði — og
fær hana. Gegn öllum líkum.
Vegna trúar sinnar.
Þar sem mannlegum rökum
sleppir, þar tekur Guð við — og
traustið til hans.
„Þótt ég öðlist eigi/ gef ei ég
hugsa megi/ Mín bæn til einskis
er/ Þótt ekkert annað fái ég/ í
auðmýkt hjartans má ég/ í von
og trausti tengjast þér.“
Það var von kanversku kon-
unnar, sem leiddi hana á fund
Jesú. Það var traustið á mátt
hans — sköpunarmátt Guðs í
mannlegri mynd, sem kallaði fram
bæn hennar. Bæn um hjálparráð.
Mola. Afgangsnáð.
Hjálp Guðs er ekki mæld í heil-
um eða hálfum skömmtum.
Snerting við Krist og eiga orða-
stað við hann í trú. Það er hjálp
Guðs öll. Molinn er hjálpin öll.
Öll náð Guðs er fólgin í hinu
smæsta broti.
Altarissakramentið varðveitir
þennan skilning. Kristur — Guðs
sonur — krossfestur og upprisinn
— Kristur, hjálparráð Guðs til
mannanna, er allur í öllum mætti
sínum og kærleika í þeim smáu
brauðbitum og sopum, sem þar
eru á borðum.
Kirkjan öll — alheimskristnin —
er öll í þeim söfnuði sem krýpur
við gráður sóknarkirkjunnar, þar
sem er kristnir trúmenn allra tima
í okkur, sem þar kijúpum og það
er Kristur hinn upprisni, sem lok-
ar hringnum á móti okkur.
Við borð Drottins er kjarni
kristins safnaðarlífs. — Þaðan
hijóta molar hjálpræðis.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Makaskipti!
Óskum eftir einbhúsi í Austurbænum í Rvík. Æskil.
stærð ca 180-280 fm, helst með tvöf. bílsk. í skiptum
er boðið 142 fm einb. ásamt 32 fm bílsk. á góðum stað
í Árbæjarhverfi. Góð milligjöf. Ef þú vilt minnka eða
breyta til þá er þetta gott tækifæri.
S.62-I200 ___________</ÍSÍ£_
Kári Fanndal GuðbrandMon,
Gattur Jónsson hri.
GARÐUR
Skiohi >lri'
Blönduhlíð — 6 herb.
Til sölu góð 130 fm íb. á 2. hæð í fjórbýli. Tvær saml.
stofur, hol og 4 svefnherb., þar af eitt forstofuherb.
30 fm bílsk. Verð 4,7 millj.
Fannafold — tvíbýlishús
Til sölu tvíbýlishús með bílsk. Önnur íb. 4ra herb. ca
130 fm og hin 3ja herb. ca 80 fm.
Fasteignasalan Kjörbýli,
símar 43307-641400.
FJARFESTINGARFELAGIÐ
VEBÐBREFAMARKAÐURINN
Gengið í deo 15. mars 1987 |\ m&'" mM — — * m M m
Kjarabréf
Gengi pr. 13/3 1987 = 1,952
500 = 976
5.000 = 9.760
50.000 = 97.600
Tekjubréf
Gengi pr. 13/3 1987 = 1,136
100.000 = 113.600
500.000 = 568.000
Innlausnarhæf
spariskírteini
Innlausnar- dagur Flokkur Nafn- vextir
10. jan. '87 1975-1 4,3%
25. jan. '87 1973-2 9,2%
25. jan. '87 1975-2 4,3%
25. jan. '87 1976-2 3.7%
25. jan. '87 1981-1 2,8%
1. feb. '87 1984-1A 5,1%
25. feb. '87 1979-1 3,7%
1. mars '87 1982-1 3,5%
1. mars ’87 1983-1 3,5%
10. mars ’87 1976-1 4,3%
25. mars '87 1977-1 3,7%
25. mars '87 1978-1 3,7%
15. apríl '87 1980-1 3,7%
Tilboð óskast í hlutabréf ÍSLEFiSKS MARKAÐAR HE.
að nafnvirði kr. 302.000 (1,67% heildarhlutafjár).
Tilboðum undir tólf-földu nafnverði ekki tekið.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
Höfiun eiitnig í umboðssölu
ný hlutabréf í Amarflugi hf.
fjármál þín - sérgrein okkar
Fjárfestingarfélag íslands hf„ Hafnarstræti 7,101 Reykjavík. © (91) 28566, © (91) 28506
símsvari allan sólarhringinn