Morgunblaðið - 15.03.1987, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987
Jimmy Reed
Blús
Árni Matthíasson
Keith Richards, hinn helm-
ingurinn af bresku rokkhljóm-
sveitinni The Rolling Stones,
sagði í viðtali fyrir skömmu að
The Rolling Stones hefði verið
stofnuð til að herma eftir
Jimmy Reed. Margir hafa án
efa hváð og velt því fyrir sér
hver þessi Jimmy Reed væri,
en blúsáhugamönnum var þetta
engin opinberun.
Jimmy Reed var nefnilega einn
af frægustu blúsmönnum sinnar
samtíðar og það voru fleiri en
Rolling Stones sem leituðu til
hans sem fyrirmyndar. Þó var
hann flogaveikur alkóhólisti, og
hvorki læs né skrifandi.
Jimmy Reed fæddist í septem-
ber 1925, yngstur tíu systkina.
Faðir hans kenndi honum undir-
stöðuatriðin í hljóðfæraleik og sjö
ára var drengurinn farinn að geta
leikið lög á gítar. Hann æfði sig
síðan með kunningja sínum, Eddie
Taylor, sem síðar átti eftir að
á flogaveikina sem fram hafði
komið um svipað leyti og hann
varð landsfrægur. Eigendum
Vee-Jay var svosem sama þó
Jimmy væri að drekka sig í hel á
meðan hann skilaði af sér plötum
sem seldust og virtust þær seljast
þeim mun betur sem söngurinn
væri meira drafandi og óskýrari.
Það varð Jimmy síðan til happs
að hann fékk sér nýjan umboðs-
mann, A1 Smith, sem varð eins-
konar 24 tíma barnapía fyrir
Reed. A1 hélt honum frá
brennivíni og hélt honum að æf-
ingum. Einnig sá hann um að
senda peninga heim úr hinum
mörgu tónleikaferðum Jimmys.
Umönnun Als gat þó ekki bjargað
Jimmy nema í nokkur ár. Það
varð ekki aftur snúið og á síðustu
upptökum Jimmys, áður en hann
hætti að taka upp á sjöunda ára-
tugnum, heyrist að það var lítil
von orðin um að hann ætti sér
viðreisnar von. Hann var þó að
undirbúa að snúa aftur til tónlist-
arinnar þegar hann lést úr hjarta-
slagi í ágúst 1976.
Jimmy Reed skildi eftir sig
Jimmy Reed reynir að muna næsta gítargrip,
koma mjög við sögu. Sextán ára
ákvað Jimmy að helga sig tónlist-
inni og fór til Chicago, þar sem
hann ætlaði sér að gerast full-
numa í tónlistinni. Þar hitti hann
Eddie Taylor aftur, sem gaf hon-
um góð ráð og hjálpaði honum
að komast að hjá hinu nýstofnaða
Vee-Jay hljómplötuútgáfufyrir-
tæki. Eddie sá um að gefa Jimmy
undirstöðuna í Jimmy Reed
hljómnum sem átti eftir að afla
Jimmy mikils fjár og frama.
Blúsinn var að breytast á þess-
um árum, Chess-hljómurinn var á
undanhaldi og hinn seiðandi, dá-
leiðslukenndi bassataktur Jimm-
ys, sem var kominn frá Eddie,
gerði Jimmy að stjörnu. Til marks
um það má nefna árið 1956, þeg-
ar Jimmy kom fimm lögum á
toppinn á meðan Muddy Waters
kom tveim og Little Walter aðeins
einu.
Upp úr því fór þó að halla und-
an fæti hjá Jimmy, ef ekki hvað
vinsældimar varðaði, þá hvað
varðaði hann sjálfan. Hann var
orðinn alkóhólisti og var sjaldan
edrú, oft svo fullur að hann vissi
ekki með hveijum hann var að
spila það og það skiptið. Kona
hans, „Mama“ Reed, fór yfirleitt
með honum í hljóðverið og söng
lágróma fyrir hann lögin jafnóð-
um, en Jimmy átti í erfiðleikum
með að læra texta, bæði vegna
þess að hann gat ekki lesið og
líka vegna þess að hann var alltaf
svo fullur. Hann varð og að hafa
Eddie fyrir framan sig meðan lög-
in voru tekin upp, til þess að hann
gæti skipt um grip á réttum tíma.
Drykkjan hafði einnig slæm áhrif
mikið af tónlist á plötum og þar
á meðal mikið af tónlist sem var
(og er) stórskemmtileg. Ekki fer
þó mikið fyrir tilfinningunni og
stefin eru (vægast sagt) afar ein-
föld. Það breytir því ekki að
Jimmy flutti lögin á einstakan
hátt og gerði þau að öðru og
meira en efni stóðu til. Nægir að
nefna lög eins og Bright Lights,
Big City, Honest I Do, Babe
What You Want Me to Do, Caress
Me Babe, Come Love, I’m the
Man (Down There) o.fl., o.fl.
Þessi lög, sem eru öll með því
besta sem Jimmy Reed tók upp,
er öll að finna á plötum sem
Charly hefur gefið út og fást allar
hér á landi. Það eru plöturnar
Upside Your Head, High and
Lonesome, Got Me Dizzy og I’m
the Man (Down There). Af þeim
er óhætt að mæla skilyrðislaust
með Upside Your Head, sem á
eru lög eins og Shame, Shame,
Shame, Ain’t that Loving You
Babe, Bright Lights Big City,
Honest I Do, Baby What You
Want Me to Do og Going To New
York, og Got Me Dizzy. Hinar
plötumar eru líka góðar, þó ekki
séu þær eins góðar. Á High and
Lonesome er hljómurinn lélegur
og I’m the Man (Down There) er
eiginlega bara fyrir þá sem haldn-
ir eru söfnunaráráttu, á þeirri
plötu eru helst lög frá upphafi
ferils Jimmys hjá Vee-Jay og lok-
um hans. Þar er margt gott að
fínna, en Jimmy er orðinn svo
þvoglumæltur á síðustu Vee-Jay
upptökunum að þær hafa eigin-
lega mest gildi fyrir áhugamenn
um alkóhólisma.
ERHÚNTILBÚINUNDIR TRÉVERK
EÐA ER HÚN BARA FOKHELD?
Þegar borið er saman verð á PC-tölvum þá er margs að gæta:
er hún tilbúin undir tréverk eða er hún bara fokheld?
PC-tölvan er rúmlega
tilbúin undir tréverk því
með Wang PC-tölvuni fylgir
☆ DOS-stýrikerfi
☆ Valmyndakerfi
☆ Wang ritvinnsla
☆ Alíslenskt lyklaborð
Jafnframt bjóðum við
mikið úrval af hug-
búnaði sem hentar
verkefnum þínum.
( WANG)
(WANG ) Heimilistæki hf r wang)
'-------’ TOLVUDEILD SÆJUNIS SÍMI27500 '-'
á myndbandstækjum
GoldStar GHV-1221 "High Quality" GoldStar GHV-51FP
Greiöslukjör: EURO KREDIT útborqun eftirstöövar á
Okr. 11 mán.
Skuldabréf 8000 kr. 6-8 mán.
Takmarkaö magn